Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1975
17
Skúli
Skúlason
ritstjóri
85 ára
Skúli Skúlason ritstjóri, einn
elzti og kunnasti blaðamaður
Iandsins, er 85 ára í dag. Skúli er
sonur frú Sigríðar Helgadóttur og
Skúla Skúlasonar prófasts f Odda
Megrunarfæði----------------------
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 31. júlí.
Kennt verður:
Grundvallaratriði næringarfræði.
Gerð matseðla.
Sýnikennsla.
Forðist skaðlegar megrunaraðferðir.
Rétt samsett matarræði er skilyrði fyrir góðum
árangri.
Uppl. í síma 86347.
Kristrún Jóhannsdóttir, manneldisfræðingur.
-------------------Námskeið
á Rangárvöllum. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1910 og cand.
phil. prófi frá Hafnarháskóla
1911. Lagði hann síðan stund á
náttúrufræði, en hætti námi og
starfaði við islenzku stjórnar-
deildina í Kaupmannahöfn
1912—1914. Á þeim árum komst
hann fyrst i kynni við blaða-
mennskuna sem fréttaritari isa-
foldar og Morgunblaðsins.
Skúli var svo blaðamaður við
Morgunblaðið frá 1918 til 1924 og
var þá jafnframt fréttaritari
nokkurra erlendra stórblaða. Á
árunum 1924—1927 átti Skúli
heima í Noregi og starfaði þar við
blaðamennsku, en árið 1928 stofn-
aði hann vikublaðið Fálkann með
öðrum og var ritstjóri þess til
1960.
Skúli flutti aftur til Noregs
1936 og hefur átt þar heima siðan,
að undanteknum stríðsárunum
1940—1945, er hann dvaldist hér
heima. Skrifaði hann þá jafn-
framt i norsk, islenzk og sænsk
blöð. Kona hans er norsk, Nelly
Thora, fædd Mjölid.
Skúli Skúlason átti um hríð
sæti i stjórn Blaðamannafélags Is-
lands og var um skeið formaður
þess. Þá átti hann og sæti i stjórn
Ferðafélags Islands, og hefur
verið kjörinn heiðursfélagi
beggja þessara félaga.
Þótt Skúli hafi verið langdvöl-
um erlendis hefur hann mjög gott
vald á íslenzku máli og hlaut m.a.
verðlaun úr Móðurmálssjóði
Björns Jónssonar 1965.
Þegar Skúli Skúlason varð 75
ára birtist um hann grein hér í
blaðinu. Verður ekki endurtekið
það sem þar er sagt, en tekið
undir þau orð, að hann hafi með
starfi sínu og persónuleika varp-
að ljóma á stétt sína og þau marg-
víslegu störf, sem hún innir af
hendi í þjóðlifinu.
Morgunblaðið þakkar þessum
gamla starfsmanni sinum giftu-
drjúg störf á umliðnum árum og
óskar honum gæfu og gengis i
framtiðinni.
ítölskj^
•^ýjasta
tízKa
~\\jé I
3f . 'lkt |eödr
gérstak'09® ^ renm|aS
Teg. 1321
Litur: Svart
Stærðir 36—41 kr. 9.885.
Póstsendum
Skóverzlun Þórðar Péturssonar,
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll, sími 14181.