Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.08.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. AGÚST 1975 23 Halldór G. Þórhalls- son — Minningarorö Fæddur 27. júlí 1924 Dáinn 17. ágúst 1975 Ferö okkar allra um þennan heim veröur mislöng og enginn okkar veit gjörla, hvenær komiö er að leiðarlokum. Þessa verðum við ætíð vör og eigi síst við brott- för vina og venslamanna, er kveðja skyndilega. Slík varð raunin á með bekkjar- bróður minn, Halldór Þórhalls- son, er andaðist í New-York þann 17. ágúst s.l. eftir skamma dvöl á sjúkrahúsi þar í borg. En kveðju- athöfn um hann fer fram í Dóm- kirkjunni í dag. Við samstúdentar Halldórs frá Menntaskólanum á Akureyri vor- ið 1945 kveðjum nú góðan félaga eftir áratuga kynni. Ég, sem þessi orð rita, minnist margra góðra stunda með Hall- dóri, enda vorum við bekkjar- bræður í sex vetur í Mennta- skólanum á Akureyri. Hann kom eins og ég, utanbæjarmaður, í skólann haustið 1939 og settumst við í I. bekk. Þannig háttaði til vegna þrengsla í skólanum, að við busarnir, sem borðuðum í mötu- neytinu, vorum látnir matast á eftir öðrum nemendum. Við vor- um fimm, að mig minnir, sem sátum þar til borðs. Var þar glatt á hjalla og margt skrafað. Halldór var alltaf hress og kátur á hverju sem gekk og kom öllum i gott skap. Þannig liðu skólaárin, að hópur- inn dreifðist að loknum vorpróf- ■ um og leitaði til skólans að hausti. Eitt var það fagið, sem mörgum reyndist allerfitt viðfangs, var það teikning (dráttlist), en þar var Halldór okkur öllum fremri og fór lipurlega með blýant og liti. Var ekki örgrannt um, að við hin nytum góðs af hagleik hans, er í óefni var komið hjá okkur og skila átti Jónasi mynd í næsta teiknitima. Þannig var hann alltaf búinn til að hjálpa og öfund var ekki til í huga hans. Það er nú orðið svo langt síðan við vorum f skóla, að vísast er, að verkefni þau, sem bekksagnir þurfa sameiginlega af höndum að ieysa í skólanum, séu allt önnur en þá var. Mér eru minnisstæð þau skipti, þegar okkar bekkur átti að sjá um að skreyta skólann, bæði kennslu- stofur og á Sal, fyrir kaffikvöld eða dansleiki. Þá var Halldór sjálfkjörinn forystumaður. Fljót- ur var hann að ákveða skreyting- una og að skömmum tíma liðnum blöstu við á veggjum stórkostleg- ar skreytingar, sem þóttu á stund- um allnýstárlegar og væru vist nú til dags kallaðar þvi fína nafni „framúrstefna“. Þegar „Carmína“ okkar kom út, gat þar að líta káputeikningu eftir Halldór. Þótti okkur sjálf- kjörið að nota hana framvegis sem merki stúdenta M.A. 1945. Var það og gert, er við áttum 25 ára stúdentsafmæli, með því að prenta hana á kápu söngkvers, er notað var við veisluhöld á Akur- eyri þá um vorið. Halldór G. Þórhallsson var fæddur 27. júlí 1924 í Vestmanna- eyjum. Foreldrar hans voru þau hjón Ingibjörg Ólafsdóttir og Þór- hallur Gunnlaugsson, símstöðvar- stjóri þar. Halldór ólst upp í Vest- mannaeyjum og vann þar á sumr- um meðan á menntaskólanámi stóð. Árið 1946 fer hann til Kaup- mannahafnar og nam þar auglýs- ingateikningar i eitt ár. Að þvi loknu kemur hann heim og fer að vinna á teiknistofu Landssímans allt til ársins 1950. En þá um haustið gengur hann að eiga fyrri konu sína, Þóru Ólafsdóttur. Þau flytjast þá strax til Vestmanna- eyja og gerist Halldór þá sýn- ingarstjóri við kvikmyndahús þeirra Eyjamanna. Þau Þóra og Halldór eignuðust einn son, Þór- hall, fæddan 26. okt. 1952. Hann stundar nú nám f rafmagnsverk- fræði við ríkisháskólann i New- York. Þau Þóra og Halldór slitu samvistum. Halldór flytur úr Eyjum 1957 og fer til starfa við Laugarásbíó og vinnur jafnframt að auglýs- ingateikningum. Síðan flytur hann í Kópavog og gerist sýn- ingarstjóri við hið nýja Kópavogs- bió. Arið 1963 kvænist Halldór Þóru Dagbjartsdóttur, ágætri, vest- firskri konu. Þau hefjast handa og byggja sér einbýlishús í Kópa- vogi af miklum dugnaði. Grunar mig, að Halldór hafi ráðið miklu um teikningu þess húss. Tvö systkini átti Halldór og eru nú bæði búsett í Bandaríkjunum. Eru þau: Ása María, gift Birni Gunnlaugssyni, skipstjóra i Flórida, og Ólafur, kvæntur bandariskri konu, búsett í Boston. Það var ef til vill vegna búsetu systkina