Morgunblaðið - 04.07.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.07.1975, Blaðsíða 1
36 SIÐUR 148. tbl. 62. árg. FÖSTUDAGUR 4. JULÍ 1975 PrentsmiSja Morgunblaðsins. Wilson situr við sinn keip Möguleikar á málamiðlun við verkalýðinn AP-simamynd. VERKFALLI LOKIÐ — Sorphreinsunarmenn i New York sneru aftur til vinnu í gær og áttu þá mikið verk fyrir höndum: að hreinsa upp 50.000 lestir af rusli, sem safnazt hafði saman á götum borgarinnar. Verkfall þeirra stóð i þrjá daga. Á myndinni sést vegfarandi taka fyrir vit sér til að losna við óþef úr ruslahaug á götu á Manhattan. Kyrrð í Beirut eftir mannskæða bardaga London 3. júlí — Reuter HAROLD Wilson forsætisráð- herra Bretlands sagði ( dag f brezka þinginu að ríkisstjórn Verkamannaflokksins mundi standa fast á ráðagerðum sfnum um að haida faunahækkunum niðri og takmarka þær við 10% næsta samningstfmabil. Kom yf- irlýsing forsætisráðherrans f kjölfar háværra mótmæla vinstri sinnaðra þingmanna Verka- mannaflokksins, sem töldu þessar Byrlað eitur Salisbury 3. júlí — Reuter AFRlKUMAÐUR, sem sæti á á þingi Ródesíu, hélt því fram á fimmtudagskvöld að öðrum full- trúa i sendinefnd afrfskra þjóð- ernissinna, sem ræða á um stjórn- arskrármál við Ian Smith forsæt isráðherra Ródesíu í Lusaka, hafi verið byrlað eitur á herflugvellin- um í Salisbury. Ronald Sadomba skýrði frá þessu i þinginu. Sagði hann að Enos Nkala hafi verið fluttur á sjúkrahús í Lusaka eftir að hafa drukkið kaffi á fiugvellin- um, en hann veiktist um borð í flugvél zambíska flughersins. Annar fulltrúi i sendinefndinni, dr. Edson Sithole, hafði áður veikzt og verið lagður á sjúkrahús i Lusaka, höfuðborg Zambiu en hann hafði einnig drukkið kaffi á flugvellinum. Hvorugur þeirra er i lifshættu. Amin hvet- ur Breta að vera um kyrrt Nairobi 3. júlí — AP IDI Amin forseti Uganda hefur hvatt þá 700 Breta sem búsettir eru i Uganda til að vera þar um kyrrt. Sagði Ugandaútvarpið að forsetinn hefði sagt þetta á blaða- mannafundi. Amin sagði einnig á fundinum að hann ætti marga vini í Bretlandi. „Það er aðeins brezka stjórnin og brezka út- varpið (BBC) sem eru á móti mér“. Lofaði Amin brezku þegnana í Uganda og sagði þá vera kjölfestuna í menntakerfi landsins. Áður hafði Amin hótað Bretunum öllu illu og sagt þá vera undir eftirliti eins og njósnarar, en það var meðan á deilunni stóð við brezku stjórnina um örlög Denis Hills, sem dæmdur var til dauða í Uganda. aðgerði brjóta f bága við kosningaloforð flokksins. Denis Healey f jármálaráðherra, sem skýrði frá þessum þætti f baráttu stjórnarinnar gegn verðbólgunni s.I. þriðjudag, hefur hins vegar tekið fram að stjórnin sé „algjör- lega andvfg“ þvf að refsa verka- mönnum, og yrði öllum lagasetn- ingum, sem hugsanlega yrði þörf á beint gegn atvinnurekendum til að koma í veg fyrir að þeir gangi að of háum kaupkröfum. Meiri möguleikar virtust hins vegar vera á þvi í dag, að ríkis- stjórninni tækist að ná samkomu- lagi við verkalýðshreyfinguna um þessi mál. Healey ræddi við Len Murray aðalritara brezka alþýðu- sambandsins, TUC, og sagði Murray að viðræðunum loknum að góðir möguleikar væru á mála- miðlun. Leggur stjórnin mikla áherzlu á að verkalýðssamtökin samþykki sjáifviljug hófsamari stefnu i kaupkröfum. Hins vegar eru ýmis aðildarfélög TUC býsna herská, þ.