Morgunblaðið - 19.08.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1975
27
.•..wyy.
■■ ■ .
Wmmm.
m&mmi
WyffiÆ&sífr
reiðaakstur, ýmist langferðabif-
reiðum eða við leigubifreiða-
akstur, en síðustu 10 árin starfaði
hann hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur.
Kristján var traustur og góður
starfsmaður, hrókur alls
fagnaðar, glettinn og spaugsamur
og framúrskarandi orðheppinn.
Þá var Kristján ákveðinn f
skoðunum og var ófeiminn að
koma með sínar skoðanir um
menn og málefni og rökstuddi
þær svo vel að unun var á að
hlýða. Margar ánægjulegar sam-
verustundir áttum við vinnu-
félagar hans saman, en þvf miður
allt of fáar. Kristján var vinur
vina sinna, hjálpsamur og
traustur.
Á kveðjustund viljum við
vinnufélagar Kristjáns þakka
honum samstarfið og góða kynn-
ingu. Við munum minnast hans
lengi sem örvandi og góðs félaga.
Börnum Kristjáns, frú Sigriði
Benný á Patreksfirði og Theódór
rafvirkjameistara f Borgarnesi,
nánustu ættingjum og vinum
Aendum við kærleiks kveðjur og
vitum, að minning um kæran vin
Valgerður Pálína Einars-
dóttir Scheske, Winnipeg
Þó að mikið væri farið að draga
úr ferðum Islendinga til Vestur-
heims, er tuttugasta öldin gekk í
garð, var allnokkuð um búferla-
flutninga eftir aldamótin. Þannig
varð land okkar enn um sinn að
sjá á eftir mörgum góðum sonum
og dætrum, er freista vildu gæf-
unnar á ókunnum slóðum í leit að
betri lífsafkomu, sér og sínum til
handa.
Árið 1912 urðu frændur og vin-
ir alfarið að sjá á bak ungum
efnishjónum, Einari Jónssyni og
Sólveigu Þorsteinsdóttur. Hann
var ættaður austan úr Landeyjum
(foreldrar: Jón Brynjólfsson frá
Skúmsstöðum og Þorbjörg Niku-
lásdóttir frá Sleif), hún frá Bú-
stöðum, hér í nágrenninu, dóttir
Þorsteins Þorsteinssonar og Sig-
ríðar Jónsdóttur, er lengi áttu
heima að Laugavegi 58 B, hér í
bæ.
Þegar Einar og Sólveig fluttust
vestur, höfðu þau eignast eina
dóttur, Sigríði, gift Georg
Sigmar, sem látinn er fyrir
nokkuð mörgum árum, en
Sigríður er búsett í Winnipeg.
Eftir að vestur kom eign-
uðust þau tvær dætur, Helgu,
gift K.E. Porter borgarfulltrúa I
Winnipegborg, og Valgerði Pál-
ínu, er hér verður minnst. En sú
sorgarfregn barst nýlega til
frænda og vina hér heima, að hún
væri ekki lengur I tölu lifenda.
Andlát hennar bar að hinn 9. júlí
s.l. eftir ströng veikindi.
Vala, eins og hún var ávallt
kölluð, fæddist árið 1924 og var
því aðeins 51 árs að aldri. Hún
giftist 19. okt. 1944 Adolf Scheske
hóteleiganda. Vala dvaldist með
foreldrum sínum og systrum til 4
ára, aldurs í Lonely Lake, Manit.,
en fluttist þá með foreldrum sín-
um til Steep Rock. Man., þar sem
hún gekk i skóla og lifsbaráttan
hófst. Eftir giftinguna bjuggu
þau Vala og Adolf í Ashern
Urðu þau mjög vel kunn
meðal Vestur-íslendinga og
annarra og vinsæl með afbrigð-
um fyrir dugnað sinn og atorku í
hótelrekstri, fyrst í Minto og sfðar
Lundar Motor Hotel i Lundar,
Man. Börn þeirra urðu fjögur,
tveir synir: dr. Glenn Allan of
Vancouver, eiginkona Sharie; og
Gregory James, ungur i heima-
húsum. Dætur tvær: Judith
Signý, gift séra Harald W. Ritcie,
Winnipeg; og Pamela, ung i
heimahúsum. Vala var mjög vel
þekkt I heimabyggðum sinum og
viðar fyrir músikgáfur og störf í
þágu safnaða. Hún hafði góða
söngrödd , var snilldarpfanisti og
kenndi söng og hljófæraslátt.
Hún var einnig organisti i söfnuð-
um sínum og stjórnaði allri söng-
og kórastarfsemi i söfnuðum
heimabyggða sinna fyrst I Ashern
og síðar Lundar, eftir að hún
fluttist þangað. Einnig sá hún um
Framhald á bls. 33
Victor Strange
— Kveðjuorð
Kristján Helgi Benja-
mínsson — Minning
Fæddur 8. febrúar 1914
Dáinn 19. júlf 1975.
verður þeim styrkur og stoð í
hverri raun.
sunnudagaskóla safnaðanna. Arið
1973, en þá fluttist hún um vorið
til Winnipeg, var hún gerð að
heiðursfélaga í Kristniboðssam-
bandi kvenna (Womens Misseon-
ary Assoc.) I Winnipeg.
