Morgunblaðið - 28.08.1975, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1975
31
Draumamark Guðjóns
kom Keflavík í úrslit
„ÉG ER nú varla farinn að átta
mig á þessu, þetta er svo ofsa-
legt,“ sagði Guðjón Guðjónsson,
18 ára nýliði Keflavíkurliðsins,
sem kom liði sfnu í úrslit bikar-
keppninnar með stórkostlegu
marki á sfðustu mfnútu leiksins
gegn KR f gærkvöldi. Blaðamaður
Mbl. ræddi við hann strax að leik
loknum, mitt f fagnaðarlátunum.
Þessi lokamfnúta var reyndar
kórónan á miklum baráttuleik,
þvf KR-ingar höfðu jafnað metin,
1:1, aðeins hálfri mfnútu áður en
Guðjón skoraði mark sitt, og
menn farnir að bóka framleng-
ingu þegar mark Guðjóns kom
eins og þruma úr heiðskfru lofti.
Þar með var 2:1 sigur IBK f höfn
og sæti f úrslitunum tryggt.
660 áhorfendur horfðu á iBK og
KR leika á grasvellinum i Kefla-
vík. Þeir fengu að sjá mikinn bar-
áttuleik sem bauð uppá ágæta
knattspyrnu á köflum. Kefl-
vikingar voru sterkari í fyrri hálf-
leik og þeir urðu líka fyrri til að
skora. Markið kom á 29. mínútu
og skoraði Jón Ólafur Jónsson það
úr vitaspyrnu eftir að Steinar
Jóhannsson hafði tekið góða horn-
spyrnu og boltinn hrokkið í hönd
Stefáns Arnars Sigurðssonar á
marklínunni. Keflvíkingar fengu
auk þess nokkur tækifæri, þar af
eitt dauðafæri, en Magnús mark-
vörður varði meistaralega frá
Friðrik Ragnarssyni sem kominn
var einn inn fyrir.
KR-ingar, sem lítið höfðu
komizt áleiðis gegn sterkri vörn
ÍBK í fyrri hálfleik sóttu i sig
veðrið í þeim seinni. Fengu þeir
hvað eftir annað hættuleg tæki-
Enska knattspyrnan
Nokkrir leikir fóru fram í ensku deilda-
keppnínni og í skozku deildabikarkeppninni
í gærkvöldi og urðu úrslit þeirra sem hér
segir:
1. DEILD:
Aston Villa — Manchester City 1 —0
Derby — Newcastle 3—2
Leicester — Stoke 1—1
Manchester United — Coventry 1—1
SKOZKA BIKARKEPPNIN:
Aberdeen—Celtic 0—2
Airdrieonians—Rangers 1—2
Ayr Utd. — Dunfermline 2—2
Clyde — Motherwell 1—2
Clydebank — Arbroath I—0
Cowdenbeath—Forfar 6—2
færi, en Þorsteinn Ólafsson stóð
sig frábærlega f markinu. En
hann réð ekki við jöfnunarmark
KR þegar það loksins kom á 90.
mínútu. Haukur Ottesen átti þá
þrumuskot að marki frá vítateig,
Þorsteinn henti sér í það horn
sem boltinn stefndi i en á leiðinni
þangað kom boltinn f Halldór
Björnsson, breytti um stefnu og
sigldi hægt og rólega f gagnstætt
horn.
Fögnuður KR-inga var að von-
um gífurlega mikill, þeir hafa
væntanlega talið öruggt að fram-
lenging kæmi til og hafa því ekki
verið nægilega vel á verði þegar
Keflvíkingarnir byrjuðu leikinn á
miðjunni. Boltinn var gefinn út
til vinstri þar sem Guðjón
Guðjónsson var, en hann hafði
komið inn sem varamaður aðeins
5 mfnútum áður. Guðjón brunaði
upp að markinu, lék á 2—3
varnarmenn KR og skaut síðan
þrumuskoti ofarlega í mark-
hornið fjær, án þess Magnús
kæmi neinum vörnum við. Kefl-
víkingar, bæði á vellinum og utan
hans, trylltust bókstaflega af
fögnuði og þegar leikurinn var
flautaður af rétt á eftir var
Guðjón nánast borinn útaf af
ofsaglöðum áhorfendum. Sannar-
lega skemmtilegt fyrir þennan
unga pilt að skora sitt fyrsta
meistaraflokksmark á þennan
hátt og á þessu augnabliki.
Guðjón var vissulega hetja
leiksins en í liði ÍBK sýndu þeir
iÞorsteinn Ólafsson, Einar
Gunnarsson, Ástráður Gunnars-
son og Jón Óli einna beztan leik.
Hjá KR voru þeir Magnús
Guðmundsson, Stefán örn, Hauk-
ur Ottesen og Hálfdán Örlygsson
beztir. — SS.
Jón Alfreðsson, fyrirliði ÍA — bezti maðurinn á vellinum f gær og
skoraði sigurmark liðs sfns.
Enn er IA í úrslitum
Lögðu bikarmeistara Vals í undanúrslitunum 1:0
Guðjón Guðjónsson, skoraði eftir-
minnilegt sigurmark ÍBK f gær-
kvöldi.
LIÐIN sem mættust f úrslitaleik
bikarkeppni KSl f fyrra, Akranes
og Valur, mættust f gærkvöldi f
undanúrslitum keppninnar, að
þessu sinni á Akranesi. Enn einu
sinni tókst Skagamönnum að
tryggja sér rétt til þess að leika
úrslitaleikinn f keppninni, þar
sem að þeir skoruðu eina mark
leiksíns. Þar með eru bikarmeist-
arar Vals úr sögunni, og hefur
sigurinn sjálfsagt verið sætur
fyrir Skagamennina, eftir ósigur-
inn sem þeir biðu f leik sfnum við
Val f 1. deildar keppninni um
sfðustu helgi, — tap sem kann að
verða afdrifarfkt fyrir þá.
