Morgunblaðið - 28.08.1975, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.08.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1975 15 Haile Selassie 9 HAILE Sclassie var keisari Eþíópfu I 44 ár, en stjórnaði f raun I 57 ár. Hann var boðberi varfærni og sáttfýsi I málefn- um Afrfkjurfkja, einarður tals- maður óháðra ríkja, en var, — alla vega til að byrja með —, hliðhollur Vesturlöndum. I upphafi valdaferils sfns var hann umbótasinnaður, — byggði skóla, vegi og sjúkrahús f landi þar sem tfðkazt höfðu opinberar aftökur og þrælahald og lénshöfðingjar, sem réðu lögum og lofum. Margir töldu hann einlægan — mannúðar- sinna sem barðist gegn hungri, fátækt og menntunarleysi. En er hann gerðist gamall fór hann að slaka á og fara sér hægar, og stjórn hans réð lftið við erfiðleika landsins og eymd fbúanna. Umbæturnar virtust gerðar fremur til hátfðabrigða en samkvæmt ákveðinni áætl- un. 0 FuIIur titill Haile Selassies var Haile Selassie hinn fyrsti, sigursælt Ijón af ætt Júda, guðs Konungur konunganna útvalinn, konungur konung- anna og keisari Eþíópfu. Þennan titil bar hann allt til þess er her Eþfópfu svipti hann völdum í september árið 1974. Nafnið Haile Selassie merkir „verkfæri og vald þrenningar- innar“. Haile Selassie fæddist 23. júlí 1892, og hét þá Tafari Makonnen, prins. Hann var af konungsætt Eþíópíu en átti ékki beint tilkall til krúnunnar. 14 ára gamall varð hann Iand- stjóri f Salalehéraði, og fjórum árum síðar Iandstjóri í heima- héraði sínu, Harar. Með stuðningi ættarhöfðingja og kristinna andstöðuhópa, sem beittu sér gegn konungs- ættinni, en hún var hliðholl múhameðstrúarmönnum, varð Selassie konungur árið 1928, og eftir lát keisaraynjunnar varð hann keisari árið 1930, — sá 325.1 röðinni frá drottningunni §f Saba. Haile Selassie var fyrst veitt veruleg athygli er Mussolini lét heri sína ráðast inn 1 Eþíópíu árið 1935. Þá skoraði hann á Þjóðabandalagið að veita Eþíópiustjórn stuðning sinn, og sagði að bandalagið græfi sfna eigin gröf ef slíkur stuðningur yrði ekki veittur. Við áskorun- inni var ekki orðið og keisarinn varð að fara til Bretlands 1 út- legð. Hins vegar sneri hann aft- ur sigri hrósandi við frelsun Addis Ababa árið 1941. Hann var á fyrri hluta sjö- unda áratugsins ákafur tals- maður samvinnu Afríkuríkja og var einn af helztu frum- kvöðlum að stofnun Einingar- samtaka þeirra, OAU, árið 1963. Hann vildi að Addis Ababa yrði háborg slíkrar sam- vinnu, en mætti í því fljót- lega andspyrnu róttækra afla innan OAU. Arið 1961 lýsti hann þvf yfir á ráðstefnu óháðra rfkja, að nýlendustefn- an í hefðbundinni mynd væri úr sér gengin, og varaði um leið við henni i nýjum myndum. Fáir þjóðhöfðingjar hafa far- ið í jafnmargar opinberar heim- sóknir til útlanda og Haile Sel- assie gerði á sfnum langa ferli, enda tókst honum að afla landi sfnu víðtækrar alþjóðlegrar að- stoðar. ítalir og Júgóslavar byggðu þar t.d. stíflur, og Bandarfkjamenn flugvöll höfuðborgarinnar og létu hern- um f té gögn. Þá fékk Selassie einnig aðstoð bæði frá Sovét- mönnum og Kínverjum. En Eþíópía var áfram frum- stætt land, og stjórn Selassie olli vaxandi óánægju. 1 desem- ber 1960 var gerð uppreisn f landinu er keisarinn var í opin- berri heimsókn í Brasilíu, og stóðu að henni sveitir lögreglu og lífvarða keisarans. Upp- reisnin mistókst og hafði fjarað út er Selassie kom heim. 1 kringum 1970 einkenndist ólg- an æ meir af stúdentaóeirðum og hreinsunum innan hersins. 