Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.09.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 Lengsta keppnisferðin með ..verst undirbúna landsliðið’ ÞAÐ ER löng leiS sem islenzku landsliSsmennirnir i knatt- spyrnu eiga fyrir höndum i landsliSsferSinni sem hófst á mánudaginn. FariS verSur tU Frakklands, Belgiu og Rússlands meS viSkomu i Englandi og Danmörku. Kilómetrarnir sem leikmennirnir og fararstjórarnir, þjálfari og landsliSsnefnd fara í ferSinni eru sennilega um 12 þúsund, þar af ferSast þeir um 10 þúsund kílómetra i lofti. FariS var utan í gær og flogiS frá Keflavík til Luxemborgar, síSan flogiS til Parisar, Nantes og aftur til Parísar, þaSan verSur ekiS til Liege og þá til Brússel. ÞaSan verSur flogiS til London, Moskvu, Kaupmannahafnar og Keflavíkurflugvallar. Þá er eftir aS komast heim, ýmist til Keflavikur, Reykjavikur, Akraness eSa Vestmannaeyja en frá þessum stöSum eru leikmennirnir, sem fara i landsliSsferSina. Án þess að nokkuð sé fullyrt er þessi ferð sennilega lengsta keppnisferð, sem islenzkt knattspyrnulandslið hefur nokkurn tímann tekizt á hendur. Þó hefur knattspyrnulandsliðið áður leikið bæði i Nantes og i Liege, en aldrei áður i Moskuu, enda er landsleikurinn við Sovétmenn annar landsleikur þjóð- anna á knattspyrnuvellinum Sá fyrsti var hér á landi i lok júli. Með landsliðsmönnunum í ferðinni til Belgiu og Frakklands eru um 30 knattspyrnuáhugamenn, sem ferðast á vegum Flugleiða eins og landsliðið og auk þeirra sex fréttamenn frá blöðum og útvarpi Munu stuðningsmenn landsliðsins örugglega ekki liggja á liði sinu við að hvetja leikmennina. enda mun ekki af veita, þar sem landsliðið mætir þarna tveimur af sterkustu landsliðum Evrópu. Um það er tæplega ástæða til að efast þó svo að Island hafi náð frábærum árangri gegn þeim i siðustu leikjum Leikirnir i Frakklandi og Belgíu eru liðir i Evrópukeppni landsliða og þótt ótrúlegt kunni að virðast þá á (sland , enn möguleika á sigri í riðlinum. Frakk- ar og A-Þjóðverjar eru út úr dæminu en Belgar hafa mesta möguleika á sigri í riðlinum Leikurinn við Frakka fer fram á morgun 3 september i Nantes, en þar hefur islenzkt landslið einu sinni leikið áður og lauk þeirri viðureign með 8:0 sigri Frakka, það var árið 1957 I Liege verður leikið við Belga laugardaginn 6. september og fer leikurinn væntanlega fram á hinum glæsilega heimavelli Standard Liege, liðs Ásgeirs Sigurvinssonar Frá Belgíu verður síðan haldið til Sovétrikjanna, þar sem leikið verður i Moskvu miðvikudaginn 10 septem- ber Sá leikur er liður i forkeppni Ólympiuleikanna og mega islenzku at- vinnumennirnir ekki taka þátt í þeim leik Er leikurinn við Sovétmenn siðasti leikur fslendinga í keppninni og er islenzka liðið komið með eitt stig, jafn- tefli við Norðmenn á Laugardalsvellin- um Fyrri leikurinn við Sovétmenn tap- aðist 0:2 og leikurinn gegn Norð- mönnum ytra tapaðist 2:3. íslenzku leikmennirnir í ferðinni verða Árni Stefánsson Fram, Björn Lárusson IA, Jón Pétursson Fram, Ólafur