Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.11.1975, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975 29 Ný bók: Draumar, sýn- ir og dulræna „Draumar, sýnir og dulræna“ heitir bók eftir Halldór Pjeturs- son, sem komin er út á vegum bókaútgáfunnar Skuggsjár. Eins og nafnið bendir til fjallar bókin um drauma og sýnir draum- spakra manna og dulrænna. A bókarkápu segir meðal annars: „Meðal draumspakra manna, sem hér segir frá, má nefna: önnu Jakobínu Armannsdóttur frá Snotrunesi, Svövu Jónsdóttur, eiginkonu höfundarins, Ásmund Geirmundsson í Holti í Hjalta- staðaþinghá, Þórhildi Sveinsdótt- ur í Borgarfirði eystra, Emil Jóns- son frá Geitavík, Elías B. Hall- dórsson listmálara, Sigurð Árness og systur höfundarins Sigrúnu og Guðnýju Pjetursdætur. ... At- .hygli munu vekja frásagnir Sig- urðar bónda Guðjónssonar í Fögruhlíð og Bjarna Sveinssonar, Melstað, og þá ekki siður hin sér- stæða frásögn af miðilsfundinum á Geirastöðum í Hróarstungu. Ekki hvað sízt mun þó vekja at- hygli hinn stórmerki þáttur um Þórunni grasakonu Gísladóttur og ættmenn hennar, en sonur Þór- unnar var hinn landskunni grasa- læknir Erlingur Filippusson. Þakkir frá Yestur- íslendingum NÝLEGA dvöldu hér nokkrir þeirra Vestur-Islendinga, sem báru hita og þunga af móttökum íslendinga, sem fóru vestur um haf f sumar. Þeir, sem dvöldu hér, voru Olla og Stefán Stefánsson frá Winnipeg, Marjorie og Ted Arnason frá Gimli, Sigríður Hjartarson frá Gimli, Jóhann H. Jóhannsson frá Markervilli og Robert J. Ásgeirsson frá Van- couver. Við brottförina héðan báðu Vestur-íslendingarnir fyrir kveðju og innilegt þakklæti til allra, sem greitt hafa götu þeirra á Islandi og báðu þeir fyrir sér- stakar þakkir til Þjóðræknis- félagsins, forseta Islands, for- sætisráðherra, menntamálaráð- herra og allra annarra, sem hafa stuðla að því að gera dvöl þeirra hér ógleymanlega. Höfundurinn Halldór Pjeturs- son er frá Hallfreðarstaðahjá- leigu f Norður-Múlasýslu. Hann var um skeið kennari fyrir aust- an, en fluttist síðan til höfuð- borgarinnar. Hann starfaði hjá Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavik og síðar hjá bæjarsjóði Kópavogs. Hann hefur stundað ritstörf um skeið, meðal annars skrifaða blaðagreinar, en fyrsta bók hans, Saga Eyjaselsmóra, kom út árið 1962. Athugasemd frá Eyjum Halldór Pjetursson. VFIRLÝSING vegna ummæla bæjarstjórans í Vestmannaeyj- um: Vegna viðtals við bæjarstjórann í Vestmannaeyjum sem birtist í dagblaðinu Vísi 24. nóv. s.l. vill nefndin, sem bæjarstjórn skipaði til að kanna ásakanir minnihluta bæjarstjórnar um misnotkun bæj- arstjóra á fjármunum Vest- mannaeyjabæjar, taka eftirfar- andi fram: I. Þann 4. nóv. s.l. barst bæjarstjóra í hendur launa- greiðsluform ásamt áföstu afriti af innleggsnótu f Útvegsbanka Is- lands í Vestmannaeyjum sem sýndu að laun bæjarstjóra fyrir tfmabilið 1. ág.—31. okt. 1975 höfðu verið lögð á ávísanareikn- ing bæjarstjóra við ofangreint bankaútibú. 2. Þann 8. nóv. s.l. hélt bæjarstjóri til Reykjavfkur I erindum bæjarsjóðs Vestmanna- eyja og dvaldist þar til 16. nóv. 3. Þann 18. nóv. greiddi bæjarstjóri kr. 600 þús. inn á viðskiptareikn- ing sinn við bæjarsjóð. Að öðru leyti vísast til sameiginlegs nefndarálits um mál þetta þarsem málinu er talið lokið. Vestmannaeyjum 25. nóv. 1975. Jóhann Pétur Andersen, Arnar Sigurmundsson, Jóhannes Kristinsson, Sigurður Jónsson. Sjálfkjörið í stjórn Sjó- mannafélagsins Sjálfkjörið var að þessu sinni f stjórn Sjómannafélags Reykja- víkur. I fréttatilkynningu frá félaginu segir, að þann 5. þ.m. hafi trúnaðarmannaráð auglýst eftir framboðslistum til stjórnar- kjörs, er fram átti að fara á þessu ári, og hefjast þann 25. nóvember og var frestur til að skila listum ásamt meðmælum 100 félags- manna 15 dagar eða til kl. 22.00 þann 20. nóvember. Aðeins listi trúnaðarmannaráðs barst kjörstjórn og eru því þeir menn sem hann skipa sjálfkjörnir án atkvæðagreiðslu. Stjórnendur félagsins næsta kjörtímabil sem eru tvö ár eru þvf: Formaður Hilmar Jónsson Ægissíðu 127, varaform. Gunnar Hallgrímsson Eikjuvogi 9, Ritari Pétur Sigurðsson Goðheimum 20, Gjaldkeri Guðm. Hallvarðss. Gautlandi 13, Varagjaldk. Guðmundur Haraldsson Dverga- bakka 12. Meðstjórnendur: Karl G. Karls- son Fellsmúla 16, Sigurður Eyjólfsson Hjarðarhaga 11. Varamenn: Magnús Jónsson Langhv. 162, Jón Helgason Hörpugötu 7, Magnús Garðarsson STORmnRKDÐUR á horni Vesturlandsvegar og Höfðabakka er að rísa og verður til leigu næsta sumar. Við viljum komast í samband við aðila, einn eða fleiri, sem þurfa húsrými fyrir verzlun, lager, skrifstofur, iðnað og veitingarekstur. Til ráðstöfunar eru eftirfarandi möguleikar: 2500 rrí sem hægt er að hluta niður að vild og leigja í stórum og smáum verzlunareiningum 4500 m sem eru 2 salir tengdir með 500 m innitorgi, sem á sama hátt er hægt að skipta| 2 ' mar9ar verzlanir ( 000 m 3 salir tengdir með innitorgi. 10000 m2 þ.e. allt húsið Lofthæð er alls staðar 4,40 m, nema á torgi, sem er 500 m? er lofthæð 9 m. Lóð í kring er 12.500 m, ca. 500 bílastæði sem má fjölga. Gjörið svo vel að hafa samband við undirritaðan. Jón Hjartarson Laugavegi 26 — Símar 28900 —21030

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.