Morgunblaðið - 28.11.1975, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÖVEMBER 1975
17
Kirkjudagur
Árbæjarsafnaðar
Stjórn Flugbjörgunarsveitarinnar f Reykjavík 1975: Talið frá vinstri: Stefán Bjarnason, Gunnar
Jóhannesson, Gústaf Óskarsson gjaldkeri, Árni Edtvinsson ritari, Sigurður M. Þorsteinsson formaður,
Ingvar Valdimars varaform., Haukur Hallgrímsson, Einar Gunnarsson, Helgi Ágústsson.
Flugbjörgunarsveitin 25 ára
I DAG 28. nóv. eru 25 ár liðin unar í björgunarstarfi og þá sér- Stefán Bjarnason, Páll Steinþórs-
síðan Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík var stofnuð af flug-
áhugamönnum, sem töldu nauð-
synlegt að stofna björgunarsveit,
sem væri sérhæfð í sambandi við
leit og björgun úr flugvélum, þvf
á þessum tfma var mikil aukning
á flugi á Islandi. Sfðan hefur FBS
verið að þjálfa menn og afla
tækja til að geta veitt sem bezta
aðstoð ef vá ber að höndum.
Þá hafa verið stofnaðar flug-
björgunarsveitir á eftirtöldum
stöðum: Akureyri, Varmahlíð í
Skagafirði, Hellu á Rangárvöll-
um, Skógum A-Eyjafjallahr., Vík
Mýrdal og Kvennadeild í Reykja-
vík. Allar þessar sveitir vinna að
sama markmiði og starfa sjálf-
stætt.
Auk þjálfunar hér heima hafa
um tuttugu menn sótt námskeið
hjá Rauða krossi Noregs, til þjálf-
staklega við björgun á fólki, sem
hefur orðið undir snjóskriðum. I
því sambandi hefur sveitin aflað
sér tækja og útbúnaðar til leitar
að fólki.
Flugbjörgunarsveitin hefur nú
yfir að ráða fimm fjalla- og
sjúkrabifreiðum og einni belta-
bifreið. Um 100 menn eru skráðir
til æfinga og björgunarstarfa og
þar að auki eru á aukaskrá um 75
manns, sem kalla má út ef slys
verða.
Stjórn sveitarinnar skipa þess-
ir menn: Formaður Sigurður M.
Þorsteinsson, varaformaður Ingv-
ar Valdimarsson, ritari Árni Ed-
winsson, gjaldkeri, Gústaf Öskars-
son, spjaldskrárritari Gunnar
Jóhannesson, meðstjórnendur
Einar Gunnarsson og Haukur
Hallgrímsson. Varastjórn skipa
Um tannlækn-
ingar vangefinna
Mikið hefur verið rætt og ritað
undanfarið um þetta málefni,
enda er tannleysi með því versta
sem fyrir vangefinn getur komið,
en það er algengt hér á landi.
Gott er að fólk er almennt farið
að gera sér grein fyrir þessu en
það hefði mátt vera fyrr.
Ráðist hefur verið all harkalega
á tannlæknastéttina og deild
skólatannlækninga i Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur, sem
unnið hefur mikið starf á undan-
förnum árum. Það er engu líkara
en þarna vinni vont fólk, sem
ekkert vill sinna vangefnum. Mér
Gjöf til Laug-
ameskirkju
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri,
er þjóðinni löngu kunnur fyrir
hið mikla starf sitt fyrir gamla
fólkið í landinu, sem einhvern
veginn hefur orðið útundan í
tækniþjóðfélagi nútimans. Hann
hefur og stutt mjög við bakið á
Kvenfélagi Laugarnessóknar 1
viðleitni þess að koma til móts við
eldra fólkið í sókninni.
Nú nýlega, og það vildi ég sér-
staklega þakka, hefur hann gefið
Laugarneskirkju vandaðan hjóla-
stól fyrir fatlaða. Stendur hann til
reiðu fyrir hvern þann, er kemur
til kirkju og hefur þörf einmitt
fyrir slíkt sæti.
Auk þessa hefur Gísli á svo
margan hátt uppörvað safnaðar-
starfið. Gefið Passíusálmabækur
og almennar sálmabækur í
kirkjuna auk annarra bókagjafa.
Þá hefur hann og nokkrum sinn-
um boðið nokkrum konum úr
Kvenfélaginu til viku-
sumardvalar í Ásheimilið í Hvera-
gerði. Höfum við hjónin einnig
ósjaldan notið þeirrar miklu gest-
risni hans.
Vil ég með þessum línum tjá
honum virðingu mína og þakk-
læti.
son og Helgi Ágústsson.
Flugvjörgunarsveitin mun í
köld halda upp á afmælið að Hót-
el Loftleiðum.
Hin árlega hátíð Arbæjar-
safnaðar verður haldin sunnudag-
inn 30. nóv. 1. sunnudag í aðventu
f hátfðasal Arbæjarskóla.