Sigurvinsson ÍBV, Árni Sveins- son ÍA, Hörður Hilmarsson Val, Matthías Hallgrimsson ÍA, Karl Þórðar- son ÍA, Þorsteinn Ólafsson ÍBK, Gísli Torfason ÍBK, Marteinn Geirsson Fram, Jón Gunnlaugsson IA, Jón Al- freðsson ÍA, Grétar Magnússon ÍBK, Teitur Þórðarson ÍA. Auk þessa bætast svo atvinnumennirnir Jóhannes, Ás- geir og Guðgeir við í hópinn ytra og sömuleiðis Elmar Geirsson sem leikur með áhugamannaliðinu Eintracht Trier i V-Þýzkalandi, Eins og sést á upptalningunni hér að framan eru i þessum 1 9 manna hópi aðeins 4 leikmenn sem leika með Reykjavíkurfélögum, Marteinn, Jón og Árni úr Fram og Hörður úr Val, sjö Skagamenn eru i hópnum, 3 Kefl- víkingar, 1 Eyjamaður og 4 „útlending- ar". Landsliðsnefndarmenn eru Jens Sumarliðason og Árni Þorgrimsson og Tony Knapp þjálfari. Fararstjórar eru Ellert Schram, Friðjón Friðjónsson, Jón Magnússon og Páll Bjarnason. Þá verður Jón Ásgeirsson framkvæmda- stjóri KSI með i ferðinni, en hann mun lýsa landsleikjunum þremur Því miður hefur gefizt lítill tími til undirbúnings landsliðsins upp á sið- kastið Landsliðsmennirnir mættu til fundar á mánudaginn i síðustu viku en síðan sáust leikmennirnir næst allir saman á flugvellinum i gær. í Frakk- landi og Belgíu verður eitthvað æft fyrir leikina, en meira mun þó verða lagt upp úr því að skipuleggja leikaðferðir en að þreyta leikmenn með erfiðum æfingum Álagið á leikmönn- unum hefur verið mikið upp á sið- kastið, leikir bæði i 1. deildinni og bikarkeppni og ferðalögin á milli keppnisstaða eru ekki neinar hress- ingarferðir. Tony Knapp þjálfari landsliðsins sagði á fundi með blaðamönnum í siðustu viku að islenzka landsliðið væri án efa verst búna landsliðið i Evrópu- keppninni Vitnaði hann i þvi sam- bandi til franska landsliðsins, sem dvelja mun i 10 daga i æfingabúðum fyrir leikinn við (sland og hefur auk þess leikið æfingaleiki. Einn þeirra var við Real Madrid og unnu Frakkarnir 3:1, eru leikmenn Real Madrid þó meistarar í sínu heimalandi og með ýmsa stórsnillinga knattspyrnunnar i sinum röðurh. Sagðist Knapp aldrei hafa haft næg- an tima til að undirbúa landsliðið fyrir leiki sina og því væri árangur þess enn stórkostlegri en ella. Ellert Schram for- maður KSÍ, sagði að landsliðsferðin, sem stendur fyrir dyrum, væri erfiðasta keppnisferð, sem íslenzkt landslið hefði nokkurn timann farið i. Ekki aðeins að vegalengdir væru miklar og ferðalögin því þreytandi, heldur væru andstæðingarnir geysilega sterkir. — áij. tslenzka landsliðið við brottförina frá Keflavfk f gærmorgun: Arni Stefánsson, Björn Lárusson, Jðn Asgeirsson, framkvæmdastjóri KSt, Ellert B. Schram, fararstjóri, Grétar Magnússon, Ólafur Sigurvinsson. Marteinn Geirsson, Gfsli Torfason, Karl Þórðarson, Arni Sveinsson, Jón Gunnlaugsson, Jón Pétursson, Hörður Hilmarsson, Jón Alfreðsson, Teitur Þórðarson, Matthfas Hallgrfmsson, Páll Bjarnason, fararst jóri, Friðjón Friðjónsson, fararstjóri, Jens Sumarliðason, fararstjóri, Arni Þorgrfmsson, fararstjóri og Tony Knapp, landsliðsþjáifari. GIsli