Morgunblaðið - 02.09.1975, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975
33
VELVAKANDI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Veðrið og afkoman
Friöfinnur Finnsson frá Odd-
geirshólum skrifar:
,,Það er almennt talið, að fáar
þjóðir séu eins háðar veðri og
tslendingar, enda er venja þeirra,
þegar þeir mætast á förnum vegi,
að tala um veðrið því að svo er
atvinna þeirra til sjós og lands
háð þvi.
Á þessu sumri hefur fólki hér
sunnanlands sennilega ekki orðið
eins tíðrættumneitteinsog tíðar
farið og er það sannarlega að von-
um. A Norðurlandi og á Aust-
fjörðum hefir veðrið verið mjög
hagstætt og heyskapur gengið þar
mjög vel og er sums staðar lokið.
Hér sunnan- og suðvestanlands
hefur aftur á móti verið þvílík
ótíð, að með eindæmum má telj-
ast, sífelldar rigningar, þoka og
ekki hefur séð til sólar dögum
saman. Þessi eindæma ótið I
stærstu landbúnaðarhéruðum
landsins yfir hábjargræðistimann
hefur að sjálfsögðu skilið eftir
spor sin víða og með margvísleg-
um hætti, Hey hafa ekki náðst inn
í hlöður nema að litlu leyti og þá
stórhrakið og skemmt. Það er
ekki þörf á að rekja það nánar,
sem öllum er ljóst, en þetta bakar
þjóðinni og þá alveg sérstaklega
bændastéttinni hér sunnanlands
mikið tjón.
Vitað er að mennirnir standa
ráðþrota gagnvart náttúruöflun-
um þegar þau fara hamförum og
þar fær mannleg þekking og sú
mikla orka, sem mennirnir hafa
yfir að ráða, engu eða litlu um
breytt.
Oft hefur mér og sjálfsagt
mörgum öðrum komið í hug, •
hvers vegna mennirnir leiti ekki
til Guðs og biðji hann um hjálp
þegar svona misæri verður. Við
erum kristin þjóð og vitum, að
einn höfuðþáttur í kenningu
frelsara vors var éinmitt um
blessun bænarinnar og hvatning
hans til lærisveina sinna um að
vera stöðugt í bæninni og fullviss-
unni um bænheyrslu.
Væri ekki þess vert, að forystu-
menn islenzku þjóðarinnar ósk-
uðu eftir að haldinn yrði bæna-
dagur þar sem Guð væri beðinn
um að hjálpa þjóðinni að leysa
þann vanda, sem hún ræður ekki
við?
Friðfinnur Finnsson
frá Oddgeirshólum."
0 Staða konunnar
Kristjana Thorsteinsson skrif-
ar:
„í Morgunblaðinu 26. ág. sl.
spyr Elin Magnúsdóttir um stöðu
hvaða konu sé rætt á kvennaár-
inu.
Mér finnst hún sjálf hafa svar-
þekkta sem alvöruleikkonu.
Ahorfendur trúa þvf oft að sú ein
geti farið með slíkt hlutverk sem
hefur mikla hæfileika til brunns
að bera.
Aftur var kominn þessi vand-
ræða- en þó frekjusvipur á andlit
hennar.
— Og í reynd krefst þetta hlut-
verk ekki dramatiskra hæfileika.
Eruð þér að gefa það í skyn? sagði
hún.
— Ég segi aðeins að ég held að
þér hafið það sem til þarf ungfrú
Hudgin, og ég get styrkt yður og
ráðlagt eftir beztu getu, svo að
árangurinn verði okkur báðum til
framdráttar.
Eg gat ekki sagt öilu skilmerki-
legar að ég gerði mér grein fyrir
hver hún væri, eða hvað finst
yður? Varla hefði ég farið að
bjóða algerlega óþekktri og
reynslulausri stúlku aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni.
Hún virtist stutta stund sem á
báðum áttum. Svo sagði hún:
— IVlig langar aö sjá þetta
handrit.