1 desember 1970 var lýst yfir her- lögum í héraðinu Eritreu þar sem sjálfstæðisöfl höfðu barizt í níu ár. 1 marz árið eftir brut- ust enn út miklar stúdenta- óeirðir f höfuðborginni og í desember 1973 voru sex stúd- entar myrtir af öryggissveit- unum í héraði sem illa hafði orðið úti vegna þurrka og hung- ursneyðar. 1 febrúar 1974 gerði herinn enn uppreisn og sölsaði æ meir af valdi keisarans undir sig. Smátt og smátt missti Haile Selassie öll völd í Eþíópíu. V-Þýzkaland: Ráðstafanir gerðar gegn atyinnuleysinu Bonn 27. ágúst NTB. Reuter. VESTUR-þýzka stjórnin hefur ákveðið að hleypa af stokkunum opinberri fjárfestingaráætlun og eru niðurstöðutölur rösklega 34 milljarðar króna. Er þetta gert f þeim tilgangi að koma í veg fyrir frekara atvinnuleysi f byggingar- iðnaði landsins á vetri komanda. Enda þótt ríkisstjórnin hafi ákveðið að grípa í taumana með þessum aðgerðum er þó upphæð- in langt frá því að vera sú sem margir höfðu vonazt eftir og töldu að væri nauðsynleg ættu þessar ráðstafanir að bera einhvern árangur. Verkalýðsfélög í landinu hafa til að mynda farið fram á um það bil helmingi hærri upphæð frá ríkinu til að vinna gegn at- vinnuleysi í landinu, en nú er um milljón manns atvinnulausir í landinu. A blaðamannafundi í dag, þar sem skýrt var frá þessum ráð- stöfunum ríkisstjórnarinnar, var spurt að því hvers vegna stjórn Helmut Schmidts gripi ekki til róttækari ráðstafana til að vinna Nýkndustjómin á Timor flúin Canberra, Ástralíu 26. ág. NTB. Reuter. PORTtJGALSKA nýlendustjórn- in á eynni Timor hefur flúið frá höfuðborginni Dili til IftiIIar eyj- ar úti fyrir ströndinni vegna sf- harðnandi bardaga milli þjóð- frelsishreyfinga innbyrðis. Skýrði talsmaður ástralska utan- rfkisráðuneytisins frá þessu f dag. Kurt Waldheim fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna hvatti f gærkvöldi Ieiðtoga fylkinganna til að leggja niður vopn og hefja samningaviðræður um friðsama lausn en við þeirri beiðni hefur enn verið skellt skollaeyrum. Forsætisráðherra Ástralíu, Whitlam, sagði í dag að stjórnin myndi gera ráðstafanir til hjálpar þeim Portúgölum, sem hafa flúið frá Timor og komnir eru til Darw- in í Ástralíu. Talið er að nokkur fjöldi þeirra muni óska eftir að setjast að í Ástralíu og hverfa ekki til Portúgals, að minnsta kosti ekki að svo stöddu. 1 fréttum frá Timor virðist ljóst að þar hefur ekki dregið úr bar- dögum og svo virðist einnig sem Karpov efstur 1 Mílanó Milanó 27. ágúst—AP ANATOLY Karpov, sovézki heimsmeistarinn f skák, náði f dag forystu á alþjóðlega skákmót- inu f Mflanó er hann vann Svetzo- var Gligoric frá Júgóslavfu f bið- skák úr sjöttu umferð. Karpov er nú með 4!4 vinning en næstur er bandarfski meistarinn Walter Shawn Browne með 4 vinninga. Karpov hefur unnið þrjár skákir og gert þrjú jafntefli, en Browne, sem er 26 ára að aldri, hefur unnið tvær og gert fjögur jafn- tefli. 1 þriðja sæti er Ljubojev Lju- bojevic frá Júgóslavíu með 3'A vinning, en biðskák hans úr sjöttu umferð við Jan Smeikal frá Tékkóslavakíu var í dag frestað til föstudags, en Lajos Portisch frá Ungverjalandi er með sömu vinningatölu. 