Morgunblaðið - 27.07.1975, Síða 2

Morgunblaðið - 27.07.1975, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975 Humarvertíðinni að ljúka: Aflinn um 401 minni en í fyrra Virkjunarmöguleikar kann- aðir í Hvalá á Ströndum HUMARVEIÐUM lýkur nú f kringum helgina. Samkvæmt upplýsingum Egils Jónassonar, Annar Grænlend- ingurinn látinn ANNAR Grænlendinganna, sem flugvél frá Flugstöðinni flutti sjúka til íslands frá Grænlandi fyrir tveimur vikum, er látinn á Borgarspítalanum, en hann var skorinn þar upp við garnaflækju. Hinn Grænlendingurinn sem var helsærður af skotsári liggur enn þungt haldinn á gjörgæzludeild Borgarspítalans, en gerðar hafa verið á honum margar aðgérðir til þess að reyna að bjarga Iífi hans. Kista hins látna verður flutt til Angmaksalik. Sprengisandsleið orðin slarkfær FLESTIR fjallvegir landsins eru nú að verða sæmilegir yfirferðar. Helzt er það Sprengisandsleið, sem enn er varhugaverð, en er þó orðin fær háum eindrifsbflum. Nokkur aurbleyta er enn á þeirri leíð, og er mönnum ráðlagt að fara sem næst fönnunum, sem þarf að sneiða hjá, og vera í sam- floti. Þá eru árkvíslarnar í kringum Nýjadal slæmar í botn- inn. LAXDÆLINGAR tóku á fimmtu- dagskvöid 23 stórlaxa f Laxár- gljúfrum,fluttu upp f Laxárdal og slepptu þar f ána. Voru fiskarnir frá 12 og upp í 20 pund á þyngd, en þeir höfóu króast inni f litlum polli undir Brúarfossum. Að því er Hermóður Guðmundsson f Ár- nesi tjáði Morgunblaðinu hafði þessi laxagildra orðið til vegna breytinga á rennsli Laxár á sfn- um tíma af völdum Laxárvirkjun- ar. Að sögn Hermóðs sást á þessum sama stáð í fyrrasumar, töluvert af laxi, þó að ekki tækist að flytja hann þá upp fyrir virkjun. Með þessum laxaflutningum sagði Hermóður að í fyrsta skipti væri frystihússtjóra á Höfn í Horna- firði, eru horfur á að humarafl- inn sem lagður hefur verið þar upp f sumar, verði um 40 tonnum minni en í fyrra eða f kringum 120 tonn á móti 160 tonnum f fyrra. Meginástæðan fyrir þessari aflaminnkun f sumar er að sögn Egils ákaflega stirðar gæftir á hin um hefðbundnu humarmiðum — í Hornafjarðar-, Breiðamerkur-, Skaftár- og Skeiðarárdjúpi. Hins vegar virðist ekkert vera minna um humar nú en endranær á þess- um miðum en fiskurinn hefur verið ákaflega misjafn að stærð. Hingað til hafa 12 bátar stund- að humarveiðina frá Hornafirði og lagt að staðaldri upp hjá frysti- húsinu þar, en auk þess hafa um 4—5 aðkomubátar landað þar einu sinni. Einn bátur, Ólafur Tryggvason, sker sig algjörlega úr hvað aflamagn snertir. Er hann kominn með um 13—14 tonn af humri, og um 3 tonnum meira en næsti bátur. Að þvi er Egill sagði hefur humarveiðin stuðlað að góðri at- vinnu í frystihúsinu, auk þess sem þar hefur verið töluverð al- menn fiskvinna eftir að nýi skut- togarinn kom til sögunnar. Var togarinn sl. fimmtudag búinn að fara þrjár ferðir og kominn með 270 tonn af ágætum fiski. nú lagður grundvöllur að náttúru- klaki í hinu víðlenda vatnasvæði Laxár og Krákár, ofar virkjun sem er um 70 kflómetrar að lengd og býður upp á hin ákjósanleg- ustu skilyrði fyrir laxauppeldi að dómi sérfróðra manna. Hermóður sagði ennfremur að bændur þar um sióðir hefðu sleppt á þessu svæði miklum fjölda laxaseiða á úndanförnum árum og hefur það verið gert í samræmi við sáttasamning þann, er gerður var 1973 til lausnar Laxárdeilunni. Samkvæmt þeim samningi tók íslenzka ríkið að sér að gera fullkominn fiskveg fram- hjá virkjunarsvæðinu við Brúar. Arangur þessa klakstarfs er nú að byrja að koma í ljós, að sögn Hermóðs, sem kvað engu likar en laxinn vildi minna ríkisvaldið á Framhald á bls. 47. RANNSÓKNIR eru nú hafnar vegna hugsanlegrar virkjunar f Hvalá í Ófeigsfirði á Ströndum. Hingað til hafa aðallega verið athugaðir á Vestfjörðum virkj- unarmöguleikar við Dynjanda og á Mjólkársvæðinu, en nú hafa menn hug á að fá úr því skorið hvert farið yrði, ef ekki yrði af meiri virkjunum þar. Þá eru aðal- lega kannaðar árnar f Skötufirði, sem eru Rjúkandi, ögurbúðará Flugstöðin fær skíðaflugvél A NÆSTU dögum bætist ný flug- vél í flota Flugstöðvarinnar, er þetta vél af gerðinni Dorner DO 28. Ákveðið er að þessi vél verði staðsett á Grænlandi og sömu- leiðis ávallt flugmaður frá Flug- stöðinni. Dorner-vélin er tveggja hreyfla og eru skíði á henni. Þessa dagana er verið að ganga frá vélinni í