Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 1

Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 1
32 SIÐUR 194. tbl. 62. árg. FIMMTUDAGUR 28. ÁGtJST 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Haile Selassie lézt í gærdag Sonur hans krefst krufningar Sjá grein um Haile Selassie á bls. 15. □ --------------------------□ Addis Ababa 27. ágúst — AP. HAILE SELASSIE, fyrrum keis- ari Eþfópíu, fannst látinn f rúmi sfnu f morgun, að þvf er rfkisút- varp landsins tilkynnti f dag. Hann var 83 ára að aldri. Bana- mein hans var sagður sjúkdómur í blöðruhálskirtli, en vegna hans hafði keisarinn gengizt undir uppskurð fyrir tveimur mánuð- um. Sfðan hafði hann dvalizt f einni af höllum þeim sem hann átti áður en herforingjar sviptu Lokaferð Kissing ers til ísraels fyrir samninga? Alexandria, Tel Aviv 27. ág. Reuter. HENRY KISSINGER kom til Tel Aviv I kvöld til viðræðna við ísra- elska ráðamenn um síðustu drög að bráðabirgðasamkomulaginu við Egypta. Tilkynnt var í dag að egypzka stjórnin hefði samþykkt fyrir sitt leyti innihald samnings og í Egyptalandi var búizt við að bráðabirgðasamningurinn yrði undirritaður á föstudag, þótt það hefði ekki verið staðfest. AHt bendir til að ísraelska stjórnin sé í þann veginn að fall- ast formlega á tillögurnar og komi ekkert óvænt upp á verði frá sam- komulaginu gengið alveg á næst- unni. Egyptar sögðu að nú væri allt undir því komið að Israelar sam- þykktu þessi drög, því að ,ekki myndi standa á Egyptum. hann embætti, og eftir aðgerðina var sagt, að hann væri á batavegi. Sonur keisarans fyrrverandi, prins Erid Azmatch Asaf Wossen, sagði í London f dag, að hann krefðist þess, að krufning yrði Iátin fara fram undir stjórn óháðra lækna og Rauða krossins til að komast að dánarorsökinni. Hann sagði, að keisarinn hefði verið við góða heilsu eftir skurð- aðgerðina, og hvatti hann Afríku- leiðtoga og heim allan að leita sannleikans í málinu. Sagði hann að fréttir frá Addis Ababa um að læknir Selassies hefði ekki fund- izt þegar hann veiktist aftur í gær, þriðjudag, væru ósann- færandi. Herstjórnin bæri, fulla ábyrgð á öryggi og heilsu Selass- ies. I útvarpstilkynningunni sagði, að í gær hefði Selassie eln- að sóttin og einkadóttur hans hefði verið Ieyft að heimsækja hann. En enginn hefði búizt við því að hann væri að dauða kom- inn, og því hefði enginn verið við rúm hans er hann gaf upp and- Framhald á bls. 18 Haile Selassie látið. - Ijónið af Júda Portúgalskir hermenn við dyr upplýsingaskrifstofu áróðursdeildar MFA f Lissabon f gærmorgun. Þessi skrifstofa var tekin af hermönnum úr Copcon sem er undir stjórn Otelo Saraiva de Carvalhos. Goncalves riðar til falls þrátt fyrir viðleitni kommúnista Yfirmaður flotans nú nefndur sem líklegur eftirmaður Lissabon 27. ág. Reuter. NTB. 1STAÐA Goncalves forsætis- ráðherra Portúgals virtist enn veikjast f dag og talsmaður for- sætisráðherrans vildi ekki neita algerlega þeim fréttum að hann kynni að segja af sér þegar frétta- menn leituðu eftir þvf síðdegis. 0 I KVÖLD gengu nokkur þús-, und verkamanna og hermanna um götur Lissabon og létu f Ijós stuðning við Goncalves. Þátttak- endur báru spjöld með áletr- Argentína: Hættan á valdaráni liðin hjá að sinni unum eins og „Einingarfylking gegn fasistum" og f hóp þeirra slógust 150 útlendingar, sem kváðust vera fulltrúar frá Dan- mörku, Vestur-Þýzkalandi, Spáni og Italfu. 1 fréttaskeytum f kvöld er ekki nánar tiltekið um fjölda göngumanna. Kommúnistaflokk- urinn hafði kvatt stuðningsmenn sína óspart til að mæta f göngunni og tjá Goncalves á þann hátt holl- ustu sfna, svo og smáflokkarnir MDP og UDP sem eru öfga- flokkar til vinstri við kommún- ista. 0 1 morgun gerðu hægrisinnaðir hermenn áhlaup á skrifstofur áróðursdeildarinnar, Copcon, og tóku þeir húsið á sitt vald og bjuggu þar um sig eftir að for- ingjar þar höfðu hótað að hlýða ekki skipunum byltingarráðsins. Þá var f kvöld talað um nýjan mann sem hugsanlegan eftir- mann Goncalves. Er það Joe Ponheiro Azevedo, flotaforingi landsins og varaforseti, sem er sagður mjög vinstrisinnaður. Engin staðfesting hefur fengizt á að hann komi til greina sem eftir- maður Goncalves en talsmaður forsætisráðherrans viðurkenndi þó, að hann „kæmi til álita“ ef forsætisráðherrann færi frá völd- um. 1 Oporto, næst stærstu borg Portúgals, efndi Sósíalistaflokk- Framhald á bls. 18 Buenos Aires 27. ág. Reuter. Ntb. MARIA ESTELA Peron féllst f kvöld á