Morgunblaðið - 28.11.1975, Síða 19

Morgunblaðið - 28.11.1975, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÖVEMBER 1975 19 EBE fækkar fiskiskipum Briissel, 26. nóvember. Reuter. Framkvæmdanefnd Efnahags- bandalagsins leggur til sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum að 140 milljónum dollara verði varið á næstu fimm árum til að fækka í fiskiskipaflota aðildar- landanna og færa flotann í nú- tímahorf. Tillögurnar hafa ekki beinlínis Ný stjórn á mánudag? Helsinki 27. nóv. — NTB URHO Kekkonen, forseti Finnlands, bað í dag leiðtoga fimm stjórnmálaflokka um að mynda nýja ríkisstjórn f land- inu fyrir næsta mánudag. Kekkonen sagði á fundi með fiokksleiðtogunum að höfuð- markmið þessarar stjórnar hlyti að vera að tryggja at- vinnuöryggið og að forsætis- ráðherra yrði Martti Miettun- en frá Miðflokknum. For- setinn sagði f upphafi fundar- ins að hann hygðist koma á starfhæfri meirihlutastjórn með þátttöku Jafnaðarmanna- flokksins, Alþýðudemókrata- flokksins, Miðflokksins, Frjálslynda þjóðarflokksins og Sænska þjóðarflokksins. Viðræður um myndun nýrr- ar stjórnar í Finnlandi hafa staðið sfðan eftir þingkosning- arnar í september og við völd hefur verið hálfpólitísk emb- ættismannastjórn frá því að ríkisstjórn Sorsa sagði af sér snemma s.l. sumar. Kekkonen sagði í dag, að minni háttar deilur milli flokka mættu ekki leiða til þess að einhverjir þeirra drægju sig út úr stjórn- inni á sama tíma og sívaxandi atvinnuleysi ógnar landinu. áhrif á deilu Efnahagsbandalágs- ins við íslendinga samkvæmt heimildunum en búizt er við að þær eigi að sýna íslendingum að bandalaginu sé ekki síður umhug- að en þeim að koma í veg fyrir ofveiði. Fiskiskipastóll bandalagsins minnkar um 80.000 lestir sam- kvæmt tillögunum og 6.000 sjó- menn á lit^um fiskiskipum missa atvinnuna. Reynt verður að út- vega þeim vinnu í skyldum grein- um eins og skelfiskrækt og lax- eldi. Tillögur nefndarinnar munu snerta um 100.000 manns eða um 80% af hundraði fiskimanna að- ildarlandanna. Tilgangurinn með tillögunum er að koma 1 veg fyrir rýrnun fiskstofna á rhiðum aðild- arlandanna, friða hrygningar- stöðvar og draga úr fjölda þeirra sem byggja lífsafkomu sína á fisk- veiðum. Samkvæmt heimildunum eru tillögurnar nógu sveigjanlegar til þess að hægt verði að taka niður- stöður hafréttarráðstefnunnar með í reikninginn. Enn stuðningur Morning Star London 27. nóvember — AP MORNING Star, málgagn brezkra kommúnista, sagði í ritstjórnargrein F dag að herskipavernd Breta á ís- landsmiðum væri „farsakennd endurtekning á gömlu heimsveldis- tímunum" og ætti eftir að seinka hugsanlegu samkomulagi í fiskveiði- deilunni. „Flotaverndin, — vonlaus tilraun til að stöðva 200 mílna út- færslu íslendinga —, mun aðeins skaða hagsmuni verkamanna í brezkum fiskiðnaði til lengdar. Hún gerir enn erfiðara um vik að ná samkomulagi. Þegar f stað ætti að kalla herskipin til baka. Herskipa- átök verða að vfkja fyrir heiðarlegum samningaviðræðum sem þjóna hags- munum þjóðanna beggja." Áæthm um þing fyrir Skotland og Wales London 27. nóvember — Reuter BREZKA rfkisstjórnin tilkynnti I dag um áætlun sína um að settyrðuá fót sérstök þing fyrir Skotland og Wales innan tveggja eða þriggja ára; og sagði að þessar tillögur væru mikilvægustu stjórnarskrárbreytingar í Bretlandi í margar aldir. Þessar tillögur stjórnarinnar koma fram fyrir þrýsting frá vaxandi þjóðcrnishreyfingum Wales og Skotlands, en tekið er