Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 19

Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. AGÚST 1975 19 UMHORF ( mojt'm: Jón Mnunii«s«n m> SjjiuiAir Sicurirtn-win SUS-þing í Grindavík 23. ÞING Sambands ungra sjálf- stæSismanna verSur haldiS ( Grindavík 12. — 14. september n.k. Þing sambandsins eru haldin á tveggja ira fresti og eru þau æSsta vald I málefnum sambands- ins. Jón Ormur Halldórsson fram- kvæmdastjóri S.U.S. var nýlega inntur eftir ýmsu varSandi þingiS, en hann vinnur nú ásamt stjóm sambandsins aS undirbúningi þess. Fara svör hans hér á eftir. 1. Hver verSa helztu viSfangsefni þessa þings? Þau verða æði mörg. Fyrir þingið verða lagðar 6—7 skýrslur frá stjórninni og nefndum hennar um störf sambandsins og samskipti þess út á við Álitsgerðir um eina nlu málaflokka verða lagðar fram, en þær hafa verið undirbúnar af starfs- hópum, og einstaklingum, og má ætla að umræður snúist mest um þau mál sem þannig hafa verið undirbúin. Auk almennrar stjórn- málaályktunar, sem þingið mun væntanlega afgreiða, verða eflaust miklar umræður um menntamál, sjávarútvegsmál, jafnréttismál. kjördæmismál, stjórnarskrármál, húsnæðismál og um hugsanlegan samdrátt rikiskerfisins og lækkun ríkisútgjalda, svo nokkuð sé nefnt Einnig mun þingið taka afstöðu til áheyrnaraðildar S.U.S að COCDYC, sem eru samtök meintra skoðana- bræðra okkar og jafnaldra í Vestur- Evrópu. Þá liggja fyrir þinginu venjuleg aðalfundarstörf s.s. að kjósa nýja stjórn sambandsins og taka afstöðu til lagabreytinga ef til- lögur koma fram þar að lútandi. 2. Hvað er að segja um tilhögun þingsins? Þingstörf munu öll fara fram i félagsheimilinu Festi i Grindavik, en þingfulltrúar munu flestir gista í verbúðum þar á staðnum Verbúðir þessar eru allar nýjar eða nýlegar og svipar til hótela úti á landsbyggð- inni. S.U.S hefur tryggt sér gisti- rými fyrir á annað hundrað manns og eru möguleikar á að bæta við það ef þörf kerfur. Rútuferðir verða frá Galtafelli i Reykjavík til Grindavíkur kl 3 á föstudag, kl 1 1 30 á laugar- dag og til baka frá Grindavík kl. 6 á sunnudag, en þá er reiknað með að þingstörfum verði lokið Við komuna til Grindavikur fá fulltrúar þingskjöl og kjörgögn gegn fram- visun kjörbréfa en unnið er að þvi að senda stjórnum aðildarfélaganna sýnishorn af sem flestum þing- skjölum þeim til undirbúnings og hægðarauka S.U.S. gefur nú út í fyrsta sinn prentaða dagskrá til kynningar á þinginu og stendur nú yfir dreifing hennar. 3. Hvað með kostnað af þessu? Er þetta ekki dýrt fyrirtæki fyrir S.U.S. og þá sem þingiðsækja? Stjórn S U.S. hefur lagt mikla Jón O. Halldórsson, framkvæmda- stjóri SUS. áherzlu á að halda kostnaði, sem þingfulltrúar þurfa að bera, i lág- marki, þannig að hann hindri ekki neinn í að sækja þingið Á auka- þingi S.U.S i fyrra var þing fulltrúum gert að greiða sérstakt þinggjald, 1 500 krónur, en innifalið í þvl var gisting og rútuferðir. Með þessu móti var hægt að ná hagstæðari samningi við þjónustu- aðila Þetta gafst mjög vel I