afsagnarbeiðni Alberto Numa Laplane, yfirforingja arg- entfnska hersins, og segja frétta- skýrendur, að þar með sé hætta á valdaráni af hálfu hersins hjá garði gengin f bili. Við starfinu tekur einn þeirra hershöfðingja fimm, sem kröfðust afsagnar Laplane. Fyrr í dag hafði Argentfnufor- seti neitað að taka gilda uppsögn yfirforingjans og mikil spenna var vfða um land, einkum f höfuð- borginni, þar sem mikill viðbún- Skotland: Fjórðungur tog- araflotans hefur hætt veiðunum Aberdeen 27. ágúst — AP FJÓRÐUNGUR skozka úthafs- togaraflotans hefur hætt veið- um vegna lágs fiskverðs og mikils kostnaðar vegna elds- neytis og veiðarfæra, að þvf er John Craddock, forseti samtaka skozkra togaraeigenda, sagði f dag. Craddock sagði, að fisk- iðnaðurinn berðist fyrir lífi sfnu og benti allt til að nokkur útgerðarfélög yrðu gjaldþrota nema aðstaðan breyttist. Hann kvað einu vonina felast f örlftið hagstæðari þróun verðlags á fiski. 25 af 130 úthafstogurum Skota hefur verið lagt, og 10 eru nú notaðir til birgða- flutninga eða aðstoðar við oliu- borpallana í Norðursjó. Craddock sagði, að þetta væri talandi tákn um verðmæta- hrunið innan útgerðarinnar, og væri aðeins unnt að selja þá togara sem lagt hefði verið fyrir örlitið brot af byggingar- verði þeirra. Tveimur af 18 togurum Craddocks sjálfs hefur verið lagt. aður var af hálfu hersins og var sérstaklega efldur vörður um að- albækistöðvar hersins og forseta- höllina. Heimildir, sem venjulega telj- ast áreiðanlegar, sögðu í kvöld, að forsetinn hefði dregið til baka kröfu um að hershöfðinginn Cac- eres tæki við af Laplane, en sá fyrrnefndi hefur verið mjög dygg- ur stuðningsmaður forsetans upp á síðkastið. Stjórnmálasérfræðingar f Argentínu telja að ofbeldisverk, sem magnazt hafa mjög f landinu upp á síðkastið og meðal annars hefur hvað eftir annað verið gerð- ur aðsúgur að lögreglustöðvum og herstöðvum, hafi leitt til mikillar ókyrrðar innan hersins. Mjög mikill ágreiningur hefur verið um störf Laplane, fyrr- verandi yfirmanns argentinska hersins. Einkum jókst hann þegar hann þótti sýna fullmikla af- skiptasemi af innanríkis- málum nú fyrr í mánuðinum. Tal- ið er, að ýmsir hafi verið kvaddir til að telja Estelu Peron á að láta Laplane víkja úr embætti, enda hafi ekki verið stætt á öðru, þar sem valdarán hefði ella verið í vændum og trúlegt að forsetanum hefði þá verið velt úr sessi, segja fréttastofur í kvöld. Eftir að fréttist um að Peron hefði fallizt á afsagnarbeiðnina virtist sem kyrrð hefði færzt yfir. Fer norski fjármálaráð- herrann í mál við Fí? % Eru flugfélög bótask.vld vegna fjárútláta sem seinkun brottfarar veldur farþegum? Per *KIeppe, fjármálaráðherra Noregs, hefur nú beðið lög- fræðideild norska dómsmála- ráðuneytisins að rannsaka þetta atriði eftir að hann og sendinefnd hans urðu fyrir barðinu á slíkum töfum á leið- inni til og frá norræna fjár- málaráðhcrrafundinum [ Rcykjavfk f júní s.l. Fer ráð- herrann fram á að metið sé hvort Flugfélag Islands og önn- ur flugfélög eigi ekki að standa straum af kostnaðtnum sem af seinkunum hlauzt, að þvf er segir í skeyti frá NTB- fréttastofunni. Á leiðinni til fundarins seink- aði vél British Airways með norsku sendinefndina frá Kaupmannahöfn til London, og var ljóst að nefndin myndi ekki ná síðustu vél Flugfélags ís- lands til Reykjavikur. Voru sendar eindregnar óskir um að Flugfélagsvélin biði í London eftir sendinefndinni en við þeim var ekki orðið. Varð norska rikisstjórnin þvi að greiða 30.000 norskar krónur fyrir sérstaka leiguflugvél frá London til þess að sendinefnt’- in næði til fundarins i tæka tið. Á leiðinni frá Reykjavík að af- loknum fundi seinkaði vél Flugfélagsins til Kaupmanna- hafnar. Fékk sendinefndin bók- un sinni breytt og fór með vél sem átti að leggja af stað hálf- tíma áður en upphaflega vélin, samkvæmt seinkuninni. En þeirri vél seinkaði einnig, og tókst Kleppe og félögum hans þvi ekki að ná síðustu vél til Óslóar frá Kaupmannahöfn, og urðu að dveljast i Höfn um nóttina. Fulltrúi Flugfélags tslands i Noregi hefur harmað það sem gerzt hefur, segir i NTB- fréttinni, einkum seinkunina á heimleiðinni, en félagið telur sig ekki geta borið ábyrgð á seinkuninni frá London, þar eð ekki hafi verið verjanlegt að láta vélina þar bíða eftir norsku sendinefndinni. En nú hefur sem sagt ráðherrann beðið dómsmálaráðuneytið í Noregi að rannsaka þetta mál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.