Morgunblaðið - 28.08.1975, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. AGÚST 1975
Skar á vírana ut-
an við 50 mílurnar
VARÐSKIPIÐ Týr undir skip-
stjórn Guðmundar Kærnested,
skar á víra tveggja v-þýzkra
togara um kl. 9 í gærmorgun fyrir
utan 50 mflna mörkin úti af Eld-
eyjarboða. Togararnir, sem urðu
fyrir barðinu á klippum varð-
skipsins, heita Köln NC 471 og
Arcturus BX 739.
Gunnar Ölafsson hjá Land-
helgisgæzlunni sagði, þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hann í gær, að íslenzkir togarar
hefðu kvartað mjög oft undan
ágengni v-þýzkra togara undan-
farið og einn og einn v-þýzkur
togari hefði farið allt upp að 12
mílna mörkunum, án þess að
varðskip hefðu náð þeim. I fyrri-
nótt hefði varðskip komið að Köln
NC 471 og Karli Wiederker BX
667, þar sem þeir hefðu verið 18
sjómílur innan 50 mílna mark-
anna .úti af Eldeyjarboða. Togar-
arnir hefðu strax híft upp vörp-
una og haldið út fyrir 50 mílna
fiskveiðilögsöguna, ásamt öðrum
þýzkum togurum, sem voru á
þessum slóðum. Varðskipið hefði
hins vegar elt þessa tvo togara og
gefið þeim stöðvunarmerki.
I fyrrinótt var slæmt veður og
mikill sjór, sagði Gunnar, og því
ekkert hægt að gera. Þegar togar-
arnir komu út fyrir mörkin
stoppuðu þeir, og varðskipið hélt
sig í nánd við þá. Um kl. 9 í
gærmorgun var komið sæmilegt
veður og þá kastaði Köln og hóf
veiðar. Varðskipið hélt þá þegar
að togaranum og klippti á báða
Sviðaútsala
SlÐASTLIÐNA fjóra daga hefur
verö á sviðum verið lækkað vegna
þess að miklar birgðir voru til I
landinu og nauðsyn þótti að
auka neyzlu á þessum varningi.
Lækkunin nam í gær 15,4%, en
hvert kg af sviðum var þá selt á
220 krónur, en kostaði áður 260
krónur.
Samkvæmt upplýsingum Jón-
munds Ölafssonar hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins jókst
salan á sviðum talsvert við lækk-
unina og hefur því þessa fjóra
daga talsvert gengið á þær birgðir
sem til voru af sviðum. Jónmund-
ur kvað margar ástæður vera fyr-
ir því að treglega gengi að selja
svið, matarvenjur fólks hefðu
breytzt með árunum og sauðfjár-
slátrun ár hvert hefði þróazt
þannig, að sláturfé er nú 200 til
300 þúsund fleira en fyrir nokkr-
um árum. Þá eru svið ekki niður-
greidd og standast þvi naumast
samkeppnina við aðrar sauðfjár-
afurðir, sem eru niðurgreiddar.
Þá er talsverð fita í sviðum og vill
fólk síður fitu og feittkjöt.
Guðmundur tap-
aði í 10. umferð
GUÐMUNDUR Sigurjónsson tap-
aði fyrir Skotanum Craigh Prit-
chett 1 32 leikjum f 10. umferð
alþjóðaskákmótsins f London f
gær. Hins vegar á Guðmundur
unna skák frá þvf f 9. umferð en
sú skák hefur tvisvar farið í bíð.
Eftir 10 umferðir er staðan á
mótinu sú, að efstur er Miles með
7 vinninga, þá koma þeir Adjorj-
an og Timman með 6 vinninga og
Sax er með 5 vinninga. Guðmund-
ur Sigurjónsson hefur hlotið 2!4
vinning.
Fyrirlestur í
Árnagarði kl. 17
DR. SVEN Dalgaard-Mikkelsen
frá danska dýralæknaháskólan-
um mun flytja fyrirlestur kl. 171
dag í stofu 210 í Árnagarði. Fyrir-
lestur hans fjallar um „varanleg
lífræn klórsambönd og kvikasilf-
ur í lífverum I Danmörku, íslandi
og Grænlandi."
Dalgaard-Mikkelsen hefur eink-
um lagt stund á rannsóknir á
mengun og varanlegum eiturefn-
um í lífverum. Á hans vegum
hafa m.a. verið rannsakaðir sjúk-
dómar í íslenzka fálkanum.
togvfrana 6.9 sjómílur fyrir utan
50 mílna línuna. Arcturus, sem
vægast sagt hefur vefið mjög
ágengur og mikið kvartað undan,
fór einnig að toga þarna rétt hjá
og 12 mínútur yfir 9 klippti varð-
skipið á báða vlra togarans 9.8
Framhald á bls. 18
Blaðafulltrú-
ar þinga hér
BLAÐAFULLTRUAR utanrfkis-
ráðuneyta á Norðurlöndum koma
saman til fundar í Reykjavfk f
dag, en þeir eiga með sér fund
einu sinni á ári. Síðast komu þeir
saman til fundar í Reykjavík árið
1970.
