Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 16

Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. AGÚST 1975 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson, Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10 100. Aðalstræti 6. simi 22 4 80. Áskriftargjald 800.00 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 40,00 kr. eintakið Lögin um stéttar- félög og vinnudeilur hafa nú gilt óbreytt í 37 ár. Þau vóru á sínum tíma já- kvætt spor í framfara- og réttlætisátt og hafa að ýmsu leyti reynzt vel. Engu að síður vóru þau sett við allt aðrar þjóð- félagsaðstæður en nú ríkja. Þær þjóðlífsbreyt- ingar, sem síðan hafa orðið, og sú reynsla, sem meir en hálfur fjórði áratugur hafa fært þjóðinni í framkvæmd vinnulöggjafarinnar, hafa um nokkurt árabil kallað á nauðsynlega endurskoðun og breytingar á henni. Gildir hér hið sama og um flesta aðra löggjöf í land- inu, sem hefur jafn afger- andi áhrif og þessi, að endurskoðun er óhjá- kvæmileg með hóflegu ára- bili, ef vel á að vera, í ljósi fenginnar reynslu og með hliðsjón af breyttum að- stæöum í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir aðkallandi þörf hefur Alþingi verið furöulega hikandi og sinnulaust á þessum vett- vangi. Stjórnmálaflokkar og einstakir þingmenn hafa í aðalatriðum hliðrað sér hjá að hafa nauðsyn- lega forgöngu um endur- skoðun vinnulöggjafar- innar, sem flestir eru þó sammála um að meir en tímabær sé. Það skal að vísu viðurkennt, að við- ræður og helzt samkomu- lag aðila vinnumarkaðar- ins er æskilegur undanfari úr hefðbundnum rétti aðila vinnumarkaðarins. Ára- tuga reynsla hefur fært ís- lenzkum launþegsamtök- um þann lærdóm, að krónuhækkun kaups reyn- ist því aðeins raunhæf, að hún grundvallist á aukinni verðmætasköpun í þjóðar- búinu. Vöxtur og stöðug- leiki íslenzkra framleiðslu- atvinnuvega sem verð- mætasköpunin hvílir á, spannar því gagnkvæma hagsmuni aðila vinnu- markaðarins. Á áratugnum 1963 til 1973 hækkaði kaup í krón- um talið um 600%. Raun- verulegar ráðstöfunartekj- ur hækkuðu hinsvegar aðeins um 50%. Mismunur- inn hvarf í verðbólgu og skattheimtu. Eftir stóðu aðeins þær kjarabætur, sem byggðar vóru á vexti smækkuð mynd þjóðfélags- ins og almenningur sá í þessum dæmum í hnot- skurn, hvað gerðist ef ein- stakar atvinnugreinar þjóðarbúsins yrðu lagðar að velli vegna mannlegrar skammsýni og sundur- þykkju. Þau atriði, sem m.a. verð- ur að hyggja að, varðandi endurskoðun vinnulög- gjafar eru: % — Nú þarf meiri breidd og lengd í kjara- samninga, þann veg, að samið sé á einu bretti við alla starfshópa innan sömu atvinnugreinar til lengri tíma en verið hefur, svo meiri stöðugleiki ríki í þjóðarbúinu. Keðjuverk- föll smærri hópa geta lamað og lagt að velli heilar atvinnugreinar og lokað erlendum mörkuð- Vinnulöggjöfin nýrrar vinnulöggjafar. En á það er að líta að afskipti ríkisvaldsins af vinnudeil- um og lausn þeirra hafa farið sívaxandi og hafa þró- azt í þá átt, að frumkvæði þess um slíkan undanfara nýrrar vinnulöggjafar er nú brýnna og sjálfsagðara en áður var. Höfuðtilgangur nýrrar vinnulöggjafar hlýtur að vera, að tryggja öryggi og stöðugleika í íslenzku at- vinnulífi, án þess að draga verðmætasköpunar og aukningu þjóðartekna. Vöxtur og stöðugleiki þjóðarframleiðslunnar sannar gildi sitt einkar skýrt í þessu dæmi. Hrun atvinnuvega í Nes- kaupstað og