Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 25

Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JULl 1975 25 Myndin, sem sendir þessa gáru á flandur í huganum, er úr ísienzka sendiráðinu í Paris fyrr i mánuðinum. Sem ég kom þar inn, var mikið um að vera í fremri skrifstofunni hjá henni Madame Duval, sem í 25 ár hefur hlaupið og snúist og leyst margan vanda, sem á þær ís- lenzku fjörur hefur rekið. Nú stóð hún I símanum og konu- rödd æpti á hana á frönsku. Sú kvaðst hafa lesið þá frétt i blað- inu Figaro, að íslendingar hefðu nú tekið 2000 hunda í höfuðborginni Reykjavík, farið með þá út fyrir borgina og slátrað þeim. Nú vildi hún láta sendiráðið íslenzka vita hvað henni fyndist um slíka fram- komu. Ekki að furða! Um marga tugi Parísarhunda, sem fólk á leið í sumarleyfi hefði að venju skilið eftir úti á gadd- inum fyrir lögregluna í þeirri visu borg að kljást við, varðaði hana ekki. En svona var nú fréttin, sem einhver velviljaður landi okkar hafði sent til þessa lands um umræður í borgar- stjórn Reykjavíkur i vikunni áður, þar sem borgarfulltrúar samþykktu að hætta nú ekki við 25 ára gamalt bann á að halda hunda í borginni með mótatkvæðum 2ja aðalfulltrúa og 2ja varaborgarfulltrúa, sem sátu fundinn vegna forfalla annarra. Nema franskir frétta- ritarar séu farnir að sitja á pöll- unum hjá okkur á borgarstjórn- arfundum í leit að stórfréttum. En Madame Duval var alveg eftir ELÍNU PÁLMADÓTTUR óvitandi um nýafstaðinn borgarstjórnarfund og kunni því engar skýringar á fyrr- nefndri furðufrétt. Hinum megin við borðið hjá henni sat svartur maður og grét og barmaði sér. Hann kvaðst vera flóttamaður frá Biafra og vita peningalaus. Rauði kross- inn og aðrar hjálparstofnanir væru hættar að sjá fyrir flótta- mönnum úr hans landi. Þær sinntu nú engu nema flótta- fólki frá Viet Nam. Hann ætti engan eyri og þyrfti að komast til London. Sendiherrann sjálfur var búinn að gefa honum upphæð, sem hann taldi ekki duga sér. Og því grét hann. Þetta var meiri uppákoman. Til að Iosna og heyra f reiðu kon- unni, stakk Madame Duval í örvæntingu sinni hendinni ofan i veskið sitt og rétti Surti 100 franka (3.800 kr.). En meðan hún var að reyna að sefa konuna I simanum, rifjaðist upp fyrir mér atvik frá landi þessa ágæta svertingja, sem hefur vist deyft obbolitið trú mina á tárunum — svo ljótt sem það pú er. Þá var ég af sannfæringar- krafti trúboðans að reyna á vörusýningu i Lagos að sann- færa Nigeríumenn um að þeir ættu að kaupa af okkur skreið. Ömar heitinn Tómasson flug- maður hafði í fjarveru sinni lánaö mér húsið sitt utan við borgina og bílinn. Og þar sem allir höfðu ráðið mér frá að aka sjálf gegnum æðandi markaðs- umferðina, þar sem öll óhöpp yrðu óhjákvæmilega hvítu kon- unni að kenna, þá leigði ég mér bílstjóra til snúninga. Daginn, sem ég ætlaði svo að lokka skreiðarkaupmenn til að horfa á kvikmyndina um það hversu vel við verkum skreiðina og hversu hreint og tært allt er á Islandi, með þvi að bjóða upp á drykk á eftir, og þurfti mest á bflstjóranum að halda i undir- búninginn, hringdi hann. Barnið hans hafði dáið um nótt- ina