á m. námuverkamenn. Þeir munu ákveða kaupkröfur sinar í næstu viku, en háværar kröfur eru uppi meðal þeirra um 100 punda vikulaun, sem stjórn námanna telur jafngilda 75% kauphækkun og hafa í för með sér40% hækkun kolaverðs. Verðgildi pundsins var stöðugt á gjaldeyrismörkuðum í dag og virtust menn bíða átekta. Beirut 3. júli AP. Reuter MEIRA EN 1000 manns hafa særzt eða látizt f bardögunum sem geisað hafa í Beirut, höfuð- borg Libanon, síðustu 10 daga, að sögn lögreglunnar. Samkvæmt síðustu tölum hafa að minnsta kosti 275 týnt lífi í bardögunum. Sjö menn voru drepnir f úthverf- um borgarinnar, þar á meðal ein leyniskytta, sem öryggisverðir skutu Skothvellir og sprengjugnýr heyrðist enn í úthverfi I suður- hluta borgarinnar, en að öðru leyti var komin á kyrrð og íbúarn- ir, sem eru um ein miljón, sneru aftur til vinnu sinnar. Hin nýja sex manna stjórn, sem setið hefur í 3 daga, kom saman til fundar i dag og lýstu ráðherrar ánægju sinni með hve vel hefur tekizt að halda vopnahléð. Þeir fordæmdu þó mannrán, sem enn eiga sér stað i borginni. Buenos Aires 3. júlí — AP, Reuter. ÞtlSUNDIR verkamanna gengu í átt tii höfuðborgar Argentfnu, Buenos Aires, á fimmtudag, er óánægja með stefnu forseta landsins, Maríu Estelu Peron, f launamálum breiddist út um landið. Um 6000 starfsmenn bfla- verksmiðju voru sagðir nálgast borgina frá vestri en annar hópur málmiðnaðarmanna og hafnar- verkamanna kom að sunnan, frá hafnarhorginni La Plata. Lögreglumenn og varalið slógu hring um borgina, en ekki var ljóst hvort þeir myndu snúa mönnunum aftur, eins og þeir Áreiðanlegar heimildir segja að mjög líklegt sé að til nýrra óeirða komi innan fárra mánaða, og kannski fyrr, ef að stjórnin verður ekki við helztu kröfum múhameðstrúarmanna, en þeir munu vera helmingi fleiri en kristnir íbúar landsins. Vilja múhameðstrúarmenn hafa meiri áhrif á stjórn landsins og bæta kjör fátækra. Þrátt fyrir leit lögreglu og her- manna hefur hvorki tangur né tetur sést af bandariska ofurst- anum, sem tekinn var og færður á brott af vopnuðum mönnum. Palestínskar skæruliðahreyfingar neita allri vitneskju um manninn, sem er 43 ára, Ernest Morgan að nafni. Engar fjárkröfur til lausn- ar ofurstanum hafa borizt banda- ríska sendiráðinu. gerðu við göngumenn í síðasta mánuði. Verkalýðsleiðtogar reyndu að fá skyndifund með for- setanum til að afstýra allsherjar- verkfalli, en verkamenn i helztu iðnaðarborg landsins, Cordoba, lögðu niður vinnu í dag. Ókyrrðin stafar af óánægju með aðgerðir stjórnarinnar, sem draga eiga úr verðbólgu. 50% gengis- felling í síðasta mánuði leiddi til mjög hárra kaupkrafna og voru gerðir samningar um allt upp i 150% launahækkanir. Frú Peron forseti hefur nú bannað að þessir samningar taki gildi og vill tak- marka allar launahækkanir við 50%. HANDALÖGMÁL— Bandarfskur majór, William D. Hemderson, liggur særður eftir barsmfðar norður-kóreanskra landamæravarða f Panmunjom á mánudag. Þegar fandamæraverðirnlr höfðu misþyrmt majórnum, skárust menn úr gæzluliði Sameinuðu þjóðanna f leikinn og sjást þeir hér f handalögmálum við þá. Bandarfkin mótmæltu þessu ofbeldi við stjórn Norður-Kóreu. Símamynd AP Fjöldagöngur til Buenos Aires

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.