Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 30

Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975 Khieu Samphan, sem er sagður foringi kambódfskra kommúnista en virðist valdalftill, og Sihanouk fursti, sem er þjóðhöfðingi að nafninu til en er erlendis. FPásögn New York Tlmes byggð á vlðlðlum vlð fjölda fiðttamanna Ógnaröld og glundroðakennt byltingarástand ríkir í Kambódfu eftir sigur kommúnista og þjóðin er óðum að hverfa aftur til frumstæðra Iffshátta fyrri alda. Bæir landsins hafa tæmzt af fólki og milljónir landsmanna hafa verið settar f nauðungarvinnu. * Þannig hljóða lýsingar kambódfskra flóttamanna að sögn Henry Kamm, fréttamanns New York Times, sem kannað hefur ástandið samkvæmt upplýsingum þeirra. Þar sem Kambódfa er lokað land koma að heita má einu upplýsingarnar þaðan frá flóttamönnunum. En frásögn- um þeirra ber merkilega vel saman, segir Kamm sem gerði sér sérstakt far um að sannprófa þær með saman- burði. Frásögn Kamms fer hér á eftir f aðalatriðum. * Fyrstu viðbrögð flestra Kambódfumanna eftir sigur kommúnista var léttir vegna þess að strfðinu var lokið. En við tók skelfing þegar tilkynnt var um nauðungar- flutninga flestra landsmanna frá flestum byggðum svæðum. Þeir hófust sums staðar, til dæmis í höfuðborg- inni Phnom Penh, strax eftir sigurinn, en annars staðar að nokkrum dögum liðnum. * Aðeins þorp, sem hafa verið lengi á valdi kommúnista, virðast hafa sloppið. Einu lýsingarnar á þorpum, sem eru enn byggð upprunalegum íbúum, koma frá flótta- mönnum, sem flýðu um héruðin Kompong Thom og Siem Rep, sem hafa verið á valdi kommúnista síðan 1970. Bæir Kambódfu eru sagðir auðir af fólki nema fámennum hópum kommúnistahermanna sem gróður- setja bananatré umhverfis hallir, opinberar byggingar og minnismerki og á öllum ræktanlegum svæðum. Sama sem engin umferð er á malbikuðum vegum og flest þorp við þá sama sem mannauð. Englr penlngar Flestir landsmenn, sem eru sjö milljónir, virðast stunda nauð- ungarvinnu sem er f því fólgin að ryðja burtu frumskógum, trjá- gróðri og runnum og undirbúa jarðveginn fyrir hrfsgrjón'arækt | en margir akrar, sem hafa lengi verið ræktaðir eru komnir i órækt, vegna þess að þeir eru nálægt stöðum, sem búið hefur verið á til þessa, eða mikilvægum vegum. Peningar eru ekki lengur notaðir og heldur ekki lyf þvf þær litlu birgðir, sem voru til voru skildar eftir f bæjum. Börn eru sögð fylgjast með störfum hinna fullorðnu og kæra þá ef þeim verður á mistök til yfirvalda kommúnista sem refsa þeim. Kambódfumönnum er sagt að segja fyrir fullt og allt skilið við fortíðina og allar venjur sem henni fylgdu, að állir séu jafnir og ráði sjálfir örlögum sínum, að Kambódfumenn hafi sigrað alla erlenda óvini, einkum Banda- ríkjamenn, en eftir sé aó sigra óvinina heima fyrir. Þeir sem veita viðnám eru varaðir við því að þeir verði kramdir undir „bylt- ingarhjólinu", vígorð sem stagast er á. Karlmenn má aðeins ávarpa „Samak Mit“ og konur „Mit Neary“, ávörpum sem jafngilda ávarpinu „félagi“, þéringar eru bannaðar ásamt þvi um lfku. Kambódiumenn starfa undir stjórn kerfis, sem er fjarlægt og nafnlaust og almennt kallað Ang- ka sem merkir „Samtökin". Sagt er að Angka sé kommúnistaflokk- ur Kambódíu og hann stjórnar byltingarhernum. Svo til enginn flóttamaður hefur nokkru sinni séð háttsettari starfsmann Angka en þá sem eru yfir ákveðnu þorpL eða svæði og kann ekki að nefna nöfn eða dvalarstaði háttsettra leiðtoga. Ekki er vitað hvort Kam- bódía hefur höfuðborg eða hvort stjórnardeildir eru starfandi en þó er landinu stjórnað úr einni miðstöð því lýsingum frá ýmsum hlutum Kambódfu ber saman um að fylgt er samræmdri stefnu. En stefnan er mótuð á stöðum, sem eru langt fyrir ofan almúgann, af mönnum sem enginn þekkir og í miðstöð, sem ekki er vitað hver er. Engin viðtækl Enginn hefur séð eða heyrt bein fyrirmæli frá ákveðinni valdamiðstöð. Enginn venjulegur Kambódíumaður kemur frá svæði þar sem ekki er rafmagnslaust, og ferðaútvarpstæki eru ekki notuðj þar sem rafhlöður þeirra eru orðnar ónýtar. Engin prentuð gögn virðast vera í umferð. Fólkið sér aðeins kornunga kommúnista- hermenn klædda svörtum ein- kennisbúningum sem hafa eftirlit með starfi þeirra. Sjaldan er vitað hvað þeir heita, þeir eru fámálir og ókunnugir menn, sem stund- um koma og segja fólkinu hvers Kambódía vænti af borgurunum, eru lika nafnlausir. Langflestir flóttamennirnir eru ólæsir og óskrifandi almúgamenn eins og langflestir íbúar Kambód- íu, yfirleitt sveitafólk fremur en bæjarbúar. Margir eru tattóverað- ir áletrunum á sanskrft, sem eiga að verja þá gegn göldrufn, og það sýnir að langmest fer fyrir ómenntuðu og hjátrúarfullu fólki. Þeir ákváðu sjálfir að flýja þótt því fylgdi mikil áhætta þvf þeir urðu að ganga langar leiðir gegn- um frumskóga og áttu von á þvf að þeir yrðu handteknir eða fær- ust á flóttanum. Þeir stjórnuðust af ótta: ótta við Angka, ótta við hungur, ótta um að deyja af völd- um of erfiðrar vinnu, vosbúðar og skorts á hjúkrunargögnum og ótta um að verða myrtir af Angka. Hrætt tðlk Allir flóttamennirnir tala um morð kommúnistahermanna. Margir staðhæfa að þeir hafi ver- ið vitni að slikum morðum og flestir segjast hafa séð lík fólks sem hafi dáið með vofveiflegum hætti. Enga slíka staðhæfingu er hægt að sannprófa. Eina sönnun- in er óumdeilanleg hræðsla þeirra sem flýðu, ótti sem þeir segja að öll þjóðin hafi verið hald- in sfðan 17. apríl, daginn sem Phnom Penh féll. Dæmi: Ölæs fyrrverandi her- maður (nafn hans er ekki hægt að birta og kona hans voru við vinnu sína á akri hjá þorpi þeirra skammt frá Samrong , fylkishöf- uðstað í Norðvesturhorni landsins nálægt thailenzku landamærun- um, 3. júlí. Móðir hans kom hlaup- andi til þeirra og sagði að komm- únistahermenn hefðu komið og spurt eftir honum. „Þetta hafði komið fyrir aðra hermenn og þeir komu aldrei aftur,“ sagði hann. Milljónir vlð vinnu I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.