Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975 21 a, í útvarpsumræðum: í setur sanngimi okkar en 5. Akvæði um leyfisveitingar til veiða. Við skulum kanna, hvernig samkomulagið við Vestur- Þjóðverja fullnægir þessum að- ferðum og kröfum. Fyrst er ástæða til að benda á, að sam- komulagið tekur til alls haf- svæðissins innan 200 mílna fisk- veiðilögsögunnar og merkir því í reynd viðurkenningu á stjórn Is- lendinga á þessu hafsvæði, hvað sem líður fyrirvara um að sam- komulagið hafi ekki áhrif á af- stöðu ríkisstjórna samningsaðila til hafréttarmála, enda er í orð- sendingaskiptum utanríkis- ráðherra til sendiherra V- Þýskalands gengið út frá þvi, að i einu og öllu sé byggt á íslenskum lögum og reglugerðum og siðari ákvarðanir islenskra stjórnvalda virtar. Ef farið er yfir samkomu- lagið I einstaka atriðum, skal eftirfarandi sem er í samræmi við kröfur ísl. fiskifræðinga undir- strikað. 1) I samkomulaginu eru ákvæði um lágmarksstærð. Þýsk skip skulu ekki veiða eða hirða fisk undir því máli eða þyngd, sem tilgreind eru í hlutaðeigandi regl- um varðandi veiðar íslendinga. 2) t samkomulaginu eru lokuð eða friðuð veiðisvæði, ýmist tfma- bundið eða í gildi allan ársins hring. 50 mílurnar, að stærð 216 þús. fkm, eru lokaðar að undantekn- um 25 þús. fkm, á 3 svæðum, sem opin eru allt árið og einu svæði, sem er opið hálft árið. Af 200 mílna svæðinu, 758 þús. fkm að stærð, eru nær 500 þús. fkm algerlega lokaðir. Innan hins al- gerlega lokaða svæðis eru helstu uppeldisstöðvar fisks við Norður- og Austurland. Ennfremur eru ákvæði I sam- komulaginu, að þýskir togarar stundi ekki þær veiðar, sem íslenskum skipum eru bannaðar í því skyni að vernda svæði, þar sem mikið er af ungfiski eða hrygningarfiski. Þjóðverjar skuldbinda sig þannig til að hlýða þeim friðunarsvæðum sem nú eru í gildi eða ákveðin verða ein- hliða á samkomulagstímabilinu, af íslenskum stjórnvöldum. 3) í samkomulaginu er ákvæði um hámarksafla vestur-þýskra fiskiskipa, sem bundinn er ákveðnum fisktegundum, og skiptir þar okkur Islendinga mestu máli, að aðaluppistaðan í 60 þús. tonna hámarksaflanum er karfi og ufsi, en þorskaflinn er að hámarki 5 þús. tonn. Þessi ákvæði eru okkur þar af leiðandi sérstak- lega hagkvæm, því að hvort tveggja er að þorskstofninn er mun veikari en karfinn og ufsinn og karfi og ufsi okkur a.m.k. helmingi verðminni en þorskur- inn. Af þessu leiðir einnig að þetta samkomulag við Vestur- Þjóðverja skapar ekkert fordæmi um samninga við Breta. Þegar tekin er afstaða til 60 þús. tonna hámarksafla Vestur- Þjóðverja, hljótum við að spyrja, hve mikið geta Vestur-Þjóðverjar veitt leyfislaust. Óshyggjan veitir ekki raunhæft svar. Reynslan er þar ólygnust. Árið 1973 veiddu Vestur- Þjóðverjar 91,7 þús. tonn, en þá þurfti Landhelgisgæslan að verja 50 mílna fiskveiðilögsögu bæði fyrir ágangi Breta og Þjóðverja. Ef við gerum ekki það samkomu- lag, sem hér er til umræðu, verð- um við í baráttu við bá'ðar þessar þjóðir og þvi er rökréttur saman- burður við aflahámark samkomu- lagsins 60 þús. tonn — afli Þjóð- verja 1973 91,7 þús. tonn. Og ætti ekki að vera spurning, hvort okkur sé hagkvæmara. 4. 1 samkomulaginu eru ákvæði um gerð veiðarfæra. Þýsk skip skulu ekki nota net með smærri möskvastærð en íslensk. 