Morgunblaðið - 28.08.1975, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1975
Minning:
Guðmundur Hróbjartsson
Landlyst Vestmannaeyjum
Miðvikudaginn 20. þ.m. rann
upp heiður og fagur. Úti var sól
og hiti og skyggni hið fegursta.
Óskadagur þeirra, sem unna
náttúrunni og gróðri hennar.
Guðmundur Hróbjartsson þráði
ætfð að fara í ferðalag I slíku
veðri. Um miðjan þennan dag,
laus við hjólastól og hækjur, fékk
hann að leggja upp í sitt mikla
ferðalag, sem okkar allra bíður, á
einum fegursta sumardegi þessa
sólarlitla sumars. Þá komu mér I
hug þessi orð úr Davíðssálmum:
„Á grænum grundum lætur hann
mig hvílast, leiðir míg að vötnum,
þar sem ég má næðij njóta.“
Guðmundur var mikið ' náttúru-
barn og bar lotningu fyrir lífinu.
Að slíta upp blóm að nauðsynja-
lausu eða deyða flugu í glugga-
kistu var andstætt eðli hans. Að
dvelja á kyrrlátum stað og hlusta
á þögnina, horfa á litbrigði
náttúrunnar og anda að sér ilmi
gróðursins gerði hann ölvaðan að
eigin sögn. Náttúran og sköpunar-
verkið var honum takmarkalaus
gleðigjafi.
Guðmundur Hróbjartsson frá
Landlyst í Vestmannaeyjum, sem
hann var kenndur við sfðustu 55
árin, var fæddur að Kúfhól i
Austur-Landeyjum 6. ágúst 1903,
sonur hjónanna Hróbjarts
Guðlaugssonar frá Hallgeirsey f
Landeyjum og Guðrúnar
Guðmundsdóttur frá Voðmúla-
stöðum í Landeyjum. Hann var
elztur þriggja alsystkina, hin, sem
eftir lifa, eru Margrét, búsett f
Vestmannaeyjum, og Guðlaugur,
búsettur f Mosfellssveit. Jónína
hálfsystir hans lést í Spönsku
veikinni árið 1918.
Hann ólst upp í foreldrahúsum,
en fluttist til Vestmannaeyja
árið 1920 með foreldrum sínum.
Hann stundaði sjóróðra og var
vélstjóri hjá þekktum afla-
mönnum, þeim Guðmundi Tómas-
syni frá Bergsstöðum og
Guðmundi Vigfússyni frá Holti.
Hann var eihn af stofnendum
íþróttafélagsins Týs og heiðurs-
félagi þess.
Hinn 20. desember 1930 gekk
hann að eiga eftirlifandi
eiginkonu sína, Þórhildi Guðna-
dóttur frá Borgarfirði eystra,
dóttur hjónanna Guðna
Sigmundssonar og Halldóru
Grfmsdóttur. Kvað hann það sitt
mesta gæfuspor í lífinu.
Guðmundur var harðduglegur
maður og hlífði sér í engu. 1
ágústbyrjun 1938, þá 35 ára
gamall, fór hann á sjóinn eins og
venjulega, þrátt íyrir það, að
hann hefði kennt sér nokkurs las-
leika um morguninn. Er að landi
kom, varð hann að fara í rúmið
fársjúkur, og næsta morgunn
hafði hann lamast algerlega. Var
honum tjáð, að batavon væri Iítil
sem engin, og. hefði slíkt áfall
orðið ofraun hverjum venju-
legum manni. En kjarkur hans og
andlegur styrkur var óbugaður,
þrátt fyrir aflvana líkama. Hann
einsetti sér að komast aftur á
fætur, og það tókst honum með
sínum mikla viljakrafti og aðstoð
góðs hjúkrunarliðs. Að vísu fékk
hann ekki mátt aftur í fæturna,
en gat gengið á jafnsléttu á
hækjum. Til marks um kjark
hans og dug i veikindum hans má
geta þess, að hann notaði sjúkra-
hússdvölina til að læra ensku og
þýzku í tungumálakennslu
útvarpsins. Hann hafði ánægju af
að ræða við erlenda sjómenn, er
hann hitti á bryggjunni í Vest-
mannaeyjum, en þangað fór hann
eins oft og tök voru á til að hitta
menn að máli, þvi að ætíð var
hugur hans bundinn við sjóinn.
