Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 31

Morgunblaðið - 27.07.1975, Side 31
31 MORG UNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 1975 Hermönnum kommúnista fagnað eftir fall Phnom Penh. Skömmu sfðar voru allir borgarbúar fluttir nauðungarflutningum úr borginni. I sfðasta mánuði voru 400 verkamenn f Phnom Penh að sögn sjðnarvotta. Rldflaugaárás á borgina, ðbreyttir borgarar hlaupa Byltlngarglundroðl að bakl bambustlaldslns Hermenn kambðdfskra kommúnista hjá landamnrum Thailands. Brottflutningur Bandarfkjamanna. „Rétt áður höfðu þeir komið til vinar míns. Ég held að þeir hafi myrt hann og sfðan hafi þeir ætl- að að myrða mig. Móðir mín varj óttaslegin." „Ég var svo máttlaus i hnján-| um af ótta að ég gat ekki staðið,“ sagði kona hans. Þau flýðu bæði til skógar og komust við illan leik yfir landamærin tveimur dögum siðar. Þau kvöddu ekki börn sin, sem eru á aldrinum níu mánaða til 13 ára. Chan Sam On, sem ók hjóla- kerru i Phnom Penh, flýði út í frumskóginn ásamt konu sinni af því hann var hræddur. Hann sá ekki hermenn kommúnista vinna hryðjuverk eftir að hann var neyddur til að yfirgefa höfuð- borgina fótgangandi ásamt öðrum borgarbúum strax eftir fall borg- arinnar, en hann kveðst hafa heyrt margar sögur sem hann trúi. Hann sagði að hann og kona sín hefðu orðið að vinna stöðugt, að þau hefðu aldrei fengið nægan mat og að hann hefði séð fólk deyja umvörpum án þess að fá lyf. Duong Samoueung, fyrrver- andi hermaður, er enn dasaður því stutt er síðan hann flýði yfir landamærin. Eina von hans er sú að hann fái rúm á öðru fiskiskipi. Hann er tattóveraður og ólæs. Hann flýði af því honum fannst ástandið „óbærilegt" og af því; hann „óttaðist að verða myrtur". j „Það er svo fátt sem menn mega gera að enginn veit fyrir hvað hahn getur verið skotinn," sagði hann. Flóttinn tók sjö daga og á miðri leið sá • herflokkur tvo menn, sem voru f fylgd með hon- um. Hann komst einn undan. Eklð r rúmum Bæði fólk frá Phnom Penh og minni bæjum og þorpum segir að fjöldaflutningarnir frá þessum stöðum hafi verið algerir. Am, Lavuth 22 ára nemandi, segir að í fólksflutningunum norður á bóg- inn hafi sjúklingum verið ekið á sjúkrarúmum sem þeir lágu í. Hann sá fyrstu morðin þegar tværkonurúr herliði kommúnista j spurðu karlmenn úr fjölskyldu- hóp skammt á undan hvort þeir væru hermenn. Hann sá fimm menn ganga að vegarbrúninni þar sem þeim var skipað að setja hendur fyrir aftan bak. Síðan skutu konurnar þá til bana hvern af öðrum. Am Lavuth segir að fleiri svipaðir atburðir hafi gerzt á göngunni og slíkar sögur koma fyrir aftur og aftur i lýsingum áj nauðungarflutningum frá mörg-; um öðrum stöðum i Kambódíu. Frásögnum ber saman um að veikt fólk, gamalt og ungt, hafi lagzt niður við vegarbrúnina og sagt skyldfólki sínu að halda áfram. Almennt er gengið út frá þvf að margt af því hafi dáið við vegina. Fólk fékk aðeins að hafa með- ferðis það sem það gat borið. Þvi tóku margir aðeins með sér ung börn eða aldraða ættingja og ekk- ert annað. Flestir tóku aðeins með sér matvæii. Þegar striðinu lauk var sennilega um fjórðungur íbúa Kambódíu samankominn i Phnom Penh því að þangað hafði legið stöðugur straumur flóttamanna. Fyrst var fólkinu skipað að halda i átt til fyrri heimkynna. Þegar fólkinu hafði verið safnað saman á ákveðnum stöðum nokkrum dögum sfðar var þvi hins vegar skipað að fara