Eg stillti mig um að brosa, þvf
að þetta hefði byrjandi aldrei
heimtað. IVIeð stóiskri ró rétti ég
henni handritið.
að þessari spurningu á mjög eftir-
minnilegan hátt og svo vel, að
svarið sýni mörgum sinnum betur
en margar ræður stöðu konunnar
i þjóðfélaginu nú. Það er setning-
in, þar sem Elin talar um konuna,
sem er búin að ljúka námi og
vinnur fullan starfsdag utan
heimilis, en heimilisstörfin biða
hennar þegar heim kemur að
sjálfsögðu. Starfsdegi eigin-
mannsins er auðvitað lokið.
Það getur verið, að grammófón-
platan um jafnrétti kvenna sé
orðin of slitin, að minnsta kosti er
greinilegt, að allir skilja ekki til
fulls þann boðskap, sem hún flyt-
ur.
Virðingarfyllst,
Kristjana Thorsteinsson."
0 Áfangar
Jón S. Jóhannsson skrifar:
„Kæri Velvakandi.
A þessum síðustu og verstu
„rigningar“tímum heyrist aldrei
of mikið af hrósi og lofsyrðum.
Undirritaður vill lýsa óskiptri
ánægju sinni með tónlistarþátt-
inn „Afangar" í Ríkisútvarpinu.
Þáttur þessi hefur aldrei boðið
upp á annað en úrvalstónlist. í
stuttu máli má segja, að þar sér
rjóminn fleyttur ofan af poppi og
skyldum tónlistarstefnum síðari
ára. Þar við bætist góð þekking og
kynning umsjónarmanna þáttar-
ins.
Sérstaklega skal þakka umsjón-
armönnum, þeim Ásmundi Jóns-
syni og Guðna R. Agnarssyni, fyr-
ir óbeinan fjárhagsstuðning.
Kemur þar til, að plötukaup reyn-
ast óþörf á öld segulbanda með
slíkum úrvalsþætti á öldum ljós-
vakans i viku hverri.
Með beztu þökk fyrir birtingu.
Jón S. Jóhannsson.“
Hlíðabúinn, sem gagnrýndi um-
gengni á Reykjavíkurflugvelli í
siðustu viku, hefur nú sent Vel-
vakanda hraðbréf ásamt mynd-
inni hér að ofan. Meðfylgjandi
orðsending er svohljóðandi:
„Leyfi mér að senda þér þessa
mynd af æfingasvæði slökkviliðs-
ins á Reykjavíkurflugvelli sem
svar við bréfi flugvallarstjóra. Ég
ætlaði mér ekki að þrasa við einn
eða neinn, aðeins benda á þann
Eitthvað hljóta segulböndin þó
að kosta, en vera má, að hag-
kvæmara sé að kaupa þau en
hljómplötur.
% Umferðin
og börnin
í þessari viku taka barnaskól-
arnir til starfa á ný, og þá er
runninn upp sá tími ársins, sem
börn eru í mestri hættu í umferð-
inni. Bæði kemur það til, að nú
endist dagsbirta skemur og það,
að börn eru nú meira á ferðinni
en verið hefur yfir sumarmánuð-
ina. Þá er mikill fjöldi barna, sem
hlýtur eldskírn sína í umferðinni,
ef svo má að orði komast, á hausti
hverju.
Það eru börnin, sem eru að
hefja skólagöngu sina. Það verður
aldrei nægilega brýnt fyrir for-
eldrum barna og öðrum forráða-
mönnum, að nauðsynlegt er að
fylgja yngstu börnunum úr og i
skóla fyrst í stað, bæði til að
kenna þeim umferðareglurnar og
leiðina, sem hættuminnst er. Um
leið og börnin byrja i skólanum
eykst eftirspurn eftir endurskins-
merkjum mjög, en til gleðitíðinda
má telja, að æ fleiri framleiðend-
ur yfirhafna leggja nú metnað
sinn í að útbúa flíkurnar með
þessum lifsnauðsynlegu merkj-
um. Á næstu vikum stendur yfir
aðalvertíð úlpusalanna því að
þennan þjóðbúning islenzkra
barna þarf yfirleitt að endurnýja
á hverju hausti eins og annað
tilheyrandi. Þá skaðar ekki fyrir
kaupendurna að hafa það i huga,
að litsterkar yfirhafnir hafa mik-
ið öryggisgildi i umferðinni, á
sama hátt og daufir litir koma að
litlu haldi að þessu leyti.