Það er orðin föst venja hjá
mörgum söfnuðum hinnar ís-
lenzku þjóðkirkju aó helga og
halda hátíðlegan sérstakan
kirkjudag, þar sem einkum er
vakin athygli á þeim málefnum,
sem efst eru á baugi í viðkomandi
söfnuði hverju sinni. Árbæjar-
söfnuður hefur valið nýársdag
kirkjuársins sem kirkjudag sinn
og fer vel á þvf. Við upphaf nýs
kirkjulegs starfsárs komum við
saman til þess að hugleiða hvert
hefur miðað og hverjum mark-
miðum við hyggjumst ná í næstu
framtíð. Kirkjudagurinn er einn
höfuðhátíðisdagur hvers
safnaðar, dagur uppgjörs og
áforma, heitstrenginga og vona,
óska og bæna, sameiningartákn
safnaðarmanna, er efla á
safnaðarvitund þeirra og eggja þá
til aukinna átaka fyrir Krist og
kirkju hans. Árbæjarsöfnuður
hefur ráðist í byggingu kirkju- og
safnaðarheimilis af miklum stór-
hug, dugnaði og framsýni. En þótt
mikilvægum áfanga hafi verið
náð, er þó enn margt ógert, þar til
safnaðarhússbyggingin getur
gegnt hlutverki sínu sem miðstöð
safnaðarstarfs í Árbæjar- og Sel-
ássókn. Þá fyrst hefur söfnuður-
inn uppfyllt frumlægustu þörf
sína, er hann eignast þak yfir sig
og starf sitt.
Dagskrá kirkjudagsins verður í
aðalatriðum á þessa leið:
Kl. 10.30 hefst barnasamkoma í
Árbæjarskóla og guðsþjónusta
fyrir alla fjölskylduna kl. 2 e.h.
Að lokinni messu hefst kaffisala
kirkjunefndar Kvenfélagsins og
verður veizlukaffi á borðum fyrir
Árbæinga og aðra Reykvíkinga
fram eftir degi. Jafnframt verður
efnt til skyndihappdrættis með
fjölmörgum góðum vinningum og
unglingar úr dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar sýna táningadansa.
Kl. 9 síðdegis hefst svo hátíðar-
samkoma í skólanum. Þar flytur
frú Svava Ólafsdóttir ávarp, frú
Snæbjörg Snæbjarnardóttir
syngur einsöng, frú Sigríður
Thorlacius, formaður Kvenfélags-
sambands íslands, flytur hátíðar-
Framhald á bls. 27
rennur því blóðið til skyldunnar
og vil með örfáum orðum lýsa
þeim móttökum, sem skjólstæð-
ingar mínir að Tjaldanesi hafa
fengið þar.
Fyrir nokkrum árum fór ég
með fáeina pilta til deildarinnar
og bað um viðgerð á tönnum
þeirra. Mér var ágætlega tekið og
fór þetta svo að allir piltarnir hér
fengu fullkomna meðferð af fær-
ustu tannlæknum. Fólk getur
imyndað sér að þetta var erfitt og
tímafrekt starf. Síðan hafa þeir
farið á hverjum vetri til eftirlits
og aðgerða og alltaf verið jafn-
velkomnir. Starfsstúlkur og
læknar hafa sýnt þeim mikla alúð
og umhyggju og er ég þeim mjög
þakklátur fyrir.
Nú munu vera tímabundnir
erfiðleikar hjá deildinni vegna
tannlæknaskorts, en vonandi ræt-
ist úr þeim sem fyrst. Mér er
kunnugt um að fleiri stofnanir og
heimili hafa fengið fyrirgreiðslu
hjá deild skólatannlækninga og
vildi gjarnan að það kæmi fram.
S.l. sumar gerði Stefán Yngvi
Finnbogason tannlæknir aðgerðir
á nokkrum piltum vegna tann-
holdssjúkdóma og naut þar
aðstoðar Valdemars Hansens
svæfingalæknis. Árangurinn var
með ágætum svo og umhyggja
læknanna fyrir piltunum.
Ur því verið er að tala um
þjónustu við vangefna, vil ég ekki
láta þessu lokið fyrr en ég hef
þakkað læknum og starfsliði
Landakotsspítala fyrir ágæta
umönnun vistpilta héðan, sem
þangað hafa þurft að leita. Um
kennslu og þjálfun vangefinna yf-
irleitt verður ekki rætt hér. Oft er
sagt að við íslendingar séum aft-
arlega á merinni, sérstaklega f
sambandi við heilbrigðisþjón-
ustu. 1 málefnum vangefinna
erum við ekki einu sinni komnir á
bak.
Tjaldanesi, 21. nóv. 1975
Birgir Finnsson.
EITT ORÐ
um Levis áður en þú leítar lengra
Þetta er leðurmiði, sem einungis finnst á gallabuxum sem heita
Levi’s og eru framleiddar úr bezta fáanlega denim efni í heimin-
um. Og sniðið er enn hinn upphaflegi ameríski orginal frá1850.
Líttu inn, fáðu að máta, og ef þú kaupir geturðu verið viss um
að þú gerðir reyfarakaup.
Levrs
r
laugavegi 89
laugavegi 37
13008 10535
Garðar Svavarsson.