Morgunblaðið - 02.09.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975
17
Rætt við leikmenn og forystnmenn Rejnis Árskógsströnd
„Þeir segja það fremra
að sjómennirnir sén svona
harðir”
Texti og myndir:
Stefán Halldórsson
VAFALÍTIÐ hefur frammistaSa islenzka landsliSsins í knattspyrnu i
leikjum viS erlendar stórþjóSir orSiS til aS skipa fslandi veglegri sess á
landakorti knattspyrnuáhugamanna i Evrópu en áSur. HiS sama má segja
um Árskógsströndina, sem vafalaust hefur veriS mörgum fslenzkum
knattspyrnuáhugamönnum óþekkt nafn um langa hriS, en er nú skyndi-
lega orSin umræSuefni manna á meSal, vegna óvæntrar frammistöSu liSs
Reynis frá Árskógsströnd í knattspyrnukeppni annarrar deildar i sumar.
LiSiS hefur reynzt andstæðingum frá miklu stærri byggðarlögum erfitt i
skauti og hirt af þeim ófá stigin — sem þeir hafa kannski verið búnir að
bóka sem unnin fyrirfram.
Er blaðamaður Mbl. var á ferð við
vestanverðan Eyjafjörð fyrir nokkru,
átti hann kost á að ræða við forystu-
menn og leikmenn Reynis, að lokn-
um leik liðsins við Selfyssinga
Reynismennirnir, sem rætt var
við, voru þeir Gylfi Baldvinsson for-
maður félagsins og aldursforseti
knattspyrnuliðsins. 34 ára gamall,
Magnús Jóhannsson gjaldkeri og
eins konar framkvæmdastjóri liðsins
og leikmennirnir Jens Sigurðsson
og Gunnar Valvesson. Magnús er
raunar gamall leikmaður líka, en
hefur orðið að hætta beinni þátttöku
I iþróttinni vegna meiðsla. Eru upp-
lýsingarnar og ummælin, sem hér
fara á eftir, frá þeim komin I samein-
ingu.
„MENN VORU ORÐNIR
STÍFIR ( FÓTUNUM"
Knattspyrna hefur verið leikin á
Árskógsströnd um áraraðir, en þátt-
taka heimamanna i mótum verið
lltil, nema þá helzt innan vébanda
UMSE — Ungmennasambands
Eyjafjarðar. Nokkrir piltar af Ár-
skógsströnd höfðu einnig leikið með
liði UMSE I þriðju deild og olli það
liði Reynis nokkrum erfiðleikum, þvl
að erfitt var að halda æfingar án
þátttöku þessara manna. í fyrra var
ákveðið að senda lið Reynis til þátt-
töku í þriðju deildinni — i tilrauna-
skyni. „Það átti ábyggilega enginn
von á þvl að við ynnum riðilinn,"
sögðu Reynismenn i samtalinu við
Mbl. En þeir unnu hvern einasta leik
og komust i úrslitakeppni þriðju
deildar sem háð var á Melavellinum
í Reykjavfk f fyrrahaust. Þar stóðu
Reynismenn sig með prýði og kom-
ust i úrslit gegn Ólafsvíkur-
Vikingum. Þeim leik tapaði Reynir
og var kannski ekki að furða, því að
þetta var fimmti leikurinn á fimm
dögum. Fyrst voru þrír leikir í öðrum
riðli úrslitakeppninnar, síðan auka-
leikur um efsta sætið i þeim riðli, og
loks úrslitaleikurinn. Allir leikirnir
voru leiknir á malarvelli. en slíkum
velli eru Reynismenn óvanir, þvl að
þeir eiga bara einn grasvöll sjálfir
„Menn voru orðnir stifir í fótunum
eftir þessa fimm leiki," sögðu þeir.
En þegar lið ÍBA, sem féll í aðra
deild sl haust klofnaði í frumeindir
sinar, KA og Þór, sem ákváðu siðan
að taka bæði sæti í þriðju deild,
losnaði eitt sæti í annarri deild og í
marzmánuði sl. var Reyni boðið að
taka það sæti. Og það boð var
þegið
HELMINGUR LEIKMANNA
SJÓMENN
Á félagssvæði Reynis búa um
330—40 manns og höfðu öll hin
liðin f annarri deildinni miklu fleiri
ibúa á bak við sig, allt frá þúsund
manns í Ólafsvik upp í 10 þús.
manns i Kópavogi og jafnvel enn-
meira hjá Reykjavikurliðunum Þrótti
og Ármanni. Þar er heldur ekki úr
mörgum mönnum að velja i lið
Reynis. Yfirleitt hafa 14—16
manns verið í liðshópnum og helm-
ingur þeirra sjómenn sem erfitt eiga
með að sækja æfingar — og jafnvel
leiki. Vikuna áður en Reynir lék við
Selfoss komust fimm leikmenn liðs-
ins aldrei á æfingu og liðið varð að
vera án þeirra i leik við Þór á Akur-
eyri í bikarkeppninni. ( þeim leik var
tjaldað til öllu því, sem unnt var, og
t.d. var annar varamaðurinn á leið
frá Raufarhöfn, þegar leikurinn
hófst, og komst ekki á völlinn fyrr en
i hálfleik.
