Morgunblaðið - 27.07.1975, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JÚLl 1975
33
— Kambódía
Framhald af bls. 31
endurreistur síðar. Allir milliliðir
og kaupmenn hverfa úr sögunni,
Angka verður allsráðandi og lif
fójksins verður skipulagt á sam-
vinnugrundvelli.
• Kambódía stendur utan
valdablakka. Norodon Sihanouk
fursti, þjóðhöfðingi landsins að
nafninu til sem enn dvelst erlend-
is, er bara maður og Angka starf-
ar ekki i þágu eins manns heldur
allrar þjóðarinnar.
Einu fánarnir sem sjást i eftir-
litsstöðvum á landamærunum eru
rauðir og á þeim eru engin tákn.
Fáni Sihanouks fursta sést
hvergi. Flestir flóttamennirnir
kannast við nafn Khieu Samphan
aðstoðarforsætisráðherra, sem er
sagður leiðtogi frelsisfylkingar-
innar, en pólitísku leiðbeinend-
urnir nefndu hann aðeins i fram-
hjáhlaupi og án þess að leggja
áherzlu á hlutverk hans. Aldrei er
minnzt á Norður-Víetnama, sem
veittu kambódiskum kommún-
istum öflugan stuðning og háðu
fyrstu orrusturnar fyrir þá, og
Kínverja sem veittu útlagastjórn
Sihanouks fursta hæli.
Draugalegl
Flóttamennirnir segja að það
sem hafi stungið mest í augu hafi
verið tortiming alls sem minnti á
liðna sögu og bæir landsins auðir
af fólki. Fólk sem fór um flesta
stærstu bæi landsins i júní segir
að þeir hafi verið auðir nema
hvað þar hafi verið fámennir
hópar kommúnistahermanna.
Fréttir um eðlilegt athafnalíf
hafa aðeins borizt frá bænum
Kompong Chhnang þar sem unnið
var við höfnina við Tonle Sap í
maílok. Þar sá fyrrverandi nem-
andi, Lean Chheng, menn vinna
við uppskipun og útskipun á hrís-
grjónum. En frá Phnom Penh,
Battambang, Kompong Thom,
Siem Reap, Sisophon, Pursat,
Pailin og Kompong Speu hafa
borizt lýsingar sjónarvotta á
auðum götum, hrynjandi eða
brunnum húsum, auðum
markaðstorgum og draugalegri
þögn, sem aðeins er rofin þegar
fámennir hópar hermanna
þramma um. Vegirnir sem tengja
borgirnar saman eru auðir.
Lean Meas Sarot kveðst hafa
verið í Phnom Penh dagana 18. til
20. júní. Hann kom upphaflega
frá Kompong Chhnang og fór I
júníbyrjun til Prek Phnou, sem
er um 16 km fyrir norðan höfuð-
borgina. Hann telur að aðeins 400
menn hafi starfað í Phnom Penh
þá og þeir bjuggu flestir í Prek
Phnou. Hann var fluttur til
Phnom Penh ásamt 12 viðgerðar-
mönnum til að gera við 10
bifreiðar á verkstæði skammt frá
aðaltorginu. Eftir venjulegan
vinnutíma dag hvern urðu hann
og félagar hans að gróðursetja
bananatré ásamt kommúnista-
hermönnum.
Hann kveðst hafa hjálpað til
við að gróðursetja trjáplöntur
framan við konungshöllina,
umhverfis minnismerkið um
sjálfstæði Kambódíu og í görðum
einkahúsa. Svipaðar fréttir um
svipaðar gróðursetningarlhafabor-
izt frá Battambang. Lean Mears
Sarat sagði að aðrir verkamenn
störfuðu í mjólkurverksmiðjum
og við framleiðslu á rafhlöðum og
sápu. Hann sagði að þegar hann
hefði verið í Prek Phnou hefðu
hráefni mjólkurverksmiðjunnar
gengið til þurrðar, verksmiðjunni
hefði verið lokað og verkamenn-
irnir sendir burtu.
Verium
gggróðurJ
verndumi
land XgPj
Vlðlæklum brennl
H ann sagði að borgin virtist
þrifaleg en mörg hús hefðu
brunnið. Hann sagði að eldur
hefði logað í Stung Kamboth
skammt frá Prek Phnou þær tvær
eða þrjár vikur sem hann hefði
verið þar. Þarna brenndu
kommúnistahermenn ýmsum
munum sem þeir fluttu frá
húsum borgarinnar i vöruflutn-
ingabifreiðum og á uxakerrum.
