Morgunblaðið - 04.07.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.07.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JULl 1975 3 Hafa menn ofmetið mögu leika til rafhitunar húsa? AÐALFUNDUR Sambands ís- lenzkra rafveitna hófst I gær á Laugarvatni og lýkur I kvöld. Aðalumræðuefni fundarins verða orkumál á Norðurlandi og I Landsvirkjunarsvæðinu. t gær sat fundinn Gunnar Thoroddsen, orkumálaráðherra, og I dag er Birgir Isleifur Gunnarsson vænt- anlegur á fundinn. 1 gær var rætt um endurmat rafveitna og fjármál þeirra. Er mikil þörf á samræmingu í þeim efnum og getur nú verið erfitt að bera saman gjaldskrár, fyrr en endurmat og samræming hefur farið frarh. Þá var einnig rætt i gær um húshitunarmál og urðu um það miklar umræður. Umræðuefnið hét „Framtíðarstefna í húshitun á Islandi." Á fundinum kom m.a. fram að jarðvarmi er mun víðar á landinu, en talið hefur verið og við það breytast mjög möguleikar til húshitunar með jarðvarma. Getur t.d. verið hentugt sums staðar að rafhitun og jarðvarma- hitun sé notuð jöfnum höndum og eftir hentugleikum. Orkustofnun er nú að láta fara fram sérstaka athugun á þessari hlið málsins, en rannsóknir munu fremur skammt á veg komnar. Ekki munu vera eins sterkar vonir bundnar við rafhitun húsa og áður var og er líklegt að rafhitun hafi verið of- metin. Anœgðir að vera byrjað- ir aftur segir Brynjólfur Halldórsson á Ögra — Ég held að ég geti fullyrt, að allir séu ánægðir með að vera komnir á sjóinn á ný og Brynjólfur Halldórsson að verkfallinu skuli vera lokið, sagði Brynjólfur Halldórsson skipstjóri á skuttogaranum Ögra í samtali við Morgunblaðið í gær, en þá var Ögri staddur djúpt úti af Snæfellsnesi. Brynjólfur sagði, að hann gæti lítið sagt af aflafréttum, sá guli Iéti lítið sjá sig og því væri aflinn ekki mikill. Á þessum slóðum væri nokkur fjöldi skipa, bæði stór og smá. Is væri nú kominn yfir nokkuð af veiði- svæðunum úti fyrir Vestfjörð- um, og því væri ekki hægt að reyna þar. Hinsvegar gætu menn átt von á að fá þar ein- hvern afla, þegar isinn færi á ný lengra frá landinu. Enn um fasteignamarkaðinn 1 gær var afhjúpuð sérstök minningartafla á gamla pósthúsinu, sem flestir Reykvfkingar muna þó sem lögreglustöðina I Pósthússtræti. Taflan er til minningar um að I húsinu var fyrsta góðtemplarastúkan f Revkjavík stofnuð, stúkan Verðandi nr. 9, hinn 3. júlí 1885. Það er Reykvfkirigafélagið sem lét gera töfluna. Myndin er tekin við athöfn f gær, er taflan var afhjúpuð. . 'Jxk 7\liSSL.. : wi'; lij. a -fv ^ í * f AvÁ1. | .v.v4r 1 *■$?•■* V *1 % ?*■» “ Siglfirzk einingahús í Garðahreppi Annað hús Húseininga h.f. f Garðahreppi. VEGNA fréttar í Mbl. f gær, þar sem haft var eftir tveimur fast- eignasölum borgarinnar, að íbúð- arhúsnæði f smfðum stæðist ekki samkeppni f verði við notað hús- næði á fasteignamarkaðinum, hafði Agúst Hróbjartsson, fast- eignasali í Samningar og fast- eignir, samband við Mbl. og sagði hann að f þvf tilfelli að verð hús- næðis f smfðum væri ekki bundið vfsitölu væri unnt að gera kaup, sem væru jafngóð ef ekki betri en ef keypt væri notað húsnæði. Agúst sagði að sín reynsla af fasteignamarkaðinum væri sú að ekki væri minni hreyfing á hús- næði, sem selt væri tilbúið undir tréverk og málningu. Sagðist Ág- úst á síðastliðnum 6 vikum hafa selt '30 íbúðir og sýndi það að mikið