Morgunblaðið - 19.08.1975, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.08.1975, Blaðsíða 36
Ármúla 23 - Sími 86755 186. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGUST 1975 au(;i.Vsin(;asíminn er: 22480 JHorgtmbtctói?) Enn einn togbátur tekinn í landhelgi Skipstjórarnir á Gusti og Gullfaxa dæmdir í gær VARÐSKIPIÐ Ægir tók f fyrri- nótt togbátinn Kristfnu GK 81 frá Njarðvfk að meintum ólöglegum veiðum út af Ingólfshöfða. Var báturinn eina mflu fyrir innan þriggja sjómflna mörkin. Varð- skipið fór með bátinn til Eski- fjarðar og kom það þangað skömmu fyrir kvöldmatarleytið f gær. Mál skipstjórans verður væntanlega tekið fyrir hjá sýslu- manninum á Eskifirði f dag. Kristín GK 81 er sjöundi tog- báturinn sem Landhelgisgæzlan tekur að meintum ólöglegum veiðum á tæpri viku. Einn þess- arra báta, Sigurfari SH reyndist hafa verið á dragnót og var honum sleppt, og skipstjórinn á Surtsey VE var sýknaður. Skip- stjórarnir á Gusti SH og Gullfaxa SH hlutu dóma í gær, en skip- stjórarnir á Haraldi SH, Kópi SH og Kristínu GK bíða eftir dómi. Jón Magnússon fulltrúi sýslu- mannsins í Stykkishólmi kvað í gær upp ásamt meðdómendum dóma í málum skipstjóranna á Gusti SH og Gullfaxa SH. Skip- stjórinn á Gullfaxa var dæmdur í 200 þúsund króna sekt og mánaðar varðhald, en skipstjór- inn á Gusti í 200 þúsund króna sekt. Afli og veiðarfæri beggja báta var gert upptækt til ríkis- sjóðs. Flugfreyjudeilan fer til Félagsdóms FLUGFREYJUFÉLAG Islands hefur óskað eftir þvf við Flug- leiðir hf., að fyrirtækið gefi Margeir með 2 vinnínga af 3 Tjentiste Júgóslavíu 18. ágúst. FYRSTU þrjár umferðirnar í heimsmeistaramóti unglinga í skák hafa nú verið tefldar og sigr- aði fslenzki þátttakandinn, Mar- geir Pétursson, fyrstu tvo keppi- nauta sína, Austurríkismanninn Gigerl í 1. umferð, og Gaspar frá Iran í 2. umferð, en tapaði síðan fyrir Kuligovsky frá Póllandi í 3. umferð. Margeir hefur því 2 vinn- inga af þremur og er í 9.—16. sæti. Kuligovsky er efstur með 3 vinninga. ákveðið svar fyrir fimmtudags- kvöld hvort breyting hafi orðið á túlkun þess á ákveðnu atriði f nýgerðum kjarasamningum, en ágreiningur hefur verið milli aðilanna um túlkun þess. Sam- kvæmt upplýsingum Sveins Sæ- mundssonar blaðafulltrúa Flug- leiða hefur fyrirtækið ákveðið að vfsa deilunni til Félagsdóms og verður það gert formlega f dag. Flugfreyjur halda félagsfund n.k. fimmtudagskvöld, þar sem rædd- ar verða hugsanlegar aðgerðir. Flugfreyjufélag Islands sendi Framhald á bls. 35 Sáttafundur haldinn í dag SAMNINGANEFNDIR undir- manna á kaupskipum og skipafé- laganna sátu á fundi með sátta- semjara, Guðlaugi Þorvaldssyni, frá klukkan 14 f gær til klukkan 19. Annar fundur hefur verið boð- aður í dag klukkan 13.30. Guð- laugur Þorvaldsson varðist allra frétta af gangi samningaviðræðn- anna, er Mbi. ræddi við hann í gærkvöldi. Kvaðst Guðlaugur vonast til að málin skýrðust eftir fundinn I dag. Ljósm. Steinþór Eirfksson. FLUGVÉLIN — Þannig leit vélin út eftir að spellvirkjarnir höfðu farið um hana ómjúkum höndum. Vélin er I nokkrum hlutum og greina má á henni göt eftir sleggjur. SUNNUVEGUR var valin