Vestmanna- eyjum vegna náttúruham- fara opnaði augu almenn- ings fyrir gildi rekstrar- öryggis atvinnutækjanna, svo heildarmyndin var skýrari og skiljanlegri en áður. Sveitarfélög eru um, sem byggjast m.a. á því að hægt sé að standa við fyrirfram gerða sölu- samninga. # — Framkvæmd kjara- samninga hefur reynzt óþarflega viðamikil og timafrek. Spurning er, hvort auka á hlut heildar- samtaka aðila vinnu- markaðarins í þessu efni, annaðhvort með samkomu- lagi aðildarfélaga ASf og Vf eða með löggjöf. # — Lýðræði og áhrif einstaklinganna í samtök- um aðila vinnumarkaðar- ins þarf að treysta, hugsan- lega með allsherjarat- kvæðagreiðslu um verkföll eða verkbönn, svo fá- mennir hópar geti ekki tek- ið afstöðu fyrir og e.t.v. gegn meirihlutanum. # — Starf kjararann- sóknarnefndar, sem er samstarfsnefnd aðila vinnumarkaðarins, og Þjóðhagsstofnunar, sem nýtur trausts beggja aðila, sem og sjálfstæð rann- sóknarstörf samningsaðila, hafa stórbætf nauðsynlega upplýsingasöfnun, sem kjarasamningar hljóta að byggja á. Þýðing sliks undirbúningsstarfs verður aldrei nógsamlega undir- strikuð og það hlýtur óhjá- kvæmilega að koma til at- hugunar við setningu nýrr- ar vinnulöggjafar. # — Starfsaðstöðu og vald sáttasemjara þarf og að athuga gaumgæfilega og setja þar um skýrari regl- ur, þegar vinnulöggjöfin verður tekin til nauðsyn- legrar endurskoðunar. Setning nýrrar vinnulög- gjafar er viðkvæmt og vandasamt verk. Þar verður að gæta hefðbund- inna réttinda beggja aðila, en fyrst og fremst að taka mið af þjóðarhagsmunum, með það meginmarkmið í huga að tryggja í senn stöðugleika og aukna verð- mætasköpun í þjóðarbúinu sem hvort tveggja eru meginforsendur bættra lífskjara allra starfshópa þjóðfélagsins. Misvísun stjórnmála- manna og hagfræðinga KJÖLSOG verðbólgunnar f heiminum hefur dregið með sér ýmsa leiða fylgifiska. Tiltrú á starfi hagfræðinga hefur þannig beðið verulegan hnekki. Ilagfræðingar og stjórnmála- menn Þetta stafar að nokkru af því að á siðari árum hafa efnahags- leiðbeiningar og spásagnir hag- fræðinga jafnan staðizt fádæma illa. Jafnvel þótt aðeins hafi verið fengizt við allra nánustu framtið. Stjórnmálamennirnir hafa hvekkzt á þessu og líka hefur þeirrar tilhneigingar gætt hjá stjórnmálamönnum að skella ómaklegri skuld á hagfræðina og sveina hennar. En sérfræðingarnir hljóta að starfa áfram á sinum visinda- lega grundvelli og komast að vísindalegum niðurstöðum, sem eru óvefengjanlegar í réttu samhengi. En þegar tölvurnar fá þennan vísdóm til meðferðar og hreyta út úr sér niður- stöðunum, kemur æði oft í ljós, að þetta merka starf grand- varra vísindamanna á ekkert skylt við raunveruleikann. Samkvæmt barnalærdómi hagfræðinnar ættu t.d. vinnu- laun að lækka til mikilla muna við ríkjandi aðstæður á vinnu- markaðnum og aukið atvinnu- leysi víða um lönd. Og vöruverð hefði líka átt, samkvæmt kenn- ingum sömu fræða, að lækka i Þörf nýs staðreyndamats tengslum við aukna birgða- söfnun og óselda framleiðslu. En stöðnun og verðbólga virð- ast þrífast ljómandi vel hlið við hlið. En hvað veldur þessu mis- ræmi hagfræðinnar og raun- veruleikans? Það er að miklu leyti talið stafa af þvi, að þjóð- félagsleg og sálfræðileg fyrir- brigði hafa áhrif á efnahags- lega þróun. Fyrirbrigði, sem vandgert er að breyta i tölvu- fóður. Áhrif verðbólgunnar Ef þannig er t.d. ástatt, að allir gera