Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 21 FH í Evrópukeppnina MORGUNBLAÐINU barst I gær svohljóðandi fréttatilkynning frá Handknattleikssambandi tsiands: I dag, 28. ágúst, hefur HSÍ borizt staðfesting frá IHF um að þátttökutilkynning FH I Evrópukeppni bikarmeistara hafi ver- ið tekin gild, þó hún hafi ekki borizt tfmanlega. Það skal tekið fram, að undanfarin ár hefur þátttaka fslenzkra liða f Evrópukeppni ætfð verið tilkynnt af félögunum sjálfum. Þátttökutilkynningar hafa verið uppáskrifaðar af HSl, formsins vegna. HSÍ vísar þvf á bug allri ábyrgð á sfðbúinni tilkynningu FH-inga að þessu sinni. Þá skal einnig tekið fram að dráttur fer ekki fram fyrr en 25. október næstkomandi. Var því ekki minnsta hætta á að FH félli út úr keppninni þrátt fyrir þessi mistök forráðamanna FH. _Stjórn HSl. Áhugalítil lið í Kaplakrika ÞEIR sárafáu áhorfendur sem lögðu leið sfna á Kaplakrikavöll- inn f Hafnarfirði á laugardaginn til þess að fylgjast með viðureign FH og Vfkings f 1. deildar keppni Islandsmótsins f knattspyrnu, hafa vafalaust flestir séð eftir þvf að leggja það á sig að norpa úti f rigningunni og kuldanum, meðan á leiknum stóð. I það minnsta sást lftið úti á vellinum sem gat yljað áhorfendum og má mikið vera ef þetta hefur ekki verið slakasti leikur beggja liða á keppnistfma- bilinu. Virtist svo sem að leik- mennirnir væru þeirri stund fegnastir er Guðjón Finnbogason, dómari frá Akranesi og bezti maðurinn á vellinum, flautaði leikinn af. Það voru Víkingar sem gengu með sigur af hólmi á laugardag- inn — skoruðu tvö mörk gegn engu. Eftir atvikum var þessi sig- ur nokkuð sanngjarn. Það eina sem sást vel gert í leiknum var af þeirra hendi, á stuttum kafla í. seinni hálfleiknum, en þá skor- uðu þeir líka bæði mörk sín. Fyrra markið kom þegar á fyrstu mfnútu hálfleiksins og var algjört útsölumark, en að hinu seinna var laglega að staðið hjá Víkingunum. Annars var það ekki oft f þess- um leik sem mörkin komust f hættu. Lengst af gekk knötturinn mótherja á milli á vallarmiðjunni, eða var þá útaf. Stefán Halldórsson, miðherji Víkinganna, skoraði fyrra mark leiksins, og sannaði að það borgar sig jafnan að gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Knötturinn var sendur í átt að FH-markinu og áttu bæði Jón Hinriksson bak- vörður og Ómar Karlsson mark- vörður kost á að ná honum. En einhverra hluta vegna rúllaði knötturinn milli þeirra og fram- hjá þeim, þar sem Stefán Hall- dórsson kom aðvífandi og sendi knöttinn í tómt FH-markið. Seinna Víkingsmarkið kom skömmu síðar. Leikið var upp hægri kantinn og þar sendi Gunn- laugur Kristfinnsson knöttinn fyrir markið. Vörn FH var afar illa á verði og Gunnar örn fékk óhindrað að skalla á mark þeirra. Skalli hans var ekki fastur, en eigi að síður missti Ómar Karls- son knöttinn undir sig og í mark- ið. Með þessu marki voru úrslit leiksins ráðin. I FH-liðið skorti algjörlega þann neista sem oft hefur verið í því í vetur, og það var tiltölulega sárasjaldan sem það náði að komast upp undir mark Víkinga, og hittu skot þeirra á markið, varði Diðrik af miklu öryggi. Eini