Morgunblaðið - 02.09.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975
Refsiaðgerðir
V-Þjóðverja
f Tímanum sl. sunnudag
er fjallað um refsiaðgerðir
V-Þjóðverja i garð ísiend-
inga. Þar segir svo m.a.:
„fslendingai eru sein-
þreyttir til vandræða. f
samræmi við þann
hugsunarhátt hefur
tslenzka Landhelgisgæzl-
an starfað og hún hefur
þess vegna ekki beitt
harkalegum aðgerðum
gegn erlendum land-
helgisbrjótum, en þó sýnt
fulla einurð í skiptum
stnum við þá. En vitaskuld
er ekki hægt að sýna
endalausa þolinmæði þeg-
ar frekja og yfirgangur er-
lendra veiðiþjófa gengur
úr hófi fram og tslenzk
fiskveiðiskip verða fyrir
áreitni þeirra. Það var
þess vegna nauðsynleg
aðgerð af hálfu Land-
helgisgæzlunnar að hala-
stýfa vestur-þýzku togar-
ana tvo s.l. miðvikudag.
En á sama ttma og fs-
lendingar fara svo vægi-
lega t sakirnar gegn vest-
ur-þýzkum landhelgis-
brjótum, sýna Vestur-
Þjóðverjar óbilgirni og
beita fyllstu hörku I þeirri
von að geta beygt íslend-
inga t landhelgismálinu.
Þannig hafa þeir beitt sér
fyrir þvt, að fslendingar
njóta ekki eðlilegra við-
skiptakjara við Efnahags-
bandalagið. Auk þess hafa
Vestur-Þjóðverjar sett
löndunarbann á islenzk
fiskiskip t höfnum Vestur-
Þýzka lands."
Eftirlitsskip
— njósnaskip
Stðan er fjallað um
hugsanlegar gagnaðgerðir
Islendinga og þar sagt:
„En það er ekki aðeins
á þessu sviði, sem vert er
að kanna aðgerðir gagn-
vart Vestur-Þjóðverjum.
Nýlega hefur Landhelgis-
gæzlan staðfest þann
grun, sem lengi hefur
legið á, að vestur-þýzku
eftirlitsskipin hér við land
njósni um íslenzku varð-
skipin og gefi togurunum
upplýsingar um ferðir
þeirra. Þessar aðgerðir
eru alveg sambærilegar
við það, er Bretar sendu
flugvélarfrá Bretlandseyj-
um til þess að njósna um
tslenzku varðskipin. Við-
brögð ríkisstjórnar Ólafs
Jóhannessonar voru þá
þau, að þessum vélum var
bannað að lenda á Kefla-
víkurflugvelli til þess að
fyrirbyggja, að þær fengju
nokkra þjónustu hér.
Afleiðingin varð sú, að
Brétar gáfust upp á þessu
njósnaflugi stnu.
Það er hins vegar látið
afskiptalaust, að þýzku
eftirlitsskipin, njósnaskip
vestur-þýzka togaraflot-
ans hér við land, fái vatn
og vistir t tslenzkum höfn-
um. Það verður að teljast
mjög óeðlilegt, að fslend-
ingar geri Vestur-
Þjóðverjum með þessum
hætti kleift að halda
njósnaflota stnum úti til
hjálpar veiðiþjófum, er
fara rænandi og ruplandi
um Fslenzka fiskveiðilög-
sögu. Ekki virðist þvt
óeðlilegt, að sett verði
hafnbann á þýzku eftirlits-
skipin."
Svör sjávarút-
vegsráðherra
f þessu sambandi er
vert að minna á svör
sjávarútvegsráðherra,
Matthtasar Bjarnasonar, t
viðtali við „News from
lceland". Hann segir:
„Það er eindregin
skoðun mfn, að við eigum
ekki að semja við neitt
land innan Efnahags-
bandalagsins, nema með
þvt skityrði að þær tak-
markanir á gildistöku sér-
samninga fslendinga um
tolla verði samstundis
afnumdar." Ráðherrann
leggur t viðtalinu áherzlu
á að islendingar verði að
koma t veg fyrir, að er-
lendar þjóðir beiti þá efna-
hagslegum refsiákvæðum
vegna landhelgismálsins
og sagðist ráðherrann hér
eiga við framkomu V-
Þjóðverja, þrátt fyrir þá
staðreynd, að íslendingar
hefðu samið við Breta og
Belga eftir útfærsluna t
50 sjómtlur. f viðtalinu
lýsir ráðherran ennfremur
vonbrigðum stnum yfir
þeirri ákvörðun Bandartkj-
anna, Noregs og sérstak-
lega Kanada, að fresta út-
færslu i 200 sjómtlur.
Hann fjallar og um mót-
mæli SovétrFkjanna gegn
útf ærslu okkar og segir að
„I nýlecjri heimsókn minni
til Sovétríkjanna fann ég,
að þar er mjög sterk and-
staða gegn slikri afstöðu
strandrtkja"
Sú andstaða kemur
engum á óvart, þvt ásókn
Rússa og Japana t fisk-
stofna um öll heimsins
höf er helzta orsök þeirrar
samstöðu á Hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóð-
anna, sem þar tókst með
meirihluta þátttökurikja
um 200 sjómilna fisk-
veiðilandhelgi, þó sú sam-
staða dygði ekki til af-
greiðslu nýs hafréttarsátt-
mála t þessum áfanga.
spurt &
—
Hringið í síma 10100
milli kl. 10.30 og 11.30
frá mánudegi til föstu-
dags og spyrjið um
Lesendaþjðnustu
Morgunblaðsins.
