Morgunblaðið - 19.08.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGÚST 1975
19
em getur ekkert gert
inni.
m x
til bjargar frekar
m'kist
ið ÍA
Texti: Steinar J. Lúðvíksson.
Myndir: Friðþjófur Helgason.
Arnar Guðlaugsson kom inná sem varnar-
maður, og Marteinn Geirssori var sendur
framar á völlinn, með það í huga auðvitað
að skapa meiri haettu við mark Akurnes-
inga. En þegar á það er litið sem eftir fór,
verður ekki annað sagt en komið hafi að
því að þeir félagar Guðmundur og Jó-
hannes léku af sér. Eftir að Marteinn
yfirgaf hina þýðingarmiklu vamarstöðu
sína, var ekki heil brú i vörn Framliðsins,
enda fór svo að Marteinn dró sig fljótlega
aftur.
Mörkin sem skoruð voru i seinni hálf-
leik voru flest hver hin fallegustu, en með
meiri árvekni i vörn hefði átt að vera unnt
að koma i veg fyrir þau flest. Þannig
skoraði Jón Gunnlaugsson t.d. tvö mörk
eftir fyrirgjafir, þar sem hann var nánast
„ódekkaður" og slíkt er ekki vænlegt
þegar jafn stór og öruggur leikmaður á i
hlut.
Skagaliðið lék þennan leik mjög
skemmtilega og oft náði liðið afbragðs-
góðum samleiksköflum i seinni hálfleikn-
um, þar sem knötturinn gekk frá manni til
manns Bezti maður liðsins i leiknum var
Jón Alfreðsson og hann og Karl Þórðar-
son voru mennirnir að baki sigrinum. Jón
var bókstaflega allstaðar á vellinum, og
átti margar mjög vandaðar og góðar
sendingar á samherja sina sem sköpuðu
Framhald á bls. 22
ENN ÞYNGIST RÓÐURINN HJÁ ÍBV
Nl) tap fyrir val á heimavelu
MEÐ tveimur mörkum á fyrstu mfnútum leiksins við ÍBV f Eyjum á
laugardaginn tryggSu Valsmenn sér sigur f viðureigninni, en úrslit leiksins
urSu 2:1. Hafa Valsmenn nú hlotið 12 stig f keppninni f 1. deild og gerSu þaS
sem hvorugu toppliSanna — ÍA eða Fram — hefur tekizt á sumrinu, a8
leggja Eyjamenn a8 velli f Eyjum. Hafa ber þó í huga að ÍBV Iiðið lák ekki
nándar eins vel á laugardaginn og það gerði f leikjum sfnum viS toppliðin
Vestmanneyingarnir virðast algjör-
lega heillum horfnir og ber árangur
liðsins vitni þar um. Liðið er með 8 stig
í 1. deildinni og neðsta sætið blasir við
liðinu. Liðið á tvo leiki eftir og þá báða
á útivelli, en að heiman hafa Eyjamenn
aðeins fengið 2 stig I sumar. Því er
ekki óllklegt að ÍBV-liðið verði að leika
gegn liði númer 2 i 2. deild um réttinn
til að leika áfram I 1. deildinni. Það er
þó engin ástæða til að afskrifa Eyjalið-
ið, sem er óútreiknanlegt eins og veðr-
ið, gott einn daginn, slæmt þann
næsta og ef til vill brjálað þann þriðja.
Um Valsliðið er það að segja að I því
eru margir ungir og efnilegir leikmenn,
sem svo sannarlega eiga framtíðina
fyrir sér. Sumarið í sumar hefur gefið
leikmönnunum ungu mikla reynslu og
næsta sumar ætti Valsliðið að geta
verið I efstu sætum 1. deildarinnar.