„Það er erfitt að æfa við þessar
aðstæður," sögðu Reynismenn,
„mikið bras og fyrirhöfn að halda
mannskapnum saman. Og þetta
verður alltaf sama vandamálið fyrir
okkur. Hér er enga atvinnu að hafa
nema sjómennsku eða búskap "
Sumir leikmannanna vinna meira
að segja inhi á Akureyri, en láta sig
hafa það að aka hátt i 40 km leið á
æfingar á kvöldin
FENGU ÞJÁLFARA
FRÁ HONG KONG
Þegar Reynir hóf keppni i annarri
deild í vor, var liðið þjálfaralaust. í
fyrra, er það komst i úrslit i þriðju
deild, var það alveg þjálfaralaust og
heita má, að eldrei hafi verið þjálfari
á Árskógsströndinni, nema um stutt-
an tlma fyrir nokkrum árum. En
nokkru eftir að keppnin hófst i sum-
ar, var allt i einu kominn þjálfari til
Reynis alla leið frá Hong Kong.
Maðurinn var þó ekki með öllu
ókunnur fslandi og íslendingum, þvi
að þetta var Skotinn Duncan
McDovell, sem hefur m a. þjálfað lið
ÍBÍ, FH og landsliðið fyrir nokkrum
árum. En hver var aðdragandi þess,
að Duncan kom hingað frá Hong
Kong, þar sem hann þjálfar nú, til
að þjálfa lið i annarri deild? Reynis-
menn segja svo frá:
„Við lásum i Vísi nokkrum dögum
áður en við kepptum við Hauka fyrir
sunnan, að Duncan vildi koma hing-
að og þjálfa i sumarfriinu sinu, að
þvi er haft var eftir Árna Ágústssyni
Þegar við komum suður, höfðum við
strax samband við Árna, hann sendi
Duncan skeyti og svo koll af kolli,
þartil Duncan kom hingað "
Duncan vildi þó hafa nokkuð fyrir
snúð sinn og fékk tæplega 140 þús.
kr. á mánuði i kaup, auk frís hús-
næðis og uppihalds En Reynis-
menn töldu það peninganna virði að
njóta leiðsagnar hans: „Hann hefur
náð úthaldinu geysimikið upp Leik-
skipulagið hefur batnað mikið, sér-
staklega vörnin. Við fengum öll stig-
in eftir að hann kom og það er
óliklegt að við hefðum náð þeim
öllum án hans stjórnar Hann hefur
gert mikið fyrir þetta lið og lika fyrir
umglingana hérna Hann hefur þjálf-
að þá á morgnana og daginn, bæði í
knattspyrnu og frjálsum iþróttum,"
sögðu þeir.
Að visu kváðu þeir hann kannski
ekki fyllilega skilja aðstöðuna á Ár-
skógsströnd, erfiðleika leikmanna
við að kömast á æfingar og þreytu
þeirra eftir langan vinnudag: „Þegar'
við komum þreyttir úr vinnunni, þá
er erfitt að fara á erfiðar æfingar hjá
honum "
mikill kostnaður —
LITLAR TEKJUR
En manni verður spurn: Hvernig
hefur svo litið félag sem Reynir efni
á að hafa erlendan þjálfara á launum
í tvo mánuði þegar fyrstu deildar
liðin eru alveg að kikna undir slíku?
„Við höfum betri fjáröflunarað-
stöðu en mörg félögin fyrir sunnan
með því að geta haldið böll," segja
þeir Reynismenn Félagið á þriðjung
i litlu félagsheimili á Árskógsströnd
og þar heldur það dansleiki af og til.
Félagið er að því leyti betur sett en
mörg önnur íþróttafélög, sem reyna
að fara sömu leið i fjáröflun, að
afnotagjaldið af félagsheimilinu er
mun lægra en tíðkast víðast hvar
annars staðar og því meiri von um
góðar tekjur.
„Afstaða fólksins i sveitinni er sú
að vera ekki að okra á félaginu,"
segja þeir ennfremur. „Það er geysi-
mikil samstaða meðal fólksins og
allir vilja styðja við bakið á okkur.
Allir hjálpa til eins og þeir geta og
mikið sjálfboðastarf er unnið á
mörgum sviðum."