Kaupmannahöfn og er Elíeser Jónsson flugmaóur þar til að fylgjast með breytingum á henni og hann mun einnig fljúga henni til íslands. Er hann jafnvel væntanlegur heim nú um helgina. og Hundsá og Hvalá f Ófeigsfirði. Hefur Sigurjón Rist verið þar f sumar til að koma af stað vatna- mælingum og mælingaflokkur undir stjörn Gunnars Þorbergs- sonar vinnur að mælingum á Ófeigsfjarðarheiði með þyrlu Andra Heiðbergs. Sigurjón Rist tjáði Mbl. að i Hvalá gætu verið möguleikar á stórri virkjun, sem færi þó eftir því hve stórt lón yrði gert. Ekkert graslendi þyrfti þó að fara undir vatn þarna, en varla væri um annað að ræða en hafa miðlunar- lón i virkjunum hér á landi, þar sem árnar væru svo breytilegar og ótryggar, og rafmagnsnotkun mest á vetrum, þegar minnst er i ánum. Vatnamælingar eru erfiðar á Hvalá og dýrar, því enginn býr i Ófeigsfirði á vetrum og strjálbýlt þar fyrir sunnan. Kvaðst Sigurjón hafa komið upp bráðabirgða- mælum í ánni, og reyna að halda þar uppi mælingum i vetur. Eins kvaðst hann hafa hug á að koma vatnamælingum á i Þverá við Skúfavötn, sem eru rétt and- spænis Ófeigsfirði Djúpmegin. Landmælíngamenn Orkustofn- unar hafa undanfarin sumur unnið að mælingum vegna virkj- ana á þessum slóðum og sagði Sigurjón að þeir hygðust ljúka þeim á þessu sumri. Karl prins kem- ur til laxveiða KARL Bretaprins er væntanlegur í einkaheimsókn til Islands, sunnudaginn 3. ágúst n.k. og verð- ur hann hér í viku tíma. Hann mun nota svo til allan tímann til Iaxveiða og verður i 5 daga við Hofsá i Vopnafirði. Það eru kunningjar prinsins sem verið hafa við laxveiði á Is- landi um nokkurra ára skeið, sem bjóða honum hingað og Filipus prins, faðir Karls, hefur einnig verið við laxveiði hér. Sjálfur er Karl mikill veiðimaður, og þá sér- taklega með flugu. Þann tíma, sem hann verður við Hofsá, mun hann gista í veiðihúsinu þar. Prinsinn kemur til landsins með áætlunarvél Flugleiða, en síðan mun vél frá Vængjum fljúga með hann austur á Vopna- fjörð. Áður en hann heldur út á ný, mun hann skoða sig um i Reykjavík og nágrenni. Sjá bls. 32 Líst ekkert of vel á skattana SIGFUS Jónsson, múrarameist- ari, Hofteigi 54, er efstur á lista yfir hæstu gjaldendur opin- berra gjalda í Reykjavfk og á að greiða samtals 9.776.949 kr. þar af 3,7 millj. f tekjuskatt og tæp 1100 þús kr. í útsvar. 1 fyrra var hann i fjóróa sæti á listanum yfir hæstu gjaldendur í Reykja- vík, en þá var efstur Pálmi Jónsson, forstjóri Hagkaups. Hann er nú í þriðja sæti á listanum, rúmri milljón lægri en Sigfús. Ekki tókst Morgun- blaðinu að ná í þá Sigfús og Pálma í gær, en hins vegar tókst að ná i þá menn, sem voru við hliðina á þeim og fara viðtöl við þá hér á eftir. Friðgeir Sörlason bygginga- meistari er i fjórða sæti á list- anum yfir hæstu skatt- greiðendur í Reykjavík og er honum gert að greiða tæpar átta milljónir kr. „Mér líst nú ekkert of vel á þetta,“ sagði hann, er Mbl. ræddi við hann um skatta- greiðslur hans. „Þetta er hærra en ég átti von á, en endur- skoðandinn minn á eftir að at- huga þetta, þannig að ég veit ekki enn hvort þetta er endan- leg upphæð.“ Friðgeir hefur annazt bygg- ingarframkvæmdir fyrir Reykjavíkurborg, Kópavogs- kaupstað o.fl. aðila, einkum skólabyggingar, og verið með marga í vinnu, allt upp í 40 manns, auk undirverktaka. Hann hefur tekið stórt stökk upp á vió á listanum yfir hæstu skattgreiðendur úr 23. sæti í fyrra í fjórða sæti nú. Hann var spurður hvort árið í fyrra hefði verið sérstaklega hagstætt: „Verkefnin eru alltaf misjöfn og sveiflur frá ári til árs,“ svaraði hann. Loks var hann spurður hverju hann teldi það sæta að byggingarmeistarar væru mjög fjölmennir meðal hæstu skatt- greiðenda borgarinnar: „Já það er merkilegt," svaraði hann, „og ég átta mig nú ekki á því af hverju það er — nema þá að við séum kannski ekki eins klókir við að telja fram og hinir!“ Ingólfur Guðbrandsson, for- stjóri Útsýnar er fimmti efsti maðurinn á Iistanum yfir hæstu greiðendur heildargjalda í Reykjavík. Hánn á, samkvæmt tölum skattstofunnar, að greiða 7.850 þús. kr. og er raunar lang- hæsti greiðandi útsvars, greiðir tæplega 1500 þús, kr. í útsvar Ingólfur var ekki einu sinni meðal 50 hæstu greiðenda í Framhald á bls. 47. „Laxinn vill að ríkið standi við samninga”

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.