Meðal leikmanna liðsins eru einnig
eldri leikmenn með mikla reynslu og
hæfileika og er liðið því góð blanda
reynslu og góðra efna
í opna skjöldu
Vestmanneyskir áhorfendur létu
heyra vel I sér fyrstu mínúturnar og
einhverjir þeirra kölluðu til sinna
manna að þeir skyldu byrja á því að
taka út vitið, sem liðið ætti inni frá þvi I
bikarleiknum fyrr i vikunni. En þá fór
augljós vítaspyrna framhjá dómara
leiksins og Valsmenn „burstuðu" Eyja
mennina 5:1. Valsmenn voru þó ekki á
þeim buxunum að gefa eitt eða neitt i
þessum leik og þegar Þórði Hallgrims-
syni mistókst markspyrna strax á ann-
arri mínútu leiksins þakkaði Ingi Björn
fyrir sig með því að hirða knöttinn á
vltateig og senda hann þaðan I net
ÍBV-manna. Heldur sljákkaði í
áhorfendum við þetta og á næstu
mínútum sóttu Valsmenn hressilega
meðan varnarmenn ÍBV reyndu að
Texti: Ágúst I. Jónsson.
jafna sig eftir áfallið sem þetta mark á
fyrstu mínútunum hafði valdið þeim.
Llðan þeirra hefur sennilega ekkert
batnað við það að á 12. minútu bættu
Valsmenn öðru marki við Magnús
Bergs sendi knöttinn þá með góðu
vinstri fótar skoti i bláhorn Eyjamarks-
ins uppi undir slá. Átti Ársæll sem nú
lék að nýju i marki ÍBV litla möguleika
á að verja. Höfðu þessi tvö mörk komið
(BV-liðinu i opna skjöldu en úr þessu
fóru leikmenn liðsins að jafna sig og
áttu ekki minna í leiknum það sem eftir
var fyrri hálfleiksins
Örn skorar sitt 8. mark
Örn Óskarsson hefur verið eini leik-
maður ÍBV-liðsins sem hefur getað
skorað í sumar, er Örn búinn að skora
8 af 10 mörkum (BV i 1. deildinni i
sumar Á laugardaginn skoraði hann
sitt áttunda mark og var því markhæst-
ur i 1. deildinni þar til Matthias Hall-
grimsson gerði sér litið fyrir og skoraði
tvö mörk I leiknum gegn Fram Mark
Arnar i Valsleiknum kom eftir að mis-
skilningur hafði átt sér stað i vörn Vals
og skyndilega voru þeir tveir aleinir
fyrir miðju markinu, Örn og Sigurlás.
Sá síðarnefndi skaut fyrst en þó að
færið væri stutt fór knötturinn í slá og
út til Arnar, sem bætti um betur og
sendi knöttinn i stong og inn. Þetta var
á 31 minútu leiksins og þrátt fyrir
nokkur góð tækifæri, tókst hvorugu
liðinu að skora fleiri mörk það sem eftir
lifði leiksins
Sigur Valsmanna var sanngjarn í
þessum leik, þeir léku betur og meira
skipulag var í öllum aðgerðum þeirra.
Albert Guðmundsson og Magnús
Bergs voru einna beztir leikmanna Vals
I þessum leik, en yfirleitt áttu leikmenn
liðsins sæmilegan dag. Af Eyjamönn-
um voru það Örn, Tómas og Karl
Þórðarson, sem stóðu sig bezt. Erni er
þó óhætt að temja sér meiri prúð-
mennsku á leikvelli en hann sýndi í
þessum leik
i stuttu máli:
íslandsmótið 1 deild, Vestmannaeyjar
1 5. ágúst
ÍBV — Valur 1:2
Mark ÍBV: Örn Óskarsson á 31
mínútu
Mörk Vals: Ingi Björn Albertsson á 2.
minútu og Magnús Bergs á 12
minútu.
