Morgunblaðið - 29.10.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. OKTOBER 1975
19
Hella:
Vel miðar með dval-
arheimili aldraðra
Gefa til dvalarheimilis aldraðra á Hellu
ÞANN 21. október s.l. var
lokið við að steypa loft-
Innbrot
og óknyttir
í Eyjum
UM helgina voru framin nokkur
innbrot f Vestmannaeyjum en
ekki hefur enn náðst f sökudólg-
ana. Aðfaranótt laugardags var
brotist inn á fjórum stöðum, f
Friðarhafnarskýlið, hjá Krist-
manni Karlssyni, Vélsmiðjunni
Völundi og verkstæði Vinnslu-
stöðvarinnar. Aðallega voru
unnar skemmdir f þessum inn-
brotum, en einnig stolið nokkrum
lengjum af sfgarettum og nokkru
af sælgæti. I Friðarhafnarskýlinu
var öllum varningi f hillum hent
á gólfið og sfðan hellt yfir vöruna
tómatsósu og kvoðurakkremi úr
brúsum og var aðkoman þar Ijót
að sögn lögreglunnar.
A laugardagskvöld vöknuðu
öldruð hjón f húsinu nr. 42 við
Vestmannabraut upp við það er
tóm vínflaska flaug í gegnum
rúðuna á svefnherbergisglugga
þeirra og rigndi yfir þau glerbrot-
um, en þau sakaði ekki.
Þá tók lögreglan i Eyjum
drukkinn ökumann á bifhjóli um
síðustu helgi.
plötu á dvalarheimili
aldraðra á Hellu á Rangár-
völlum og er þaksmfði
þegar hafin, en bygging
hússins hófst í fyrra. Er
jafnvel gert ráð fyrir, að
húsið verði orðið fokhelt
áður en að vetur gengur í
garð.
Byggingarnefnd hússins
hafa borizt margar góðar
gjafir frá velunnurum
hússins og nýlega afhenti
Ólafur V. Jónsson 80 þús.
kr. og Lionsklúbburinn
Skyggnir 100 þús. krónur.
í fréttatilkynningu frá bygg-
ingarnefnd hússins segir, að á
kvennafrídaginn hafi nokkrir
karlmenn rætt um það sin á milli
á hvern hátt þeir gætu helst
haldið til jafns við kvenfólkið.
Kom þeim saman um að gefa ein
daglaun til stuðnings einhverju
uppbyggilegu málefni og varð
bygging dvalarheimilisins fyrir
valinu. Er hér með komið á fram-
færi tilmælum frá þeim til allra
kvennanna í Hellulæknisheráði,
að minnast kvennafrídagsins með
því að gefa sem svarar upphæð
einna daglaunatil dvalarheimilis
ins.
Framlögum er veitt móttaka á
reikningi nr. 1995 í Búnaðarbank-
ans á Hellu.
Blaka fyrir framan tvö málverk, sem hún sýndi á Salon des Artistes
Independants f Parfs f marz sl.
Blaka sýnir á haust-
sýningunni 1 París
tSLENZKRI listakonu, Blöku
Jónsdóttur, hefur verið sýndur sá
heiður að henni var boðið að sýna
málverk á hinni árlegu haust-
sýningu Salon d’Automne 1975 f
Grand Palais f Parfs, sem opnuð
var 23. október og er að þessu
sinni helguð Michaelangelo. Sýn-
ir Blaka þar vatnslitamynd, sem
nefnist „Ile de Lumiere” eða
Ljósaeyjan.
Á sýningunni eru sýnd rúmlega
1000 olíumálverk og um 170
vatnslitamyndir. Munu um 2000
málarar ekki hafa fundið náð
„Flotinn er óskyn-
samlega rekinn”
—segja skipstjómarmenn í Keflavík
fyrir augum hinna ströngu
dómara. Stór og vönduð sýninga-
skrá hefur verið gefin út með
fjölda mynda á þessari sýningu,
sem helguð er Michaelangelo.
Þessi haustsýning „Salon
d’Automne”, er 10. sýningin, sem
Blaka tekur þátt í Paris. I marz
síðastliðnum var henni m.a. boðið
að taka þátt í sýningu listasamtak-
anna „Artistes Independants” í
Grand Palais. Og um þessar
mundir tekur hún einnig þátt í
tveimur smærri sýningum, er
standa yfir i Paris: Salon des Prix
Signature 1975 með úrvaii mynda
hvaðanæva að úr Frakklandi, en
sú sýning er haldin í Foyer
International d’Acceuil de París,
og Cercle Saint-Louis, þar sem
Blaka hélt sína fyrstu sýningu i
janúar 1974 og hefur oft sýnt
siðan.
Guðrún Jónsdóttir, eins og
Framhald á bls. 23
Leiðari í
Svenska dag-
bladet um
útfærsluna
Stokkhólmi, 25. okt.