og hann gæti ekki komið. Hann átti alla mína samúð. Er ég svo tjáði vini mínum, Norð- manninum Rune Solberg, vand- ræði mín, hló hann dátt og spurði hvort ég tryði þessu. Að plata hvíta manninn þætti bara sniðugt, ef hann væri svona vit- laus. Ég varð auðvitað fokvond yfir svona miskunnarleysi. En hann kvaðst svo sannarlega skyldu sanna mér þetta, þegar vandamál dagsins væru afstað- in. En þau voru m.a. í því fólgin að passa áfengið i veizlunni. Trúverðugur þjónn hans, Ibó- inn James, sat á birgðunum og lét engan þjón fá flösku nema út á aðra tóma. Kunningjakona mín, forstjóri Hong Kong sendi- nefndarinnar, hafði ekki verið svo klók að fá igildi Ibóans heiðarlega, i sínu boði. Þegar þjónarnir voru svo að bera út goskassana að því loknu, bað hún þá fyrirvaralaust um að bera einn kassann inn i sina skrifstofu, sem hún læsti. Næst þegar hún bauð manni sóda- vatn, reyndist óblandað áfengi á flöskunni, sem þjónarnir höfðu tappað á sódaflöskurnar, til eigin betri nota síðar. En áfengis íslenzku vörusýningar- nefndarinnar og skreiðarsam- lagsins var gætt og fór aðeins ofan i verðuga. skreiðarkaup- menn. Daginn eftir kom í ljós við könnun, að bílstjórinn minn átti ekki einu sinni barn. En það gilti einu. Þetta var barn bróður hans og barn bróðurins er sama og manns eigið barn, sagði hann ásakandi. Að sjálf- sögðu. En þetta barn hafði bara ekki dáið, aðeins fengið maga- kveisu og læknir verið sóttur um nóttina. Svo var það heldur ekki bróðir hans í holdinu, sem í hlut átti, heldur maður frá sama þorpi og maður úr sama þorpi er sama'og bróðir manns. Skilurðu það ekki? sagði hann með sorgarsvip og tár i aug- unum. Og ég var auðvitað harð- brjósta vond kona i málinu. En það er ljótt að láta vonda reynslu vera að læðast í hugarin, þegar tár blikar, og vitna hérmeð upphátt um þá hugrenningasynd. Það ku gefast vel. Nú hafði Madame Duval lokið samtalinu við reiðu kon- una í símanum, og er hún heyrði málavexti, sagði hún: — Látið þið aldrei ýta ykkur út í að leyfa hunda í Reykjavík. Ég er búin að búa alla ævi við þá plágu hér í París og nú er ekkert hægt að gera lengur. Við verðum að ganga í hundaskít á götunum og banna börnunum að leika sér i görðunum. Ég sá hvað hún átti við, er út kom. Raunar hefi ég sjálf byggt mína skoðun, að hundar eigi ekki heima í þéttbýli, á því, að ég hefi sjálf búið í slíkum borgum. Islenzka konan, sem með mér var og ekki vön sliku úr Kópa- vogi, vék með viðbjóði til hliðar og sagði: — Hvaó er þetta? Stór kiessa, sem líktist mannaskít, var á gangstéttinni. Og siðar sáum við fleiri dellur. En þetta flokkast bara undir mannréttindi, heyrist nú i islenzkum fjölmiðlum. Að manni skildi ekki detta það i hug fyrr. Þetta þurfa auðvitað allir að gera. I sumum Afríku- löndum hefi ég séð menn bregða upp um sig viðu skyrtu- kjólunum sinum og setjast á hækjur sínar, þar sem þeir eru komnir. Og auðvitaö væru mannréltindi brotin með því að amast við þvi. Þetta þurfa allar skepnur að gera. Vissulega er brot á mannréttindum að banna eigendum að halda i sambýli í borgum skepnur sem auðvitað þurfa að ganga örna sinna. Að sjálfsögðu