Morgunblaðið - 02.09.1975, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1975
35
— Úrelt
Framhald af bls. 36
landflótti iðnaðarmanna á sér
jafnvel stað.“
Til úrlausnar er m.a. bent á það
I skýrslunni, að æskilegt sé að
skipaður yrði byggingastjóri, sem
hefði það hlutverk að takast á
hendur ábyrgð meistara við árit-
un á húsateikningar, bera ábyrgð
á framkvæmd byggingarinnar og
losa húsbyggjandann þannig við
að fylgjast með verkinu, eins og
tiðkast hefur hér. Þá er mælt með
þvi, að allt iðnnám, jafnt bóklegt
sem verklegt, verði flutt inn i
iðnskóla. I staðinn fyrir núver-
andi tilhögun greiðslu fyrir um-
samið verk er bent á, að.svokallað
verkeiningabónuskerfi, þar sem
hinar ýmsu faggreinar og annar
starfskraftur, sem vinnur að sama
verkefni, skipta á milli sín bónus
eftir ákveðnu kerfí.
Mbl. leitaði umsagnar þriggja
fulltrúa úr byggingaiðnaðinum á
framansögðu.
Benedikt Davfðsson formaður
Sambands byggingamanna sagði:
„Ég get út af fyrir sig ekki tjáð
mig mikið um þetta án þess að
hafa lesið skýrsluna í heild. Það
má vel vera, að ýmislegt af því,
sem að framan stendur, sé á
rökum reist, en mér heyrist að
þetta séu að mörgu leyti fl'ft-
færnislega uppkveðnir dómar.
Ég er sammála því, að það er
nauðsynlegt fyrir okkur að endur-
skoða byggingakerfi okkar, en éjg
held, að þar sé lánakerfið miklu
meira atriði en menn hafa
almennt gert sér grein fyrir.“
Ólafur Jónsson málarameistari,
sem er varaformaður meistara-
sambands byggingamanna, sagði:
„Þarna er verið að slá fram alls
konar fullyrðingum, sem eiga sér
enga stoð í raunveruleikanum.
Hugmyndin um byggingastjóra
miðar einungis að þvi að bæta
ofan á einum Iiðnum í viðbót. Það
er ekki rétt, að taxtar séu samdir
af iðnaðarmönnum einum, —
sífelld endurskoðun á þeim fer
fram.
Haraldur Sumarliðason er for-
maður Meistarafélags húsasmiða,
sem er fjölmennasta aðiidarféiag
Meistarasambands bygginga-
manna. Hann sagði:
„Siðan ég sá þessa skýrslu fyrst
hafa ýmsir hlutir gerzt. Líkur eru
t.d. á því, að breytingar á
meistarakerfinu og bygginga-
stjóramálið komi til framkvæmda
á næsta þingi, en þarna er um að
ræða hluta af furmvarpi að
nýjum byggingalögum. Hins
vegar tel ég, að það sem þarna er
sagt um ákvæðisvinnu, sé að
mörgu leyti rétt, en félögin
standa misjafnlega vel að þessum
málum. Sum félög Ieggja t.d.
geysilega vinnu í að leiðrétta
ákvæðisvinnutaxta jafnóðum. I
sambandi við að færa iðnnámið
inn í skólana get ég sagt, að ég hef
verið því fylgjandi í mörg ár,
enda er þetta orðið I sumum
greinum. Sjónvarps- og útvarps-
virkjanám er t.d. alveg komið inn
í iðnskóla, en til þess að þetta
verði algilt þarf að koma til mikil
breyting í iðnskólanum í sam-
bandi við aðstöðu."