FH-ingurinn sem lék af fullri getu f þessum leik var Ólafur Danivalsson, sem er að verða einn af skemmtileg- ustu knattspyrnumönnum lands- Texti: Steinar J. Lúðvfksson. Myndir: Ragnar Axelsson. ins. Hann hefur góða knatttækni og auka fyrir möguleikum sem gefast, en það er ekki nóg, þegar samherjarnir ganga að hangandi hendi til leiks. Annars mega FH-ingar vel við sinn hlut una í þessu Islandsmóti. Staða nýliðans í deildinni er oft- ast mjög erfið — það hefur reynslan sannað, og vfst er að fyrst FH-ingar komust yfir hinn örðuga hjalla í deildinni í sumar, og héldu sér þar með heiðri og sóma, þá þurfa þeir engu að kvíða í framtíðinni. Flestir leikmenn liðsins eru ungir að árum og eiga örugglega eftir að bæta miklu við sig. Óhætt er að spá þessu liði frama þegar það getur farið að æfa og leika á grasi, en einhvern veginn er það þannig, að mölin virðist taka það fínasta úr liðinu. Hið sama má segja um Víkings- liðið. Lengi vel var það þess hagur að leikið væri á möl, en liðið leik- ur nú mun nettari knattspyrnu en áður, en breytist í hálfgert stór- karlalið á mölinni. Vfkingarnir Stefán Halldórsson og Óskar Tómasson sækja að Ómari Karlssyni, markverði FH. Haraldur Erlendsson, fyrirliði Breiðabliks hampar bikarnum sem félagiS fékk fyrir glæsilegan sigur sinn I 2. keppninni I knattspyrnu I ár. deildar mm LiS Þróttar — varS I öSru sæti I annarri deild og leikur við Vestmanneyinga um sæti þaS I fyrstu deild sem fjölgað verður um. Breiðablik kvaddi 2. deild með sigri BREIÐABLIKSMENN settu punktinn yfir i-ið hjá sér I 2. deildar keppninni s.l. föstudagskvöld er þeir sigruðu Selfyssinga á Selfossi með 3 mörkum gegn einu. Var útkoman hjá Breiðabliksliðinu sérlega glæsileg I sumar, þar sem það vann 13 af 14 leikjum slnum I deildinni og skoraði 51 mark gegn 10. í leiknum á Selfossi var Breiðablik betri aðilinn og náði fljótlega forystu I leiknum með marki sem Þór Hreiðarsson skoraði. GIsli Sigurðs- son bætti stðan öðru marki við og Hinrik Þórhallsson tryggði sér markakóngstitilinn I 2. deild með þvl að skora úr vttaspyrnu. Fyrir Selfoss- Mðið skoraði Jakob Gunnarsson. í Hafnarfirði léku Haukar og Ár menningar og urðu úrslit þess leiks jafntefli 0:0. Þrátt fyrir markaleysið I leiknum var nokkuð um góð tæki- færi, einkum af hálfu Ármenninga, en þeim gekk ekki að finna réttu leiðina að Haukamarkinu. Þróttur sigraði svo Víkinga frá Ólafsvlk á Þróttarvellinum á sunnu- daginn með tveimur mörkum gegn engu. Leikur þessi var heldur tilþrifa- lltill og áhugi beggja liða á leiknum virtist takmarkaður. Það voru þeir Halldór Arason og Bergur Garðarsson sem skoruðu mörk Þróttar. Á Árskógsströndinni léku svo á laugardaginn heimamenn, Reynir og Völsungar frá Húsavtk og var þar talsvert heitt I kolunum. Spjöldunum gulu og rauðu var brugðið á loft. þvt rauða einu sinni, þegar Hafliði Jóns- son, Völsungur, veittist að dómara leiksins, Hreini Hrafnssyni, og sló hann. Leikurinn var nokkuð jafn bar- áttuleikur, þó voru Völsungar öllu aðgangsharðari og var sigurinn þeirra — þrjú mörk gegn einu, eftir að jafnt hafði verið t leikhléi, eitt gegn