Halldórs þar vestra, að þau hjón ákváðu í byrjun árs 1972 að flytja til New-York, þar sem var unun að eiga hann að vini. Honum var margt til lista lagt og var vel fróður. Bezt lék þó í höndum hans allt sem snerti teikningar enda hafði hann á þvi sviði hlotið beztu starfsþjálfun, að afloknu stúdentsprófi og námi í auglýsingateikningum í Dan- mörku. Þegar hann var 47 ára, en á þeim aldri hafa flestir fest rætur og jafnvel hægt ferðina, þá ákvað hann að takast á við ný og stærri verkefni en áður. Hann flutti til Bandarikjanna og gerðist auglýs- ingastjóri hjá Coldwater Seafood Corporatio. Eftir 3M ár í því starfi hafði hann löngu yfirunnið erfið- leikana við flutninga frá átthög- um sínum. Starf hans einkenndist af smekkvísi og snyrtimennsku, enda var hann óvenju listrænn maður. Starfsgleði hans var ber- sýnileg. Hann lézt eftir stutta spítala- Framhald á bls. 18 s.u.s. Jafnrétti kynjanna Ungir sjálfstæðismenn. Fundur um jafnrétti kynjanna verður haldinn 1 Galtafelli við Laufásveg föstudaginn 29. þ.m. kl. 17.15. Til umræðu verða drög að ályktun fyrir landsþing S.U.S. Áríðandi að allt áhugafólk mæti. Umræðustjóri verður Erna Ragnarsdóttir. Halldór réðst sem auglýsinga- stjóri til Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna (Coldwater Seafood corp.) i New-York. Vann hann þar við góðan orðstír allt þar til hann veiktist fyrr í þessum mánuði. Það er sárt fyrir Þóru að missa svon skyndilega eiginmann sinn og erfitt hlutskipti, fjarri ætt- ingjum sínum, þegar slík áföll henda i fjarlægu landi. Eins er það átakanlegt fyrir einkasoninn, Þórhall að sjá á bak föður sinum, en ástriki var mikið þeirra í mill- um, þar sem hann hafði hlakkað svo til að dvelja með honum námsárin í New-York. Þessi siðasti vetur var fyrsta námsár sonarins vestra. Ég bið góðan guð að styrkja ykkur, ástvini Halldórs i sorg ykkar, um leið og ég fyrir okkur bekkjarsystkinin þakka Halldóri samfylgdina i þessu lifi. Héðinn Finnbogason. Hann var hvers manns hugljúfi og mátti ekki vamm sitt vita. Þessi hugtök eru mér efst í huga við fráfall Halldórs Þórhalls- sonar. Göfugmennska hans og hjálpsemi voru svo einstök að það Nánari athugun leiöir ýmislegt í ljós Fljótt á litið virðist allt tvöfalt gler vera eins. í dag er aðeins um að rœða fyrsta flokks flotgler á markaðnum. Gler, sem síðan er sett saman á mismunandi hátt með álrömmum, tilheyrandi þéttiefnum og rakavarnar- efnum. Afhverju er Cudogler þá dýrara? ■ Cudogler h/f. byggir framleiðslu sína á dýrum efnum og vandaðri samsetningu. Cudogler h/f. notar aðeins Terostat þéttiefni, og um það bil helmingi meira af þéttiefni en aörir. Efnismiklir álrammar með sérstakri skörun tryggja að ryk úr rakavarnarefnum komist ekki milli glerja, en rammarnir eru fylltir tvenns konar rakavarnarefnum, sem hindra móðumyndun. Terostat hefur ótrúlegan sveigjanleika, og meiri viðloðun en önnur sambærileg þéttiefni. ■ Surnir framleiðendur nota stærri og þynnri álramma, sem gefa mun minna rúm fyrir þéttiefni. Aðeins tvær hliðar álrammans eru fylltar rakavarnarefni. Þeir þurfa að verja yfirborð efnisins, til að forðast neikvæð efnaáhrif á samsetningu glersins. Venjuleg gerð álramma býður alltaf heim hættu á ryki úr rakavarnarefnum milli glerja, þar sem rúður eru alltaf á stöðugri hreyfingu. Þeir. sem meta öryggi og vandaða vinnu. vilja fremur borga heldur meira fyrir viöurkennd gæði. Þeir vita. að endurisetning tvöfalds glers er kostnaðarsöm. þó að glerið sé í ábyrgð framleiðanda. þegar gálli kemur fram. Verðgildi byggingar hækkar vió ísetningu tvöfalds glers frá framleiðanda, sem notar aðeins Terostat þéttiefni, sparar hvergi til við safnsetningu glersins. og gefur 10 ára ábyrgð á framleiðslunni. Þess vegna borgardu heldur meira fyrir Cudogler — þú ert aö fjárfesta til frambúðar. ICUDO-I IglerhfJi "VIÐERUM REYNSLUNNIRÍKARI” Skúlagötu 26 Slmi 26866 14 FOSTBR4EÐU R NÝJA SÖNGTEXTABLAÐ FYLGIR HVERJU PLÖTUUMSLAGI OG KASETTU STEREO HLJÓMPLATAN KEMUR ÖLLUM í SÓLSKINSSKAP. 8 LAGASYRPUR — 49 LÖG o ' ■ * •-£ ’ HLJÓMA-ÚTGÁFAN KEFLAVlK- ANNAST DREYFINGU PLÖTUNNAR SÍMAR: 92-2717 OG 82634 REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.