Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 18

Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975 Eiginkonur frægra stj órnmálamanna: Óheillastj arna Joan Kennedys Til Mc Lean í Virginíu er aðeins 15 mínútna akstur í bil frá Washington. Nálægt Keðjubrúarvegi, en þó eins og hálffalið í skóglendinu er 40 metra langt hús, sem minnir á herragarð. Hin bugðótta heim- reið er ekki steinlögð, og á póst- kassanum á rimlagirðingunni stendur ekkert nafn. En lítið skilti með tölustöfum, neglt á trjábol, gefur þeim, sem gerst vita, þær upplýsingar, að þeir séu á réttri leið heim til Ted og Joan Kennedy. Hið hversdagslega líf Kennedy-hjónanna á sér stað í íburðarmikilli umgjörð. Húsið, sem kostaði 130 milljónir króna, er búið dýrmætum, gömlum húsgögnum, og á veggjunum hanga meistara- verk hinna frönsku impression- ista. Þó er þetta fyrir Joan Kenn.edy hús óttans. Hún ber stöðugt kviðboga út af öryggi manns síns og barnanna þeirra þriggja. Jafnvel hin opinbera yfirlýsing Teds í september slðastliðnum, um að hann vildi fyrir enga muni verða forseti Bandaríkjanna, hefur ekki náð að draga úr áhyggjum hennar. Þegar hún tók á móti gesti fyrir nokkru við hinn stóra arin í viðhafnarsalnum, rakti hún raunir sinar: „Það heyrist ekkert hljóð í þessu stóra húsi. Við erum hér alein með börnunum okkar. Við höfum aðeins eina herbergis- þernu, annars engan. Hús okk- ar er tæpa hundrað metra frá þjóðveginum breiða. Sérhver, sem kemur yfir brúna, þarf ekki annað en að beygja smá- vegis til að koma þriðja Kennedyinum fyrir kattarnef. Hér erum við varnarlaus gagn- vart öllum hættum." Við þetta bætist ótti Joan vegna heilsufars barnanna. Teddy yngri hefur vanizt gervi- fæti sínum og getur aftur ærzl- azt um garðinn með systkinum sínum. En Joan lifir í stöðugum ótta við, að sjúkdómurinn taki sig upp aftur. Auk þess á dóttir hennar, Kara, við blóðsjúkdóm að striða. Og nýlega hefur hinn sjö ára gamli sonur hennar, Patrick, kvartað undan and- þrengslum. Þegar svo þess er gætt, að maður hennar hefur aldrei náð sér að fullu eftir flugslysið og það hryggbrot, er hann þá hlaut 1964, er hún eini meðlimur fjölskyldunnar, sem er líkamlega heilbrigð. En hennar vandamál er sál- ræns eðlis. Eftir hinar tvær sál- fræðilegu meðhöndlanir, sem hún gekkst undir í maí og september s.l., hlaut hún nokk- urn bata. Hún reykir og drekk- ur nú minna en áður eg leitar huggunar hjá Moztart og Debussy, og henni er uppörvun að þeirri viðurkenningu, sem hún hefur hlotið fyrir hljóm- listargáfur sínar. Sjónvarpsstöð greiddi henni nýlega rúmlega eina milljón króna fyrir stutta píanóhljómleika. En þrátt fyrir þetta er and- legt ástand hennar mjög við- kvæmt. Þau örlögþrungnu áföll, sem hún hefur orðið að þola, hafa skilið eftir sig spor. Enn er hún að vísu fögur sem forðum í vexti, en andlit þessar- ar konu, sem eitt sin var svo lagleg og Ijómaði af heilbrigði, er nú oft þrútið og bólgið, og rödd hennar hefur einnig orðið hrjúfari. Þegar Joan, sem á næsta ári verður fertug, litur i spegilinn á morgnana, spyr hún sjálfa sig alltaf sömu spurn- ingar: Af hverju einmitt ég? Hvað hef ég góðum guði gert? Allt var til þess gert, að ég gæti Iifað glöðu og áhyggjulausu lífi. Af hverju var mér fyrirmunað að lifa eðlilegu, hamingju sömu fjölskyldu lífi? I rauninni er hlutskipti Joan þeim mun harmrænna sem hún upprunalega var ímynd hinnar áhyggjulausu, ungu amerisku stúlku. Hún var