Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28, NÖVEMBER 1975 7 r Bandamenn Breta aðra. Fátt virðist þó lík- legra til að tryggja það, að Bretar nái því aflamagni, sem þeir ætla sér að ná og þannig verði stuðlað að miklu meiri eyðingu þorskstofnsins en ella. Það er vafalaust ekki til- gangur stjórnarandstæð- inga að ætla að gerast bandamenn Breta á þenn- an hátt. Sökum pólitísks ofurkapps og óskhyggju um að geta gert ríkis- stjórninni óhægt fyrir, gera þeir sér ekki grein fyrir því hvað þeir eru raunverulega að gera. En Bretar hafa ástæðu til að fagna yfir þessum óvæntu bandamönnum." komast hjá því með við- unanlegum samningum. Allt annað leiðir til ósig- urs. Við erum í þorska- styrjöld við Breta og það getur oltið á úrslitum hennar hver framtíð þjóð- arinnar verður. Ef Bretar halda áfram að veiða yfir eitt hundrað þúsund smá- lestir af þorski árlega ættu allir að geta séð hvaða örlög bíða þjóðar- innar. Þess vegna verður; að sameinast í baráttunni gegn þeim en halda frið við aðra, ef þess er nokk- ur sæmilegur kostur. Þeg- ar þessar sérstöku kring- umstæður eru teknar með í reikninginn getur niður- staðan ekki orðið nema ein: við eigum að tryggja frið við Þjóðverja og ein- beita öllum kröftum gegn Bretum." Kæra til Öryggisráðs? Dagblaðið Vísir lýsti f fyrradag þeirri skoðun f forystugrein, að kæra beri athæfi Breta í íslenzkri fiskveiðilögsögu til örygg- isráðs Sameinuðu þjóð- anna. Um þetta segir Vis- ir: „Stjórn jafnaðarmanna í Bretlandi hefur nú gripið til þess örþrifaráðs að senda herskip til þess að vernda veiðiþjófnað brezkra togara í fslenzkri fiskveiðilandhelgi. Þetta ---------------------------1 heimskulega athæfi getur dregið mjög alvarlegan dilk á eftir sér, hér er um að ræða óþolandi og ólög- mæta hernaðaríhlutun innan islenzkrar lögsögu . . . Eins og málum er komið eigum við ekki annars úrkosta en að grípa til harkalegra mót- mælaaðgerða. íslenzku ríkisstjórninni ber að taka þetta alvarlega mál þegar f stað upp innan fasta- ráðs Atlantshafsbanda lagsins. Engum vafa er undirorpið, að aðgerðir framkvæmdastjóra banda lagsins stuðluðu að lausn deilunnar við breta fyrir tveimur árum. Þeir urðu þá að hopa með herskip sfn vegna þrýstings. í annan stað ber ríkisstjórn- inni að kæra þetta athæfi Breta fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Við neyttum ekki þess réttar sfðast, þegar Bretar sigldu flota sfnum hingað, nú megum við hins vegar einskis láta ófreistað til þess að brjóta þessa íhlut un þeirra á bak aftur. Við eigum þvf hiklaust að krefjast þess að málið verði tekið fyrir í öryggis- ráðinu . . . Bretum á hins- vegar að setja úrslita- kosti, við köllum sendi- herra okkar heim frá London og verðum enn- fremur að gera Bretum grein fyrir því, að stjórn- málasambandi ríkjanna er teflt í tvísýnu ef fram heldur sem horfir." Þórarinn Þórarinsson skrifar forystugrein í Tfm- ann í gær, þar sem hann segir m.a.: „Meðal stjórn- arandstæðinga virðist hafa myndazt samstaða á Alþingi um að hvetja til þess, að samtímis styrj- öldinni við Breta skuli ís- lendingar eiga í stríði viðl Vestur-Þjóðverja á fiski- miðunum, þótt í boði sé samkomulag, sem felur f sér 30 þúsund smálestum minna aflamagn en Þjóð- verjar fengu 1973, þegar við áttum í stríði við Breta. Stefna stjórnarand- stæðinga er m.ö.o. sú, að íslendingar eigi ekki að einbeita kröftum sínum gegn aðalandstæðingnum heldur sundra kröftunum og eiga f höggi við marga Alvarlegt þorskastríð Síðan segir Þórarinn Þórarinsson: „Þegar frá liður og menn gera sér almennt Ijóst, hve alvar- legt þetta nýja þorskastrið getur orðið, verður að vænta þess, að stjórnar- andstaðan taki upp önnur og raunhæfari vinnu- brögð. Þjóðin mun gera sér Ijóst að eina leiðin til að sigra Breta er i fyrsta lagi sú, að hún standi saman, og i öðru lagí sú að hægt sé að beina öllu afli hennar gegn höfuð- andstæðingnum, en ekki sé samtimis átt i höggi við marga, ef hægt er að L J Að lokinni frumsýningu Hart f bak var leikurum Leikfélags Vestmannaeyja fagnað innilega og færð blóm. (Ljósmyndir Mbi. Sigurgeir Jónasson. Mikil aðsókn hjá Leikfélagi Vestmannaeyja Sýnir Hart í bak í Eyjum LEIKFÉLAG Vestmannaeyja sýnir um þessar mundir Hart í bak eftir Jökul Jakobsson og hefur leikritinu verið tekið mjög vel í Eyjum og uppselt á margar sýningar. Hart í bak er sýnt þar tvisvar í viku, venju- lega á fimmtudögum og sunnu- dögum. Aðaihlutverkið, Jóna- tan, leikur Sigurgeir Scheving, en aðrir leikarar eru Bergur Jón Þórðarson, Edda Aðal- steinsdóttir, Marta G. Hall- grímsdóttir, Eva Elfasdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Sveinn Tómasson, Guðmundur Jens- son, Inga Jóhannsdóttir, Ástþór Jóhannsson, Þorbjörn Pálsson og Sigurgeir Jóhannsson. Leik- stjóri er Unnur Guðjónsdóttir, en hún á 25 ára leikafmæli nú I Framhald á bls. 27 Sigurgeir í hlutverki Jónatans. Unnur leikstjóri þylur pistilinn yfir áhöfninni, en aðrir starfs- menn: Auðberg Óli Valtýsson sviðsstjóri, Kristján Eggertsson Ijósa- meistari og Sigþór Ingvarsson og Einar Steingrímssön, eru að tjaldabaki þessa stundina. É$M< mmm Iþróttabúningar Allar stærðir Nýkomið Rifflað flauel Ullarmohair efni breidd 1 50 cm tízkulitir köflótt — einlitt Rifflað kjólaflauel breidd 90 cm. Slétt bómullarflauel glæsilegir litir. Bómullarefni einlit — kóflótt Jólaborðplast. Nýjar vörur daglega Egill lacsbsen Austurstræti 9 Bökunan/örur á sértilboðsverði Hveiti 5 Ibs. leyfilegt verð 307,- tilboðsverð 248.— Smjörlíki 1 stk. leyfilegt verð 129.- tilboðsverð 1 09.- Kakó 1 Ib. leyfilegt verð 309.- tilboðsverð 255.- Kakó Vz Ib. leyfilegt verð 1 62 - tilboðsverð 129.- Royal lyftiduft 450 gr. leyfilegt verð 259,- tilboðsverð 193.- Opið til kl. 10 í kvöld og hádegis á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.