Sem dæmi um stuðning heima-
manna má nefna, að skömmu áður
en blaðamaður ræddi við þá Reynis-
menn, höfðu nokkrir aðilar gefið
félaginu 40 þús. kr. Mörg áheit og
smágjafir berst félaginu, sveitarfé-
lagið hefur styrkt félagið og á einum
fundi félagsins komu nokkrir skip-
stjórar fram með þá hugmynd að
láta allar tekjur af róðri einn daginn
renna til félagsins.
En mikið má ef duga skal. Ferða-
kostnaður liðsins er geysilegur,
enda þótt leikmenn beri talsverðan
hluta af honum sjálfir, t d. kosti
sjálfir keppnisferðir itil Húsavikur og
akstur til og frá Akureyri vegna flug-
ferða Liðið þurfti I sumar að fara
fjórar ferðir til Reykjavlkur, eina til
Selfoss og eina til Ólafsvíkur og
flugfargjöldin ein nema hundruðum
þúsundum króna Þennan bagga
háfa liðin utan suðvesturhorns
landsins raunar alltaf þurft að bera
vegna þátttöku i fyrstu eða annarri
deild, en næsta sumar kann svo að
fara, að liðin af suðvesturhorninu
lendi í sama potti og hin i þessum
Fögnuður heimamanna i lok leiks-
ins við Selfoss var mikill, þvi að
þarna hafði Reynir krækt sér i eitt
stigið enn og var að mestu kominn
úr fallhættu i annarri deild
efnum, þ.e. ef t.d. bæði Akureyrar-
liðin komast i aðra deild.
„Okkur var sagt, að andstæðing-
amir hefðu í vor verið að bölsótast
út af þvi að þurfa að eyða svona
miklum peningum I norðurferð til að
sækja þessi tvö stig sem þeir töldu
sig eiga bókuð í leik við okkur,"
segja Reynismenn. En nú er Ijóst, að
ekkert lið getur talið sig eiga sigur
visan i viðureign við Reynismenn,
sem hafa reynzt mjög sterkir á
heimavelli i sumar.
En tekjur Reynis af leikjunum eru
ekki miklar og þó meiri af heima-
leikjunum en flest önnur lið eiga að
venjast i annarri deild Tekjurnar
hafa verið frá 4 þús. kr. á leik og
upp i 17—20 þús. kr.. en þegar
Reynismenn hafa keppt fyrir sunn-
an, hafa þeir ævinlega fengið minna
I sinn hlut en sömu lið fengu, er þau
kepptu fyrir norðan. Þó hefur að-
sókn að heimaleikjum Reynis verið
minni en vonazt var til, vegna þess
að Akureyrarliðin hafa yfirleitt veþð
með heimaleiki á sama tima og það
hefur dregið úr oðsókn Akureyringa
á leiki á Árskógsströndinni
EIN ÚTIÆFING
FYRIR FYRSTA LEIKINN
Völlur Reynis á Árskógsströnd er
grasvöllur, sem félagið á sjálft
Hann var vigður 1970 og i vígslu-
leiknum vann Reynir stóran sigur,
10:0, og þar af skoraði Gylfi Bald-
vinsson níu mörk Þetta er þó ekki
vallarmet i markatölu, því að þar fór
einu sinni 13:1 fyrir Reyni. Enginn
malarvöllur er á Árskógsströnd og
eru Reynismenn lítt vanir að leika á
slíkum völlum. Snjóþungt er i sveit-
inni og þvi ekki unnt að hefja útiæf-
ingar fyrr en seint á vorin og má
sem dæmi nefna, að liðið varð að
fresta fyrsta heimaleiknum sinum af
þvi að völlurinn var ekki orðinn
nógu þurr. Hafði liðið aðeins náð að
hafa eina útiæfingu i vor, áður en
það keppti fyrsta leikinn i deildinni
gegn Haukum fyrir sunnan.
— 0—
I lokin er rétt að nefna tvær spurn-
ingar, sem lagðar voru fyrir þá
Reynismenn að síðustu
— Hvernig stendur á þvi að
Reynir frá Árskógsströnd er svona
miklu sterkari I knattspyrnu en önn-
ur lið úr sveitum Eyjafjarðar?
„Þeir segja það fremra," er svar
Reynismanna, „að sjómennirnir séu
svo harðir i þessu . ,"
— Og að lokum: Eruð þið bjart-
sýnrr á að halda sæti ykkar i deild-
inni næstu árin?
„Við hugsum aldrei fram i tímann
en við erum orðnir ánægðir með
það sem búið er „
Forystumenn og leikmenn Heynis, sem rætt var vi8: (Frá vinstri) Gylfi Baldvinsson formaSur félagsins, Jens
Sigurðsson leikmaður, Magnús Jóhannsson gjaldkeri og „framkvæmdastjóri" og Gunnar Valvesson leikmaður.