Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975
Kjarvalsmyndir
Sala á verkum eftir Jóhannes S. Kjarval fer
fram föstudag, laugardag og sunnudag 28.—
30. nóvember í Brautarholti 6, frá kl. 1 7 til 22.
Bátur til sölu
59 lesta eikarbátur ný endur-
byggður. Nýtt stýrishús, ný vél.
Caterpillar 350 ha. Ný tæki. Til
afhendingar strax.
Aðal Skipasalan, Vesturgötu 1 7,
sími 26560, heimasímar 74156
— 82219.
Vesturgötu 1 7,
sími 12284
Ný sending
af flauelis og jessy kjólum frá London Mob.
Mikið úrval af munstruðum blússum, velúr
bolir, heilir og með rennilás, pils og buxur í
úrvali, slæður, treflar og sjöl.
Gjörið svo vel að líta inn
Vesturgötu 1 7,
sími 12284.
Eggert Guðmundsson:
Kjarvalsstað-
ir á dagskrá
NU virðist svo komið að ein-
stefnumennirnir f Féiagi ísl.
myndlistarmanna séu farnir að
sjá eftir viðbrögðum sfnum f við-
skiptum við forráðamenn borgar-
innar, það er að segja þá sem fara
með framkvæmdavald Kjarvals-
staða. Þeir hafa orðið þess áþreif-
anlega varir — „að þeir hafa
misst spón úr aski sfnum“. Nú
hafa þeir farið bónorðsför á fund
borgarstjórans f Reykjavfk með
skjal undirritað af nfutfu mönn-
um, og biðja um gott veður.
Mitt álit er, að niutiu-
menningarnir eigi þar engu að
geta breytt. Við erum þó tugir
þúsunda skattgreiðendur til
borgarinnar, sem ekki hafa verið
beðnir um að skrifa undir umrætt
skjal, og hafa þó allir sama rétt til
þess að láta sinn vilja í ljós.
Kjarvalsstaðir eiga aldrei að
verða afhentir öfgafullum ein-
ræðisöflum listamanna til um-
ráða, — nei, við skattgreiðendur
borgarinnar eigum allir að hafa
sama rétt til afnota sýningahúss-
ins og forráðamönnum borgar-
innar ber að sjá um að svo verði.
Ekki vil ég að réttur Fél. ísl.
mypdlistarmanna verði fyrir borð
borinn. Ef þeir sýna samstarfs-
vilja eiga þeir að geta haldið
sýningar sínar í húsinu, en það á
ekki að vera í þeirra valdi að
útiloka aðra listamenn frá
sýningarrétti, hann á að vera jafn
öllum, alvarlega starfandi lista-
mönnum hvort sem þei eru félags-
bundnir eða ófélagsbundnir.
Ég hefi fyrir löngu sett fram
mina skoðun á því, hvernig best
mætti leysa þetta vandamál, svo
að vel megi fara. Nú er það í valdi
borgarráðs að kalla saman ábyrga
menn, bæði félags- og ófélags-
bundna, til viðræðna um lausn
þessa máls.
Ég vona að borgarráðsmenn
taki þessa tillögu mína til alvar-
legrar íhugunar og er þá viss um
að réttláta lausn þessara mála
megi finna.
Kertamarkaður
og kaffisala
á Laugarvatni
SONTAKLUBBUR Selfoss gengst
fyrir kertamarkaði og kaffisölu í
Húsmæðraskóla Suðurlands á
Laugarvatni 7. des. klukkan 17—
23. Allur ágóði af sölunni gengur
óskiptur til styrktar heimili
þroskaheftra barna 1 Árnessýslu,
sem nú hefur tekið til starfa á
Selfossi.
Þessi kertamarkaður á Laugar-
vatni er aðallega ætlaður fyrir
fbúa f uppsveitum Arnessýlu en
sunnudaginn 7. desember mun
Sontaklúbburinn aftur efna til
kertamarkaðar og þá i Tryggva-
skála á Selfossi. Félagsmenn i
Sontaklúbbi Selfoss eru úr allri
Árnessýlu.
Prjónabókin
Klíti komin út
KOMIN er út ný prjónabók, Elin.
I bókinni eru 40 litprentaðar
prjónauppskriftir. Það er ullar-
verksmiðjan Gefjun á Akureyri
sem gefur bókina út en auglýs-
ingadeild SlS hefur haft umsjón
með útgáfunni. Ritstjóri er Gunn-
steinn Karlsson en uppskriftir
eru eftir Arndísi Axelsson, Ingi-
björgu Jónsdóttur, Sigriði Jóns-
dóttur og Erlu Eggertsdóttur.
VINNINGSNUMER I
SÍÐASTA DRÆTTI
VAR
Nr. 806
Þeir, sem vilja tryggja sér sömu miðanúmer
í næsta flokki, hafi samband við söluumboðið
Klausturhólum, Lækjargötu 2.
FIATI
JÓLAGJÖF
NÆST VERÐUR DREGIÐ
ÞANN 20. DES. UM FÍAT 128
AÐ VERÐMÆTI EIN MILLJÓN.
VERÐ MIÐANS ER KR. 1.000.—.
FÍAT
HAPPORÆTTI
HSÍ
AÐEINS 2500 MIDAR