var það brot á mannréttindum, þegar stjórnendur Singaporeborgar voru að hreinsa út fallegu skit- ugu fátækrahverfin og flytja fólkið í sérbyggðar blokkíbúðir fyrir láglaunafólk og banna þvi að flytja inn með sér skepnurn- ar sinar. Það gat auðvitað ekkí skilið af hverju þvi væri mein- að að hafa með sér í nýju rúm- góðu íbúðina hænsnin sin, svín- in, geiturnar og önnur dýr og fara með þau upp i lyftunni. Nóg pláss á göngunum og svöl- unum. Nú skil ég þetta betur en þegar ég brosti að því þar. Það er auðvitað skortur á mannrétt- indum að leyfa fólki ekki að hafa hjá sér dýr i borgum. Hesta í bílskúrana, kýr i kjallarana, hunda i íbúðirnar, litlu sætu mýsnar með bláu augun í eldhússkápinn o.s.frv. Allt á þetta auðvitað sama rétt og maðurinn á fallegu húsun- um og steyptu götunum. Auðvitað á maður að hafa hið rétta hugarfar og segja eins og i sögu Sverris Kristjánssonar af manninum góða sem ekki má nefna, sem sagði: „Skönt jeg har hovedet i de höjere sociale afærer, sa har jeg dog altid staet með begge bene i sumpen." Maður getur alltaf Framhald á bls.4. um að hann starfaði i Kina á þeim árum, sem Stalin var að reyna að leggja Iandið undir veldi sitt — og má gera sér í hugarlund hvaða hlutverk honum er ætlað hér á landi. Morgunblaðið hefur minnzt á fleiri sovézka njósnara í sendiráð- inu hér, sem minnzt er á í bók John Barrons. Ekki er að undra, þótt venjulegt fólk spyrji: Hvað er eiginlega á seyði? Hver er ætl- unin með því að fylla Island af sovézkum njósnurum? Hefur ut- anrikisráðuneytið ekkert við það að athuga, eða er þvi gjörsamlega ókunnugt um þá útlendinga, sem hingað eru sendir. Eða kannski sama um fortíð þeirra? Þjóðskáld Islendinga, Tómas Guðmundsson spyr í einu ljóða sinna: Hvað er í pokanum? Hefur engum opinberum starfsmanni dottið I hug að spyrja sovézka sendiráðsmenn þessarar spurn- ingar? I sambandi við hinar miklu húseignir sovézka sendi- ráðsins í Reykjavík mætti einnig spyrja: Hvað er í kjallaranum? Einu sinni var um það rætt að Rússar skyldu hafa jafn mikil um- svif hér á landi og íslenzka sendi- ráðið í Moskvu. Hvað skyldi líða þeim fyrirætlunum? Hvernig væri að þeir, sem um þessi mál eiga að fjalla og bera ábyrgð á diplómatískum samskiptum Is- lands og Sovétrikjanna hlustuðu, þó ekki væri nema kvöldstund á þá sem gerst þekkja til, þ.e. full- trúa Maos á Islandi? Solzhenitsyn og Kissinger En segja má minni spámönnum til afsökunar, að jafnvel hinir meiri, eins og Kissinger, virðast ekki alltaf gera sér grein fyrir hættunni af heimsvaldastefnu Sovétríkjanna. Hann hefur verið i óðaönn að framfylgja „détente“- stefnu sinni og er ekkert við það að athuga, ef hún ber þann árang- ur, annars vegar að tryggja frið í heiminum og hins vegar að vernda frelsi lýðræðisþjóðanna. Kissinger. En ýmsir eru farnir að efast, a.m.k. um hið síðarnefnda. Bitur reynsla verður blekkingunni yfir- sterkari. Og sú stefna, sem Kiss- inger hefur framfylgt hefur alls ekki sannfært lýðræðissinnað fólk i heiminum um, að hann hafi alltaf á réttu að standa. Þvert á móti eru margir þeirrar skoðunar, að stefna hans sé að verða lýðræð- isrikjunum