I skýrslunni er einnig rætt ýtar-
lega um lán til húsbygginga. Talið
er, að nýting þess fjármagns, sem
fyrir hendi er, sé að mörgu leyti
ábótavant. Gerð er grein fyrir því
hvernig haga megi ráðstöfun fjár-
magns með því móti að til hags-
bóta verði fyrir húsbyggjendur og
þjóðfélagið í heild, m.a. með því
að koma á föstu veðlánakerfi,
enda þótt gert sé ráð fyrir því að
tryggja þurfi efnalitlu fólki
áframhaldandi styrki til húsbygg-
inga. Þá er vakin athygli á þeim
möguleika að gefa húsbyggjend-
um kost á hækkandi lánum með
hækkandi verðtryggingu, sem
mundi leiða til hraðari fram-
kvæmda með aukinni iðnvæðingu
og lækkun byggingakostnaðar. Þá
er talið nauðsynlegt að taka til
gagngerrar athugunar, hvort ekki
„nnt að koma hér á verðbréfa
markaði í sambandi við húsbygg-
ingar.
Talið er, að lóða- og skipulags-
mál bæjar- og sveitarfélaga um
land allt hafi verið í mikium
ólestri um langt skeið, m.a.
þánnig, að sveiflur í lóðaúthlut-
unum hafi verið mjög miklar.
Þetta geri m.a. það að verkum, að
þegar úthlutað sé í einu miklum
fjölda lóða, þá verði álagið á
vinnumarkaðnum og í lána-
kerfinu langt umfram það, sem
efnahagskerfið getur risið undir
án þess að verða fyrir verulegri
röskun.
I skýrslunni er talið, að stein-
steypa muni um ófyrirsjáanlega
framtíð verða aðalbyggingarefnið
hér á landi og bent á nauðsyn þess
að vanda betur til blöndunar
steypunnar og efnisvals. Þá segir
að breytingar á ytra útliti og gerð
húsa verði þær helztar á næstu
árum, að einangrun verði færð út
fyrir burðarveggi í meiri mæli en
nú á sér stað, en það muni aftur
hafa í för með sér minnkandi
hitakostnað og minni hættu á
myndun þenslusprungna.
Eins og fyrr segir er skýrslan
gerð á vegum Rannsóknaráðs
ríkisins. Fyrir hönd stofnunar-
innar hefur Reynir Hugason haft
á hendi forystu um vinnslu
skýrslunnar, en formaður starfs-
hóps sem Rannsóknaráð ríkisins
skipaði f ársbyrjun 1974, er Júlíus
Sólnes prófessor. Aðrir f hópnum
eru Öttar P. Halldórsson yfirverk-
fræðingur, Guðmundur Einars-
son framkvæmdastjóri,
Guðmundur Ó. Guðmundsson
framkvæmdastjóri, Halldór Jóns-
son verkfræðingur, Magnús G.
Björnsson arkitekt og Sigurður E.
Guðmundsson framkvæmdastjóri.
— Leiðari Vísis
Framhald af bls. 3
ræður um þessi efni með því
að beita flokkspólitískum
þvingunum . . . Vfsir hefur
ekki og mun ekki láta
hagsmunásamtök bænda né
nokkur önnur hafa áhrif á
stefnu blaðsins eða koma í veg
fyrir að þar verði rætt um til-
tekin málefni. Vísir er miklu
mun sterkari en svo, að hann
muni láta slíkar hótanir hafa
áhrif. öfgafull viðbrögð for-
manns Stéttarsambands bænda
eru ögrun við frjálsa skoðana-
myndun í þjófélaginu."
— Portúgal
Framhald af bls. 1
þeirra sem hann ræður yfir gerðu
uppreisn gegn honum um helg-
ina. örlög Corvachos f embættinu
eru talin verða fyrsta merkið um
styrk Goncalves, og hann er
sagður leggja mikla áherzlu á að
Corvacho verði áfram yfirmaður
hersins f hinum íhaldssömu
norðurhéruðum landsins.
Willy Brandt formaður vestur-
þýzka Sósíalistaflokksins sagði f
dag í Bonn að vestur-evrópskir
sósíalistaleiðtogar myndu koma
saman til fundar í London 5.
