Morgunblaðið - 02.09.1975, Síða 11

Morgunblaðið - 02.09.1975, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 11 ý? m sýslum, þar eru tekjur bænda tiltölulega lágar í hlutfalli við bústofninn. Gunnar Guðbjartsson formaður Stéttarsambands bænda vék að þessum athugunum í skýrslu sinni á aðalfundi Stéttarsam- bandsins, sem lauk síðdegisj gær. Hann sagði, að augijóst væri að bústærðin væri ekki einhlitur mælikvarði á afkomu bænda og væri margt, sem þar gripi inn f. Gunnar benti á að áætlanagerð f landbúnaði væri vandasöm og ekki mætti hrapa að henni. Hins vegar væri ljóst að vissar byggðir væru f nokkurri hættu, þvf að fólki fækkaði þar stöðugt. Fagna fyrirhugaðri Blönduvirkjun Fundur haldinn í U.M.F. Hún- um, sem er eitt af átta ungmenna- félögum í A-Hún., gerði eftirfar- andi samþykkt á almennum fé- lagsfundi föstudaginn 22. ágúst sl.: Fundurinn fagnar fyrirhug- aðri stórvirkjun á Norðurlandi vestra og hvetur eindregið til áframhaldandi rannsóknar á virkjun Blöndu f því sambandi þar eð allar fyrri rannsóknir hafa sannað hagkvæmni stórvirkjunar þar. Frá Stéttarsambandsfundinum: Fundurinn lýsir furðu sinni á afstöðu einstakra afturhaldssinna og æsingamanna í Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhreppi sem hafa með furðulegum fundum og fréttatilkynningum reynt að varpa skugga á hagkvæmni Blönduvirkjunar. Fundurinn skorar á stjórnvöld orkumála, svo og þingmenn Norð- urlands vestra að vinna með ein- hug og festu að því að Blöndu- virkjun verði að raunveruleika svo fljótt sem verðá má. Einnig skorar fundurinn á önn- ur ungmenna- og æskulýðsfélög í A-Hún. að láta þetta stórmál ekki Framhald á bls. 27 Stærstu búin í Rangárvallasýslu — en tekjurnar mestar í Eyjafirði A VEGUM Iandbúnaðarráðuneyt- isins starfar nú nefnd, sem vinn- ur að gerð tillagna um áætiana- gerð f landbúnaði. Unnið hefur verið að ýmis konar athugunum á vegum nefndarinnar og er m.a. búið að gera úrtak af tekjum bænda um land allt árið 1973. Þá hefur einnig verið kannað hvaða bústærð bændur f hverju byggðarlagi og hverri sveit hefðu að mcðaltali. Athugun þessi hef- ur verið unnin f Skýrsluvélum rfkisins og hefur hún náð til 4815 bænda. Bændurnir hafa verið valdir eftir atvinnumerkingu á skattframtölum, en f þau hafa einnig verið sóttar upplýsingar um tekjur bænda. Eins og áður sagði náði þetta úr- tak til 4815 bænda og reyndust meðaltekjur þeirra vera 556.146,00 krónur og meðal bú- stærð 334 ærgildi. Við þessa athugun var búfé metið með sama hætti og Hagstofan gerir, þ.e. að 1 kýr gerir 20 ær o.s.frv. Stærstu búin reyndust vera f Rangárvallasýslu eða að meðaltali 447 ærgildi, en minnstu búin eru f Strandasýslu 205 ærgildi að meðaltali. Hæstu tekjur bænda eru f Eyjafjarðarsýslu, kr. 679.403,00 að meðaltali, en lægstu tekjur bænda eru f Gullbringu- sýslu kr. 407.235,00. Bændur f Gullbringusýslu voru 29. Næst lægstu tekjur bænda eru f Snæfellsness- og Hnappadals- sýslu eða kr. 445.286,00 að meðal- tali. Við þessa athugun kom í ljós að ekki er beint samhengi milli bú- stærðar annars vegar og tekna hins vegar og munar þar mjög miklu. Má nefna að í Strandasýslu eru tekjur bænda tiltölulega háar eða yfir meðallagi, þó þar í sýslu sé minnsta bústærðin. En þessu eru öfugt farið f sumum öðrum FLORIDA AUGLVSINGASTOFA KRISTINAR 36.2 í Meö sófasettinu FLORIDA kynnum vió merka nýjung. Sófinn er jafnframt fullkomió hjónarum af beztu geró, þótt engan gruni viö fyrstu sýn, aó um svefnsófa sé aó ræóa. SKEIFAN KJÖRGARÐI SÍMI 16975 AIls ekki. í»ær gömlu standa ennþá fyrir sínu. „Hakkavél- arnar“ skiluðu góðum árangri, vinnusparnaði og hagræð- ingu, — miðað við þær kröfur, sem gerðar voru til almennra skrifstofustarfa fyrir tveim áratugum eða svo. Þeir, sem ennþá vilja sitja við sömu skilyrði og þá, þurfa svo sannarlega ekki að endurnýja vélakostinn. Þær gömlu standa fyrir sínu. Auknar kröfur Önnur vinnubrögð „Eitthvað dálítið sérstakt.“ Með auknum kröfum til þeiría, sem annast hvers konar reikningsskil, meira vinnuálagi á hvern einstakling og hærri launagreiðslum, verður að nýta starfsmöguleika hvers einstaklings til hins ýtrasta. Það verður aðeins gert með fullkomnum skrifstofuvélum, sem eru við hæfi starfs- mannsins og uppfyllir adar sérkröfur starfsins. Uppfyllir óskir þeirra og kröfur, sem stunda viðskipti í dag. Ricomac 1221 PD reiknivélin býður upp á: 1. Þrjú sjálfstæð reikniverk. 4. Upphækkun aukastafa. 2. Skýrir Ijósastafir og strimill. 5. Sjálfvirkur % lykill. 3. Aflestrar-komma. Kynnið yður verð og möguleika Ricomac 1221 PD og þér munuð sannfærast. SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. \ + "c# Hverfisgötu 33 ^tix^ Sími 20560 Sölumenn okkar veita yður fúslega allar upplýsingar um Ricomac við yðar hæfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.