ósóma sóðaskap, sem þarna hefur
viðgengizt mánuðum saman, og ég
vona að myndin sýni að nokkru.
Séu húsbændur flugvallarsvæðis-
ins ánægðir með þetta, þá þeir um
það, en þá hlýtur að eiga við mál-
tækið „hverjum þykir sinn fugl
fagur“. Er ég kom til að taka
myndina, var búið að hreinsa
nokkuð af því drasli, sem þarna
lá, þegar ég kom þar nýlega, þótt
enn sé þar af nógu að taka.“
— Þar sem lífið
er saltfiskur ...
Framhald af bls. 10
skógsströnd keppti í annarri
deild íslandsmótsins í sumar, í
fyrsta skipti, og þrátt fyrir að
andstæðingarnir væru allir frá
miklu fjölmennari stöðum og
hefðu betri aðstöðu að mestöllu
leyti, þá hefur Reynir samt
haldið sér í deildinni og leikur
þar á ný næsta sumar.
Brynjar hafði farið á leikinn
fyrr um daginn og við spurðum
hann álits á leíknum og
frammistöðu piltanna: „Mér
leizt bara vel á þetta," segir
hann.
Og við spyrjum hann um
áhuga íbúanna á þessu svæði á
knattspyrnunni:
„Menn hafa alltaf leikið sér
að þessu hérna,“ segir Brynjar.
„Ahugi fólksins á keppni Reyn-
is í mótinu er mikill, en það
bjóst enginn við þessum
árangri, sem þeir hafa náð.“
Það skyldi þó aldrei vera, að
knattspyrnan yrði til þess að
gera nafn Litla-Árskógssands
frægt á Islandi, þessa litla
pláss, sem aldrei er minnzt á,
svo að heitið geti, jafnvel ekki
fyrir saltfiskframleiðsluna?
Myndir og texti: — sh.
lOrgimtiMtói]
IIMNRI NJARÐVÍK
TEIGAHVERFI
MOSFELLSSVEIT
óskar eftir starfsfólki
HELLISSANDUR
SEYÐISFJÖRÐUR
HVERAGERÐI
Umboðsmenn óskast til að sjá um dreifingu og
innheimtu Mbl. uppl. hjá umboðsmönnum oq á afgr. í
síma 10100.
Einkaritaraskólinn
S krif stof u þjá If u n
fyrir karla jafnt sem konur
Almenn skrifstofustörf — skrifstofutækni —
verzlunarreikningur
Tvö námskeið, tólf vikur hvort, 22. sept. — 12. des. og
1 2. jan. — 2.^apríl. Þrjár kennslOstundir á dag má. mi.
og fö. tvær kennslustundir á dag þr. og fi. Kennsla fer
fram á ensku og íslenzku. Yfirkennari er til viðtals kl.
4 — 7 e.h.
Mímir
Brautarholti 4 — sími 11109
(kl. 1—7 e.h.)
HEWS FROMICEIAHD
Published Monthly by iQOÍand Review
Mánaðarlegt fréttablað á ensku
fræðir vini yðar og viðskipta-
menn stöðugt um viðburði og
þróun mála hérlendis:
Almennar fréttir, efnahagslíf,
iðnaður og viðskipti. Sendið
þeim gjafaáskrift strax i dag.
September-blaðið er nýútkomið
— fjölbreytt og -flytur m.a.
helztu atriðin varðandi landhelg-
ismálið.
Hringið í sima 81590, eða skrif-
ið i pósthólf 93 i Reykjavik. Fæst
einnig i helztu blaðasölum.
NEWS FROMICEIAHD
flýgur með Islandsfréttir um allan heim.
í^YÞARFTU að kaupa? Lx \l) ^JTÆTLARÐU AÐ SELJA?
HEWS FROM ICElAHD
_________Putxwfd Monthiy by tceland Review ^-"7
wo. í itwmw_______._______ i»Tt
Umttktm BJmnma*, MMtfr •! Fhketin, <m Me#ofltrtwu.- T
Large-scale Reduction in Catch
and Short-term Agreements |
Disappointment on Canada's
Deciaion Not to Extend Limita