Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NOVEMBER 1975
Sveinn Benediktsson:
Aflabresturinn í Perú
og afleiðingar hans
Ljósm. Sig. Arnfinnsson.
NORÐFIRÐINGAR mótmæla komu brezka eftirlitsskipsins Othello til Nes-
kaupstaðar.
I NÝUTKOMNU dreifibréfi Fé-
lags Isl. fiskmjölsframleiðenda
ritar Sveinn Benediktsson grein
um aflabrestinn f Perú og afleið-
ingar hans og fer greinin hér á
eftir:
I síðasta Dreifibréfi Félags ísl.
fiskmjölsframleiðenda FlF Nr.
11/1975, er út kom 7. nóv. sl. var
skýrt frá því að EPCHAP einka-
sala Perú á fiskmjöli og lýsi hafi
hinn 24. okt. s.l. tilkynnt, að þeir
gætu ekki staðið við fyrirfram-
gerða samninga um afhendingu á
fiskmjöli í okt, nóv. og des. 1975
vegna aflabrests, og tilkynntu að
veiðar hæfust af fullum krafti 17.
nóv. 1975.
ECPHAP hafði gert ráð fyrir að
á árinu yrðu framleidd 1200 þús.
tonn af fiskmjöli í Perú og skyldi
um það bil helmingur vera fram-
leiddur fyrri hluta ársins.
Síðustu daga maímánaðar s.l.
stöðvuðu Perúmenn veiðarnar,
enda hafði þá mjög dregið úr
veiðunum, og ansjóvetan er
veiddist var mjög smá og fékkst
aðeins syðst undan ströndinni.
Gerðu Perúmenn þá ráð fyrir
að hefja veiðar að nýju í septem-
ber. Tilraunaveiðar 30—50 skipa i
ágústmánuði gengu mjög illa. Var
þess vegna frestað fram í október
að hefja veiðar fyrir alvöru.
Eins og að framan segir skyldi
hefja veiðar af fullum krafti hinn
17. nóv. Áttu 300 til 400 skip að
taka þátt í veiðunum. Þegar til
kom brugðust ansjóvetuveiðarnar
gjörsamlega.
Dagaetn. Afll
tonn
mjög smá og hefði ekki náð þeim
þroska, að rétt væri að veiða hana
til vinnslu, þótt mergð væri af
smáansjóvetu í hafinu undan
ströndum landsins.
EPCHAP segir, að þeir hafi
samið um sölu á um 50.000 tonn-
um af fiskmjöli til afhendingar
fyrir n.k. áramóti og um 160.000
tonnum á árinu 1976, og málaferli
að hefjast út af vanefndum
EPCHAP.
Talið er að ofveiði á ansjóvetu-
stofninum við Perú á árunum
1967—1971 hafi átt sök á afla-
brestinum við strendur Perú 1972
til 1973.
I timaritinu The Scientific
American 1973, sem dr. Björn
Dagbjartsson, núverandi forstjóri
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar-
ins, benti mér og dr. Þórði heitn-
um Þorbjarnarsyni á, var mjög
fróðleg grein eftir vísindamann-
inn bandaríska C.P. Idyll.
Hrakspár þessa vísindamanns
um afleiðingar af ofveiði ansjó-
vetunnar rættust. Vegna ofveiði
undanfarinna ára við Perústrend-
ur er sagan nú að mínu áliti að
endurtaka sig.
Nú er það breytt frá því sem
áður var og óhugsandi er að um
stórkostlega hækkun á fiskmjöli í
líkingu við það, sem gerðist 1972
til 1973 geti orðið að ræða, vegna
þess að þá brenndu menn sig svo
rækilega á háu verði, sem aðeins
stóð um 1!4 mánaðar skeið tvisvar
sinnum á árinu 1972 til þess að
hrapa sfðan skyndilega um meira
Lýslsframleiösla
tonn
MJölframleiöela
tonn
kreppan ásamt vaxandi verð-
bólgu, óróa og stríðshættu um all-
an heim áhrif í þá átt að flestir
bændur kaupa fóður aðeins til
skamms tíma.