I þessum veikindum og i lífinu
var Þórhildur eiginkona hans
honum ómetanlegur styrkur og
stóð við hlið hans óbuguð og
sterk. Skapfesta hennar var með
ólíkindum. Þau hjón voru sam-
hent og einstakir félagar.
Guðmundur eirði ekki iðjulaus.
Þrátt fyrir skerta heilsu vildi
hann sjálfur sjá sér og sínum far-
borða. Strax árið 1941, er hann
hafði þrótt til, hóf hann skó-
smíðar, fyrst með Karli Sigur-
hanssyni, en síðar á eigin verk-
t
Bróðir okkar,
HARALDUR ÞORLEIFSSON,
Tjarnargötu 10 A,
lézt 26. þ.m.
stæði. Að vfsu var lífsbaráttan
hörð framan af, en er börnin uxu
úr grasi og gátu farið að létta
undir, hófu þau störf og hjálpuðu
foreldrum sínum af fremsta
megni.
Guðmundur og Þórhildur hafa
átt miklu barnaláni að fagna. Þau
eignuðust 7 börn, sem öll eru á
lífi, en þau eru: Guðrún Jónína,
gift Olgeir Jóhannssyni, Halldóra,
gift Sigtryggi Helgasyni, Helena
Björg, gift Arnari Sigurðssyni,
Konráð, kvæntur Elínu Leósdótt-
ur, Sesselja, gift Reynald Jóns-
syni, Guðmundur Lárus, kvæntur
Stefánfu Snævarr, Guðni Þór-
arinn, kvæntur Elínu Heiðberg
Lýðsdóttur, Barnabörnin eru orð-
in 19.
1 fjölskyldu Guðmundar hefur
ríkt óvenjuleg samheldni og gagn-
kvæm ástúð foreldra, barna og
tengdabarna. Guðmundur var
mikill gæfumaður í sínu einkalífi.
Landlystarheimilið var glaðvært,
enda mannmargt. Ófá eru kvöld-
in, er fjölskyldan kom saman og
söng. Tónlist var sameiginlegt
áhugamál þeirra allra. Það var
spilað á píanó, gítar og
harmoníku. Aldrei var amast við
því, þótt hávaðinn keyrði úr hófi
fram. Guðmundur var aldrei í
vandræðum með tómstundir sín-
ar. Ef hann var ekki með bók í
hönd eða ekkert markvert var í
útvarpinu, þá teiknaði hann eða
málaði. Hann hafði skemmtilegan
samræðuhæfileika, enda var and-
inn síungur.
Eins og áður er sagt, var Guð-
mundur náttúrubarn. Hann
ferðaðist mikið um landið með
fjölskyldu sinni. Hann var ein-
stakur ferðafélagi, glaðsinna og
fróðleiksfús og vildi vita full skil
á þeim stöðum, er hann ferðaðist
um. Er heim kom, merkti hann
leiðina á kort og aflaði sér frekari
vitneskju um staði þá, er hann
hafði heimsótt.
Fyrir þremur árum fluttust þau
hjón til Reykjavikur og bjuggu í
Hátúni 10A. Þar eignuðúst þau
góða vini, enda hefur heimili
þeirra ætíð verið gestkvæmt og
þau vinamörg.
Hér hefur aðeins verið stiklað í
stórum dráttum á lifsbraut stór-
brotins manns. Saga hans er ein-
stök. Hann gafst ekki upp, þótt á
móti blési, heldur stóð uppi and-
lega óbugaður og hress.
Það er mikil gæfa að hafa feng-
ið að kynnast slíkum manni.
Minning hans lifir í huga okkar
björt og tær og vermir okkur um
ókomin ár. Far þú í friði, friður
Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir
allar okkar samverustundir.