w • •
MIDJIÞOF OG ONAKVÆMIIONDVEGI
Texti: Stuinar J. Lúðviksson
Myndir: Friðþjófur Helgason
Leikur FH og ÍBK á Kaplakrika-
vellinum i Hafnarfirði á laugardaginn
gaf ekki mikið tilefni til skrifa né
umræðna. Þarna var um að ræða
einn af slakari leikjunum i 1. deild í
sumar, dæmigerðan malarleik, þar
sem mest bar á þófi á miðjunni,
ónákvæmum sendingum og spyrnum
milli mótherja. Við þetta bættist svo
töluverð harka, hrindingar og hnefa-
steytingar, sem dómarinn, Grétar
Norðfjörð, horfði á með blinda aug-
anu. Niðurstaðan varð jafntefli,
1—1, og þau úrslit þýða að bæði
þessi liS eru komin af hættusvæðinu
i 1. deildinni, hafa hlotið 12 stig. Má
segja að þar með sé hlutur FH-inga
orðinn mun meiri en flestir áttu von
á i upphafi keppnistimabils, en hlut-
ur ÍBK hins vegar minni. Allar likur
bentu til þess i vor, að liðið ætti
möguleika á að vera i toppbaráttunni
í sumar, en það fékk snemma að
glima við ýmis vandamál, og þá ekki
sizt hinn skapheita þjálfara sinn, Joe
Hooley, sem hljóp af landi brott.
þegar keppnin i deildinni var nýlega
hafin.
Keflvíkingar voru meira með knött-
inn í leiknum á laugardaginn og áttu
fleiri færi en FH-ingar. Fá þessara færa
voru þö hættuleg. Sóknir Keflvíkinga
gengu nær undantekningarlaust upp
miðjuna, þannig að tiltölulega auðvelt
var fyrir FH-inga að verjast og það
gerðu þeir með ágætum Voru varnar-
mennirnir Janus Guðlaugsson og Jón
Hinriksson beztu menn FH-liðsins í
leiknum, en Jón hefur tæpast leikið
betur i sumar Hélt hann hættulegasta
sóknarleikmanni Keflvíkinganna, Ólafi
Júliussyni, alveg niðri.
Sóknir FH-inga i leik þessum byggð-
ust að mestu upp á þvi að varnar-
mennirnir spyrntu löngum sendingum
fram völlinn, og úr þeim áttu svo
framherjarnir, Ólafur, Leifur og Helgi,
að vinna Gallinn var bara sá að varnar-
leikmenn Keflavíkur, sérstaklega Gísli
og Einar voru á undan i þessar
sendingar, þannig að sárasjaldan varð
veruleg hætta við Keflavikurmarkið.
Helzt var það Ólafur Danivalsson sem
ógnaði, en hann hefur áberandi mesta
knattleikni þeirra FH-inga og oft
gaman að sjá hvernig honum tókst að
snúa á andstæðinga sina. Hann mátti
þó sjaldnast við margnum í leiknum.
Forysta FH
Eftir að Keflvikingar höfðu sótt mun
meira fyrsta hálftima leiksins tókst FH-
ingum á óvart að snúa leiknum sér i
vil. Dæmd var aukaspyrna á Kefl-
vikinga skammt utan vitateigs Þórir
Jónsson renndi knettinum til Ólafs
Danivalssonar sem spyrnti með fallegu
skoti gegnum þvögu leikmanna fyrir
framan Keflavíkurmarkið og alla leið i
netið, án þess að Þorsteinn kæmi vörn-
um við. Var þetta mjög gott skot hjá
Ólafi, knötturinn smaug með jörðu alla
leið, en yfirleitt var galli skotanna í
þessum leik sá, að þau voru á annarri
eða jafnvel þriðju hæð.
Keflavik jafnar
Það var svo eftir stundarfjórðungs-
leik i seinni hálfleik að Keflvikingar
jöfnuðu með hálfgerðu klúðursmarki.
