Morgunblaðið - 27.07.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.07.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975 Sr. BOLLI GÚSTAFSSON í Lauíási: Engum er Ijósara en Kristi, hversu mannkyninu helst illa á gjöfum Guðs, hve börn Ijóssins eru sundruð og van- megnug og miðar skammt áfram I siðbótarstarfi og trú- boði. Við erum ekki utan al- faraleiðar fjarri nútímanum, þegar við heyrum málsatvik og virðum fyrir okkur við- brögð sögupersónanna í dæmisögunni um rangláta ráðsmanninn. Erþaðekki dæmalaus kaldhæðni, að við, sem byggjum á þróun nær 2000 ára kristni skulum geta lesið þessa sögu (Lúk. 16,1 —9) sem nútímalega ádeilu á þjóðfélag okkar, snjallari, beinskeyttari, en lárviðarskáld eða umsvifa- miklir, reiðir rithöfundar geta samið þjóðinni til vakningar og betrunar. Hvað stoða orð? Er máttur kristinnar pré- dikunar nokkur, sáir hún þeim frækornum í manns- hjörtun, sem bera aldin sam- félagi okkartil blessunar? Snerta mikilsverð orð hugi okkar? Orð eins og kær- leikur? Kærleikur! Er það í nafni hans, sem of margir foreldrar gefast upp fyrir börnum sínum og leyfa þeim að elta hverja þá heimsku sem tízkufrömuðir og skemmtanamiðlarar gylla og auglýsa. í nafni kærleika og frelsis mega börn og ung- lingar mola niður grund- völlinn að framtíðarheill sinni, líkamlegu og andlegu heilbrigði. Frjálsarástirstrax eftir ferminguna eða glasa- glingur, forvitnileg og varhugaverð nautnalyf af ýmsu tagi. í nafni frelsis og frjálslyndis er virðing fyrir heilögum málefnum fótum troðin. Þau eru fjölmörg hug- takaheitin, sem krefjast endurskoðunar. Málvísinda- menn eru uggandi vegna of- notkunar ýmissa orða. Merking þeirra dofnar og verður óljós og önnur, sem hæfa betur, hverfa úr málinu. Ég minnist þess að hafa heyrt fræðimann fjalla um sögnina að skapa. Með skýrum dæmum benti hann Sofa orðin; á, hversu þessu mikilvæga sagnorði er misþyrmt í dag- legu máli. Menn skapa allt mögulegt, m.a. vandræði í stað þess að valda þeim. Sköpun er stórbrotið orð, sem ber hæst í fyrstu Móse- bók. Guð skapar og af and- ríki skapa listamenn sigild snilldarverk. Þetta orð verður að umgangast með virðingu. Þannig er því og háttað um orð eins og kærleikur og frelsi. Þá er illa komið, þegar þau eru notuð til þess að róttlætta ranga breytni eða andkristnar kenningar. „Gefðu að móðurmálið mitt, minn Jesú, þess ég beiði, frá allri villu klárt og kvitt, krossins orð þitt út breiði. . Sú bæn bæn séra Hall- gríms hefur ekki fallið úr gildi. Það er ekki nóg að boðendur heilags orðs tali á rósaflúruðu líkingamáli á hljómfegurstu íslenzku, ef boðskapurinn er mistri hul- inn. Sú ræða er ónýt. Það er ekki nóg að nota stór orð og rífa miskunnarlaust niður, svo að söfnuðinum verði hverft við, ef ekkert er reist á rústunum. Sú ræða er einskis nýt, þótt orðin sýnist ekki sofa í fljótu bragði. Prédikunarstóllinn er ekki ætlaður fyrir góðlátlegt rabb um daginn og veginn eða heimspekilegar vangaveltur. Á erindi af því tagi getum við hlýtt í útvarpinu á mánu- dagskvöldum. Hannerekki vettvangur fyrir persónuleg sjónarmið prestanna í kirkjupólitískum deilum. Þá erum við að bregðast Kristi og orði hans; að svæfa það. Við getum ekki lengur hlýtt því andlega makræði, sem krefst þess að Biblíunni sé vikið til hliðar eins og óþægindum, sem spilli þægi- legu erindi um óræða eða þá skömmum prédikarans um messugjörðir starfsbræðra, sem vilja fara sígildar hákirkjulegar leiðir í þeirri einlægu von, að meðvitund safnaðanna verði vakin fyrir nauðsyn virkrar þátttöku í heilagri þjónustu. Rangláti ráðsmaðurinn gætir þess að allir fylgjendur hans séu virk- ir og að orð hans sofni ekki. Hann skipuleggur og gerir alla virka. Kirkjan sér hann víða að verki. Af aðferð hans má læra. Við eigum ekki er- indi inn í kirkjuna til þess að hvíla okkur frá amstri hversdagsins og róa taugarn- ar í kyrrlátu umhverfi með notalegum helgiblæ. Ekki förum við þangað til þess að láta okkur líða í brjósti, held- ur til þess að vakna til með- vitundar um ábyrgðokkar gagnvart Guði og náunga okkar, til þess að láta upp- byggjast sem lifandi steinar I andlegt hús. Ef við gjörum það, þá erum erum við kirkja vakandi orðs og við getum ekki lengur verið án samféiagsins í húsi guðs. Framleiða 200 þús. lampa á ári — Ný íslenzk lampagerð JÓHANNES Pálsson plast- framleiðandi og Henning Jensen eigandi Belysings- agenturet i Kaupmannahöfn hafa gert með sér samning um fram- leiðslu á nýrri gerð handlampa, sem Jóhannes hefur hannað. Handlampana á að framleiða að hluta á íslandi hjá nýstofnuðu fyrirtæki sem heitir Bjallaplast á Hvollsvelli, og að hluta í Dan- mörku. Henning Jensen mun sjá um sölu lampanna á erlendum mörkuðum en Jóhannes Pálsson hér. Gert er ráð fyrir að framleiða 200 þús. lampa á ári og þar af verði u.þ.b. 50 þús seldir í Dan- mörku, en það sem þá er eftir verði flutt út. Væntanlega verða 3000—4000 lampar seldir á Is- landi á ári. Framleiðsluverðmæti 200 lampahluta, sem framleiddir verða á Islandi nemur ca. 28. millj. kr. og veitir 5 manns at- vinnu. Jóhannes byrjaði að hanna lampann fyrir 2 árum. Danska rafmagnseftirlitið hefur þegar skoðað,,prototypur“ af lampanum og samþykkt fyrir sitt leyti. SteinuHar og glerullar einangrun fyrirliggjandi Þ. ÞököRÍMSSON & CO Armúla 16 sími 38640 Hvað um ykkur? Örfá hjólhýsi til á lægra verðinu. Afgreidd strax. Gísli Jónsson & Co. h.f. Sundaborg Klettagörðum 11, sími 86644. Kópal línan Sumar’75 Kópal Dyrotex Málningin, sem hlotið hefur viðurkenningu þeirra sem reynt hafa. Kópal Dyrotex er framleidd hjá okkur í Kópavogi. Framleiðslan er byggð á reynslu okkar og þekkingu á íslenzkum aðstæðum. Kópal Dyrotex er akryl málning til málunar utanhúss, — málning með viðurkennt veðrunarþol. Hressið upp á útlitið með Kópal Dyrotex. Kynnið yður Kópal litabókina og athugið hina mörgu fallegu liti, sem hægt er að velja. Veldu litina strax, og málaðu svo einn góðan veðurdag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.