þessa mánaðar til að ræða beinar
hjálparaðgerðir til handa
portúgölskum skoðanabræðrum
þeirra.
— Blaðprent
Framhald af bls. 2.
með hlutabréf í Blaðaprenti hf.
en telur sér jafnframt skylt að
standa við þau fyrirheit, sem
gefin eru Vísi í stofnsamningi
Blaðaprents hf. um að séð verði
um prentun hans á hefðbundn-
um tfma.
Með skírskotun til framan-
ritaðs ályktar stjórn Blaða-
prents hf. eftirfarandi:
1. Stjórn Blaðaprents hf.
ákveður að Vísir skuli unninn
og prentaður í prentsmiðju
félagsins með sama hætti og
áður.
2. Stjórn Blaðaprents hf. sam-
þykkir þá beiðni meirihluta
stjórnar Járnsíðu hf. að taka til
vinnslu og prentunar nýtt dag-
blað enda sé það framkvæman-
legt og felur framkvæmdar-
stjóra og yfirverkstjóra að
hefja samninga um útkomu-
tfma og tæknileg atriði og
Ieggur niðurstöður þeirra fyrir
stjórn Blaðaprents hf. hið
fyrsta. Samþykki allra stjórnar-
manna í Blaðaprenti hf. þarf til
ákvörðunar um útkomutíma
blaðsins.
3. Með því að ekki verður
talið, að réttur hvers hluta-
bréfaflokks í Blaðaprenti hf. sé
til að láta prenta tvö dagblöð
samkvæmt hinni sérstöku gjald
skrá, sbr. 18. gr. samþykkta
félagsins, ákveður stjórn Blaða-
prents hf. að gefa C hlutabréfa-
flokki til bráðabirgða, kost á að
njóta viðskiptakjara 18.
greinarinnar fyrir bæði blöðin,
Vísi og hið nýja dagblað, enda
samþykki þau eitt af tvennu:
(a) að skipa hvort um sig,
einn fulltrúa í 3ja manna
gerðardöm þar sem farið yrði
fram á, að Hæstiréttur skipaði
oddamann, en gerðardómur
þessi kvæði á um það innan 4
vikna, hvort dagblaðið ætti rétt
á að njóta hinna sérstöku við-
skiptakjara 18. greinarinnar.
(b) að deponera eða leggja
fram tryggingar fyrir mismun-
inum á hinni sérstöku gjald-
skrárgreiðslu og útsölutaxta,
þar til úr því verður skorið með
samkomulagi eða dómi, hvort
dagblaðið eigi rétt á að njóta
viðskiptakjara 18. greinar-
innar.
4. Stjórn Blaðaprents hf.
telur, að við sölu stjórnar Járn-
síðu hf. á hlutabréfum Járnsiðu
í Blaðaprenti hf. til Jónasar
Kristjánssonar og Sveins R.
Eyjólfssonar hafi ekki verið
gætt forkaupsréttar annarra
hluthafa í C hlutabréfaflokki
Blaðaprents hf. samkvæmt 7.
gr. samþykkta félagsins. Mun
stjórn Blaðaprents hf. sjá um,
svo sem henni er skylt, að sölu-
meðferð þessara hlutabréfa,
fari fram í fullu samræmi við
samþykktir Blaðaprents hf.“
Morgunblaðið ræddi í gær við
Þóri Jónsson, sem sæti á í út-
gáfustjórn Vísis og spurði hann
um álit á þessari ályktun og þá
einkum því atriði, sem segir um
forkaupsréttinn á hlutabréfun-
um f Blaðaprenti h.f. Þórir
sagði að hann og Ingimundur
Sigfússon hefðu átt samanlaet
50 þúsund króna hlutabréf, en
síðan hafi Reykjaprent átt 150
þúsund krónur. Jónas, Sveinn
og Pétur Pétursson hafi hins
vegar átt 200 þúsund krónur og
950 þúsund hafi verið eign
Járnsiðu. Sagði Þórir að ekki
hefði farið fram formleg sala á
eign Járnsíðu til Jónasar og
Sveins, þar sem viðskiptin
hefðu aldrei verið lögð fyrir
stjórnina og því væri salan
ólögleg. Ennfremur hafi for-
kaupsréttur ekki verið til-
kynntur.
