Morgunblaðið - 19.08.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1975
Jón Gunnlaugsson steypir sér áfram knötturinn fer í jörðina og þaðan skýst yfir Arna Stefánsson f marki Fram, s
en Jón Pétursson, Sfmon, Matthfas, Arnar og Karl sjást einnig á neðri myndi
Annað mark Teits
olli þáttaskilum
Segja má að mark það sem Teitur Þóröarson skoraði snemma f seinni
hálfleik í leik Fram og IA á Laugardalsvellinum á sunnudaginn hafi
orðið vendipunktur leiksins. Eftir það var ekki sama jafnvægi í leik
Fram og áður, tveimur leikmönnum var skipt inná, og Marteinn færður
framar á vöilinn f von um að það myndi skapa beittari sóknarleik hjá
Fram. Tilraun þessi misheppnaðist, vörn liðsins var oftsinnis illa á
verði, og gaf Skagamönnum þau færi sem þeir kunnu vel að notfæra
sér.
Mark Teits bar þannig að, að Arni Stefánsson, markvörður Fram, var
með knöttinn og hugðist spyrna frá marki. Rúllaði hann knettinum frá
sér, og tókst Teiti þá að krækja f hann og senda hann í markið. Að dómi
flestra sem á horfðu braut Teitur á Arna er hann náði knettinum af
henum, en dómarinn, Ragnar Magnússon, gerði ekki athugasemd við
þetta atvik.
— Ég beið færis og krækti knettinum frá Árna, sagði Teitur, eftir
leikinn. — Hann var ekki með hendur á knettinum, þegar ég náði til
hans og markið þvi fullkomlega löglegt.
Arni Stefánsson var hins vegar á öðru máli. —Ég var að taka knöttinn
upp, er Teitur kom aðvífandi, og bókstaflega sparkaði honum úr
höndunum á mér, sagði hann, — og ekki nóg með það, eftir að Teitur
hafði gert þetta náði ég til knattarins aftur, en þá hélt Teitur áfram,
sparkaði knettinum frá mér og sfðan í markið. Ég undrast framkomu
dómarans í þessu tilfelli, þar sem hann sagði við mig eftir leikinn, að
sér þætti leiðinlegt að þarna hefðu sér orðið á mistök. Það er ekkert
vafamál að atvik þetta hafði úrslitaáhrif i þessum leik. Það var ekki
bara að ég léti þessa ósanngirni dómarans fara i taugarnar á mér,
heldur og allir félagar mínir i Framliðinu, sem náðu sér ekki á strik
eftir þetta.
Dómarinn, Ragnar Magnússon, sagði um þetta atvik, að hann hefði séð
vel hverju fram fór, og að Árni hefði ekki verið með knöttinn er Teitur
krækti i hann, og markið því fullkomlega löglegt. — Að ég hafi sagt við
Arna, eftir leikinn, að ég hafi séð að brotið hafi verið á honum, er
fjarstæða, sagði Ragnar, — ég sagði einungis að öllum gæti orðið á
mistök, jafnt dómurum sem leikmönnum.
M arkaf 1 ó Ögátti rnar opn
og titillinn blasir nn v
Um fjögur þúsund áhorfendur, fleiri
en verið hafa að nokkrum öðrum leik
milli íslenzkra liða í sumar, urðu vitni
Nú heppnaðist nær allt hjá
okkur, sögðu kátir Skagamenn
Mikil gleði var ríkj-
andi í herbúðum Akur-
nesinga eftir leikinn,
enda engin furða. Þeim
hafði tekizt að stíga
mjög mikilvægt skref á
leið sinni að Islandsbik-
arnum f ár. Allir voru
þeir sem við ræddum
við eftir leikinn þó sam-
mála um að mótið væri
ekki búið með þessum
úrslitum, og kváðust
kvíða báðum þeim leikj-
um sem eftir eru, gegn
Val í Reykjavík og Kefl-
vikingum á Akranesi.
Jón Gunnlaugsson
IA var allur
blóði dnfinn í leikslok.
I seinni hálfleiknum
lenti hann í árekstri við
nafna sinn Pétursson í
Framliðinu og fékk
mikinn skurð á auga-
brúnina.
