Morgunblaðið - 19.08.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 19.08.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1975 + Faðir okkar FINNBJÖRN FINNBJÖRNSSON Hrannargotu 1, ísafirði andaðist 1 8 ágúst. Börnin. Maðurinn minn, faðir okkar og sonur, HARALDURJAKOBSSON. Hverfisgötu 32 B lézt í lungnadeild Landspitalans aðfaranótt 16. þ m. Jarðarförin ákveðiri síðar. Jónfna Sfsf Bender Róbert Haraldsson Marfa Haraldsdóttir Marla Jónsdóttir Jakob Jónasson Bróðir okkar. + ÓLAFURÞÓROARSON, frá Laugarbóli, Ægisslðu 54, Reykjavik. lézt þann 1 7 þ.m. Systkini. Faðir okkar SIGURÐUR Eyleifsson, skipstjóri, Sólvallagötu 5A andaðist að Landakotsspltala 1 7 ágúst. F h systkinanna Kristjana Sigurðardóttir. + Sonur minn og faðir STEINN ÁGÚST STEINSSON, Ljósheimum 8, andaðist á heimili sínu þann 1 6. þ.m. Jónina Gisladóttir, GrétarG. Steinsson. t Jarðarför systur minnar og frænku okkar KATRÍNAR EINARSDÓTTUR, sem lést 1 2. ágúst fer fram frá Dómkirkjunni á morgun miðvikudaginn 20 ágústkl. 13.30 Valgeir Á. Einarsson, Guðríður Tómasdóttir og aðrir vandamenn. t Sonur okkar INGVI STEINAR JÓNSSON. Smáratúni 1, Keflavlk sem lést af slysförum 1 3 ágúst verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 20. ágúst kl. 2 s.d Ellsa Benediktsdóttir, Jón Kristinsson. + Föðursystir min, SOFFÍA SIGVALDADÓTTIR, frá Sandnesi, Sólheimum 23, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 20. ágúst kl. 13.30 Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Guðbjörg Einarsdóttir. - + Útför mannsins míns GUÐBJARTAR STEFÁNSSONAR aðalbókara fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 19. þ.m. kl. 13.30. Svava Arnórsdóttir. Guðbjartur Stefánsson aðalbókari Fæddur: 10. nóvember 1919 Dáinn: 11. ágúst 1975 I dag fer fram frá Kópavogs- kirkju útför Guðbjarts Stéfáns- sonar aðalbókara hjá tollstjóra- embættinu í Reykjaviðk, en hann lézt f Borgarspítalanum 11. ágúst s.l. eftir stutta en erfiða sjúk- dómslegu. Guðbjartur fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1919, elztur þriggja barna hjónanna Stefáns Guðmundssonar sjómanns og Soffíu Sigurðardóttur. Stefán lézt fyrir allmörgum árum, en Sofffa lifir son sinn. Árið 1938 útskrifaðist Guðbjart- ur úr Verzlunarskóla Islands. Eft- ir það vann hann ýmis verzlunar- störf til ársins 1941, að hann réðst til tollstjóraembættisins í Reykja- vfk og starfaði þar til dauðadags. Guðbjartur var sérstaklega ötull og fær starfsmaður, var eins + Hjartkær eiginmaður minn og faðir ÁRMANN GUÐFREÐSSON trésmiður Kleppsvegi 120. lést í Landakotsspltala 1 7. þ.m Anna Einarsdóttir Svavar Ármannsson. + Eiginmaður minn og faðir Þorkell Þórðarson, Leifsgötu 22, andaðist í Landakotsspítala 17. ágúst. Sigrlður Sólmundsdóttir, Þórdfs Þorkelsdóttir. + Systir okkar ANNA JÓNSDÓTTIR saumakona andaðist 16. þ.m. að heimili sinu Norðurbrún 1. Guðný Jónsdóttir, Kristln Jónsdóttir Ingibjörg Jónsdóttir. + Útför eiginmanns, mlns, ÁRNA SIGURÐSSONAR, vélvirkja Hraunbæ 144, sem lézt 12. ágúst sl. fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudag- inn 20. ágúst kl. 3 e.h. Fyrir mlna hönd dóttur og systkina, Frieda Sigurðsson. - Minning og allt léki í höndum hans, hvort se'm var við skrifstofustörf eða til að búa fjölskyldu sinni gött heimili. Þau voru ekki fá skiptin, sem starfsfólk embættisins leitaði til Guðbjarts með óleyst verkefni, sem hann var ævinlega fús og fær um að leysa. Sízt hefði hann óskað lofs um störf sfn, en þau vann hann af slíkri samvizkusemi og kostgæfni að leitun mun að slfku, enda naut hann sérstaks trausts og virðingar yfirmanna og félaga sinna. 12. desember 1942 varð hamingjudagur í lffi Guðbjarts. Gekk hann þá að eiga konu sina, Svövu Arnórsdóttur, dóttur hjón- anna Arnórs Guðmundssonar, sem lengi var skrifstofustjóri hjá Fiskifélagi Islands, og Margrétar Jónasdóttur, Helgasonar dóm- kirkjuorganista og tónskálds. Eignuðust þau fjögur börn, sem öll eru gift og farin að búa sjálf- sætt. Þau eru Arnór hús- gagnasmiður kvæntur Halldóru Friðriksdóttur, Stefán sfmvirki kvæntur Hildi Ólafsdóttur, Hulda gift Pétri Skaftasyni vélsmið og Einar húsgagnabólstrari kvæntur Sigrfði Hreiðarsdóttur. Barna- börnin eru orðin 14 og var oft glatt á hjalla að Sunnubraut 14, er fjölskyldan var öll saman komin. Hjónaband þeirra var sér- staklega farsælt, og voru þau mjög samhent í að gera heimilið