Morgunblaðið - 27.07.1975, Page 13

Morgunblaðið - 27.07.1975, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JULl 1975 13 Helga Bjarnadóttlr — að verða áttreð. Vilhelmfna Vilhelmsdóittir — dýrmætt að fð að leggja lið. vera að störfum í Iðnó, þar sem hún sér um kaffiveitingar á kvöldin. Á daginn hefun. hún mat fyrir leikara, og stöku fundir eru í húsinu milli leiksýninga. I Iðnó hefur hún starfað síðan 1941, en sagði að nú væri orðið tímaspurs- mál hve lengi hún entist, enda starfsaldurinn langur. Hún kvaðst eiga sumarfrí til 20. ágúst og likar ákaflega vel að dvelja á Löngumýri. En hún bjóst við að fara austur í Landsveit, þegar því lyki 18. júlí. Helgu Bjarnadóttur kannast margir við. Hún vann lengi hjá Mjólkursamsölunni eftir að hún kom heim frá Danmörku, þar sem hún bjó I 30 ár, en siðast var hún i fatageymslunni í Þjóðleikhúsinu, þar sem hún varð að hætta um sjötugt. Nú er hún að verða áttræð og kvaðst ekkert hafa farið f sumarfrí síðan hún hætti störf- um þar til nú. — Mér þykir ákaflega gott að komast hingað að Löngumýri, sagði hún. Og ég er yfirleitt ákaf- lega ánægð með alla þá aðstoð, sem borgin veitir okkur. I 20 ár hef ég haft íbúð á Kja>"tansgötu og tvisvar i viku fæ ég stúlku frá heimilishjálpinni, sem þrifur fyr- ir mig og kaupir inn þegar hált er og slíkt og borgin borgar 3500 kr. I húsaleigunni. Þannig get ég klárað mig. Ég get sjálf lagað matinn. En ég kviði fyrir vetrin- um, ef hann verður eins slæmur og sá síðasti, svo maður kemst ekkert út. Þá horfi ég á sjónvarp og hlusta á útvarp, les og sauma, en viðbrigðin eru mikil að hætta að vinna og sjá fólk. Þá tala ég i simann, en það er dýrt. Ef gjaldið á honum fellur niður fyrir ellilifeyrisþega, þá verður mikill munur. Annars er komin hingað með manni sínum frá Ameríku stúlka, sem dvaldi hjá mér í Dan- mörku, þegar hún var að læra hárgreiðslu, og hún vill endilega að ég komi með þeim vestur og haldi upp á áttræðisafmælið mitt hjá henni. Mig langar fjarska mikið, en treysti mér varla. Ég hefi verið að bíða eftir henni Geirþrúði Bernhöft, til að tala um þetta við hana, hún er svo þægileg og skilningsrík að tala við. Og siðar um daginn, þegar Helga var búin að tala við Geir- þrúði, kvaðst hún nú ákveðin í að fara til Ameríku. Geirþrúður hafði sagt henni að drifa sig, hún skyldi hjálpa henni að fá nægi- lega mikið af tryggingafénu fyrir- fram til að borga íbúðina og önn- ur útgjöld á meðan, og Helga kvaðst hlakka til að fara vestur með hjónunum. Vilhelmina Vilheimsdóttir varð næst á vegi okkar. Hún lét vel af sumardvölinni i Skagafirði, sagði að allir væru ánægðir. Þó Vilhelmína líði af húðsjúkdómin- um soriasis tekur hún þetta fram yfir að fara til Spánar. — Manni batnar þar, en svo kemur þetta aftur, sagði hún. — Ég fékk þetta ekki fyrr en seint á ævinni, er núna 71 árs, og get því vel sætt mig við að hafa það. Flestir, sem sækja félagsstarf aldraðra i Reykjavík, þekkja Vilhelmínu. Undanfarin 7 ár, eða frá upphafi hefur hún unnið þar sjálfboðaliðastarf síðdegis fyrst í Tónabæ og