Um það atriði, að um tfma
prentunar Dagblaðsins eigi að
fara fram samningar milli Dag-
blaðsins og Blaðaprents, sem
sfðan eigi að samþykkja af
stjórn Blaðaprents, en þar á
Vísir nú enga fulltrúa, sagði
Þórir, að stjórn Reykjaprents
treysti því að aðrir stjórnar-
menn f Blaðaprenti gættu hags-
muna þeirra. Með tilliti til
stofnsamningsins um Blaða-
prent væri rætt um ákveðin
fjögur dagblöð og að þau eigi að
skipta með sér arði af rekstri
félagsins. Því kvað hann það
alveg ljóst, hvaða blöð það
væru, sem njóta ættu þeirra
sérstöku kjara hjá fyrirtækinu,
þ.e.a.s. blöðin, sem nefnd eru í
stofnsamningnum. Þar er Dag-
blaðið ekki með og kvað Þórir
engin sérréttindi fylgja því að
hafa á hendi einhver hlutabréf,
þegar svo ákveðið er greint frá
því á hvern átt eigi að reka
fyrirtækið f stofnsamningi.
Jónas Kristjánsson ritstjóri
hins nýja blaðs sagði að vissu-
lega viðurkenndi hann það, að
sala hlutabréfanna gæti verið
umdeilanleg, þar sem færir lög-
fræðingar væru alls ekki á eitt
sáttir um hana. Hins vegar kvað
hann þetta alls ekki vera
kjarna málsins, það eð 60%
þeirra sem ættu forkaupsrétt
að bréfunum fylgdu sér og
Sveini R. Eyjólfssyni að málum.
Jónas sagði að stefnt væri að
því að Dagblaðið kæmi út
mánudaginn 8. september og
væri að þvi unnið. Hann sagði
að viðræður milli framkvæmda-
stjóra og yfirverkstjóra Blaða-
prents annars vegar og fulltrúa
Dagblaðsins hins vegar hefðu
hafizt nú á sunnudaginn. Alltof
snemmt væri að skýra frá þeim
á nokkurn hátt, en verið væri
að kanna málin. Jónas kvaðst
þess fullviss að unnt yrði tækni-
lega að prenta Dagblaðið á und-
an Vfsi, en eins og af ályktun-
inni sæist hafi Blaðaprent
samþykkt að prenta Vísi eins og
áður.
tískusýningar
meó tónlist og ljósagangi
Tvisvar á dag alla daga nema laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 4.30 og
8.45 eru tízkusýningar í veitinga-
salnum. Modelsamtökin og Karon
sýna. Við höfum útbúið sérstakan
Ijósabúnað sem blikkar allavega lit-
um Hjósum í takt við tónlistina, og
teljum okkur brautryðjendur á sviði
svo glæsilegra tískusýninga. A
laugardaginn verður sýning á
barnafatnaði kl. 2.30 og 4.30, sem
verzlunin Bimm Bamm sér um.
HAPPDRÆTTISVINNINGURINN í
DAG ER:
FERÐ FYRIR TVO TIL KAUP-
MANNAHAFNAR Á SCANDINAV-
IAN FASHION SHOW 15 — 17.
SEPTEMBER. ÚTSÝN SKIPULEGG-
UR DVÖLINA í KAUPMANNA-
HÖFN.
Tízkusýningar í dag kl. 4.30 og 8.45.
Karon samtökin sýna.
Verð aðgöngumiða 350 kr. fyrir fullorðna
og 1 00 kr. fyrir börn.
DALÞIÚflLEG VÖRUSÝNING REYKJAVÍK 1975
itx*sujo<084»9