fjör væri I þessum viðskipt- um. Skýring þessa kvað Agúst hins vegar vera þá að íbúðirnar, sem afhendast eiga á næsta ári, eru seldar fyrir fast verð. UM ÞESSAR mundir er verið að reisa f Garðahreppi tvö eininga- hús frá Húseiningum h.f. í Siglu- firði. Húsin eru að Holtsbúð 63 og 65. Byrjað var að reisa fyrra húsið á laugardaginn og er það orðið fokhelt, það tók um 200 stundir. Frá þvf að byrjað er að reisa hús af þessari stærð og þar til hægt er að flytja inn lfða ekki nema 1V4 — 2 mánuðir. Húsið er um 115 fm. brúttó. Hér er um að ræða timburhús sem framleidd eru f einingum og er þvf hægt að velja um margs- konar gerðir hvað varðar stærð og útlit húsanna með þvf að raða einingum saman á marga vegu. Verksmiðjan framleiðir allar einingar til að fullgera alla veggi, loft og þak bæði úti og inni, þ.e. allt tréverk fyrir utan eldhúsinn- réttingu og skápa. Sérstök ástæða er til að benda á þann stutta tima sem tekur segir í fréttatilkynningu frá Húseining- um h.f. að gera húsin íbúðarhæf eftir að byrjað er að reisa þau. Kemur þetta sér sérstaklega vel fyrir þá sem þurfa að halda uppi stórum hópi af iðnaðarmönnum við að byggja yfir sig svo sem bændur víðast hvar um landið. í verksmiðju Húseininga h.f. starfa um 12 manns við fram- leiðsluna. Vélvæðing er mjög mikil í verksmiðjunni. Afkastageta verksmiðjunnar við óbreyttar aðstæður er um 60—80 hús á ári, en afkastageta vélanna er um 250—300 hús á ári. Verið er að framleiða um 15 hús fyrir þrjú sveitarfélög i leigu- íbúðakerfið og á að skila þeim í ágúst til október. LÝST EFT- IR KONU Rannsóknarlögreglan I Hafnar- firði hefur lýst eftir konu. sem saknað hefur verið frá því sl. sunnudagskvöld, er sfðast sást til hennar á skemmtistað 1 Reykja- vík. Konan heitir Sólveig Friðfinns- dóttir, 32 ára, til heimilis að Herj- ólfsgötu 14 i Hafnarfirði. Síðast sást til ferða hennar laust eftir miðnættið sl. sunnudagskvöld, er hún var að fara út af skemmmti- staðnum Glæsibæ i fylgd með ein- hverjum manni. Sólveig er 162 sm á hæð, með áberandi ljóst, axlasítt hár. Hún var klædd i svartar siðbuxul, svarta rúllukragapeysu og i bleikri blússu þar utan yfir, svart- an skinnjakka og svört, há leður- stigvél, og var með svarta tösku. Þeir sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ferðir Sólveigar frá því á sunnudagskvöldið eru beðnir að láta rannsóknarlögregl- una i Hafnarfirði vita. Tvœr vikur á Spáni jafn- dýrar og vikuferð um ísland i FRAMHALDI af frétt um athugun Morgunblaðsins á ferðakostnaði innanlands. þótti rétt að gera samanburð á ferðakostnaði hjóna á íslandi annars vegar og í Spánarferð hins vegar. Kom I Ijós. að hægt er að fá hálfsmánaðar Spánarferð með hótelgistingu og fullu fæði fyrir sama verð og vikuhringferð á eigin bll um fsland með hótelgistingu og fullu fæði mundi kosta þau hjón, sem veldu það bezta I gistingu og fæði og ækju á neyzlufrekum bll. i frétt Mbl. I gær var frá þvl skýrt, að ferðakostnaður hjóna f vikuhringferð um fsland væri frá 20 til 80 þúsund krónur, eftir þvl hvernig þau höguðu gistingu sinni og fæði. Hæsta talan fekkst með þvl að miða við fremur stóra bif- reið, sem eyðir að jafnaði 1 5 Iftr- um af bensfni á hverjum hundrað km. f þjóðvegaakstri, og miðað við að hjónin veldu sér tveggja manna hótelherbergi með baði f sjö nætur og borðuðu morgunmat, hádegis- mat og