nú á Hallveigarstöð- um á mánudögum og þriðju- dögum og siðan í Norðurbrún 1 á fimmtudögum. Kemur fyrir að hún er þar oftar, ef með þarf. — Ég hefi lítið heimili, vió erum bara tvö, svo ég get haft matinn snemma og verið komin kl. 12.30, því gamla fólkið kemur alltaf svo timanlega, segir hún. Og þetta er lífið mitt — að fá að vera þarna og leggja lið. Ég á börn og barna- börn, en þau hafa líka mikið að gera, og þau geta vel komið á kvöldin og þá daga, sem ég er ekki innfrá. Ég er henni Heleni/ svo þakklát fyrir að hún fór að trúa mér fyrir að gera ýmislegt þarna. Ég fór að fást við hluti, sem ég hefði aldrei treyst mér til áður. Mér hafði aldrei dottið í hug að ég gæti stjórnað á svona stað Vinkonurnar Guðlaug Snæbjörnsdóttir og Sæfriður Sigurðardóttir. — Lifi ég ekki mannsæmandi lífi nú, þá hefi ég aldrei gert það. Þarna hafa þær sest niður andartak til að lita i blöðin Margrét Jónsdóttir skólastjóri, Heiena Halldórsdóttir og Gelrþrúður Hildur Bernhöft ellimálafulltrúi. Anna Halldórsdóttlr — 79 ára og vann fram á sl. ár. og talað yfir fólki. Ég hafði aldrei verið spennt fyrir húsverkum, þó það yrði hlutverk mitt. Og þarna hefur maður viðfangsefni og eign- ast svo góða vini. Ef það er ekki dýrmætt, veit ég ekki hvað er það. Helena er svo umburðarlynd við- fólkið og hress og þegar Geir- þrúður kemur, þá þurfa allir að leita ráða hjá henni. Við röltum upp á herbergið með Vilhelmínu. Hún deilir þvi með tveimur öðrum konum. En það er rúmgott og útsýni bæði til Glóða- feikis og til Mælifells. En aðrir eru ekki siður hreyknir af sinu útsýni/ Þeir sjá í staðinn Tinda- stól. Anna Halldórsdóttir gengur á upphlut og segist vera í hvers- dagsbúningnum sínum. Hún er 79 ára gömul, og vann í vöggustofu Thorvaldsensfélagsins þar til í fyrra eða í 11 ár, segir hún. Hún sagðist aðeins einu sinni hafa farið i sumarleyfi síðan hún misstí manninn sinn,og var þá i húsmæðraorlofi i Sælingsdals- laug i Dalasýslu. Það var skemmtilegt. Hún hafði sig meira að segja upp I að fara með ljóð á kvöldvökunni. Ekki er hún .siður ánægð á Löngumýri nú, hefur lent I herbergi með tveimur góðum og skemmtilegum konum. Anna kveðst óvön slíku dekri. Hún býr i eigin íbúð i Efstasundi og sér um sig sjálf. Helzt hefði hún viljáð að bræður hennár tveir kæmust líka með, en þá var orðið upppantað. Bræðurnir búa skammt frá henni og hafa þau félagsskap hvert af öðru. — Lík- lega væri betra að hafa leyfið styttra fyrir hvern, kannski ekki nema viku, svo fleiri kæmust að, sagði hún. Guðmund Matthiasson hittum við á gangi úti. Af sex karlmönn- um á staðnum heita þrir Guðmundur, Guðmundur Matt, Guðmundur Helgi og Guðmundur I., segja þeir og hafa gaman af. Guðmundur er orðinn 78 ára gamall, og starfaði til 75 ára aldurs hjá Landsímanum. Áður hokraði hann í sveit, eins og hann orðar það, I Straumi á Skaga- strönd og Óspaksstoðum i Húna- vatnssýslu. Nú býr hann í ibúð sinni á Langholtsvegi og leigir ungum hjónum, sem hugsa um hann. Fyrir 15 árum missti hann konuna sina, og kveðst ekkert hafa farið i