Sigtryggur Hclgason.
1 dag verður til moldar borinn
frá Háteigskirkju tengdafaðir
minn, Guðmundur Hróbjartsson
skósmiður frá Landlyst í Vest-
mannaeyjum. Fréttin um andlát
hans snart mig á sinn sérstæða
hátt er náinn vinur lýkur sinni
lífsgöngu. Hin liðandi stund
hverfur manni I svip. Á hugann
leita minningarnar. Það rifjast
upp liðnar stundir, stundir sem
aldrei koma aftur. Kynni mín og
öll samskipti við þennan heiðurs-
mann voru með þeim ágætum að á
betra hefði ekki verið kosið. Hann
var mér ekki einungis góður
tengdafaðir, heldur einnig góður
vinur og félagi. Með þessum fáu
línum er ekki ætlun mín að rekja
hér ætt hans og lífssögu, það
gerist á öðrum vettvangi. Líf Guð-
mundar Hróbjartssonar var ekki
alltaf dans á rósum, frekar en
margra annarra er fæddust í
þennan heim í byrjun 20. aldar-
innar. Hann lifði'mesta umbrota-
tímabil Islandssögunnar er þjóðin
hófst úr örbirgð til bjargálna.
Ungur að árum yfirgaf hann
fæðingarsveit sína, Landeyjarnar,
og fluttist til Vestmannaeyja. Þar
varð hans starfsvettvangur. Þar
stofnaði hann heimili sitt og bjó
þar nær allan sinn búskap.
Framan af ævi var sjómennskan
hans aðalstarf, eða þar til hann
veiktist af lömunarveiki og varð
lamaður á fótum upp frá þvl. Þar
með var brotið blað í sögu þessa
manns. Það var ekki að skapi Guð-
mundar að leggja árar f bát. Eftir
þetta áfall vann hann við skósmíð-
ar og rak lengst af sína eigin
skósmíðavinnustofu. En Guð-
mundur var gæfumaður í sinu
einkalífi, hann átti trausta og
góða eiginkonu, Þórhildi Guðna-
dóttur, sem stóð traust við hlið
manns síns til hinstu stundar.
Guðmundur var ekki gjarn á að
flíka tilfinningum sínum eða bera
oflof á menn. En það ætla ég að
ekki sé hægt að bera lifsförunaut
sínum betra vitni en Guðmundur
gerði, því hann sagðist viss um að
enginn hefði getað gert það sem
hún Þórhildur hefði gert.
Landlystarheimilið var fastmót-
að og sérstætt. Hvergi hefi ég
kynnst jafn samstæðri fjölskyldu.
Tengslin milli foreldra og barna
voru slik að eftir var tekið. Eftir
að börnin höfðu stofnað sín eigin
heimili, var Landlystarheimilið
jafnan það heimilið þar sem fjöl-
skyldurnar hittust á hátíðar-
stundum. Ég minnist sérstaklega
jóla og áramóta. Það var fastur
liður í jólahaldi að fjölskyldurnar
mötuðust saman á aðfangadags-
kvöld. Þetta var orðinn stór hóp-
ur, en þótt húsakynnin væru ekki
stór, var alltaf nóg rúm í Land-
lyst. Ekki ræddi Guðmundur það
að fyrra bragði að veikindin
hefðu breytt Hfi hans, en stöku
sinnum sagði hann: „Einu sinni
var ég sjómaður, en það er önnur
saga.“ En það fór ekki á milli
mála, að hann hefði viljað hlýða
„kalli“ sem sjómaður. Margra
ánægjustunda er að minnast úr
ferðalögum sem við fórum saman
og var stundum all fjölmennt I
slíkum ferðum, því gjarnan voru
þá nokkrar fjölskyldur í samfloti.
Guðmundur naut þess vel að fara
í smá ferðalög og undraðist maður
oft hve miklu þreki hann bjó yfir.
Hann las mikið og var viða fróður.
Hann las á sinn sérstæða hátt,
punktaði niður það sem honum
þótti athyglisverðast og mátti þá
til með að láta mann njóta þess
með sér og ræða síðan hlutina.