bókstaflega persónugervingur alls hins- bezta, sem Ameríka hefur að bjóða. Margt fólk í Banda- ríkjunum álítur þvi örlög hennar táknræn fyrir harmleik þjóðar hennar, sem bæði ófyrir- sjáanlega og fyrirhyggjulaust rataði i síendurteknar ógöngur úr tímaskeiði bjartsýninnar. Virginia Joan Bennett var i heiminn borin 5. september 1936 í BronxviIIe nálægt New York. Bronxville mega menn ekki rugla saman við verka- mannahverfið Bronx. Það er einbýlishúsahverfi, þar sem ekki er gert ráð fyrir neinum fótgangendum á vegunum, því að grasfletirnir ná alveg að ak- brautunum. HENNAR VAR GÆTT EINS OG GIMSTEINS Þar bjuggu foreldrar Joan, Harry og Ginny Bennett i rós- rauð-grárri, skrautlegri villu með appelsíngulu tígulsteins- þaki. Harry var varaforseti aug- lýsingafyrirtækisins Bryan Houston Co. og lét sig persónu- lega skipta fjárhagsáætlun Col- gate Palmolive (4000 milljónir á ári). Ginny var peningaglögg kona, sem sem gætti dætra sinna, Joan og Candy, eins og dýrgripa. Bernska Joan var samfelld röð af barnaboðum, danstímum, píanóæfingum, sveitaböllum i finum klúbbum og leikhúsferðum til New York. Hún gekk í gagnfræðaskólann í Bronxville og siðan í Man- hattanville-menntaskólann í Purchase, þar sem auðugar, ka- þólskar fjölskyldur létu ala upp dætur sinar. Joan stundaði nám I stærðfræði, sögu, trúarbrögð- um og heimspeki, en aðaifagið var þó músikin. „Við vorum ekki búin und- ir hið raunverulega líf,“ sagði hún seinna.„Ég las aldrei nein blöð innan við hina háu múra heimavistarinnar og komst varla í snertingu við um heim- inn.“ Og það breyttist ekki fyrr en í nóvember 1955, þegar hún kom fram í fyrsta sinni opinberlega — á Gotham-dansleiknum í New York. Hún var ein af 42 ungum stúlkum fína fólksins, sem þessa heiðurs varð aðnjótandi. Gamanið kostaði foreldra hennar 1000 dollara fyrir utan kvöldkjólinn á hana. Sem betur fer gat hún notað kjólinn oftar en einu sinni, því að upp frá þessu fékk hún svo mörg boð, að hún var fullbókuð allan dansleikja árstímann. Arið 1956 fór hún með foreldr- um sínum um páskana til Bermuda og var þar kjörin fegurðardrottning á hinni árlegu blóma skrautsýningu. Klædd hreysikattarskinnskápu með höfuðdjásn ók hún um göt- ur borgarinnar í blómavagni, sem dreginn var af átta hestum, við mikil fagnaðarlæti ferða- manna. Morguninn eftir prýddi mýnd af henni forsíðu blaðsins „Journal American" í Man- hattan með yfirskriftinni: New York-stúlka heillar Bermuda. Þar með var ævibraut hennar ráðin að ameriskum skilningi.Tízkufirmanu Conover fannst mál hennar nær fullkomin, — 90 — 62 — 92 —, og lofaði að koma henni á framfæri, jafnskjótt og hún hefði nuddað mjöðmunum nið- ur í 90 með gúmmívalsi. Þrem- ur vikum siðar fékk hún fyrsta hlutverk sitt sem iþróttastúlka auglýsingamynd I litsjónvarpi. Laun: 500 þúsund krónur. Næsta hálft annað ár vann ljósmyndafyrirsætan Joan Bennett sér inn mikla peninga, aðallega með sígarettu aug- lýsingum. Myndir af henni birt- ust á fjölda auglýsingaspjalda og kápusíða tímarita. I boði einu, sem hún var I 1957 í júní, fór hún að tala við unga frú, Jean Smith að nafni, en hún reyndist einnig hafa verið í Manhattanville-mennta- skólanum. Þær höfðu því margt um að ræða, og með- an á samtali þeirra stóð, kynnti frú Smith ungfrú Bennett fyrir yngri bróðdur sínum, Ted. En Ted var þá á hraðri ferð — hann var þá við lögfræðinám í háskólanum í Virginia — og sagði: „Ég verð að komast aftur í kvöld til Charlottesville. Flug- vélin fer klukkan sjö, og ég hef engan bíl.