fegursta gatan í Reykjavík í ár. Við Sunnuveginn, sem er i Laugarásnum eru falleg einbýlishús og ákaflega fallegir garðar. Þessa mynd tók ól. K. Mag. á fegurstu götu borgarinnar. Yngstu íbúarnir eru sýnilega stoltir af sinni götu. Sjá myndir af húsum, sem fengu viðurkenningu á bls. 10. Ríkisstjómm ákvað að ræða við Breta Óákveðið hvenær viðræðurnar fara fram RÍKISSTJÓRNIN tók þá ákvörðun á síðdegisfundi í gær að eiga viðræður við fulltrúa brezku ríkis- stjórnarinnar um fisk- veiðar Breta við Island. Viðræðurnar verða í Reykjavík. Að sögn Einars Ágústssonar utanríkisráð- herra hefur engin ákvörð- un verið tekin um það, hvenær viðræðurnar fara fram né hvaða form verður á þeim. Verður það ákveðið eftir diplðmatískum lciðum eins og ráðherrann orðaði það, þ.e.a.s. I gegn- um sendiráð íslands í London. Það var brezka stjórnin sem setti fram ósk um að viðræður yrðu teknar upp eins fljótt og auðið væri milli Breta og Islendinga um „fiskveiðar Breta við lsland“. Það var Roy Hattersley ráðuneytis- stjóri í brezka utanríkis- ráðuneytinu sem kom þess- arri ósk brezku stjórnar- innar á framfæri við Niels P. Sigurðsson sendiherra í London. Minntist ráðu- neytisstjórinn hvergi á mílur í samtali sínu við Niels P. Sigurðsson, að sögn Einars Ágústssonar. Niels kom til Islands á föstudaginn og gaf Einari þá munnlega skýrslu um fund sinn með Hattersley. Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær skýrði Einar frá við- ræðunum og í framhaldi af því tók ríkisstjórnin fyrr- greinda ákvörðun. Einar Ágústsson sagði að auk Breta hefðu Austur- Þjóðverjar, Pólverjar, Sovétmenn og Norðmenn óskað eftir viðræðum um veiðar hér við land, en ekk- ert hefði verið ákveðið um viðræður við þessar þjóðir. Meira finnst af hassinu FlKNIEFNADÓMSTÓLLINN hefur stöðugt-unnið að rannsókn hassmálsins, sem kom upp I Reykjavík fyrir rúmri viku, en þá fann lögreglan nokkur hundruð grömm af hassi í húsi einu I borg- inni. Mjög margir hafa verið yfir- heyrðir vegna þessa máls og hefur meira hass komið í leit- irnar. Tvítugur piltur hefur verið úrskurðaður I 20 daga gæzluvarð- hald. Þar sem rannsókn er enn I fullum gangi verst Fíkniefnadóm- stóllinn allra frétta á þessu stigr málsins. Spellvirkjar gjör- eyðilögðu vélina Egilsstöðum 18. ágúst. I SÍÐUSTU viku fóru menn frá Egilsstöðum niður að Héraðsflóa til að freista þess að ná upp eins- hreyfils flugvélinni sem féll I Jökulsá á Brú á dögunum. Gekk verkið ágætlega og tókst þeim að ná vélinni upp á árbakkann. Tóku þeir mótorinn úr henni og höfðu með sér til Egilsstaða en skildu sjálfan flugvélarskrokkinn eftir og ætluðu að ná I hann um helg- ina. Þegar þeir komu á staðinn nú um helgina blasti við þeim ófögur sjón. Einhverjir spellvirkjar höfðu orðið á undan þeim og gjör- eyðilagt vélina. Höfðu þeir greini- lega gengið að henni mcð barefl- um og brotið í sundur hvern einasta heillegan hlut nema hvað þeir hafa haft hurðir á brott með sér. Er lögreglan nú að rannsaka þetta mál, en þarna hefur orðið tjón upp á hundruð þúsunda. Með auknum ferðamanna- straumi i sumar hefur meira bor- Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.