stórháskaleg. Hann þarfnast aðhalds ekki síður en minni spámenn. Og afstaða hans til Solzhenitsyns er stórlega ámælisverð, hvað sem öðru líður. Auðvitað getur Kissinger varað við því, sem Solzhenitsyn heldur fram. En raunsætt fólk hlustar þó fremur á skáldið með alla reynsl- una að baki en pragmatiskan póli- tíkus, sem hefur látið kommún- ista leika hrapallega á sig, a.m.k. i Asiu. Viðvörun Solzhenitsyns er merkari viðburður í nútímasögu en undansláttarstefna Kissingers. Það má vel vera, að stjórnmála- mönnum þyki ekki henta að hlusta á raddir mikilla skálda, þegar stjórnmál eru annars vegar. En slíkt getur leitt til mistaka, jafnvel náttúruslysa, ekki sízt þegar hundsaðar eru skoðanir manna eins og Solzhenitsyn. Hann er öðrum mönnum hug- rakkari, orð hans eru kyndlar í myrkri villuráfandi fólks á Vest- urlöndum. Samanborið við reynslu hans eru ferðir Kissing- ers um heiminn likastar því að börn fleyti kerlingar á grunnu vatni. Menn eins og Kissinger ættu að fara varlega í að skella skollaeyrum við reynslu og raun- sæi mikilmenna á borð við Solzhenitsyn. Það var móðgun við hvern lýðræðissinna þegar Kissinger ráðlagði Ford Bandaríkjaforseta, leiðtoga mestu lýðræðisþjóðar heimsins, að bjóða ekki Solzhenitsyn, hugrakkasta for- mælanda frelsis i heiminum, að heimsækja hann I Hvita húsinu. I Reutersfrétt frá Milwaukee, sem birtist i Morgunblaðinu um blaða- mannafund Kissingers, segir m.a. að Hann teldi, „að sovézki Nóbels- höfundurinn væri að hvetja til þess, að Bandarikin hæfu árásar- gjarnari stefnu gagnvart Sovét- rikjunum, sem ætlað væri að koll- steypa sovézka stjórnarfarinu." „Ég álit, að ef skoðanir hans yrðu að stefnu Bandarikjanna, stæðum við frammi fy-rir verulegri hættu á hernaðarátökum.“ Og í franska stórblaðinu Le Monde segir m.a. um þennan sama fund, að Kiss- inger hafi sagt, að slíkur fundur Fords og Solzhenitsyns hefði „neikvæð táknræn áhrif“ og varað við þvi að Solzhenitsyn teldi „détente“ ógnun, og hann álíti enn fremur, að Bandarikin eigi að reka miklu harðari pólitík til að'velta Sovétskipulaginu. „Og miðað við nútíma vopnabúnað, þá mundi slikt hafa afleiðingar, sem hvorki bandaríska þjóðin né heimurinn i heild gætu meðtekið," hefur Le Monde enn- fremur eftir bandaríska utan- rikisráðherranum. Og Le Monde heldur áfram: „Þessi hreinskilna skoðun Kissingers á eflaust eftir að valda honum auknum erfiðleikum varðandi þingið, en þar hafði afsvar Fords forseta við að hitta rússneska rithöfundinn þegar haft í för með sér andstöðu. Andstæðingar utanrikisráð- herrans hafna þessum ýkta þrýst- ingi, sem hann, að þeirra áliti, beitir við Ford forseta. Það var raunar fyrir skyndilega beiðni Kissingers að Ford forseti af- þakkaði í síðustu viku þátttöku í kvöldverðarboði sambands AFL- CIO (verkalýðssamband Banda- rikjanna) sem haldið var til heiðurs Solzhenitsyn. Varnar- málaráðherrann Schlesinger og Moynihan, hinn nýi sendiherra I Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, létu ráðleggingar utanríkisráðherrans sem vind um eyru þjóta og voru mættir í kvöldverðaboðinu til að hlusta á Solzhenitsyn." I