1 fimmta sæti eru jafnir þeir Petrosjan, Tal og Smeikal með 3 vinninga. I sjöundu umferðinni f kvöld átti Browne að tefla við Petrosj- an, Karpov við Tal og Andersson við Larsen. bug á efnahagsvanda landsins og var það svar gefið, að ríkisstjórn- in hefði gengið eins langt og hún sæi sér fært að svo stöddu. FRETTIR Listsýning leyfð í Leningrad Moskva 27. ág. Reuter. HÓPUR sovézkra listamanna, sem fram að þessu hefur ekki hlotið náð fyrir augum stjórn- valda þar f landi, hefur tilkynnt að leyfi hafi fengizt til að halda tfu daga sýningu á verkum þeirra um miðjan næsta mánuð. Verður það fyrsta slfk sýning f Sovétrfkj- unum síðan f febrúar. Yevgeni Rukhin, sem er einn listamannanna, sagði fréttamönn- um, að sýningin yrði haldin í Len- ingrad og hefði menningardeild borgarinnar gefið leyfi til að sjö- tíu listamenn, sem iðulega hafa sætt gagnrýni, fengju að taka þátt í henni. Listsýningin verður hald- in í helzta listamannaskála borg- arinnar. Þó sagði Rukhin, að Sprenging í herstöð Caterham, Englandi 27. ág. Reuter. GÍFURLEG sprenging varð í þétt- setnu veitingahúsi f herstöðinni átokin hafi breiðzt út frá höfuð- borginni og inn í landið. Blað í Indónesíu sagði i dag, að flokkur sá sem er hlynntur Indónesiu, Apodetihreyfingin, hafi nú sam- einazt vinstri fylkingu sem nefnir sig Byltingarflokkinn sem berst fyrir sjálfstæði Austur-Timor. Indónesar ráða yfir vesturhluta Timoreyjaklasans. nokkrum Iistamanna hefði verið neitað að vera með i sýningunni, en ekki gefnar neinar ástæður fyrir neituninni. Caterham á Englandi f kvöld og samkvæmt fyrstu fregnum slösuðust margir og sumir alvar- lega. Fjöldi sjúkrabfla kom á slysstaðinn og svæðinu var lokað f skyndingu. Fyrstu fréttir hermdu, að grunur léki á uin að sprengju hefði verið komið fyrir f veitingastofunní. Súez senn opnaður ísraelum Tel Aviv 26. ág. NTB. EGYPTAR munu innan tfðar leyfa fsraelskum flutninga- skipum að sigla um Súezskurð- inn að þvf er fsraelska blaðið Yexioth Aharanot skrifaði f dag. Samkvæmt frétt þessari mun banninu gagnvart skipum sem ætla til Israels og frá Israel aflétt jafnskjótt og samningar hafa náðst milli Israela og Egypta. Þó segir, að Egyptar muni reyna að tak- marka ferðir þeirra skipa sem flytji varning sem hafi hernaðarlegt mikilvægi til tsraels. Neita enn að ferma Sovétkornið Washington, 27. ágúst — Reuter. ALLT benti til f dag, að hafn- arverkamenn f Bandarfkjun- um myndu halda áfram að neita að ferma bandarískt korn sem selt hefur verið til Sovétrfkjanna eftir að Ford forseta mistókst að sannfæra verkalýðsleiðtoga um að korn- salan ylli ekki verðhækkunum á matvælum f Bandarfkjunum. George Meany, forseti banda- rfska verkalýðssambandsins, sagði eftir fund með forsetan- um að ekkert hefði breytzt og aðgerðunum yrði haldið áfram. Indverjar viðurkenna Bangladesh Nýja-Delhi 27. ág. Reuter. INDVERJAR ákváðu í dag að viðurkenna nýja valdhafa í Bangladesh og er þetta fyrsta opinbera yfirlýsingin sem Ind- verjar hafagefið eftir að Muji- bur Rahman, fyrrverandi þjóð- höfðingja, var steypt, en hann naut mikils stuðnings Ind- verja. 1 orðsendingu stjórnarinnar var sagt, að „ákveðið hefði ver- ið að halda eðlilegum sam- skiptum við Bangladesh á sama grundvelli eins og þegar Indverjar viðurkenndu landið árið 1971.“ Geimfari skorinn upp Houston 26. ág. Reuter. LÆKNAR gerðu f dag lungna skurð á geimfaranum Donald Slayton og fjarlægðu mein- semd úr öðru lunganu, en tals- maður sjúkrahússins sagði, að hún hefði ekki verið illkynjuð. Var haft eftir talsmönnum sjúkrahússins að líðan Slay- tons væri góð eftir atvikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.