Leikurinn á Akranesi í gær-
kvöldi var mikill baráttuleikur,
og hafði dómarinn, Guðmundur
Haraldsson, ekki nægjanlega góð
tök á honum lengst af. Var það
ekki fyrr en um miðjan seinni
hálfleikinn, er Guðmundur hafði
rekið Teit Þórðarson af velli og
talað við fyrirliða liðanna, að leik-
menn tóku svolítið að róast. Þegar
Teiti var vísað af velli var staðan í
leiknum enn 0—0, þannig að
vonir Valsmanna um sigur urðu
meiri. Joe Gilroy, þjálfari Vals-
manna, tók þá þann kostinn að
efla framlínu liðsins með því að
skipta þeim Hermanni Gunnars-
syni og Kristni Björnssyni inná.
En ailt kom fyrir ekki. Skömmu
eftir á Skagamennirnir voru orðn-
ir 10 skoruðu þeir eina mark
leiksins, er dæmd var aukaspyrna
á Val sem Árni Sveinsson tók.
Lyfti hann knettinum inn í teig-
inn, þar sem Jón Alfreðsson var
rétti maðurinn á rétta staðnum og
skallaði í mark Valsmanna án
þess á Sigurði Dagssyni sem lék
nú með Valsliðinu eftir langt hlé,
tækist að koma við vörnum.
Ekki hefði verið ósanngjarnt að
Skagamenn hefðu haft góða for-
ystu eftir fyrri hálfleikinn.
Þannig átti Matthías Hallgríms-
son t.d. skot í stöng á 10.
minútu og á 15. mínútu
var dæmd vítaspyrna á
Valsmenn, er Dýri Guðmunds-
son brá Karli Þórðarsyni
sem kominn var i skotfæri inni i
vítateignum. Teitur Þórðarson
tók vítaspyrnuna, en skot hans
var misheppnað og Sigurður
Dagsson átti ekki í erfiðleikum
með að verja.
Seinni hálfleikurinn var svo
jafnari og þá kom að því að Vals-
menn áttu sín beztu tækifæri.
Skall hurð nærri hælum við
Skagamarkið er þeim Guðjóni og
Benedikt tókst að bjarga á mark-
línu, eftir að skot komu á markið
úr mikilli þvögu leikmanna sem
var fyrir framan markið.
Það var svo um miðjan hálfleik-
inn að Teitur var rekinn útaf.
Hafði hann þá sloppið framhjá
Dýra Guðmundssyni sem brá á
það ráð að grfpa í peysu hans og
halda honum. Brást Teitur hinn
versti við og sparkaði í Dýra. Vfs-
aði dómarinn honum þar með af
velli.
Eftir að Skagamenn höfðu
skorað mark sitt dró Kirby liðið
aftur og lagði alla áherzlu á vörn-
ina. Tókst hún það vel að Vals-
menn áttu nær ekkert tækifæri á
sfðustu mínútum.
Bezti maður vallarins í þessum
leik var Jón Alfreðsson Skaga-
maður, sem sjaldan eða aldrei
hefur verið betri en um þessar
mundir, en beztu menn Valsliðs-
ins í leiknum voru þeir Magnús
Bergs og Sigurður Dagsson, en
hann sýndi oft stórgóða mark-
vörzlu. — stjl.
Coca-Colamót
COCA-COLA hraðkeppnin í
körfuknattleik hefst f Iþróttahús-
inu á Seltjarnarnesi kl. 20.30 í
kvöld- I 1. umferð
leika saman eftirtalin lið:
IS — Valur
UMFN — Fram
KR — ÍR
Ármann — Strange
Petta er þeina álit
Kristján Baldvinsson:
„Mér finnst margt að sjá, ég er að byggja, og maður fær
ýmsar hugmyndir um eitt og annað sem maður' er að
velta fyrir sér."
Ingileif Danfelsdóttir
„Ágæt það sem ég er búin að sjá. Nokkuð svipuð fyrri sýningum,
en aljtaf sér maður eitthvað nýtt. Skemmtilegt er að sjá hvað
íslensk framleiðsla er orðin fjölbreytt."
Sigurður Jóhannsson og Guðrún Einarsdóttir:
„Ágæt í alla staði. Þessi sýning er betri en fyrri sýningar,
og heilbrigðissýningin finnst mér mjög skemmtileg."
Ásgeir Thoroddsen
„Mjög góð, alveg prýðileg. Mikil tilbreytni f henni. Bæði heil-
brigðissýning, eins þessar stóru vélar og smádeildirnar, mjög
skemmtilegt. Ég hef séð svipaðar sýningar erlendis og þessi
stendur þeim fyllilega á sporði."
Hvert er þitt álit?
Qp ALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING REYKJAVÍK 1975
Happdrættisvinningur dagsins:
Á NORÐURHEIMSKAUTI
Að þessu sinni ferðast vinningshafi og gestur hans með Flugleiðum til
Akureyrar, þar sem gist er I 2 nætur á Hótel Varðborg. Þaðan er gerður
„norðurheimskautsleiðangur" og Grlmseyingar sóttir heim
Tlskusýningar I dag kl. 4.30 og I kvöld kl. 8.45. g
il
n