Torfason IBK Pétur Ormslev Fram Llö vlkunnar Sigurður Dagsson Vai Marteinn Geirsson Fram ottó Guðmundsson KR Jón Alfreðsson IA Ólafur Danivalsson FH Haildór Björnsson KR Stefán Sigurðsson KR Magnús Bergs Val. Karl Þórðarson IA L HEIMA UTI STIG BREIÐABLIK 14 6 1 0 26:7 6 0 1 15:3 26 ÞRÓTTUR 14 6 1 0 19:6 5 0 2 10:7 23 Armann 14 4 2 1 12:7 2 3 2 10:9 17 SELFOSS 14 3 1 3 16:11 2 4 1 10:13 15 VÖLSUNGUR 14 2 1 4 7:12 3 2 2 13:13 11 HAUKAR 14 2 1 4 9:10 2 14 11:13 10 REYNIR 14 2 1 4 8:10 1 0 6 5:19 7 VlKINGUR 14 1 1 5 4:16 0 0 7 3:26 3 íslandsmfitlð 1. delld AKRANES FRAM VALUR VlKINGUR KEFLAVlK FH KR VESTMANNAEYJAR L HEIMA (JTI STIG 14 5 2 0 15:2 3 13 13:11 19 14 4 12 12:10 3 0 3 7:7 17 14 3 1 3 9:10 3 2 2 11:6 16 14 4 12 13:6 2 2 3 4:4 15 14 1 3 3 4:6 3 2 2 9:6 13 14 3 2 2 4:6 13 3 5:14 13 14 2 2 3 7:9 12 4 4:7 10 14 2 2 3 9:7 0 3 4 4:14 9 Einkunnagiöfin LIÐ FH: Ómar Karlsson 1 Jón Hinriksson 1 Janus Guðlaugsson 2 Gunnar Bjarnason 1 Pálmi Sveinbjörnsson 2 Ólafur Daníelsson 3 Þórir Jónsson 2 Viðar Halldórsson 2 Leifur Helgason 1 Helgi Ragnarson 1 Logi Óiafsson (varamaður) 1 Kristinn Arnbörnsson (varamaður) 1 LIÐ VIKINGS: Diðrik Ólafsson 3 Ragnar Gfslason 2 Magnús Þorvaldsson 2 Helgi Heigason 2 Róbert Agnarson 2 Gunnlaugur Kristfinnsson 1 Gunnar Örn Kirstjánsson 2 Jóhannes Bárðarson 1 Stefán Haildórsson 2 Eiríkur Þorsteinsson 1 Óskar Tómasson 2 DÓMARI: Guðjón Finnbogason 3 LIÐ FRAM: Árni Stefánsson Símon Kristjánsson Trausti Haraldsson Gunnar Guðmundsson Marteinn Geirsson Jón Pétursson Rúnar Gíslason Kristinn Jörundsson Pétur Ormslev Ágúst Guðmundsson Eggert Steingrímsson Erlendur Magnússon (varam.) LIÐ VALS: Sigurður Dagsson Bergsveinn Alfonsson Grímur Sæmundsson Vilhjálmur Kjartansson Dýri Guðmundsson Magnús Bergs Guðmundur Þorbjörnsson Hörður Hilmarsson Hermnnn Gunnarsson Atli Eðvaldsson Albert Guðmundsson DÓMARI: Rafn Hjaltalfn KR: 2 Magnús Guðmundsson 2 2 Stefán Örn Sigurðsson 2 2 Ólafur Ólafsson 2 2 Ottó Guðmundsson 3 4 Haildór Björnsson 3 2 Guðmundur Ingvason 2 2 Haukur Ottesen 2 1 Baldvin Elíasson 1 3 Hálfdán örlygsson 1 2 Guðmundur Jóhannesson 1 1 Atli Þór Héðinsson 2 IBV: 4 Ársæll Sveinsson 2 2 Ólafur Sigurvinsson 2 2 Einar Friðþjófsson 2 2 Þórður Hallgrímsson 2 2 Magnús Þorsteinsson 2 2 Snorri Rútsson 2 2 Sveinn Sveinsson 1 2 Haraldur Júlfusson 1 2 Karl Sveinsson 2 2 Tómas Pálsson 1 2 örn Óskarsson 2 DÓMARI: Magnús Pétursson 2 IA: Hörður Helgason Guðjón Þórðarson Benedikt Valtýsson Haraldur Sturlaugsson Jón Gunnlaugsson Jóhannes Guðjónsson Karl Þórðarson Jón Alfreðsson Hörður Jóhannesson Matthfas Hallgrfmsson Arni Sveinsson Björn Lárusson (varam.) IBK: Þorsteinn Ólafsson Gunnar Jónsson Hjörtur Zakariasson Ástráður Gunnarsson Gfsli Torfason Grétar Magnússon Hilmar Hjálmarsson Hörður Ragnarsson Steinar Jóhannsson Guðjón Guðjónsson Jón Ólafur Jónsson Friðrik Ragnarsson (vm.) Kári Gunnlaugsson (vm) DÓMARI: Bjarni Pálmarsson 2 2 1 2 2 2 3 3 1 2 1 1 3 2 1 2 3 1 1 1 1 2 1 1 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.