Jarðarförin fór fram 11. júlí.
Foreldrar Völu, sæmdarhjónin
Einar og Sólveig, eru nú dáin
fyrir allmörgum árum. Þau höfðu
ávallt gott samband við ættland
sitt, þó að þeim hlotnaðist aldrei
tækifæri til að koma heim. Dæt-
urnar tvær, Sigriður og Helga,
hafa báðar heimsótt ísland. Annir
og síðar veikindi munu hafa haml
að þvi, að Vala hafði ekki enn
komið því f verk að heimsækja
Iand feðra sinna, þó að hugur
stæði til þess, en kærkomin voru
ávallt bréf hennar og jólakveðjur
til vina hér. Skrifaði hún og talaði
ágæta islensku
Of margir átta sig ekki á því,
fyrr en um seinan, að lífið er
stutt, en margt þarf að gera og
hér varð lífið sannarlega styttra
en skyldi, aðeins 51 ár, og þó
svo mörgu eftirminnanlegu og
happadrjúgu starfi lokið.
Fyrir mina hönd, systra minna
og fjölskyldna okkar, sendi ég
Margir hafa undrazt hversu
danskur iðnaður er háþróaður og
varð það strax eftir síðustu alda-
mót. Skýringin á þessu er sú, að
frammámenn Dana vissu, að
landið var hráefnasnautt og orku-
lindir þjóðarinnar af skornum
skammti, möguleikar þeirra gagn-
vart iðnaðaruppbyggingu fólust í
því, að þjóðin vandaði til verka og
lærði handverk og meðferð véla,
svo se'm bezt mátti vera. Danir
áttu nágranna í suðri, sem á þess-
um tíma höfðu náð þjóða lengst í
iðnaðaruppbyggingu. Skipulags-
hæfileikar Þjóðverja og dugnaður
hafði á miðri nitjándu öld gert
Þýzkaland að forustuþjóð á þessu
sviði. Danir leituðu þvj fyrir sér í
Þýzkalandi og fengu marga hæfi-
leikamenn til starfa. Þannig var
fljótt upp úr aldamótunum
stofnað til iðnrekstrar í pappírs-
iðnaði, gleriðnaði, skipasmíðum
og mörgum öðrum greinum. Allur
þessi iðnaður byggðist meira og
minna upp af þýzkum kunnáttu-
mönnum. Danir voru fljótir að
tileinka sér utanaðkomanda
menningarstrauma og fóru máski
á sumum sviðum fram úr læri-
feðrum sínum.
Meðan þetta gerðist áttu tslend-
ingar i strfði við óblíð náttúruöfl
og slæmt stjórnarfar, en tengslin
milli Islands og Danmerkur
leiddu þó af sér, að hingað komu
danskir hæfileikamenn í nokkr-
um greinum, fengum við t.d.
hingað danska kunnáttumenn í
vélsmiði strax og farið var að nota
bátavélar í fiskibáta. Enn þessara
menna var Victor Strange, sem
hingað kom með varðskipinu Is-
lands Falk árið 1918 og réðst til
starfa hjá nýstofnaðri vélsmiðju,
Hamri h.f. Strange, eins og hann
Kristján var fæddur á Akur-
eyri, sonur sæmdarhjónanna
Ragnheiðar Jónsdóttur og Benja-
mins Benjamínssonar fyrrum
vatnsveitustjóra á Akureyri.
Kristján var næst yngstur sjö
systkina, fimm systra og tveggja
bræðra.
Til Reykjavíkur fluttist
Kristján árið 1932 og stundaði bif-
var alltaf kallaður, sýndi fljótt að
hann var hæfileikamaður mikill á
sínu sviði, var hann þvi fljótt val-
inn til verkstjórnar. Eg, undir:
ritaður, átti því láni að fagna að
njóta kennslu hans í nokkur ár,
og reyndist hann mér svo sem
bezt var á kosið, enda maður full-
ur áhuga um velferð og kunnáttu
nemenda sinna. Þeir voru ófáir
ungu mennirnir, sem nutu hand-
leiðslu og hæfileika Victors
Strange, og þakka honum nú að
leiðarlokum góð kynni, einnig
stendur þjóðin öll í þakklætis-
skuld við þá útlendinga, sem á
erfiðum timum í byrjun mótuðu
og miðluðu öðrum af kunnáttu
sinni.
Victor Strange lézt hér í
Reykjavík 4. þ.m. eftir erfiðan
sjúkdóm, sem hann bar með mik-
illi karlmennsku. Strange varð
góður Islendingur og eignaðist
Framhald á bls. 33
Starfsfélagar SVR.
Ötryggð hey eru alvarleg ógnun við rekstraröryggi
hvers*bús, eins og kostnaðarveró vetrarforða er orðið.
Samvinnutryggingar bjóða nú tryggingu gegn
brunatjóni á heyjum og búfe með hagkvæmari kjörum en
áður hafa þekkst.
Við minnum því bændur á að sinna þessu mikilvæga
máli sem fyrst, og senda þátttökutilkynningar sínar.
SAMVINNUTRYGGINGAR GT
ÁHMÚLA 3
SiMI 38500