5. t samkomulaginu eru ákvæði um leyfisveitingar til veiða, þar sem eingöngu 40 nafngreindir togarar hafa heimild til veiða, en togari, sem rofið hefur samkomu- lagið, missir veiðileyfið og verður strikaður út af listanum og fær þá enginn togari leyfi í staðinn. Hér er eingöngu um venjulega fsfisk- togara að ræða, en hvorki verk- smiðju- eða frystitogara, 26 þessara 40 togara eru byggðir 1961 eða fyrr og enginn er yngri en frá 1965. BÓKUN 6 Auk þess sem okkur er nauðsyn að veiða og vinna fisk, þurfum við að tryggja sölu sjávarafurða okkar, og því er mikilvægt að bók- un 6 í samningi okkar við Efna- hagsbandalagið um tollalækkanir á sjávarafurðum okkar komi til framkvæmda. Þjóðverjar hafa hingað til beitt neitunarvaldi sínu gegn því, en heita nú „með hlið- sjón af hinu nána sambandi, sem er milli lausnar á fiskveiðideil- unni og þess að bókun nr. 6 taki gildi,“ eins og komist er að orði, að beita sér fyrir að svo verði. Þvi skal ekki að óreyndu trúað að Bretar muni nú breyta afstöðu sinni og beita neitunarvaldi, en ef svo verður og bókun 6 kemur ekki til framkvæmda innan 5 mánaða, frestast framkvæmd samkomu- lagsins við Vestur-Þjóðverja, og hafa þeir þá enga heimild til veiða innan 200 mílnanna. AÐVÖRUN 1972 Eðlilegt er að skýrsla Hafrann- sóknastofnunarinnar dags. 13. okt. s.l., hafi mjög verið til um- ræðu. Rétt er þvf að rifja upp, að sú skýrsla var gerð og birt að ákveðinni beiðni sjávarútv.rh. og ríkisstjórnar. Hafrannsókna- stofnunin hafði birt fyrr á árinu tvær skýrslur, en ríkisstjórnin taldi nauðsynlegt að Haf- rannsóknastofnunin afmarkaði nánar í tölum skoðanir sínar varð- andi heístu fiskstofna, ekki síst til að hafa glögg rök gagnvart erlendum viðræðuaðilum. Stjórnarandstaðan hefur látist undrandi á hinu takmarkaða afla- magni, er skýrslan gerir ráð fyrir, en hafi menn lesið fyrri skýrslur, ætti þessi ekki að koma mönnum að óvörum. Meira að segja fyrrverandi Framhald á bls. 22 iunnars Thoroddsens: miður á undanförnum árum ekki gengið nægilega vel fram I þeim efnum Þar þurfum við mjög að gæta okkar sjálfra, setja strangari reglur og fylgja þeim betur eftir varðandi lands- menn sjálfa Með þv! að semja við Vestur-Þjóðverja skapast miklu betri tækifæri og möguleikar heldur en án samninga til þess að vernda og friða fiskimiðin. I samningnum er sérstakt ákvæði um það, að Þjóðverjar skuld- binda sig til þess að virða verndar- og friðunarsvæði, og það á bæði við þau, sem nú eru í gildi og þau, sem s!ðar verða ákveðin. Ef ekki er samið, mundu Vestur-Þjóðverjar væntanlega fara s!nu fram Það er viðbúið, að þeir myndu þá senda frystitogara á Islands- mið, en samkv. þessum samnings- drögum skuldbinda þeir sig til að gera það ekki. Þeir mundu væntanlega veiða meira af þorski og þeir mundu ekki telja sig skuldbundna til þess að virða þau verndar- og friðunarsvæði, sem við ákveðum. I umsögn Hafrannsóknastofnunar- innar, sem Einar Ágústsson rakti hér, er það m.a. sagt, að stofnunin telji mjög mikilvægt, að Vestur-Þjóðverjar muni virða lokun hrygningarsvæða eða svæða, þar sem mikið er af ungfiski. Útfærsla í 200 milur Það er rétt, áður en lengra er haldið að rekja með örfáum orðum aðdrag- andann að útfærslunni! 