sumarfrí siðan, utan eina viku í fyrra. Hann kvaðst una lifinu ágætlega, sækir í spila- mennskuna og leirvinnuna i tóm- stundastarfinu I Norðurbrún og klárar sig á ellilaununum. Þó fer að verða erfitt að halda við íbúð- inni, segir hann. Sæfríður Sigurðardóttir og Guðlaug Snæbjörnsdóttir hafa gjarnan farið saman í sumarleyfi, áður fyrr á Hveravelli eða Kerl- ingarfjöll, en nú þegar þær eru á áttræðisaldri hafa þær farið tvisvar i húsmæðraorlof i Sælingsdalslaug og nú á Löngu- mýri. Sæfríður vann í mjólkur- búð í 17 ár og hætti sjötug, en Guðlaug saumaði og gerir það raunar enn, tekur rúmfatnað og annað létt, eins og hún segir. Þær eru ekki að kvarta. Snjáfríður segir, að ef hún ekki lifi mann- sæmandi lifi nú, þá hafi hún vist aldrei gert það. Og Guðlaug segir að allt of mikið sé smjaðrað fyrir gamla fólkinu, hún sé orðin fjarska leið á þessu tali. — Það má ekki telja gamla fólkinum trú um að það geti ekki neitt og geti ekki lifað, segir hún ákveðin. Þessi ummæli spretta upp úr spurningum um hvort ekki sé erfitt að lifa á því, sem aldraðir hafa úr að spila. Snjáfriður kveðst hafa verið svo heppin að koma sér upp ibúð á bezta tíma, fyrir 20 árum. Og þó lifeyris- sjóður þeirra í Mjólkursamsöl- unni byrjaði ekki fyrr en seint og sé veikburða, þá borgaði hún með fé úr honum allt sem við kemur húsinu. Og Guðlaug bætir við, að húsa- leigan skipti þarna mestu máli, sé hún sanngjörn megi vel lifa, einkum ef einhver smáupp- hæð fæst úr lifeyrissjóði. Sjálf segist hún vera í húsnæði hjá öryrkjabandalaginu og greiða 9.200 kr. og það sé ágætt. Þær vinkonurnar eru ánægðar með lífið og hressar, segjast lesa mikið heima og hitta vini sína. Og þær eru ánægðar með sumarleyfið. Þegar aldurinn færist yfir, er gott að komast I sumarleyfi á svona stað segja þær. Á sléttlendi er gott að ganga úti, og svo erum við búin að fara og sjá svo margt hér I Skagafirði. Og þær Margrét og Helena eru einstaklega elsku- legar, segja þær. M^rgrét Jónsdóttir er búin að vera við skólann á Löngumýri í 8 ár. Ingibjörg á Löngumýri gaf þjóðkirkjunni skólann árið 1962 og var þar áfram skólastjóri næstu 5 árin á eftir. Hún hafði stofnað húsmæðraskólann og rek- ið hann af miklum myndarskap. Húsið er mjög hlýlegt. Það er byggt á mismunandi timum, elzti hlutinn frá 1918, næsti, er frá 1946—47 og nýjasti hlutinn er frá 1958. Húsmæðraskóli þjóðkirkj- Guðmundur MatthUsson — á gangi 1 garðinum. unnar á Löngumýri hefur, eins og aðrir húsmæðraskólar, átt í erfið- leikum, þar sem aðsókn að þetm hefur dvínað. Næsta vetur er áformað að þarna fari fram kennsla fyrir alla skólana í Skaga- firði, en síðari hluta vetrar verði húsmæðrakennsla með hefð- bundnu sniði. Þegar hafa 11 stúlkur sótt um skólavist og kvaðst Margrét vona að nem- endur yrðu 15—16. Sem fyrr er sagt hefur skólahúsið líka verið nýtt á sumrin, Vestmanneyingar voru þar á vegum þjóðkirkjunnar fyrst eftir gosið, og nú eru aldr- aðir úr Reykjavík í sumardvöl, sem hefur gefist mjög vel. E.Pá

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.