Þarna brenndu þeir sjónvarps-
viðtækjum, útvarpsviðtækjum,
fatnaði, bókum, skjölum og hús-
gögnum, sagði hann.
öðru hverju sá hann eina eða
tvær flugvélar koma til lendingar
á morgnana og fljúga burtu
siðdegis sama dag og hann gizkaði
á að valdamenn sætu á fundum.
Hann kveðst hafa séð hóp
óbreyttra kinverskra borgara,
sem allir voru með skyrtuhnappa
méð myndum af Mao, skoða
markaðshverfið í fylgd með túlk.
Lýsingarnar á byltingunni i
Kambódiu gætu virzt ýkjukennd-
ar, en menn sem hafa langa
reynslu af landinu telja þær
trúverðugar. Þannig bendir
Frakki nokkur, sem þar hefur
starfað lengi, á örlög sögu-
frægasta staðar Kambódiu,
konungshöfuðborgarinnar Angk-
or. íbúarnir yfirgáfu hana
snemma á fimmtándu öld og hún
hvarf í frumskógunum. Hún
fannst ekki aftur fyrr en franskir
fornleifafræðingar vöktu athygli
umheimsins á henni á síðustu öld.
Fyrir aðeins fimm árum, þegar
enn var auðvelt að ferðast um
Kambódíu, var hægt að finna
karla og konur sem höfðu lengi
átt heima aðeins örfáa kilómetra
frá Angkor Wat, aðalmusterinu,
án þess að hafa litið það augum.
Fjallabaksleið
um verzlunarmannahelgina.
Brottför frá B.S.Í. föstudag 1. ágúst kl. 20.00.
Ekið í Galtalækjarskóg.
2. ágúst: Landmannalaugar og Eldgjá
3. ágúst: Eldgjá — Skaftártungur.
4. ágúst: Hjörleifshöfði — Vík — Fljótshlíð —
Reykjavík.
Verð kr. 5.400.00
Guðmundur Jónasson hf„
Borgartúni 34 — simar: 35215 og 31388
Enska — Þýzka — spænska — franska — italska — danska —
sænska — norska — finnska — rússneska.
"ÖIISRa
spænska og danska, verð 2.1 00.-.
Skrifið eða hringið i síma 94-3352 virka daga nema laugardaga
klukkan 1 3 — 1 7.
Lærið nýtt tungumál fyrir næstu utanlandsferð/
Salval
pósthólf 46, ÍSAFIRÐI.
hjólbaróar
á m jög
hagsfϚu
verÖi
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBODIÐ
Á ÍSLANDI H/E AUDBREKKU 44
SÍMI 42602
ÍJavMm
VERK BYGGT • VEL BYGGT • VERK BYGGT • VEL BYGGT • VERK BYGGT • VEL BYGGT
HUSBYGGJENDUR
o
0
>-
00
5*
oc
0
0
>
00
-1
UJ
>
h-
0
0
>-
00
cc
UJ
>
SVEITAFELOG
Verksmiöjuframleiösla er bygglngarmátl
nútímans, sparar lé. fyrirhðfn og tvíverknaö
Hús byggð samkvæmt byggingakerfi Verk h.f. er
ódýrasta og fljótlegasta byggingaraðferðin í dag,
nú þegar hafa verið byggð á annað hundrað hús.
GETUM AFGREITT IMOKKUR HÚS FYRIR
HAUSTIÐ. Gerum yður verðtilboð samdægurs.
Höfum fjölbreytt úrval einbýlishúsa og raðhúsa-
teikninga fyrirliggjandi, bygginganefnda og
Verksmiðjuframleiðum steyptar útveggjaeiningar
— glugga með ísettu tvöföldu gleri
— þaksperrur
— klædda þakgafla.
Getum boðið hagkvæma flutninga hvert á land
sem er. Sjáum um uppsettningu að öllu leyti eða
aðstoðum við uppsetningu eftir óskum..
vinnuteinmgar.
Athugið að þér getið verðtryggt fé yðar með samningi
Hafið samband við sölumenn okkar strax
<
m
i-
oo
-<
Q
o
—I
<
m
73
*
00
o
Q
H
<
m
t-
00
-<
o
O
H
109A9 >IU3A • 199A9 13A • 199A9>IH3A • 199A9 13A • 1Ð0A9 >IB3A
VERKhf
Laugavegi 120
(Búnaðarbankahúsinu
við Hlemm) Sími 25600 H
109A9 13A •