ráð fyrir aukinni verðbólgu, gera aðiljar vinnu- markaðarins ráðstafanir í sam- ræmi við það og atvinnufyrir- tækin taka það með í reikning- inn og andrúmsloftið við gerð kjarasamninga verður spennt og erfitt. Aðiljar vinnumarkaðarins spenna bogann í trausti þess að þrátt fyrir víxlverkanir kauþ- gjalds og verðlags telji ríkis- valdið sér skylt að tryggja atvinnuöryggi; ef nauðsyn kref- ur jafnvel með svo róttækum aðgerðum sem þjóðnýtingu nauðstaddra fyrirtækja. Atvinnufyrirtækin reikna jafnan út verð vöru sinnar og þjónustu með tilliti til þess að nægi fyrir endurkaupsverði hráefna og vinnulaunum til áframhaldandi framleiðslu. Og vísitölukerfið og launaverð- bólgan tryggja á hinn bóginn að kaupgeta er fyrir hendi. Ef hagspekingar og stjórn- málamenn reyna við þannig ríkjandi aðstæður að lækna verðbólguna með hefðbundn- um aðferðum, t.d. takmörkun kaupgetunnar, aðhaldi f efna- hags- og fjármálum, reka þeir sig fljótt á, að þær aðferðir leiða ekki til árangurs. Verð- bólgan geisar áfram, en skórinn kreppir hjá launþegunum og at- vinnufyrirtækin lenda í greiðsluerfiðleikum. Þannig er augljóst, að þörf er á alveg nýju staðreyndamati í efnahagsmálum, þar sem tekið er tillit til fleiri þátta en hinna þekktu og viðurkenndu. Ný viðhorf Margir telja þó, að skýring- anna á mótsagnarfyrirbrigðun- um í efnahagslífi nútímans sé að leita annars staðar en í kenn- ingum og lausnarleiðum hag- vísindanna. Ekki sé hægt að ganga fram hjá mannlegu eðli, samfélagsrýni og þjóðfélagsleg- um staðháttum. Áður gegndi þetta öðru máli, þegar hagvís- indin gat tekið mið af sínu heimatilbúna vélmenni, þar sem framboð og eftirspurn Sérfræðingarnir starfa á sfnum vfsindalega grundvelli og komast að niðurstöðum, sem eru óvefengjanlegar f réttu samhengi. En þegar tölvurnar fá þennan vfsdóm til meðferðar og hreyta út úr sér niðurstöðunum, kemur æði oft f Ijós, að þetta merka starf grandvarra vísindamanna á ekkert skylt við raunveruleikann. voru einu eiginleikarnir og líkamsstarfsemi vélmennisins í fullkomnu jafnvægi, þar sem línur framboðs og eftirspurnar skárust. En vegna þekkingarskorts á ýmsum giginleikum verðbólg- unnar eru úrræði nútíðarinnar þvf miður oft byggð á mis- heppnuðum fordæmum for- tfðarinnar. Og það hefur skapað ný og veruleg vandamál. Hættan á atvinnuleysi er yfir- vofandi og fjarri fer þvf að allir séu á eitt sáttir um ókosti eða kosti atvinnuleysis. Og það verður ekki auðveldarg að leysa þessi vandamál, þegar sum lönd leggja aðaláherzluna á það að halda verðbólgunni í skefjum, t.d. Vestur-Þýzkaland, en önnur leggja umfram allt áherzlu á að hamla gegn atvinnuleysi. Löndin vinna þannig hvert gegn öðru á ýmsum sviðum efnahagsmálanna. Oft er deilt á stjórnmála- mennina fyrir deyfð og úrræða- leysi. En vandkvæði þeirra eru á ýmsan hátt skiljanleg. Vfsindagrein sú, hagfræðin, sem fengizt hefur við lausn og úrbætur í efnahagsmálum, stendur nú frammi fyrir svo margvíslegum nýjum samsetn- ingum af vandamálum, að nokkurn tíma hlýtur að taka, þar til tekizt hefur að rannsaka eðli nýjunganna til hlftar og finna raunhæfar, viðeigandi lausnarleiðir. Og þegar það tekst einhvern- tíma í framtíðinni, eiga hinir æfðu stjórnmálamenn eftir að leggja blessun sfna yfir aðferðirnar. og alþjóðastjórnmál 5 grein Samantekt eftir BRAGA KRISTJQNSSON ^

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.