200 mllurnar. Nú eru rúm tvö ár liðin síðan þing- flokkur sjálfstæðismanna varð fyrstur stjórnmálaflokkanna til þess að taka ákveðna afstöðu i þessu máli. Hann gerði um það samþykkt síðari hluta ágústmánaðar 1973. — og siðan sameiginlegur fundur þingflokks og miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins 30 ágúst 1973, — að lýsa yfir eindregn- um stuðningi við 200 mllna fiskveiði- lögsögu, en miðað verði við miðllnu milli landa, þar sem vegalengd er minni en 400 milur, og að þingflokkur og miðstjórn telja rétt, að fiskveiðilög- sagan verði færð út i 200 mtlur eigi siðar en fyrir árslok 1974. Þegar Alþingi kom saman i október sama ár lögðu sjálfstæðismenn fram tillögu til þál. um útfærslu fiskveiði- landhelgi (slands í 200 sjómllur miðað við 31. des. 1 974. Fyrir þessari tillögu var gerð ítarleg grein á Alþingi. Þvi miður fann hún ekki þá náð fyrir aug- um þáverandi stjórnarflokka og náði ekki afgreiðslu Þegar rikisstjórnin var mynduð haustið 1974, var þetta mál að sjálfsögðu tekið upp. Vegna tregðu ýmissa manna á þinginu 1973—74 var ekki hægt lengur að miða við þetta timamark, árslok 1974. En það var tekið upp I stjórnarsáttmálann, að land- helgin skyldi færð út I 200 mílur á árinu 1975, eins og gert hefur verið Það er athyglisvert i þessu sam- bandi, að sumir, sem nú telja sig sérstaka boðbera og postuia þess að ekki megi semja við neinn aðila um neinar veiðiheimildir innan 200 mílna, ekki einu sinni við frændur okkar og vini, Færeyinga, þeir voru sumir harla tregir i taumi, þegar 200 mílurnar komu á dagskrá Um svipað leyti og Sjálfstæðisflokk- urinn tók upp 200 milna málið, þá átti þingmaðurinn, sem slðast talaði, Lúð- vik Jósepsson, viðtal við blaðið Þjóð- viljann um 200 milurnar og komst svo að orði með leyfi hæstv. forseta: ,,( dag stöndum við í baráttu um 50 milna landhelgi Þessi barátta skiptir nú öllu máli. Hitt er allt annað mál, hvort við íslendingar tökum okkur 200 milna landhelgi einhvern tima i fram- tíðinni, þegar slikt er heimilt samkv breyttum alþjóðalögum eða að lokinm hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna " Ekki var nú áhuginn meiri en þessi þá, 1 sept. 1 973. Jú, við gætum fært út í 200 milur einhvern tima i fram- tiSinni, réttast væri nú að biða eftir þvi að hafréttarrððstefnunni væri lokið. I rauninni kemur það enn fram hjá málsvörum og talsmönnum Alþýðu- bandalagsins, að hrifningin yfir 200 milunum og áhuginn á þeim er nú ekki sérstaklega mikill. í forustugrein i Þjóð- viljanum frá 26 okt s.l er skrifað um för okkar Einars Ágústssonar til Lond- on Þar er aftur og aftur talað um 50 milurnar. aldrei minnzt á 200 milur Sá, sem les þennan leiðara, gæti haldið, að 50 milurnar væru enn þá í gildi og alls ekki væri búið að lögleiða 200 milur Þannig lifa þessir menn, siðasti ræðumaður og hans nánustu, i þeim heimi, að 50 mllurnar eru það eina, sem máli skiptir. ( sambandi við útfærsluna i 50 milur á sinum tima var það ákveðið af Alþingi einróma, að leitað skyldi samn- inga við aðrar þjóðir um umþóttunar- eða aðlögunartlma Að sjálfsögðu var það einnig ætlunin, þegar fært yrði út i 200 milur. Samningurinn við Breta 1973 Afleiðingin af þessari ákvörðun Alþingis 1972 var m.a samningurinn við Breta i nóv 1973 Vegna þess að siðasti ræðumaður vill nú yfirleitt skoða alla samninga um veiðheimildir i samhengi, þá er rétt að staldra við andartak Þessi þingmaður heldur þvi fram, að tillögurnar sem nú liggja fyrir, séu fjandsamlegar þjóðinni, þýði alvar- lega kjaraskerðingu fyrir þjóðina og hann skorar á stjórnina að taka þessar tillögur til baka. Það, sem hér er um að ræða, eru veiðiheimildir i tvö ár allt að 60 þús. lestum á ári. Það á að veiða aðallega ufsa og karfa, en Þjóðverjar ætla að hætta að stunda þorskveiðar Hins vegar vita það allir, að viðbúið er, að eitthvað af þorski komi i netin, þegar verið er á öðrum veiðum, en hámark er þó sett 5 þús tonn á ári IVIeð þessum samningi við Breta frá