i átt til þorpa sem það var fætt í. Ibúar Battambang og Pailin, tveggja fylkishöfuð- borga sem erutengdarsaman með fimmtfu mílna löngum vegi, voru reknir eftir þeim vegi úr sitt hvorri áttinni þar til safnazt höfðu saman tugir þúsunda manna við vegartálma skammt frá þorpinu Khum Sneng. Landnámi lýst Soeng Boun Loeun, sem hafði þá atvinnu að grafa eftir gimsteinum og er frá Pailin sagði að fólkinu hefði verið skipað að, fara út i þykkan skóg sem vegur- inn lá í gegnum. Fólkinu var skip- að að rækta og nema land á þrem- ur nálægum hæðum og hann telur að 20.000 manns hafi verið í| hverjum hóp. Hann lýsti i smáatriðum þessu nauðungar- landnámi, og frá sams konar nauðungarlandnámi segir i frá- sögnum frá fleiri landshlutum. Sex menn sem flýðu með honum staðfestu orð hans. Hópur Soeng Boun Loeuns kom til skógarsvæðis um 36 km frá veginum. Fólkinu var skipað að reisa byrgi sem áttu að mynda stóran hring umhverfis hæðina. Þvi var skipt i hópa 10 ungra karl- manna eða 10 ungra kvenna eða fjölskylduhóp með 10 fullorðnum hver að viðbættum börnum. Hver hópur fékk úthlutað tíu ekra stóru svæði þöktu frumskógi eða runnagróðri sem þvi var skipað að ryðja og búa undir hrísgrjóna- rækt. Á það var sífellt lögð áherzla að Kambódiumenn yrðu að vera sjálfum sér nógir. Fólkinu var sagt að það yrði sjálft að búa til nauðsynleg verkfæri og finna þau hjálpartæki sem kæmu þvf að notum. Margir urðu að vinna ber- um höndum. Matarskammturinn var ein dós af hrisgrjónum á dag ásamt lítilsháttar salti. öllum var sagt að drýgja skammtinn með hvers- konar ætilegum rótum sem hægt væri að finna. llnnlð frá 5 Dagurinn hófst þegar bjöllu var hringt kl. 5 um morguninn. Fólkið fékk tvo tima til að elda ofan I sig, snæða og komast á akurinn sem var í þriggja til fjögurra kílómetra fjarlægð. Kl. 11 fengu þau hvíld og sneru aftur til kofa sinna. Þau urðu að mæta aftur á akrinum kl. 1 og unnu til 5. Kommúnistaverðir höfðu stundum eftirlit með þeim á akrinum en piltar og stúlkur á aldrinum 13 til 16 ára höfðu stöðugt eftirlit með þeim. Ung börn eru látin vinna létt land- búnaðarstörf en unglingum er sagt að vera útsendarar og boðberar Angka, segja flótta- mennirnir. Eftir vinnuna á akrinum varð fólkið að leita sér að fæðu i skóg- inum til að drýgja matarskammt- inn og bera vatn þriggja til fjögurra kilómetra vegalengd. Tvisvar eða þrisvar i viku var bjöllunni hringt til að gera fólk- inu viðvart um að það yrði að sækja pólitísk innrætingar- námskeið. Flóttamenn frá öðrum svæðum endurtóku oft orð fyrir orð það sem kom fram i lýsingu Soeng Boun Louen á þessum námskeiðum og það gefur til kynna að leiðbeinendurnir hafi starfað eftir fyrirmælum frá einni miðstöð. Aðalatriði pólitísku innrætingarinnar voru þessi: • Kambödiumenn verða að yf- irgefa híbýli sín til að tryggja að allir séu jafnir. Hreinsa verður bæi og vegi vegna hefndaráforma Bandaríkjamanna. 0 Landbúnaðurinn er undir- stöðuatvinnuvegur og verður að ganga fyrir allri annarri fram- leiðslu. Þess vegna verða allir Kambódiumenn að rækta hris- grjón og önnur matvæli nú. Seinna mun ríkisstjórnin kaupa framleiðslu þeirra og peningar verða aftur teknir i notkun. 0 Kambódíumenn munu smiða bifreiðar sínar sjálfir og sin eigin vopn, en iðnaðurinn verður Framhald á bls. 33 rumskógum en varla sála á ferll l borgum og bælum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.