Morgunblaðið - 02.09.1975, Side 26

Morgunblaðið - 02.09.1975, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975 Þórkatla Þorkelsdótt■ ir — Minningarorð Magnús Þórðarson frá Neðradal — Minning Fædd 1. marz 1885 Dáin 23. ágúst 1975 Síðastliðnir níu áratugir hafa verið timi mikilla framfara á Is- landi. Af eldmóði og dugnaði tókst þjóðinni að brjótast úr Örbirgð til velsældar, og það svo, að hún getur jafnvel skipað sér á bekk með helztu velferðar- þjóðfélögum nútímans. Vafalítið hefur róðurinn reynzt erfiðastur í fyrstunni fyrir þá kynslóð, sem nú er að mestu horfin, en ruddi brautina í fátækt og skorti á flest- um sviðum. En þetta var harðgert fólk, þrautseigt og viljasterkt og sigurinn varð þess að lokum. Mér hefur alltaf fundizt, að amma mín, Þórkatla Þorkelsdótt- ir, sem f dag verður borin til grafar 1 Fossvogskirkjugarði, hafi verið dæmigerður fulltrúi þessa fólks. Þrátt fyrir svo margt mót- lætið í lífinu var hún óbuguð til hinzta dags, gædd þeirri andlegri reisn og höfðingskap, sem þá eina prýðir, sem lokið hafa ætlunar- verki sínu hér á jörð í sátt við guð og menn. Ekki verður sagt, að lífið hafi brosað við litlu stúlkunni, sem fæddist í Fremri-Hjarðardal í Dýrafirði þann 1. marz árið 1885. Faðir hennar, Þorkell Árnason frá ísafirði, hafði látizt nokkrum mánuðum áður af slysförum og móðirin, Guðfinna Jónsdóttir frá Læk í Dýrafirði, stóð nú uppi ein með soninn Guðmund tveggja ára og Þórkötlu. Hafði hún neyðzt til að ráða sig í vist, með því skilyrði, að hún kæmi yngra barninu fyrir. Grejp hún þá til þess ráðs að leita á náðir föðurbróður síns, Sig- mundar Bjarnasonar bónda á Alviðru 1 Dýrafirði, og var Þór- katla flutt þangað, fjögurra vikna gömul. Tók hún miklu ástfóstri við gamla manninn, sem reyndist henni framúrskarandi góður, en hún naut hans þó ekki lengi við, því að hann lézt, þegar hún var fimm ára. Næstu sex árin var hún I fóstri hjá Ólöfu, dóttur Sig- mundar, og Sveini Jónssyni móðurbróður sínum, en þau gift- ust og bjuggu að Bakka (nú Neðri-Hjarðardalur) f Dýrafirði. Ellefu ára gömul fluttist Þór- katla til Bolungarvíkur til móður sinnar, sem þá hafði gifzt Jens Þórðarsyni frá Tungu í Skutuls- firði. Jens var formaður í Bol- ungarvík. Þremur árum sfðar fórst Jens með skipi sínu, en Guð- mundur, bróðir Þórkötlu, þá sextán ára, bjargaðist naumlega. Stóð nú Guðfinna enn uppi ekkja með tvö stálpuð börn og tvær kornungar dætur þeirra Jens, Guðrúnu og Þórdísi. Fluttist hún þá inn í Hnífsdal, þar sem systur hennar tvær, Guðný og Björg, voru giftar þeim bræðrum Jónasi á Bakka og Valdimar f Heimabæ og naut hún góðrar aðstoðar þeirra. Atján ára gömul giftist Þór- katla fyrri manni sínum, Hálfdáni Brynjólfssyni, sjómanni, ætt- uðum úr Reykhólasveit og Geiradal. Eignuðust þau tvö börn, Henry Alexander, fyrrum fram- kvæmdastjóra Slysavarnafélags íslands, hann lézt 1972. Hann var kvæntur Guðrúnu Þorsteins- dóttur og lifir hún mann sinn. Þórhildur, hún lézt 1954. Hún var gift Jóni Guðmundssyni, en hann fórst við landtöku í Vík í Mýrdal árið 1941. Hálfdán mann sinn missti Þórkatla árið 1909, en hann drukknaði í Isafjarðarhöfn. Nokkrum árum sfðar gekk Þór- katla að eiga Björn Friðfinnsson sjómann, ættaðan úr Svarfaðar- dal og varð þeim fimm barna auðið: Guðrún, hjúkrunarkona, gift Ólafi Pálssyni pípulagninga- manni, Haraldur, búfræðingur, hann varð úti ásamt tveim félög- um sfnum norður í Fljótum haustið 1935; Guðbjörg, gift Adolf Smith forstjóra; Sigriður, gift Gunnari Proppé kaupmanni; Birna, gift Pétri Pálssyni verk- fræðingi. Árið 1926, nokkrum dögum eft- ir fæðingu yngstu dótturinnar, fórst Björn með skipi