Frá Baldri Hermannssyni, fréttar. Mbl.
f FORYSTUGREIN Svenska
dagbladet f dag er fjallað um
útfærslu fslenzku fiskveiðilög-
sögunnar. Er þar rætt um um-
mæli Anthony Crosland og
tekið sfðan fram að jafnvel
Sovétrfkin séu nú farin að
mótmæla. I forystugreininni
kemur fram að lslendingar
hafi ekki viljað bíða eftir
næstu hafréttarráðstefnu, en
Svfar séu á -þeirri skoðun að
þar hefði málið verið til lykta
leitt. Segir í greininni að hefði
sú orðið niðurstaða að ekki
hefði orðið samstaða á Haf-
réttarráðstefnunni hefði út-
færsla komið mun betur út, en
hins vegar verði Sviar að skilja
sérstakar ástæður fslendinga.
Þá er vikið að þvf að f Noregi
sé þrýstingur á stjórnvöld að
aukast að Norðmenn færi út
landhelgi sfna.
Konan
varð úti
Akureyri, 28. okt.
KONAN sem hvarf frá elliheimil-
inu í Skjaldarvik i vikunni sem
leið fannst látin skammt frá bæn-
um Dagverðareyri síðdegis á laug-
ardaginn. Bóndinn á Dagverðar-
eyri fann konuna af tilviljun, en
hún hafði orðið föst i girðingu um
4 km norður af elliheimilinu og
ekki komist lengra.
Hún hét Sig-
urbjörg Hjörleifsdóttir og var 77
ára að aldri.
— Sv.P.
Happdrætti Sjálf-
stæðisflokksins
Þannig Iftur plattinn út.
Platti af
Menntaskólan-
um á Akureyri
NÝLEGA hefur Nemendasam-
band Menntaskólans á Akureyri
gefið út veggskjöld (platta) úr
postulíni með mynd af gamla
skólahúsinu, sem svo margar
minningar eldri og yngri
nemenda skólans eru bundnar
við. Teikningu af húsinu gerði
einn af fyrrverandi nemendum
skólans séra Bolii Gútafsson í
Laufási, en skjöldurinn er fram-
leiddur í Gleri pg postulíni h.f. í
Kópavogi. Má búast við, að margir
af nemendum skólans vilji
eignast þennan fagra veggskjöld
verður hann tii sýnis og sölu í
verzluninni Gleri og postulini,
Hafnarstræti 16.
Verð skjaldarins er kr. 2500.00
og verður öllum hagnaði af söl-
unni varið til þess að bæta
aðstöðu til félagsstarfs i Mennta-
skólanum á Akureyri.
Skipstjóra- og stýrimannafélag-
ið Vfsir f Keflavfk hélt almennan
fund á sunnudagskvöld áður en
gengið var frá samningum milli
sjómanna og stjórnvalda. Þar var
ályktað að lýsa yfir fyllsta stuðn-
ingi við kröfur samstarfsnefndar
sjómanna um hækkað fiskverð og
endurskoðun sjóðakerfis sjávar-
útvegsins.
I fréttatilkynningu frá fundin-
um segir m.a.:
„Vegna lágs fiskverðs, samfara
síminnkandi afla, er útgerðin
ekki fær um að keppa um vinnu-
aflið við ýmsar framkvæmdir i
landinu, sem þó eru vægast sagt
misjafnlega þarfar og arðbærar.
Fiskimennirnir fyllast vonleysi,
þar sem tekjumöguleikarnir eru
sáralitlir miðað við það, sem ann-
ars staðar þekkist og fara í land.
Vinnuálagið eykst á þeim fáu
mönnum, sem eftir eru á skipun-
um svo að möguleikarnir til að
skila góðu hráefni I land minnka
að mun.
Afleiðingin er sú, að flotinn er
rekinn óskynsamlega og illa.
Tekjumöguleikar stórskertir, en
allur tilkostnaður í hámarki.
Sjóðakerfi sjávarútvegsins er
þannig I reynd, að það hvetur til
óæskilegra veiðiaðferða og
óstjórnar í öllum rekstri.”
Þá skorar fundurinn á stjórn-
völd að semja ekki við útlendinga
um veiðiheimildir innan 50 milna
markanna.
Miðasala í hausthappdrætti
Sjálfstæðisflokksins er nú f full-
um gangi og hafa miðar verið
sendir til sjálfstæðismanna og
stuðningsmanna flokksins vfða
um land. Miðar fást einnig f skrif-
stofu happdrættisins f Galtafelli
Laufásvegi 46.
Takmarkið er að fresta ekki
drætti og eru því þeir, sem fengið
hafa heimsenda miða vinsamlega
beðnir um að auðvelda inn-
heimtustarfið og gera skil hið
allra snarasta. Bent skal á, að
andvirði miða er einnig sótt heim,
ef óskað er, en sími happdrættis-
ins er 17100 frá kl. 8.30 til 22.
Dregið verður í happdrættinu 15.
nóvember.
Nýkomnir pelsjakkar og kápur
Mikið úrval af nýjum vörum
Póstsendum samdægurs
Verzlunin VAL,
Hafnarfirði — Sími 52070