Engu að síður styrkir aflabrest-
urinn í Perú verðið á fiskmjöli, en
þó minna en mátt hefði, vænta,
svo sem sjá má af fyrirframsölum
þeim sem gerðar hafa verið að
undanförnu á loðnumjöli fram-
leiddu 1976 með fyrirvara um
framleiðslu (sjá meðfylgjandi
skýrslu Viðskiptaráðuneytisins).
Hvað sem öllu líður ber nauð-
syn til þess að loðnuveiðar og
loðnuvinnsla verði stunduð með
þeim krafti sem unnt er á kom-
andi loðnuvertíð 1976.
27. nóv. 1975.
Sveinn Benediktsson
P.S. I Dreifibréfi FIF Nr. 14/1973
ritaði ég rækilega grein um Afla-
brestinn í Perú og afleiðingar
hans og vísast til þeirrar greinar.
Sv. Ben.
INNLENT
Opið bréf til rit-
stjóra Morgunblaðsins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi:
1 SEINNI hluta leiðara Mbl.
27/11 1975 er mjög hrósað svari
forstjóra Hafrannsóknastofnun-
arinnar við ósk sjávarútvegsráðu-
neytisins um fræðilega umsögn
um samningsdrög að landhelgis-
veiðum Vestur-Þjóðverja. Þessi
umsögn var látin túlka sjónarmið
stofnunarinnar í heild og þar með
allra sérfræðinga hennar. Hún
var þó ekki borin undir megin
þorra þeirra, eins og mótmælt
var, m.a. í Mbl. í gær (26/1). 1
umræddum leiðara gerir Mbl.
jafnframt lítið úr þessum mót-
mælum, einkum að því er varðar
það álit að forstjóri Hafrann-
sóknastofnunarinnar hafi farið út
fyrir starfssvið sitt sem vísinda-
maður.
Þegar starfsmenn Hafrann-
sóknastofnunar unnu að skýrslu
sinni um Ástand fiskstofna og
annarra sjávardýra hér við land,
beittu þeir að sjálfsögðu fiski-
fræðilegum aðferðum, sjónar-
miðum og rökum. Með slíkum
hlutlægum aðferðum var komist
að niðurstöðu um þann hámarks-
afla, Sem óhætt væri að veiða af
helstu tegundum nytjafiska okk-
ar. Hvernig sá afli skiptist milli
einstakra þjóða á hinsvegar ekk-
ert skylt við fiskifræðileg sjónar-
mið. Þegar t.d. er lagt mat á það,
Framhald á bls. 22
Aðventukvöld
Dómkirkjunnar
SUNNUDAGURINN 30.
nóvember n.k. er fyrsti sunnu-
dagur í aðventu eða jölaföstu.
Þá er jafnframt að hefjast nýtt
kirkjuár og því víða gjört
eitthvað til hátfðabrigða f söfn-
uðum landsins. I Dómkirkj-
unni hefur það verið gert frá
því um 1930. Framan af voru
haldnir aðventutónleikar, en
síðan 1952 hefur dagskrá verið
með fjölbreyttara sniði og hafa
samkomurnar hlotið nafnið að-
ventukvöld. Kirkjunefnd
kvenna Dómkirkjunnar hefur
staðið fyrir þeim og boðar nú
til 24. aðventukvöldsins n.k.
sunnudagskvöld kl. 8.30.
Dagskráin verður fjölbreytt
að vanda. Geirlaug Þorvalds-
dóttir leikkona les jólakvæði
eftir Guðmund skólaskáld.
Hörður Áskelsson, ungur og
efnilegur tónlistarmaður,
leikur einleik á Dómkirkju-
orgelið. Hann leikur nokkra
þekkta jólaforleiki, en einnig
leikur hann undir söng Barna-
kórs Hlíðaskóla, sem þarna
Framhald á bls. 22
Sölusýning á
Kjarvalsteikningum
Á BLAÐAMANNAFUNDI sem
Sveinn Kjarval, sonur Jóhannes-
ar Kjarvals listmálara, efndi til í
gær, skýrði hann frá því að ákveð-
ið hefði verið að efna að nýju til
sýningar á teikningum eftir Kjar-
val í Brautarholti 6, sem sýndar
voru í haust í tilefni þess að Kjar-
val hefði orðið 90 ára á þessu ári.