Árið 1972 fluttust þau hjónin bú-
ferlum til Reykjavíkur og á því
ári eru einnig öll börn þeirra og
fjölskyldur búsett i Reykjavík,
svo fjölskyldutengslin voru enn
sem fyrr. Ég minnist þess dags,
þegar þau hjón fluttu frá Land-
lyst. Tilfinningamálin voru ekki á
dagskrá. Allir sáttir við lífið og
tilveruna. Gamli maðurinn stóð á
hlaðinu og virti fyrir sér það sem
fyrir augun hafði borið svo oft
áður, sleit upp smájurt úr hlað-
varpanum og stakk I vasa sinn og
sagði síðan: „Það er ekki eftir
neinu að bíða.“ Þessi dagur er
mér sérstaklega minnisstæður.
Guðmundur var búinn að áætla
ferð einhvern næsta góðviðrisdag
á fornar slóðir. Búið var að
ákveða samferðafólkið. Það var
ferð sem aldrei var farin. Mið-
vikudagurinn 20. ágúst rann upp.
Langþráður góðviðrisdagur, sól
skein i heiði. Kallið var komið,
hann var kallaður til æðra lífs,
hann var búinn að segja að hann
væri reiðubúinn. Að leiðarlokum
þakka ég liðnar stundir og það
sem hann gaf mér.
Blessuð sé minning hans. O.J.
t Eiginmaður minn, ÞORSTEINN PÁLSSON, Arkarholti 14, Mosfellssveit, lézt af slysförum 26. þ.m. Sigrún Gunnarsdóttir. t Elskulegur sonur okkar, ARNÞÓR, er látinn. Útförin hefur farið fram Björg Bjarnadóttir, Gauti Arnþórsson.
t t Útför
JÓHANNES GUÐRÚNAR
REYKJALÍN, SIGURJÓNSDÓTTUR
andaðist að heimili sinu. frá Láxárdal,
Háaleitisbraut 47 fimmtudaginn Drápuhllð 4.
21 ágúst fer fram frá Fossvogskirkju,
Jarðarförin verður gerð frá laugardaginn 30 ágúst kl
Fossvogskirkju, föstudaginn 29 10 30
ágúst kl. 1.30 Þorvaldur Jóhannesson,
Haukur Gunnarsson,
Anna Sigurjónsdóttir.
ÓLAFUR ÁRMANNSSON,
Bakkastíg 6.
Sigriður Ármannsdóttir,
Jón Ármannsson,
Þorvaldur Ármannsson,
Gunnar Ármannsson,
Ásgeir Ármannsson.
t
Faðir okkar,
STEFÁN GUOMUNDSSON,
Hofteigi 36,
lézt I Landspítalanum miðvikudaginn 27. ágúst
Kristín S. Kvaran,
Ragna Stefánsdóttir.
t
Útför eiginkonu minnar og móður okkar
KATRÍNAR SIGURÐARDÓTTUR.
Hafnargötu 123, Bolungarvik,
er lézt hinn 21 þ m , verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28
ágúst kl 1 3,30
Þorgils Guðmundsson
og böm.
t
Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför,
EINARS GUOMUNDSSONAR,
Ási, Hegranesi.
Sérstakar þakkir eru fæ^5ar systrum þins látna
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
hökkum innilega samúð og vinarhug t^jð andlát gg jjrðarför mannsins
mins, föður og sonar
HARALDAR AI.G. JAKOBSSONAR,
Hverfisgötu 32 B.
Bróðir okkar,
andaðist 2 7 ágúst.
Systkinin.
Lokað vegna jarðarfarar
Föstudaginn 29. ágúst verða skrifstofur vorar
lokaðar til kl. 1 3 vegna jarðarfarar.
Sjómælingar íslands.
. Vegna jarðarfarar
Halldórs Matthíassonar, skrifstofustjóra, verður
Vjja. og hafnarrrrálastofnunin lokuð til kl. 1
fö'&tudaginn 29t ágúst.
i