einu. Tvö marka Völsunga voru skoruð úr vitaspyrnum og var Magnús Torfason að verki i bæði skiptin Vitaspyrnudómarnir voru i meira lagi vafasamir, einkum þó hinn siðari. Þriðja mark Völsunga gerði Jóhannes Sigurjónsson en Björgvin Gunnlaugsson skoraði mark heimamanna. Armann vann Coca-Cola mótið ÁRMENNINGAR báru sígur úr býtum f Coca Cola hraðmót- inu í körfubolta, sigruðu Val í úrslitaleik með 67 stigum gegn 61. Alls tóku 8 lið þátt í keppninni sem var úrsláttarkeppni. Urslit leikjanna urðu þessi: 1. umferð: UMFN : Fram 52:40 KR: ÍR 61:52 Valur: ÍS 77:70 Armann: Staines 67:66 Undanúrslit: Valur: UMFN 62:42 Armann: KR 61:51 Það voru því Valur og Ármann sem léku til úrslita. Framan af leiknum var hann mjög jafn en Valsmenn höfðu yfir f hálfleik 43:37. En um miðjan sfðari hálf- leik sigldu Ármenningar framúr og sigruðu með 67 stigum gegn 61. í eitt ár, og verður gaman að sjá hann þegar hann kemur þaðan aftur. Þá lék Þröstur Guðmundsson, áður í HSK, með Val í þessu móti og styrkti liðið mikið, en hann ætlar að leika með Val f vetur. Ármenningar nöfðu það fram yfir önnur lið að þeir eru komnir í mun betri þjálfun, enda þátttaka liðsins í Evrópukeppni framund- an. -Kk. - Skagamenn Framhald af bls. 15 ekki fyrr en á síðustu stundu. Sennilega hefur þar enn einu sinni komið til að þegar mest á reynir standa KR-ingar «sig jafnan bezt. Lið þeirra var mjög tætingslegt f sum- ar, og það var tiltölu- lega sjaldan sem það náði verulega að sýna hvað f því býr í raun og veru. Þjálfari liðsins, Tony Knapp, kvartaði undan því að leikmenn liðsins hefður misst sigurvonina og baráttu- viljann, en það kom ör- ugglega eitthvað fleira til að liðið náði ekki betri árangri. Vestmannaeyingar, sem flestir áttu von á að yrðu f baráttunni um Is- landsmeistaratitilinn í ár, höfnuðu þess í stað á botninum f deildinni. Liðið byrjaði keppnis- tfmabilið mjög vel — vann hvern æfingaleik- inn af öðrum og suma með miklum mun. Þegar á hólminn kom, reyndist liðið svo öllu lélegra en það hefur verið I langan tíma, og sérstaklega þó vörn þess sem oftast var sem sáld. Það var liðinu mik- ið áfall að tveir af traustustu leikmönnum þess: Ölafur Sigurvins- son og Óskar Valtýsson gátu lítið sem ekkert leikið með því i sumar, og var greinilegt að Eyjamenn höfðu ekki leikmenn til þess að fylla í skörð þeirra. Frammistaða Vals í þessari keppni kom vægast sagt mjög á óvart því liðið lék nú fyrsta skipti án Kára Maríssonar. En það sem gerði gæfumuninn var að „risinn“ ungi, Pétur Guðmunds- son, sýndi stórkostlegan leik og var hreint óstöðvandi. Hann skor- aði um 25 stig f öllum leikjunum og hirti aragrúa frákasta enda meir en höfðinu hærri en allir aðrir (2,16 m). Pétur er nú á förum til Bandaríkjanna til náms Heimsmet LANDSSVEIT Búlgaríu setti nýtt heimsmet í 4x800 metra boð- hlaupi kvenna á móti sem fram fór í Sofia um helgina. Hljóp sveitin á 8:05,2 mfn., en gamla metið sem sveit frá Búlgaríu átti einnig var 8:08,6 mfn. Methaf- arnir heita Nikolina Shtereva, Lilyana Tomova, Rossitsa Pehlivanova og Svetla Zlateva.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.