Myndirnar sem spanna mjög
langt tímabil í listferli Kjarvals,
allt frá 1911, verða til sölu, og
boðsgestir verða ekki á sýn-
ingunni, sem verður opin frá kl.
17—22 næstu þrjá daga.
Framhald á bls. 22
Ráðstefna Landverndar:
w
Fæðubúskapur Islendinga
I DAG fer fram i ráðstefnusal
Hótel Loftleiða ráðstefna um
fæðubúskap Islendinga. Ráð-
stefna þessi er haldin af Land-
vernd í samvinnu við Verkfræð-
ingafélag Islanas og Félag is-
lenzkra búfræðikandídata og er
tilgangur hennar að Ieiða saman
sérfræðinga frá ýmsum starfs-
greinum er fjalla um nýtingu ís-
lenzkra auðlinda til fóður- og
fæðuöflunar.
Ráðstefnan verður sett klukkan
9 árdegis af Hákoni Guðmunds-
syni, formanni Landverndar. Þá
flytja eftirtaldir stutt erindi: Vil-
hjálmur Lúðvíksson, Unnsteinn
Stefánsson, Þórunn Þórðardóttir,
Jón Jónsson, Jónas Bjarnason,
Gunnar Sigurðsson, Bjarni Guð-
mundsson, Stefán Sigfússon,
Bergsteinn Gizurarson, Friðrik
Pálmason, Gunnar Ölafsson, Jón
Árnason og Björn Sigurbjörns-
son. Þá verða almennar umræður
og umræðuhópar starfa. Fyrir-
hugað er að gefa erindi þau, sem
flutt verða á ráðstefnunni, út í
bókarformi á vegum Landvernd-
ar.
17-nóv. 165 36
18. " 976 215
19. " 50 8
20. " 1?0 29
25. " . ».265 228
AHb 5.586 1.226 Lýslsframleiösla alls
200/220 tonn
* Samanskrap eftir 17. nóv. 1975.
Þegar þessi mikli aflabrestur
var kominn i ljós, tilkynnti
Et’CHAP, að þeir framlengdu af-
hendingarfrestinn á fiskmjölinu
um 60 daga til viðbótar, eða í alls
120 daga, þ.e. til loka marzmánað-
ar 1976.
Jafnframt tilkynntu þeir stöðv-
un veiðanna og útflutningsbann á
fiskmjöli. Báru þeir fyrir sig, að
hafrannsóknastofnunin í Perú,
Imarpe, er rannsakað hafi ansjó-
vetustofninn mjög gaumgæfilega,
segði að ansjóvetan væri enn
en 60%. Svipuð saga endurtók sig
hvað lýsisverð snerti fyrir rúmu
ári.
Önnur ástæðan eru sú, að nú
eru til miklar birgði’' af fóðurvör-
um.
Þriðja ástæðan er sú, að kreppa
er hjá bændum víðsvegar um
heim og þeir hafa ekki bolmagn
til að kaupa dýr-t fóður eða fóður-
blöndur. Fóðurblöndunarstöðvar
í mörgum löndum hafa minnkað
eða hætt að blanda fiskmjöli í
blöndur sínar. Þá hefur olíu-
r
Haustsýningu FIM lýkur á sunnudag
Frá haustsýningunni I Norræna húsinu.
NÚ UM helgina lýkur haustsýningu
Félags islenzkra myndlistarmanna í
Norræna húsinu, en sýningin hefur þá
staSið i tvær vikur. Þar eru 96 verk 50
listamanna, — grafik, oliumyndir.
vatnslitamyndir, klippimyndir, vefnað-
ur og höggmyndir. Aðsókn að sýning-
unni hefur verið góð og hafa nokkrar
myndir selzt. Ragnheiður Jónsdóttir
Ream, formaður sýningarnefndar FÍM,
tjáði Mbl. að nú væri um það bil að
Ijúka myndlistarsýningum, sem haldn-
ar hafa verið á vegum félagsins á ýms-
um vinnustöðum i borginni. Kvað hún
þessa tilraun hafa gefizt vel, og hefði
félagið hug á því að halda áfram á
þessari braut. Sýningunni i Norræna
húsinu lýkur á sunnudagskvöld og er
hún opin frá kl. 2—22.