kvöldmat á hótelum á leiðinni. Reyndist bensfnkostnað- ur þá vera 1 5 þús. kr., fæðiskostn- aður 35 þús kr. og gistikostnaður 30 þús., eða samtals um 80 þús. kr. En með þvf að gista f tjaldi eða elda allan mat sjálf og aka neyzlu- grönnum bfl gætu þau hins vegar komizt niður f 20 þús. kr. Spánarferðir hjá helztu ferða- skrifstofunum f Reykjavfk með fullu fæði fengust ódýrastar á 38 þús. kr. á mann, hálfsmánaðar ferðir með gistingu á hóteli og fullu fæði. Við þetta verð bætist svo 2.500 kr. flugvallarskattur og nundi ferðin fyrir hjónin þá kosta 81. þús. kr. eða það sama og vikuhringferðin um fsland. Til viðbótar við verð Spánarferðarinn- ar ber að taka fram, að ef þau keyptu þann ferðagjaldeyri, sem þeim væri heimilt, mundi ferðin kosta þau samtals 50 þús. kr. f viðbót, eða um 130 þús. kr., en hins vegar ættu þau að geta kom- izt af með lítið brot af gjaldeyris- skammtinum, ef þau spöruðu allt við sig til hins ftrasta. Verð Spánarferða var annars á- kaflega misjafnt og þannig reynd- ist meðalverð Spánarferða með gistingu f fbúð án fæðis vera um eða yfir 40. þús. kr. fyrir manninn, en komst allt niður f 28.500 kr. á mann þar sem ódýrast var. Var þannig hægt fyrir hjónin að kom- ast til Spánar og gista þar f hálfan mánuð fyrir 62 þús. kr, að flug- vallarskatti meðtöldum, og ef þeim tækist að borða fyrir minna en 19. þús. kr. væri sú ferð orðin ódýrari en sú ódýrasta með gist- ingu á hóteli og fullu fæði, sem að ofan var nefnd. Verð á Spánarferðum fór hæst upp í 85.500 kr. á mann fyrir hálfsmánaðar ferð, gistingu á fimm stjörnu hóteli, sem er það alffnasta sem fæst, og með hálfu fæði, þ.e. morgunverði og einni annarri máltfð. Eins og lesendur sjálfsagt muna hafa gjaldeyrisyfir- völd lagt á það rfka áherzlu að undanförnu að ferðaskrifstofur brytu ekki reglur um hópferðir til útlanda, og spurði þvf Mbl. ferða- skrifstofurnar hvort þeim væri heimilt að selja svodýra ferð, þ.e. með gistingu á fimm stjörnu hóteli og hálfu fæði, og var svar þeirra á þá leið, að þetta væri ekki bann- að. „Okkur er flest bannað, en þó ekki þetta," var svarið á einni skrifstofunni. Til viðbótar við upplýsingarnar f frétt Mbl. f gær um ferðakostnað innanlands koma hér tölur um tvenns konar ferðir til viðbótar: Ferðir á vegum Guðmundar Jónassonar og Úlfars Jacobsens, aðallega um hálendið og til Mý- vatns og nágrennis, kosta milli 40 og 50 þús, kr. með fullu fæði og gistingu f tjaldi. Guðmundur Jónasson er með 12 daga ferð á tæp 43 þúsund og 13 daga ferð á 48 þúsund, en Úlfar Jacobsen er með 11 daga ferð á um 40 þúsund og 13 daga ferð á um 48 þúsund. Farnar eru ýmsar leiðir um hálend- ið, t.d. um Sprengisand, Kjöl, Kaldadal, Gæsavatnaleið og vfðar, og f einu tilviki hringferð um land- ið. Flugfélag islands býður upp á flugferð hringinn i kringum landið og er þá farið frá Reykjavfk til ísafjarðar og áfram til Akureyrar, Egilsstaða. Hornafjarðar og aftur til Reykjavfkur. Einnig er hægt að fara þessa leið ! öfuga átt og hægt er að sleppa úr annaðhvort isafirði eða Hornafirði eða báðum stöð- um. Ferðahraðinn ræðst af áætlun Flugfélagsins og tekur ferðin vart minna en viku, en má taka allt upp I heilt ár. Ef um fjölskylduaf- slátt er að ræða verður hún þó að standa f minna en einn mánuð. Þessi hringferð kostar 9780 kr. Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.