“ Það er ekkert vandamál," sagði Joan, „við skulum keyra yður þangað.“ Hún ók síðan hinum unga manni ásamt vinkonu sinni út á La Guardia-flugvöll. Á leiðinni til baka spurði vinkonan fliss- andi: „Veistu, hver þetta var? Ted er sonur Joe Kennedy og bróðir Bobs og Johns.“ „Og hvaða fólk er þetta Kennedy?“ spurði Joan í sakleysi sínu. Fram að þessu hafði hún aldrei heyrt þessarar fjölskyldu getið. En nú fékk hún brátt ástæðu til að fræðast um það. Sama kvöld hringdi Ted frá Charlottesville, ' og síðan hringdi hann daglega. 1 nóvem- ber kom hann til New York á Thanksgiving Day og bauð henni út í fyrsta sinn. Ári síðar — 29. nóvember 1958 — gaf Spellman kardfnáli þau saman i heilagt hjónaband í St,- Josefs-kirkju í Bronxville að viðstöddum 500 gestum. Guðs- húsið flóði I ljósum, því að at- höfnin var frá upphafi til enda kvikmynduð á litfilmu að ósk föður brúðarinnar. New York- blaðið „Daily News“ hafði at- burðinn i þeim hávegum að birta mynd á forsfðu af „brúð- kaupi ársins“. t byrjun hjónabandsins virt- ist allt ganga ljómandi vel. I febrúar 1960 ól Joan dóttur, sem skirð var Kara Anne. I nóvember var John Kennedy kjörinn forseti Bandarikjanna, og Ted varð aðstoðarmaður sak- sóknara Massachusetts-rikis. Hjónin fluttu þá i villu á Squaw Island í Nantucket-flóa skammt frá landareignum Kennedy- fjölskyldunnar i Hyannis Port. Upp frá því lifði hin 26 ára gamla frú í hálfgerðum draumaheimi. HtJN DANSAÐI AÐEINS EITT SUMAR Seinna lýsti hún sjálf þessu tfmabili á sinn angurværa hátt: „A hverjum degi var eitthvað um að vera. Eitt kvöldið kom Bing Crosby til kvöldverðar, og kvöldið eftir sat ég við hlið ein- hvers útlends þjóðhöfðingja. Við borðuðum oft miðdegisverð f einkaherbergjum Hvita hússins. Borðbúnaðurinn var skreyttur skjaldarmerki Banda- ríkjanna, og á borðsilfrið var grafið „Hús forsetans”. Forset- inn sat við enda borðsins. Ég ræddi við Jackie um föt, músik, hárgreiðslur. Hún trúði mér fyrir þvi, að hún væri oft með hárkollu til að spara tíma. Einu sinni hittumst við öll í villu forsetans við Irving Avenue í Hyannis Port. Bob og Ethel voru þarna og eftir borðhaldið lék ég „September Song“ á flygilinn. Forsetinn söng textann angurblíðri röddu um „dagana, sem alltaf fækkar". hann grunaði ekki þá, hve spámannlega hann söng.“ Það átti fyrir Joan að liggja að dansa aðeins eitt sumar. Haustið 1961 fæddist Ted yngri. Skömmu síðar vann Ed- ward þingsæti bróður síns, sem losnað hafði í öldungadeildinni fyrir Massachusetts. Eftir kosn- ingasigurinn flutti fjölskyldan til Washington, og brátt dundi ógæfan yfir, hvert áfallið á fæt- ur öðru. I mai 1963 varð Joan fyrir vanfæðingu. I ágúst kafnaði drengurinn Patrick 39 klukku- stundum eftir að Jackie Kennedy hafði fætt hann fyrir tímann. Þremur mánuðum seinna var forsetinn myrtur i Dallas. I maí 1964 varð vanfæð- ing i annað skipti hjá Joan. I júnf hrapaði einkaflugvél Teds, þegar hann var á leið til kosn- ingafundar í Springfield og hann fannst undir eplatré — hryggbrotinn. Að eðlisfari var Joan á engan hátt undir slik áföll búin. Þegar allir aðrir í Kennedy- f jölskyldunni bitu á jaxlinn eft- ir morðið i Dallas, varð hún að liggja rúmföst í marga daga. En þegar Ted varð fyrir slysinu, brást hún öðru vísi við. Fram að því hafði henni fundizt hún Framhald á bls. 29

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.