Morgunblaðið - 19.08.1975, Síða 5

Morgunblaðið - 19.08.1975, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGUST 1975 5 r I'HI ' RJ0NSS YAMAHA 360 CC. TORFÆRUHJÓL Yamaha 50 cc.eru stílhrein i útliti.með tvtge.ngigMLpgjiSjálfvirkri oliuinnspýtingu, þannig að óþarft er að blanda oliu saman við benéínið og5i: djíiiiPkassa. Gott verð og greiðsluskilmálar. Yamaha mótorhjól eru sérlega sterkbyggðóg'iiiaía jlfnap verið í fararbroddi í mótorhjóla- keppnum erlendis. J CV' j&g.K f '**' *• -i? ( * - . glGUMJEIl r *» * „,.'W s „** ■**" n* S*3i Borgartúni 29 sími22680 Ur Rauðasandshreppi Verkstæði: Síðastliðinn laugar- dag var stofnað hér I sveit hluta- félag sem hlaut nafnið Höfn h/f. Er það stofnað um trésmíðaverk- stæði fyrst og fremst og vinnu út frá þvl. Forystumaður um stofn- un félagsins er Gunnar össurar- son trésmíðameistari og er hann stjórnarformaður, prókúruhafi Marinó Kristjánsson. Lögfræðing- ur við stofnun félagsins var Sig- urður Baldursson Reykjavík. Hlutafé er kr. 5,5 millj. og helmingur þess lagður fram á stofnfundi, en hluthafar eru allir úr Rauðasandshreppi. Þannig opnast margir möguleikar með til- komu raforkunnar, sem áður voru draumsýn í fjarlægð. Veiðiskapur: Hrognkelsaveiði- menn eru nú að taka I land net sfn eftir ónæðissama og erfiða vertíð vegna veðráttunnar. Áfli var því misjafn mjög, en mest mun hafa verið 80—90 tunnur á bát, sem gefur tveim mönnum góðan pening, en það er venjulegasta áhöfn hér við þennan veiðiskap. Selveiði á Rauðasandi og önnur hlunninda eftirtekja hér f sveit, svo sem æðardúnn og eggjataka mun hafa verið allgóð. Seðill seðlanna: Fólk hefir nú fengið skattseðlana sína, og finnst mörgum forvitnilegt plagg, en kann lftt að þýða rúnirnar, og það sem verra er, öruggir þýðendur finnast fáir. Mál þessi eru mikið rædd, og flestir á einu máli um, að nú muni „kerfið" fullskapað og fullhannað, þegar svo er flókið frumritið, að enginn veit hvað við er átt, hvorki krefjandi eða kröfuþoli. Flóknast af öllu flóknu í kerfinu mun þó vera útreikningur á launajöfn- unarbótum bænda, svo við fávisir bændur tökum við ávisuninni eða bréfinu upp á það að við fáum ekkert þegar það kemur. Þeir sem fá hvorugt eru svolítið óhressir yfir því að vita ekki hvað það merkir að fá hvorugt. Svo spyr barnamaðurinn, einhleypinginn: „Hversvegna er ég með bréf upp á ekkert, en þú með ávísun uppá kýrverð“, eða öfugt. Svarið er ein- hversstaðar f „kerfinu". Látrum 3/8.— ’75 Þórður Jónsson Sfðasti kúasmalinn á Lðtrum, Þórður J. Kristjánsson, Reykja- vfk. Hann er ókátur yfir væntan- Iegri förgun kúnna sem von er. Myndin er tekin eftir sfðasta reksturinn á liðnu hausti. Þó er á sumum bæjum búið að ná flestu fé úr ull. Hér á Látrum er þetta sérstætt sumar, að þvf leyti að engin kýr baular hér lengur, og enginn kúasmali eða mjalta- kona starfandi; tvær stéttir lagðar niður. Kúnum var fargað síðastliðið haust. Mun ekki hafa verið kýrlaus byggð hér fyrr frá því Þórólfur Spörr landnáms- maður setti hér saman bú, óg gerði sér bæ á „Brunum“, og varð þá að höggva og brenna skóginn af bæjarstæðinu og sjálf- sagt nafnið af þvf dregið, Nú heit- ir þessi sami staður Brunnar, og var þar smábátaverstöð, senni- lega um aldir, eftir þvi er sagnir herma. Mjólk fáum við með póst- inum tvisvar í viku og hefði ekki þótt búmannslegt áður fyrr, og er ekki enn. Þó er líklegt að svo verði á komandi tímum. Vegagerð: Unnið var f vor að viðgerð á veginum úr Örlygshöfn og út á Látrabjarg og má hann nú heita þokkalegur malarvegur, svo við heimamenn kunnum okkur ekki læti að aka þennan veg. Er- um við þakklátir fyrir þessa fram- kvæmd, en hún kemur fleira fólki til góða, fólki af allri lands- byggðinni, þvi að mjög mikill straumur ferðafólks hefir verið á bjargið allan júní og júlfmánuði, einmitt vegna vegabótanna, og alveg sérstaklega hafi komið sól- skinsdagur, en því miður hafa þeir verið alltof fáir. Raforkumál: Vonir standa nú til, eða fastlega er reiknað með að flest býli hér i sveit verði búin að fá raforku frá samveitu fyrir vet- urinn. Maður er þó löngu hættur að taka nokkuð mark á tíma- setningum í því efni, þvf að þær hafa allar brugðizt til þessa, en manni finnst að svo Iítið vanti til að það hljóti að koma. Þá stendur til að hefja vinnu við undirbúning virkjunar í Suðurfossá á Rauðasandi, og byrjað verði með vegagerð að virkjunarsvæðinu. Framkvæmd þessari er hér almennt fagnað og talin mikil öryggisráðstöfun fyrir okkur sem búum sunnan Arnar- fjarðar, ef sæstrengurinn yfir Arnarfjörð frá Mjólká skyldi bila. SUMARIÐ sfgur áfram, tfminn alveg óstöðvandi sem fyrr, eða það sem við köllum sumar, en öllu má nafn gefa. Sumarið hefir verið blautt og kalt þó engar stór rigningar, en súld og skýjað loft. Heyskapur er fyrir nokkru haf- inn, en gengur smátt. Þó er vfð- ast orðin þokkafeg spretta, en stöðugar þurrkleysur. Á einum og einum stað er þó búið að ná nokkru af þurrheyi en f heild lftið. Rúning sauðfjár er heldur skammt á veg komin, og hætt við að hún geti dregizt, þvf flestir munu láta heyskapinn ganga fyr- ir, ef einhver stund kemur þurr. ÚTSALA /--------------------------------------\ Margir mjög góöir snyrtivöruliðir sem tilheyra eldra framleiðslu prógrammi Pierre Robert og Jane Hellen eru nú fáanlegir á sérlega hagstæðu verði ATHUGIÐ að þetta eru allt gæða vörur sem eru enn í takt við smekk fjölmargra “gameriafe* , Tunguhálsi 7, sími 82700. - ÚTSALA PIERRE ROBERT — JANE HELLEN snyrtivörur Meðal annars: Varalltlr. augnskuggar, Cologne Þessi óvenjulegi útsöluvarningur stendur yöur til boða á eftirtöldum stöðum’ Snyrtivörudeildin — Glæsibæ Hafnarborg — Hafnarfirði Gjafa og Snyrtivörubúðin — Bankastræti Snyrtivörubúðin — Laugavegi 76 Borgar Apótek — Álftamýri 1 —5 Háaleitisapótek — Háaleitisbraut 68 Kópavogsapótek — Álfhólsvegi 11.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.