fyrra og verður þvi sami háttur hafður á nú. Þingið verður helmingi lengra og mun dýrara í undirbúningi en auka- þingið í fyrra, en horfur eru þó á að þinggjaldið verði litið hærra en þá. Mismuninn fjármagnar S.U.S. með ýmiskonar fjáröflunarstarfsemi, sem nú þegar er farin i gang Þá má geta þess að þingfulltrúar munu fá 25% afslátt á öllum leiðum Flugfélags (slands 11. — 15 september 4. Hvað búizt þið við mikilli þátt- töku i þinginu? Þátttaka í þingum S.U.S. siðustu 10 — 15 árin hefur verið á bilinu 1 00 — 150 manns, nema á siðasta þingi, sem haldið var á Egilsstöðum 1973, en það þing sóttu 250 manns. Þátttaka á aukaþinginu i fyrra fór einnig fram úr áætlun, þannig að áhugi manna á virkri þátttöku I stefnumótum ungra sjálf- stæðismanna virðist vaxandi. Við miðum undirbúning við að a m.k. 140 — 160 manns sæki þingið, og ég tel að það sé fremur lágt áætlað 5. Hvernig fer val fulltrúa fram? Aðildarfélög S.U.S. velja fulltrúa til setu á S.U.S.-þingi. Félögin mega senda 1 fulltrúa fyrir hverja 20 félagsmenn. Félögin nota oft á tíðum ekki kvóta sinn að fullu og velja kjördæmissamtök ungra sjálf- stæðismanna, sem starfandi eru í öllum kjördæmum landsins, fulltrúa jafnmargra ónotuðum sætum allra félaga innan viðkomandi kjördæmis Ungir sjálfstæðismenn búsettir utan Franihald á bls. 18 Dagskrá XXIII. þings S.U.S. 1975. FÖSTUDAGUR: kl. 16:00 — 17:30 Setning og ræða formanns, ávarp heimamanns, skýrsla stjórnar o.fl. kl. 17:30— 19:00 Lögð fram ályktunardrög starfshópa og önnur þau mál, er borizt hafa stjórn S.U.S. fyrir þingið. Þingfulltrúar kynna sér framlagðar tillögur — Kosning nefnda. kl. 20:00 — 22:00 NEFNDIR ÞINGSINS STARFA LAUGARDAGUR: kl. 09:00 — 10:30 FRJÁLSAR UMRÆÐUR kl. 10:30 — 12:00 Nefndir þingsins starfa. kl. 14:00 — 17:00 Lagðar fram tillögur nefnda um þau mál er fram koma fyrir þingið og þær afgreiddar. kl. 17:00 — 18:30 Kynntar tillögur um „önnur mál". Aðrar tillögur verða ekki teknar til efnisafgreiðslu nema heimilað sé samkv. 6. gr. fundarskapa er gilda á sambandsþingum S.U.S. — Málunum vlsaðtil nefnda. KVÖLDVERÐUR með formanni flokksins. SUNNUDAGUR: kl. 09:00— 10:30 Nefndir starfa. kl. 10:30 — 14:00 Lögð fram álit nefnda um þau mál, er fram hafa komið á þinginu, og þau afgreidd. kl. 14:00 Kosning stjórnar. kl. 16:00 — 17:00 Starfsemi S.U.S. 1975 — 1977. Nýkjörin stjórn S.U.S. og formenn aðildarfélaga og kjördæmissamtaka þinga. TIL KANADA OG BANDA- RÍKJANNA 1. OKT. N.K. Enn er tækifæri til að heimsækja byggðir Vestur-íslendinga i Kanada og nú einnig í Bandarikjunum á ódýran hátt. Farið verður með leiguflugvél frá „AIR VIKING" hinn 1. október n.k. Nokkur sæti eru ennþá laus. Getum útvegað ókeypis gistingu. Hafið samband við skrifstofu kórsins að Freyjugötu 14, Reykjavík milli kl. 5 og 7 alla daga. Simi 14885. Karlakór Reykjavíkur þvílikt úrval AIMITA 811 AMita 8S1 Anita verzlun, vicískipti, verkfrœcíi vinnuna, heimilidT, skölann, og visindi Hverfisgötu 33 Sími 20560

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.