Morgunblaðið - 19.08.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1975
3
I LAUGARDALSHÖLLINNI
og nágrenni hennar stendur nú
yfir undirbúningur að Alþjóð-
legu vörusýningunni 1975, sem
haldin er á vegum Kaupstefn-
unnar — Reykjavfkur hf. Sýn-
ingin verður opnuð n.k. föstu-
dag 22. ágúst og stendur til 7.
september. Sýningarsvæðið er
alls 8000 fermetrar og þar af er
um helmingur undir þaki.
Sýnendur verða að þessu sinni
tæplega 200, en sýningardeildir
122.
Sýndar verða vörur frá 610
framleiðendum I 23 þjóðlönd-
um. I Laugardalshöllinni er
unnið að uppsetningu og frá-
gangi sýningarbása, en við hlið
hennar hefur verið reist 1000
fermetra sýningartjald. Tjald
þetta, sem jafnframt er einn
sýningargripa á sýningunni og
sá lang stærsti, er gert úr járn-
grind, klæddri með plastdúk. Á
útisvæði verða til sýnis m.a.
verksmiðjuframleiddir sumar-
bústaðir, lifandi minkar, leik-
tæki fyrir börn, þungavinnu-
vélar o.fl. Þá verður þar 15
tonna fiskibátur úr plasti, sem
framleiddur er í Svíþjóð. A sýn-
ingarsvæðinu úti verður gerð
Þau eru mörg handtökin, sem
unnin eru við undirbúning sýn-
ingar sem þessarar.
sérstök braut fyrir rafknúin
bifhjól, sem verða til sýnis.
Sýning þessi er almenn kaup-
stefna og vörusýning á tækni-
og neyzluvörum, en sérstök
áherzla verður lögð á heimilis-
tæki og búnað, matvæli og
skylda vöru. Sérstök heil-
brigðissýning, sem komin er frá
A-Þýzkalandi, verður sett upp á
sýningunni og nefnist hún
„Maðurinn f umhverfi sínu“.
Verður þar meðal annars sýnt
stórt líkan sem nefnt er „Gler-
konan“. Þetta er líkan af konu
3,20 m á hæð og er beinagrind
hennar gerð úr áli, en að öðru
leyti er hún úr plasti og gegnsæ
þannig að greina má einstök
líffæri.
Stærsta sýningardeildin er
frá Friðrik Bertelssyni hf., en
fyrirtækið sýnir ýmsa vefnaðar-
vöru. Þá er fyrirtækið Iðntækni
með stóra sýningardeild og sýn-
ir þar rafeindatæki og tölvu-
búnað. Fjögur fyrirtæki frá
Póllandi sýna á þessari sýn-
ingu, en meðal þess sem þau
kynna eru matvæli, fatnaður og
togarar. Á meðan sýningin
stendur yfir kemur til landsins
ítalskur matreiðslumaður, sem
framreiða mun þjóðarrétt
þeirra ítala, Pizzu.
Hverjum aðgöngumiða á sýn-
inguna fylgir happadrættismiði
og verður dregið um vinninga á
hverju kvöldi. Vinningarnir
verða ferðalög til ýmissa staða,
sem fólk almennt ferðast ekki
til. I lok sýningarinnar verður
dregið úr öllum happadrættis-
miðunum um aðalvinninginn,
sem er ferð fyrir tvo til
Thailands. Til að auðvelda fólki
utan af landi að sækja sýning-
una veita Flugleiðir afslátt á
fargjöldum. Er þessi afsláttur
allt að 50%.
Sýningin verður eins og áður
sagði opnuð á föstudag,22.
ágúst, og stendur til 7.
september. Hún verður opin
frá kl. 15—22 alla virka daga,
en um helgar verður hún opnuð
kl. 13.30 og húsinu lokað kl.22.
Tízkusýningar verða tvisvar á
dag meðan sýningin stendur
yfir, sú fyrri kl. 16.30 og sú
síðari kl. 8.45. Það verður sýn-
ingarfólk frá Karon og Mótel-
samtökunum, sem annast
þessar sýningar. Á laugardög-
um verða sérstakar sýningar á
barnafatnaði.
Tœplega 200sýnendur á
Alþjóðlegri vörusgningu
1975sem hefstá föstudag
A sýningunni er sérstök sýningardeild, þar sem fjögur pólsk fyrirtæki sýna vörur sínar. Þarna er
unnið að uppsetningu sýningardeildarinnar.
Á újisvæði sýningarinnar verða m.a. sýndir sumarbústaðir. Sá fremri er norskur, en hinn er fslensk
framleiðsla. Ljósm. — Mbl. Sv. Þorm.
Það sem sérstaka athygli vekur, þegar komið er inn I sýningartjaldið við hlið Laugardalshallarinnar,
er loftræstikerfi, sem þar hefur verið komið fyrir.
KEKK0NEN FEKK 22 LAXA
— og var ánœgður með veiðina
ur fékk ég 22 laxa,“ sagði
Kekkonen,“ þegar blm.
Morgunblaðsins ræddi við hann
á Reykjavikurflugvelli I gær,
þá nýstiginn út úr flugvél
Vængja, sem flutti hann til
Reykjavíkur að norðan. Og
hann bætti við: „Auðvitað lang-
ar mig að koma hingað aftur,“
og benti um leið á veiðina, sem
verið var að taka út úr vélinni.
Síðan gekk hann ásamt föru-
neyti inn á Loftleiðahótelið til
að fá sér hressingu, áður en
heim var haldið.
1 Loftleiðahótelinu hitti
Kekkonen forseta Islands, dr.
Kristján Eldjárn, að máli og
gengu þeir síðan saman út
að flugvél Finnlandsforseta,
þar sem forsetarnir kvöddust.
Ekki var hægt að taka alla
laxana, sem Finnarnir fengu, I
flugvél Kekkonens og voru
nokkrir tugir laxa og nokkrar
ferðatöskur skildar eftir. Þá
færði Kekkonen forseta Islands
vænan lax að gjöf.
KEKKONEN Finnlands-
forseti hélt heimleiðis
um kl. 16 í gær, eftir að
hafa verið 4 daga við lax-
veiði f Vfðidalsá f Húna-
vatnssýslu. Með Kekkon-
en í förinni voru 7 aðrir
Finnar og þá daga, sem
þeir voru að veiðum,
fengu þeir 148 laxa.
„Já, að sjálfsögðu er ég mjög
ánægður með veiðina, en sjálf-
Hluti aflans, sem Finnarnir fengu I Vfðidalsá.
Kekkonen kveður unga fslenzka stúlku, Stefanfu Sígfúsdóttur,
áður en hann hélt heim á leið f gær.