______________/
MÖRK VIÐ VESTUR-
BÆJARSKÓLA
Steingríniur Gunnarsson,
Seljavegi 17, Reykjavfk, spyr:
,,Við Vesturbæjarskóla er
engin aðstaða til iðkunar knatt-
spyrnu, því þar eru ekki mörk
eins og við aðra skóla. Er ekki
hægt að setja upp mörk þar
eins og við aðra skóla?“
Stefán Kristjánsson, fþrótta-
fulltrúi Reykjavfkurborgar
svarar:
„Það sem ræður því að ekki
hafa verið sett upp mörk við
Vesturbæjarskóla er hversu
lóðin er iítil og aðkreppt af
íbúðarhúsum.“
YFIRLIT
ÁVlSANAREIKNINGS
Stefán Halldórsson, Miðbraut
8, Seltjarnarnesi, spyr:
Landsbankinn sendir mér
mánaðarlega yfirlit yfir færsl-
ur á ávísanareikningi mínum.
A yfiriitinu eru ávísanirnar
taldar upp f þeirri röð, sem þær
berast bandanum, en ekki núm-
eraröð. Verður samanburður
við færslur f ávísanaheftinu því
seinlegri fyrir vikið. Getur
bankinn breytt þessu? Einnig
væri gott, éf bankinn gæti gefið
upp í yfirlitinu á hvern ávísun-
in er stíluð, til aukins hagræðis
og öryggis. Er það hægt?
Lúðvík' Bjarnason, forstöðu-
maður ávfsana- og hlaupareikn-
ingsdeildar Landsbanka Is-
lands svarar fyrri spurning-
unni:
„Þetta er mögulegt en hefur
eingöngu verið notað í þeim
tilfellum, þegar fjöldi ávísana
er sérstaklega mikill. Reikni-
stofa bankanna er f þessum
mánuði að taka við tölvu-
vinnslu fyrir bankana og tekur
hún m.a. við vinnsiu á þessu
tékkaverkefni og opnast þá
ýmsir nýir möguleikar, sem
ekki hefur áður verið boðið
uppá. Óski menn að fá ávísanir
á yfirliti sínu taldar upp í núm-
eraröð verður viðkomandi aðili
að leggja fram sérstaka ósk
þess efnis við bankann."
Sveinbjörn Guðbjarnarson,
forstöðumaður reiknideildar
Landsbankans svarar seinni
spurningunni:
„Það hefur ekki komið til tals
að geta þess í hverju mánaðar-
yfirliti á hvern ávísunin er stíl-
uð en það væri mögulegt en
gerði kröfu til töluverðrar
vinnu. Með notkun nýrra tölva
hafa opnazt möguleikar, sem
ekki voru fyrir hendi áður.“
SLYSAHÆTTA í
GELDINGANESI
Þorbjörg Steinþórsdóttir,
Safamýri 71, Reykjavfk, spyr:
„Þegar ég var á ferð í Geld-
inganesi fyrr f sumar sá ég að
hestur hafði farið ofan í mýrar-
fláka, sem þar er og drepizt þar.
Ég vil því spyrja forráðamenn
Fáks, sem hefur hross f haga-
göngu í Geldinganesi, hvort
ekki sé nauðsynlegt að girða
umrætt mýrarsvæði?"
Bergur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Hestamannafé-
lagsins Fáks, svarar:
„Því miður leynast víða hætt-
ur, þar sem erfitt er að koma í
veg fyrir að hross fari sér að
voða, og má þar t.d. nefna
skurði. Að mati starfsmanna
félagsins er ekki um að ræða
hættu á að hross fari sér að
voða þarna á sumrin, en það er
sá tími sem hross eru höfð f
hagagöngu í Geldinganesi á
vegum Fáks. Þessi umræddi
hestur, sem fórst í þessari mýri,
hefur komizt þangað á liðnum
vetri en þá eiga engin hross að
ganga þar.“
7
0STRATFORD
E N S K I R
PENINGASKÁPAR
þjófheldir — eldtrausfir
heimsþekkt —
viðurkennd framleiðsla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1 —3, HAFNARFIRÐI — SÍMI 51919
litmyndir
yöará dögum
Allar myndir okkar eru fram- leiddar á úrvals Kodakpappír meö silkiáferð 0
£3 ° Myndirnar eru afgVeiddar án hvítra kanta
Höfum þrautþjálfað starfsfólk er vinnur myndir í fullkomnustu vélum sem fáanlegar eru
Eð Þér greiðið aðeins fyrir myndir sem hafa heppnast hjá yður
12 Notið einungis Kodak-filmur svo þér náið fram sem mestum gæðum í myndum yðar
12 Munið: Það bezta verður ávallt ódýrast
Umbodsmenn um land allt
— ávallt feti framar
HANS PETERSEN'1,
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