Þórður Einarsson, blaðafulltrúi
utanríkisráðuneytisins, sagði,
þegar Mbl. ræddi við hann f gær,
að alls sæktu 9 manns frá hinum
Norðurlöndunum fundinn, sem
lýkur á föstudagskvöld, en þar á
meðal eru blaðafulltrúar Norður-
landaráðs. Á fundinum verður
einkum rætt um mál sem falla
undir blaðafulltrúana, eins og t.d.
upplýsingar til útlanda og land-
kynningarstarfsemi. Þá verður
rætt um þátt Norðurlanda í sam-
bandi við 200 ára afmæli Banda-
ríkjanna á næsta ári.
Þessi mynd var tekin fyrir fáum dögum af slætti á Stórólfsvallabúinu við Hvolsvöll en þar er starfrækt
ein þeirra graskögglaverksmiðja, sem starfandi eru f landinu. Ljósm. Hermann Stefánsson.
Hey selt á 15 til 20 krónur kg.
SIS flytur inn 500
tonn af graskögglum
SAMBAND fsl. samvinnufélaga
hefur ákveðið að flytja inn frá
Danmörku 500 tonn af grasköggl-
um og eru þeir væntanlegir til
landsins um miðjan september.
Að sögn|jforráðamanna innflutn-
ingsdeildar SlS er þetta gert f
Ijósi þess hversu erfiðlega hefur
gengið að afla heyja f sumar.
Morgunblaðið kannaði einnig
heyverð og kom í Ijós við þá könn-
un, að norðanlands, f Skagafirði
og Eyjafirði, er kflóið selt á 15
krónur en sunnanlands er verðið
á milli 18 og 20 krónur. I samtali,
sem blaðið átti við Gfsla Theó-
dórsson hjá SlS, kom fram að
30% hækkun verður á fóðurbæti
fram til áramóta.
Gísli Theódórsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri innflutnings-
eildar Sambands fsl. samvinnufé-
laga, sagði í samtali við Mbl., að
Arni Gunnarsson
fréttaritstjóri Vísis
ÁRNI Gunnarsson, fréttamaður
við Rfkisútvarpið, hefur verið
ráðinn fréttaritstjóri dagblaðsins
Vfsis frá og með 1. september
næstkomandi.
Árni Gunnarsson hefur starfað
11 ár á fréttastofu ríkisútvarpsins
og verið varafréttastjóri hin síð-
ustu ár. Áður en hann réðst til
útvarpsins var hann blaðamaður
við Alþýðublaðið i 4 ár og sfðast
fréttastjóri þess.
Árni Gunnarsson sagði f viðtali
við Mbl. 1 gær, að hann hefði tekið
þvf boði að verða ritstjóri Vísis
eftir að hafa kannað það að engar
kvaðir væru lagðar af eigendum
blaðsins á fréttir þess eða skrif
fréttamanna.
ástæðan fyrir innflutningi SlS á
graskögglum væri, að heyskapar-
tíð hefði verið erfið í sumum hlut-
um landsins og væri víða hey-
skortur. Graskögglar þessir eru
unnir úr grastegundinni Luzerna
og verða fluttir inn í lausu. Gísli
sagði, að kaupverð á þessum
kögglum hefði verið hagstætt en
vegna þurrka sem síðan hafa ver-
ið f Danmörku hafa þeir hækkað
töluvert í verði. Sambandið ráð-
Flugleiðir stækka
skrifstofuhúsnæðið
FLUGLEIÐIR hafa nú í hyggju
að stækka aðalskrifstofuhúsnæði
félagsins á Reykjavíkurflugvelli
og er áætlað að byggja nýja bygg-
ingu, sem á að liggja samsfða
núverandi skrifstofuhúsnæði, en
tengibygging á að koma á milli
húsanna.
Alfreð Elíasson, forstjóri Flug-'
leiða, sagði f gær í samtali við i
Morgunblaðið, að þeir Flugleiða-1
menn hefðu verið að athuga þetta
mál í nokkurn tíma. Skrifstofur
fyrirtækisins væru nú á mörgum
stöðum f borginni, sem væri mjög
óheppilegt. 1 fyrstu hefði verið
ætlunin að byggja ofan á skrif-
stofubygginguna á Reykjavíkur-
velli, en komið hefði í ljós, að það
væri óheppilegt og því ákveðið að
athuga með nýja byggingu.
Verið er að bjóða verkið út
þessa dagana, en ekki er ákveðið
hvenær verkið hefst.