sínu, en hann var þá skipstjóri á bát, sem gerður var út frá Siglufirði. Næstu árin hafa vafalítið verið býsna erfið, en hún talaði lítt um þá hluti, helzt að hún minntist þess með stolti, að hún hefði þótt allra kvenna mestur forkur til vinnu, enda var það i samræmi við skapgerð hennar að sætta sig ekki við annað en fyrsta sætið. Árið 1935 flytur hún svo til Reykjavíkur og gerist ári síðar ráðskona hjá Sigurði Hannessyni, bónda að Sumarliðabæ i Holtum. Þar var hún í tæp tíu ár, eða þar til hann brá búi og fluttist fyrst á höfuðborgarsvæðið, en nokkru síðar til Keflavíkur. Var hún ráðs- kona hjá honum allt til ársins 1964, þá komin fast að áttræðu. Síðustu tíu ár ævinnar dvaldist Þórkatla að Hrafnistu. Hún hafði skilað löngu og ströngu ævistarfi og naut þess nú að sjá afkomenda- hópinn eflast og stækka. Hún bar hag þeirra allra mjög fyrir brjósti, og fylgdist af vakandi áhuga með velferð þeirra til hinztu stundar. Enn 1 hárri elli bar mjög á þeim eðlisþáttum, sem ríkastir voru í fari hennar, en það voru framúr- skarandi dugnaður og sjálfsbjarg- arviðleitni, eiginleikar, sem vel höfðu dugað henni á lífsleiðinni. Alla tíð hafði henni látið betur að vera heldur veitandi en þiggj- andi, og því fór henni vel hlut- verk ættmóðurinnar, miðlandi öðrum af kærleik sínum og um- hyggju. Blessuð sé minning hennar. Henry Þór Henrysson. t Móðir okkar MAGNEA INGIBJÖRG HRÓBJARTSDÓTTIR andaðist að heimili sínu, Bergþórugötu 4 að morgni hins 31 ágúst 1975 Jarðarför aug- lýst síðar. Þóra Aradóttir, Ágúst Arason. t Litli sonur okkar og bróðir, HANS OLAF er lézt 24 ágúst verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 3. sept kl. 3. e.h. Dröfn Kalmansdóttir, Leif Nielsen og systkini. t Útför bróður okkar, HARALDAR ÞORLEIFSSONAR Tjarnargötu 10 A, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4 september kl 1:30 Systkinin. I dag er til moldar borinn Magnús Þórðarson frá Neðradal í Mýrdal. Mig langar til að votta minningu hans virðingu mfna og þökk fyrir þá góðvild, sem ég og mínir hafa notið frá hans hendi. Við erum víst mörg, sem hugsum til Magnúsar með.hlýhug þegar minnzt er liðinna gleðistunda á æsku árum þegar hann lagði á sig erfiði og næturvökur til að skemmta okkur, og laun hans voru aðeins vitundin um að hafa glatt aðra. Ég hygg að allir sem honum kynntust geti sagt eins og ég. Ég heyrði hann aldrei óvirða nokkurn mann í orði né gera sig að dómara. Ég trúi því fastlega að honum séu hagstæð þessi orð: ALLIR þeir er reka fyrirtæki f hinum svonefndu Iðnvogum, þ.e. Súðarvogi, Dugguvogi, Kænuvogi og Tranavogi, hafa nú stofnað með sér félag, sem nefnist Iðn- vogar. I stofnskrá félagsins segir að tilgangur þess sé að vinna að sem beztri samvinnu og samstöðu fyrirtækja í Iðnvogum, m.a. með þvf að reka sameiginlega nætur- vörzlu og tryggja með þvf öryggi húseigna og fyrirtækja. Næturvarzla hefur nú verið um nokkurt skeið og hefur haft gífur- leg áhrif til bóta. Innbrot voru þarna oft í viku áður, en sfðan næturvörðurinn hóf starf sitt hafa innbrotsþjófar forðazt hverf- ið eins og heitan eldinn. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á þvf, að afmælis- og minningargreinar verða aö berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hiiðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. „Með sama mæli og þér mælið öðrum mun yður aftur mælt verða.“ Aldrei ætlaði Magnús öðr- um illt, hafði líka kannski minni ástæðu til þess en margir aðrir, því að það á heima um margan gallagrip „með góðum ertu góð- ur.