— Ég er yfir mig
ánægður með leikinn,
sagði Jón. Ég átti von á
jöfnum og skemmtileg-
um leik, og það var
þessi leikur reyndar allt
fram í seinni hálfleik,
er Framarar reyndu að
keyra upp hraða og
hörku sem þeir réðu
ekki við. Ég álít Skaga-
liðið hafi leikið mjög
góða knattspyrnu sér-
staklega í seinni hálf-
leiknum, og sá mikli af-
rakstur sem við feng-
um, hafi verið beinlínis
uppskera þess.
— Það heppnaðist ó-
neitanlega allt hjá okk-
ur f þessum leik, sagði
Teitur Þórðarson, sem
eins og Jón Gunnlaugs-
son skoraði tvö mörk í
leiknum, — maður hef-
ur oft séð jafnvel betri
færi en við fengum
núna, og ekki hefur ver-
ið skorað úr þeim. Vörn
Framliðsins var yfir-
leitt nokkuð góð í leikn-
um, en opnaði sig stund-
um og við náðum að
nýta vel möguleikana
sem gáfust þannig. Að
minu mati var þarna
alls ekki um úrslitaleik
mótsins að ræða. Bæði
Fram og ÍA eiga erfiða
leiki eftir, en hinu ber
ekki að neita að eftir
þessi úrslit getum við
Skagamenn leyft okkur
að vera bjartsýnni en
áður.
— Vörn Framliðsins
opnaðist mjög mikið
þegar þeir Jón og sér-
staklega Marteinn
komu framar á vöilinn,
sagði Karl Þórðarson,
sem átti mestan heiður
af a.m.k. tveimur mörk-
um ÍA í leiknum. —
Þetta var mjög
skemmtilegur leikur,
sem gaf falleg mörk á
báða bóga. Þegar Karl
var að því spurður
hvort hann héldi að
frammistaða hans í
leiknum myndi opna
auga landsliðsnefndar-
manna á hæfni hans
svaraði hann: — Um
það vil ég ekkert segja,
en óneitanlega væri
gaman að fara að fá
tækifæri til þess að
leika með landsliðinu.
a8 sannkallaðri markahátiS á Laugar-
dalsvellinum á sunnudaginn, er Akur-
nesingar sigruðu Fram með 6 mörkum
gegn 3 i leik liðanna i 1. deildar keppn-
inni i knattspyrnu. Fyrirfram var búizt
við því að þetta yrði fyrst og fremst
leikur sterkra varna og jafnvel að eitt
mark kynni að ráða úrslitum. Lengi vel
virtist sem sá spádómur myndi rætast.
Varnir liðanna gáfu sjaldnast á sér
höggstað i fyrri hálfleiknum og leikur-
inn var i fullkomnu jafnvægi. En á 1 2
minútna kafla i seinni hálfleik var þvi
likast að flóðgáttir opnuðust, og þá
náðu með góðum skiptingum og snögg-
um sprettum að skapa meiri hættu við
Akranesmarkið en nokkru sinni var þá við
Frammarkið Einkum voru Framararnir
líflegir eftir að Jón Pétursson hafði opnað
markareikning leiksins með skallamarki
snemma i fyrri hálfleiknum. Áttu þeir að
auki bezta tækifæri hálfleiksins er Guð-
mundi Hafberg, nýliða i liðinu, mistókst
spyrna er hann var kominn í opið færi við
Akranesmarkið.
voru skoruð hvorki meira né minna en
sex mörk. Og eftir úrslit þessa leiks
Yfirleitt voru þó Akurnesingar meifa
með knöttinn, en gekk erfiðlega að kom-
verður tæpast annað sagt en að Akur-
nesingar séu komnir með aðra höndina
á fslandsbikarinn. Bæði Fram og þeir
eiga tvo leiki eftir, og auðvitað getur
enn ýmislegt gerzt en harla óliklegt er
að Akurnesingar haldi ekki sínu striki
og komi með fslandsbikarinn i siðasta
leikinn einungis til þess að fara með
hann uppeftir aftur.