þvi i nóv. 1973 var það hins vegar forsenda samninganna, að Bretar mættu veiða á ári i tvö ár 130 þús tonn Það er öllum vitanlegt, að það er aðallega þorskur, sem Englendingar afla, yfir 80%, þannig að með þessum samningi var verið að semja um að láta Bretum i té á ári a.m.k. 1 10 þús. tonn Þó að skýrsla Hafrannsóknastofnunar (slands frá siðasta mánuði lægi ekki fyrir i nóv 1973, þá vissu það allir menn, sem eitthvað fylgdust með, að of nærri var gengið fiskstofnunum þá þegar og ekki sizt þorskstofninum Fjölmargir reyndir fiskimenn, skip- stjórar, höfðu bent á þetta mjög greini- lega Þetta fór ekki framhjá neinum Þess vegna voru það ekki út af fyrir sig nein ný tíðindi, er kæmu öllum að óvörum, sem birtist í skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar En sú skýrsla var hins vegar visindaleg stað- festing á þvi, sem marga hafði grunað og raunar margir talið vist. Og þegar maður heyrir nú þennan boðskap leið- toga Alþýðubandalagsins, Lúðviks Jósepssonar, að það stappi nærri land- ráðum að semja um allt að 5 þús tonnum af þorski á ári og heildarafla 60 þús tonn, þá verður mönnum á að spyrja, hvar stóð þessi sami þing- maður þegar samningarnir voru gerðir við Breta um 1 30 þús tonn á ári, að meginhluta þorskur? Það er skemmst frá að segja, að allir þingmenn Alþýðu- bandalagsins studdu þennan samning Ég held, að ég hafi hérna nafnakallið hjá mér Þeir, sem samþykktu þennan samning voru m a með leyfi hæstv forseta: Eðvarð Sigurðsson, Garðar Sigurðsson, Geir Gunnarsson, Gils Guðmundsson, Helgi Seljan, Jónas Árnason. Magnús Kjartansson, Ragnar Arnalds, Svava Jakobsdóttir og enn fremur sagði Lúðvik Jósepsson já Konungsríki fyrir hest! Það er eðlilegt, að menn spyrji, hvernig á þessu stóð Það hét þá á fínu máli frá Alþýðubandalagsmönnum, að þeir vildu ekki fórna stjórnarsamstarf- inu. Þetta heitir á hreinni islenzku, að Lúðvik vildi ekki missa ráðherrastólinn Shakespeare skrifaði einu sinni leikrit um Rikharð III. konung Breta Þegar hann í sinni siðustu orrustu var orðinn aðþrengdur og hafði misst hestinn sinn, þá kallaði hann Konungsrlki fyrir hest. Lúðvik Jósepsson bauð Bretum væna sneið af þorskriki íslands fyrir einn stól. Þetta var það, sem gerðist i nóv 1973 En nú er það gagnrýnt af þess- um þingmanni, fyrrv sjávarútvegsráð- herra, að 60 þús. tonna afii til handa Vestur-Þjóðverjum sé fásinna Eftir að Alþýðubandalagsmenn höfðu staðið að samningunum við Breta, þá var þvi haldið áfram að reyna að semja og þá við Þjóðverja Og i marzmánuðí 1974 skrifaði sjávarút- vegsráðherra Lúðvik Jósepsson. bréf til utanrikisráðherra. Bréfið er dags. 19 marz 1974. Þar leggur hann fram nýjar tillögur um veiðisvæði til handa þýzkum togurum á íslandsmiðum. Hann segir, að þessar nýju tillögur séu gerðar á grundvelli þess, að samkomu- lag takist um útilokun þýzkra frysti- og verksmiðjuskipa, — sem nú hefur tek- izt, — og siðan ægir „Gert er ráð fyrir, að 48 þ-' KÍr togarar aðrir fái veiðiheimildir og að árlegur hámarks- fiskafli þeirra fari ekki fram úr 80 þús tonnum " 19 marz 1974 lagði sjávar- útvegsráðherra þvi til, að samið yrði við Þjóðverja um 80 þús tonna afla á ári Nú á hann ekki nægilega sterk orð til að hneykslast á þvi, að lagt sé til að semja um 60 þús. tonn ( hans tillög- um var ekki minnzt á þorskveiðar, enginn hámarksafli varðandi þorsk, nú Framhald á bls. 39 nir f iskimiðunum 9 við Þjóðverja færir okkur nær því marki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.