“ Það væri vissulega hægt að byggja upp kristið þjóðfélag, ef margir einstaklingar væru líkir Magnúsi heitnum, jafnvel þó að ýmsir þeirra væru veikburða og smáir. Nú að kveðjustund er mér efst í hug: Hjartans þökk fyrir áratuga vináttu sem aldrei brást og djúpa virðingu fyrir daglegri framkomu sem í öllu sýndi góðan mann. Hjartans þökk fyrir allt og allt. Sigrfður Gfsladóttir. A næstunni á að koma upp mjög fullkomnu brunavarnarkerfi í öll- um fyrirtækjunum og verður ein sameiginleg stjórnstöð fyrir það. Um leið og skynjarar kerfisins verða varir við eld, fer sjálfvirkt slökkvikerfi f gang. — Þá er einn- ig í bígerð að koma upp sameigin- legum sima- og póstþjónustu í Iðnvogum. 1 fréttablaði, sem félagið gefur út, segir, að það sé stefna félags- manna að ganga sem bezt frá lóð- um og húsum á þessum stað, en oft hefur verið talað um sóðaskap þarna á undanförnum árum, og sjálfir hafi eigendurnir gert mikið átak á þessu ári en Reykja- vfkurborg trassi sífellt að hreinsa lóðir og koma upp götulýsingu, þrátt fyrir gefin Ioforð. Ekið á bíl AÐFARANÓTT s.l. laugardags 30. ágúst var ekið á bifreiðina R 32936, þar sem hún stóð við hús númer 27 við Skipasund. Bifreið- in er Toyota, hvít að lit, og skemmdist vinstra frambretti all- mikið. Liklegt er talið að rauð bifreið hafi valdið tjóninu, en bif- reiðastjóri hennar fór af vett- vangi án þess að gera vart við sig. Er hann beðinn að gefa sig fram við rannsóknarlögregluna, svo og sjónarvottar ef einhverjir eru. t Útför eiginmanns míns, ARNBJÖRNSGUÐJÓNSSONAR, Hverfisgötu 49, Hafnarfirði. fertram fimmtudaginn 4 sept. frá Þjóðkirkjunni I Hafnarfirði kl 2. Fyrir hönd dóttur okkar, tengdasonar og annarra vandamanna, Guðrún Gissurardóttir. t Eiginmaður mínn, STEINDÓR PÉTURSSON, Kringlumýri 1, Akureyri, sem lézt í Kristneshæli þann 26. ágúst, verður jarðsunginn Akureyrarkirkju miðvikudaginn 3. september kl. 1 3:30 Jóhanna Vigfúsdóttir. frá t Útför SESSELJU GUÐJÓNSDÓTTUR Norðurbrún 1, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 4. sept kl 3 Vandamenn t Útför eiginmanns míns og föður okkar, ÞORSTEINS PÁLSSONAR Arkarholti \4, Mosfellssveit, fer fram frá Bústaðakirkju, miðvikudaginn 3 sept kl 13.30 Sigrún Gunnarsdóttir, Hjörtur, Anna Siifa, Gunnar Reynir SVAR MITT 0 EFTIR BILLY GRAHAM mÉbk**imFm Mig langar til að trúa þvf, að lff sé eftir dauðann. En ég er fullur efasemda og get ekki eignazt vissu. Hvernig getið þér orðið fullviss um það að sólin komi upp á morgun? Hvernig getið þér orðið viss um, að sumarið líði og vetur gangi í garð? Vfs- indamaður gæti gefið langt og flókið svar. Flest byggjum við á trú. Við vitum öll, að i efnisheiminum verður ekkert til úr engu. Enginn hlutur, sem til er, á sér upphaf í „engu“. Guð, hann sem gætir þess af kostgæfni, að ekki fari einu sinni laufblað til spillis, mun vissulega koma í veg fyrir, að sál týnist. En við þurfum ekki að leita vísindalegra rök- semda. Við getum reitt okkur á orð Jesú. Hann sagðist fara og búa lærisveinum sínum stað (Jóh. 14.2). Allir þeir, sem gefa Jesú hjarta sitt, munu lifa með honum. Við eigum loforð hans: „Sá, sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi. Og hver, sem lifir og trúir á mig, hann skal aldrei að eilífu deyja.“ (Jóh. 11,25—26). Þeir, sem syndga, munu einnig lifa eftir dauð- ann, en ekki á himnum. Með því að kjósa hið illa skilja þeir sig frá Guði, — nema þeir beiðist fyrirgefningar. Jesú sagði við ræningjann á krossinum, þann er iðraðist: „Þú skalt vera með mér í paradís (Lúk 23,43). 1 orðum Jesú finnum við vissu þess, að líf sé að loknu þessu lífi. Treystið honum, og allar efa- semdir yðar munu hverfa. Fullkomnasta brunavamar- kerfi landsins í Iðnvogunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.