Leikurinn á sunnudaginn var lengst af
mjög skemmtilegur á að horfa, og bauð
tiðast upp á það bezta sem íslenzk knatt-
spyrna hefur yfir að ráða um þessar
mundir. Akurnesingar reyndu allt frá byrj-
un að keyra upp mikinn hraða í leiknum,
vissu enda að sterkasti leikur Framara er
að dempa leik niður og stöðva sóknarlot-
ur í fæðingu. En eins og svo oft áður var
mikil barátta og skemmtileg í Framliðinu,
og þeir hertu einungis ferðina einnig og
höfðu fullkomlega við Akurnesingum á
sprettinum. Voru Framararnir oft fljótir að
snúa vörn í sókn i fyrri hálfleiknum og
ast gegnum sterka vöm Framliðsins, og
skapa sér færi. Það var þó mjög svo
sanngjarnt að jafnt væri I hálfleik, sem og
var, þar sem Teitur Þórðarson skoraði úr
vítaspyrnu þegar skammt var til leikhlés
Á 5. mínútu seinni hálfleiksins gerðist
svo atvik sem var mjög afdrifaríkt. Þá
skoraði teitur Þórðarson annað mark
Skagamanna, og er þvi lýst á öðrum stað
í íþróttafréttum blaðsins. Eftir mark þetta
var sem allt jafnvægi væri úr Framliðinu,
og það gerði sig stundum sekt um vitleys-
ur, sem jafnvel væri hægt að skamma
byrjendur fyrir, eins og t.d. hvernig
„dekkað" var upp við hornspyrnur eða
fyrirgjafir fyrir mark þeirra
Guðmundur Jónsson og Jóhannes
Atlason, sem í sumar hafa verið sem
stórmeistarar i skák, og teflt úr þeim
mannskap sem þeir hafa haft yfir að ráða
af stakri snilld, gripu til þess ráðs í
leiknum að gera tvær breytingar á Fram-
liðinu skömmu eftir að Akurnesingar
höfðu náð forystunni Pétur Ormslev kom
ínná i framlinunni fyrir Guðmund Haf-
berg, og virkaði sú skipting til góðs, en
MÖRKINNÍU
1:0 18. niínúta. Dæmd aukaspyrna á Akurnesinga úti við vttateigs-
llnu vinstra megin. Eggert Steingrlmsson tekur spyrnuna og leggur
knöttinn á höfuð Jóns Péturssonar inni I markteignum og Jón notar
möguleikann vel og skallar I markið.
1:1 41. mlnúta. Þungi hefur verið I sókn Skagamanna og þvaga
myndazt inni I vltateigi Fram. Spyrnt er að markinu og virðist svo sem
Árni Stefánsson muni eiga auðvelt með að góma knöttinn. En áður en
hann fær færi á þvl hefur Ágúst Guðmundsson slæmt hendinni f
knöttinn og dómarinn dæmir réttilega vltaspyrnu. Teitur Þórðarson
tekur spyrnuna og skorar nokkuð örugglega.
1:2 50. mfnúta. Teitur Þórðarson krækir knettinum frá Árna
Stefánssyni inni f vltateig Fram og sendir hann síðan I mannlaust
markið.
1:3 70. mfnúta. Skagamenn leika knettinum á milli sfn að Fram-
markinu. Þar er hann sendur út til vinstri á Karl Þórðarson, sem
leikur á Sfmon bakvörð, sfðan að endamörkum og gefur fyrir markið,
þar sem Matthfas kemur á fullri ferð og spyrnir f markið af stuttu
færi.
1:4 71. mfnúta. Enn leika Skagamenn vel saman og enn leikur Karl
á Símon og sendir fyrir markið, þar sem Jón Gunnlaugsson kastar sér
fram og skorar með skalla.
2:4 72. mfnúta. Rúnar Gfslason fær knöttinn, Ieikur með hann upp
hægri kantinn og gefur vel fyrir mark Skagamanna, þar sem Pétur
Ormslev nær að skjóta fremur lausu skoti. Hörður Helgason, mark-
vörður ÍA, er hins vegar kominn úr jafnvægi og knötturinn rúllar yfir
hann f markið.
3:4 74. mfnúta. Rúnar Gfslason á góða fyrirgjöf. Skagamönnum
mistekst að hreinsa frá og knötturinn hrekkur út til Eggerts Stein-
grfmssonar sem skorar með föstu og glæsilegu skoti af löngu færi.
3:5 80. mfnúta. Matthfas fær stungusendingu inn fyrir vörn Fram,
kemst nær markinu og skorar af öryggi framhjá Árna sem ætlaði að
reyna að bjarga með úthlaupi.
3:6 82. mlnúta. Dæmd hornspyrna á Fram. Árni Sveinsson tekur
spyrnuna og gefur vel fyrir markið, þar sem Jón Gunnlaugsson
stekkur upp og skallar af öryggi f markið.