Kristinn Finnbogason:
„Helber. ósarmindi að ég hafí ver-
ið miUigöngumaður nýs dagblaðs”
KRISTINN Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Tfmans, sagði 1
viðtali við Morgunblaðið í gær,
að það væru helber ósannindi,
að hann hefði gerzt milligöngu-
maður nýs dagblaðs gagnvart
blaðamönnum VIsis eins og
Sveinn Eyjólfsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Vfsis, full-
yrti f viðtali við Þjóðviljann f
gær. Þá staðfesti Albert
Guðmundsson f viðtali við
Morgunblaðið í gær, að hann
yrði hluthafi f nýju dagblaði.
I viðtali við Þjóðviljann í gær
var Sveinn Eyjólfsson spurður
hvort Kristinn Finnbogason
yrði einn eigenda nýs dagblaðs,
og svaraði hann:
„Hvernig dettur mönnum í
hug að dreifa þeim orðrómi.
Það er fáránlegt. Sagan komst á
kreik, þegar við báðum Kristin
Finnbogason að hringja í einn
af blaðamönnum Vísis til að
fullvissa hann um, að nýi Vísir
fengist áreiðanlega prentaður f
Blaðaprenti, og þar með gerðu
söguberarnir Kristin að hlut-
hafa.“
1 dagblaðinu Vísi í gær eru
þessi ummæli hent á lofti og
sagt að þau sýni, að Kristinn
Finnbogason hafi gerzt milli-
Kristinn
Albert
göngumaður Sveins Eyjólfsson-
ar og Jónasar Kristjánssonar
við að tæla blaðamenn frá Vísi.
Um þetta mál sagði Kristinn
Finnbogason í viðtali við Mbl. í
gær:
„Það eru helber ósannindi,
sem höfð eru eftir Sveini
Eyjólfssyni f Þjóðviljanum í
gær, að ég hafi verið milli-
göngumaður hans í sambandi
við ráðningu blaðamanna á
Nýja Vísi.
Þá vil ég láta það koma fram,
að ég hef aldrei haft áhuga á að
eignast einhverja hlutdeild í
nýja blaðinu, enda hef ég ekki
hug á að taka þátt í rekstri
fyrirtækis, sem þeir Sveinn og
Jónas stjórna, og vil ekki vera
viðriðinn soraskrif eins og þau,
sem þeir létu stundum fara frá
Framhald á bls. 18
gerir að nota þessa köggla í fóður-
blöndur en einnig kemur vel til
greina að selja eitthvað af þeim
beint til bænda, og ætti verð á
hverju kílói að vera 30 krónur, að
sögn Gísla. Þessir kögglar koma
til landsins um miðjan september.
Gísli var spurður um verðlags-
horfur á fóðurbæti. Hann sagði,
að ljóst væri að fóðurbætir hækk-
aði á næstunni. I vor, eftir að
sáningu í Bandaríkjunum var lok-
ið, gerðu menn ráð fyrir að það
yrði góð uppskera en vegna
þurrka er ljóst að um einhvern
uppskerubrest verður að ræða.
Þurrkar, sem gengið hafa yfir
Rússland, ollu því að Rússar festu
kaup á 15 milljónum tonna mjöls í
Kanada og Bandaríkjunum og
hafa þessi kaup orðið til að stór-
hækka verð á fóðurbæti. 1 vor var
boðið bygg frá Þýzkalandi á 89
dollara tonnið og var það til af-
greiðslu 1 nóvember og desember
en þá keyptu menn almennt ekki
vegna góðra uppskeruhorfa í
Bandaríkjunum, sem síðan hafa
bruðgizt. Fyrir skömmu barst til-
Framhald á bls. 18
Flugleiðir leggja
niður Stokk-
hólmsflugið
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fella
niður Stokkhólmsflug Flugleiða í
vetur, en að Ifkindum hefst það
að nýju næsta vor. Er þetta gert
vegna þess hve Iftið er um far-
þega á leiðinni Island — Svfþjóð
yfir vetrartfmann.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði þegar Morgun-
blaðið ræddi við hann i gær, að
farþegaumferð til og frá Stokk-
hólmi væri mjög árstíðabundin og
langmestur hluti þeirra farþega,
sem færu á milli Svíþjóðar og
Islands færu yfir sumarmánuð-
ina. 1 vetur færu þeir Flugleiða-
farþegar, sem ætluðu til Sví-
þjóðar eða til Islands frá Svíþjóð
með flugv^lum SAS frá Kaup-
mannahöfn eða Ósló.
Sigurður sagði, að væntanlega
hæfist flug frá Islandi til Sví-
þjóðar á ný f vor og Flugleiðir
myndu fljúga til allra annarra
fastra áætlunarstaða í vetur.
Hvalirnir syntu á land
Hrútafirði 27. ágúst
TVEIR hvalir syntu á grunn á
leirunum fyrir botni Hrútafjarð-
ar í fyrradag. Þeir losnuðu sfðan
út á flóðinu og rak annan á fjöru
við Valdasteinsstaði, en hinn við
Borðeyri. Borðeyringar hófu hval-
skurð strax f fyrrakvöld og vonast
til að geta nýtt eitthvað af hvöl-
unum, en þeir eru um 8 metra
langir.
*