þessu boði flutti Solzhenitsyn hina frægu ræðu sina, sem birtist i Morgunblaðinu í heild sl. sunnu- dag og mikla athygli hefur vakið víða um heim. Að vísu hefur Ford Bandaríkjaforseti sagt siðar, að rithöfundurinn geti komið í heim- sókn til Hvita hússins. En hverj- um dettur I hug, að Solzhenitsyn komi skriðandi á fund forystu- manns Bandarikjanna, svo stoltur og hreinskiptinn maður sem hann er. Vegna framkomu bandariska | utanrikisráðherrans veit hann að hann er ekki velkominn i Hvita húsið. Og nú sitja leiðtogar Rússa og Bandaríkjanna við sama heygarðshornið — og vara heim- inn við þeim boðskap, sem Solzhenitsyn flytur ráðvilltu mannkyni(!) Það er ekki undar- legt, þó að Kínverjum lítist ekki á blikuna(!) Veit hvað hann syngur En hvað hefur Solzhenitsyn sagt um „détente"? Ekkert, sem sannur lýðræðissinni ætti að fárast út af. I Washingtonræð- unni komst hann m.a. svo að orði: „Virkileg ,,détente“ hefur þrjú einkenni. I fyrsta lagi afvopnun, þ.e. ekki einungis varðandi vopn til að eyða öðrum ríkjum, heldur lika varðandi ofbeldi gagnvart eigin þjóð. I öðru lagi er það skil- yrði, að „détente" sé ekki byggð á brosum, á orðum, heldur á traust- um grunni og muni ekki hverfa eins og dögg fyrir sólu. I þessum tilgangi er nauðsynlegt, að hinn samningsaðilinn hafi eitthvert vald yfir árásum, vald almenn- ingsálitsins, frjálsra fjölmiðla frjálskjörins þings. Ef ekkert slíkt vald er fyrir hendi er engin trygging til.... Hvers konar „détente" er um að ræða, þegar þeir nota ómannúðlegan áróður, sem i Sovétríkjunum er kallaður „hugmyndafræði — strið“? „Détente" krefst vinsemdar. Hættum hugmyndafræðilegum styrjöldum." Og ennfremur: „Ykkur er sagt — og þetta skal vera siðasta tilvitnun mín í orð leiðtoga ykkar, að vald án nokkurrar tilraunar til sátta muni leiða til heimsátaka. En ég segi, að vald með sífelldri undanláts- semi er alls ekkert vald.“ Hver getur borið brigður á þessi ummæli? Enginn. Það hefur margsýnt sig, að undanlátssemi getur verið hættulegri en ákveðni. Solzhenitsyn bendir einnig á, að einungis ákveðni geri kleift að standast árásir kommúnísks alræðis, eins og hann kemst að orði. Og hann bendir á dæmi þess efnis: Finnland 1939, Berlín 1948, Kórea 1950, eldflaugamálið á Kúbu 1962. „Aftur kom ákveðni og staðfesta í veg fyrir heims- átök,“ segir hann réttilega. Menn skyldu svo sannarlega hlusta á orð Nóbelsskáldsins rússneska. Hann hæddist að vopnahléinu í Vietnam. Allir vita, að ástæða var til þess. „Hver venjulegur borgari i Sovétrikjun- um skildi, að þetta var aðeins kænt bragð, sem gerði Norður- Vietnömum kleift að taka Suður- Vietnam, þegar þeir vildu,“ segir skáldið. „Og svo allt i einu var friðarverðlaunum Nóbels úthlutað fyrir þetta. Sá friður er sorglegur og kaldhæðnislegur." Það má mikið vera, ef Kissinger hefir ekki sviðið undan þessum orðum. Menn skyldu hlusta 'á rödd Solzhenitsyns. Eða hefur hann sagt eitthvað, sem ekki á við rök að styðjast? Stangast fullyrðingar hans og skoðanir á við reynslu- þekkingu og staðreyndir? Nei, öðru nær. I fyrrnefndri ræðu seg- Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.