fagurt og aðlaðandi fyrir sig og börnin. Fyrir 15 ár.um réðst Guðbjartur í að byggja sér einbýlishús I Kópa- vogi. Um smíði hússins sá hann að mestu leyti einn með aðstoð konu sinnar og barna. Gagnvart fjölskyldu sinni var Guðbjartur mjög trúr og traustur. Hann byggði meðal annars sumar- hús við Álftavatn, og naut hann þar margra ánægjulegra daga f skjóli friðsællar náttúru og ástúðar frá konu og börnum, og sfðustu árin með barnabörnum sínum, sem hann unni mjög. Við starfsfélagar Guðbjarts söknum góðs drengs og vottum konu hans, börnum, barnabörn- um og öðrum aðstandendum dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng lifir í hugum okkar. Starfsfélagar. Arið 1941 réðst Guðbjartur Stefánsson til starfa hjá toll- stjóraembættinu í Reykjavík, þá aðeins 21 árs að aldri og átti því að baki 34 ára starf við embættið er hannlést. Guðbjartur starfaði fyrst við almenn skrifstofustörf, en lengst af sem gjaldkeri og loks sem aðalbókari, en það starf er f því fólgið að hafa yfirumsjón með öllu bókhaldi stofnunarinnar, safna þráðunum saman úr ýmsum deildum og gera sfðan upp, fyrst daglega, en síðan mánaðarlega heildarskilagreinar um inn- heimtar tekjur við embættið og útgjöld þess. Allir sem til þekkja,vita, að hér er um mikið starf og fjölþætt að ræða, sem reyndar liggur í augum uppi þegar til þess er horft, að hér á í hlut stofnun, sem ein inn- heimtir meira en helming af öllum tekjúm ríkissjóðs. Starf sitt rækti Guðbjartur af stakri kost- Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BENEDIKT JÓNSSON, húsgagnabólstrari, Vesturbergi 56, Reykjavfk, verður jarðsupginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 3.00 Þeir, sem vildu mmnast hins látna, láti llknarstofnanir njóta þess. Jóhanna Jóhannesdóttir, Helga Benediktsdóttir, Jónas Sigurðsson, Jóhannes Á Benediktsson, Sigrún Sigurðardóttir, Benný Sigurgeirsdóttir ________________og barnabórn._______ gæfni og nákvæmni, svo að hvergi skeikaði. Hann hafði almannaorð þeirra er við hann þurftu að eiga samskipti, hvort heldur var almennur gjaldandi, samstarfs- menn hans á skrifstofunni eða hjá ríkisbókhaldi og rfkisendur- skoðun. Er það og þeirra mat, er best til þekkja, að hér sé nú slfkt skarð fyrir skildi, að vandfyllt muni reynast. I stétta- og nú alsnægtarþjóð- félagi eins og okka^ tíðkast að gera kröfur, miklar kröfur, háværar kröfur, og sá sem best bíður í kröfugerðinni er gjarnan hæst skrifaður hjá almennings- áliti. Ég held að Guðbjartur hafi gert kröfur og það miklar kröfur, en ekki til annarra. Kröfugerð hans beindist gegn honum sjálf- um, — krafan um vönduð vinnu- brögð sjálfs sín og vandað líferni. Guðbjartur var hár maður vexti, fremur ljós yfirlitum og tígulegur; hann var hógvær með afbrigðum og vann verk sitt í kyrrþey en ei með fyrirgangi. Honum var tamara að gera hlut- ina, og fjargviðrast ekki. Hann var því einstaklega ljúfur sam- starfsmaður sem skilyrðislaust mátti stóla á. Hann fékk hjá sam- starfsfólki sínu það orð, að hann vildi hvers manns vanda leysa. Llkt og hvert þjóðfélag er hvorki betra né verra en þegnar þess, þannig er hver stofnun ekki annað en það fólk, sem við hana starfar. Hver þegn skapar því hluta af svip þjóðfélagsins og hver starfsmaður mótar stofnun sina að nokkru. Jafn viss sem ég er um það að Guðbjartur Stefáns- son var góður fulltrúi stofnunar sinnar, þá þykist ég vita, að hann hafi einnig verið góður þjóð- félagsþegn. Hann skilaði giftu- drjúgu starfi á þó ekki lengri starfsferli. Hann braust I veglegri húsbyggingu við erfiðar aðstæður en mikla atorku. Hann skilaði þjóðfélaginu fjórum mannvæn- legum börnum og barnabörnin eru þegar orðin allmörg. Hann var því einnig gæfumaður I einka- lífi. Um leið og ég nú þakka Guðbjarti Stefánssýni nærfellt þriggja ára náið samstarf, sem aldrei bar skugga á, sendi ég eiginkonu hans, frú Svövu Arn- órsdóttur og fjölskyldunni allri hugheilar samúðarkveðjur. Það mun verða bjart yfir minningu Guðbjartar, svo sem var yfir svip hans, fasi og framkomu allri. Björn Hermannsson. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLl skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berasl blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á I niiðvikudagsblaði, að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- lormi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.