Einar Gunnarsson átti sendingu inn að
FH markinu, ætlaða Steinari Jóhanns-
syni Ómar Karlsson var of seinn út, og
eftir baráttu við varnarleikmann tókst
Steinari að pota knettinum i markið
Eftir mark þetta gerðist ekki margt
sögulegt i leiknum Tvivegis skall þó
hurð nærri hælum við Keflavíkurmark-
ið er Gísli Torfason bjargaði skoti frá
Ólafi Danivalssyni á línu og er Ólafur
komst inn fyrir vörn Keflavikurliðsins,
en mistókst að skjóta. Það fallegasta
sem sást í sókn Keflavíkur var er Jón
Ólafur Jónsson átti hörkuskot af löngu
færi sem smaug yfir FH-markið Undir
lokin voru aðeins 10 Keflvikingar á
vellinum. Ólafur Júliusson varð að yfir-
gefa völlinn vegna meiðsla, en þá
þegar höfðu Keflvikingar skipt inná
tveimur varamönnum. Ólafur hafði i
leiknum nokkrum sinnum skapað tölu-
verða hættu við FH-markið, sérstak-
lega þó i tveimur hornspyrnum í fyrri
hálfleik, en önnur þeirra hafnaði i þver-
slá cg hin i stöng
í STUTTU MÁLI:
íslandsmótið 1 deild
Kaplakrikavöllur 16 ágúst
Úrslit: FH — ÍBK 1-1 (1-0)
Mark FH: Ólafur Danivalsson á 30
mín.
Mark ÍBK: Steinar Jóhannsson á 60.
mín.
Áminning: Engin
Áhorfendur: 434.
„Dómarinn var 12. maður Skagaliðsins”
— Dómarinn var 12. mað-
urinn i liði ÍA, og það er nógu
erfitt að berjast við 11 Akur-
nesinga, sagði Guðmundur
Jónsson, þjálfari Framliðsins
eftir leikinn á sunnudaginn.
— Það var röð af atvikum
sem braut Framliðið niður i
leiknum, sagði Guðmundur,
— fyrst að fá á okkur vita-
spyrnu og síðan markið er
Teitur Þórðarson spyrnti
knettinum úr höndum Árna
Stefánssonar. Þetta tvennt
varð öðru fremur til þess að
Framararnir misstu töluvert
móðinn og léku ekki af
nægjanlegri varfærni. Fram-
koma dómarans var einstök í
þessum leik, eins og t.d. þeg-
ar hann lézt ekki sjá er brotið
var tvivegis harkalega á hin-
um unga leikmanni okkar
Pétri Ormslev inni í vitateigi
Skagamanna i seinni hálf-
leiknum. Þá var ekki dæmd
vitaspyrna, enda Framari
sem átti i hlut!
Guðmundur sagði, að þrátt
fyrir þessi úrslit hefðu Fram-
arar ekki misst vonina um
fslandsmeistaratitilinn i ár.
— Við erum eina liðið sem
getum sigrað, að Skaga-
mönnum frátöldum, og mun-
um örugglega gera okkar til
þess að tapa ekki fleiri stig-
um i mótinu.
— Ég sagði fyrir leikinn,
að ég teldi þetta hreinan úr-
slitaleik, og úr þvi að við
töpuðum tel ég að möguleik-
ar okkar á fslandsmeistara-
titilinum i ár, séu ekki mikiir.
sagði Marteinn Geirsson, eft-
ir leikinn. — Þetta var
skemmtilegur og jafn leikur
allt til þess að dómarinn tók
til sinna ráða og fór að að-
stoða Skagamennina. Mér er
með öllu óskiijanlegt hvernig
hann gat dæmt mark er Teit-
ur braut eins gróflega á Árna
og mögulegt er að gera i
þessari stöðu Auk þess var
Matthias svo greinilega rang-
stæður er hann skoraði þriðja
mark Akurnesinga.
— Eftir að Akurnesingar
skoruðu sitt annað mark
höfðum við ekki nógu góða
stjórn á okkur, og upp-
dekkningarnar voru oft afleit-
ar, þannig fengum við mörkin
á okkur.
Að lokum sagði Marteinn:
— Auðvitað verður maður að
halda i vonina. Skagamenn
eiga eftir tvo erfiða leiki i
mótinu, og þvi óvist að þeir
nái að sigra í þeim báðum.
Þeir hljóta a.m.k. að leika þá
leiki undir mikilli pressu, og
það er okkur i hag.