hins vegar fram að stjórnin hafni allri aðskilnaöarstefnu og að allt úrslitavald verði sem áður f London, m.a. varðandi efnahagsmál landsins og stjórnun á olíuauðnum undan Skotlandsströndum. Samkvæmt tillögum ríkis- stjórnarinnar fær þingið í Skot- landi löggjafarvald sem þó Iýtur samþykki Skotlandsmálaráðherra stjórnarinnar. Bæði þingin tak- markast við landshlutamál, t.d. menntun, löggæzlu, húsnæðismál og heilbrigðismál. Fjármagn mun að mestu koma frá London, en þingin hafa heimild til að hækka skatta. Tillögur þessar ganga mun skemmra en þjóðernissinnar hafa farið fram á, og margir Skotar og Walesbúar draga í efa að þær dugi til að gera heimamönnum kleift að leysa eigin efnahags- vanda eins og vaxandi atvinnu- leysi. Hins vegar hefur Ihalds- flokkurinn fordæmt tillögurnar á þeim forsendum að þær muni leiða til þess að Bretland gliðni i sundur. Fromme var fundin sek Sacramento, 26. nóv. AP. LYNETTE (,,Squeaky“) Fromme var 1 dag fundin sek um að reyna að ráða Ford forseta af dögum. Dómur í máli hennar verður felldur 17. desember og hún á yfir höfði sér allt að ævilangt fangelsi. Ungfrú Fromme vildi ekki hlusta á dómsuppkvaðninguna og dómarinn sagði að hún gæti fylgzt með henni í innanhússsjónvarpi í klefa hennar. Hún tók þá fram að hún mundi hlusta en ekki horfa. Kviðdómurinn sem fann ungfrú Fromme seka var skipaður átta konum og fjórum körlum og úr- skurðurinn var einróma. Kvið- dómurinn var 19 tíma að komast að niðurstöðu og um tíma leit út fyrir að hann gæti ekki komið sér saman. Ungfrú Fromme hefur hundsað mestöll réttarhöldin og hélt því fram að hún gæti ekki verið við- stödd nema fjöldamorðinginn Charles Manson og fylgjendur hans bæru vitni. Gustav Husak, leiðtogi kommúnistaflokksins í Tékkðslóvakíu, er um þessar mundir í heimsókn í Sovétríkjunum ásamt nefnd ráðherra og flokksstarfs- manna. Leonid Brezhnev flokksleiðtogi tók á móti Husak á flugvellinum í Moskvu. Ford bjargar New Yorkborg New York, 27. nóv. Reuter. HUGH Carey, ríkisstjóri New York-rfkis, sagði 1 dag að Ford forseti hefði bjargað New York- borg frá gjaldþroti með þeirri ákvörðun sinni að veita borginni alríkislán en varaði við því að framundan væru erfiðir tfmar. Abraham Beame borgarstjóri sagði að erfiðleikum borgarinnar væri ekki lokið og að borgarbúar yrðu að færa fleiri fórnir á næstu mánuðum. Ford forseti hefur ákveðið að fara fram á það við þingið að það samþykki allt að 2.300 milljón dollara lán á ári til borgarinnar frá 11. desember nk. til júníloka 1978 þótt hann hafi hingað til lagzt eindregið gegn lánveit- ingum til borgarinnar. Forsetinn setti ströng skilyrði fyrir lánveitingunni og forystu- menn New York-borgar gengu að þeim. Hann varaði einnig við há- um sektum ef borgin stæði ekki í skilum við endurgreiðslu lán- anna, sem eiga að greiðast með um 8% vöxtum. Aður en Ford skýrði frá ákvörðun sinni á blaðamanna- fundi hafði fylkisþingið í New York samþykkt skattahækkanir og Carey ríkisstjóri lagði fram áætlun sem gerir ráð fyrir 9.400 milljón dollara sparnaði sem á að jafna hallann á reikningum borg- James Prescott, þing- maður Verkamanna- flokksins frá HuII, sem lýsti þvf yfir í viðtali við Mbl. f gær að hann væri andvígur beitingu brezkra herskipa á ís- landsmiðum. Hann er 37 ára gamall. Jón Olgeirsson Vestur-Þjóðverja hvað mesta athygli og einnig sú yfirlýsing sem er höfð eftir Jens Evensen hafréttarráðherra þess efnis að hann útiloki ekki útfærslu norsku landhelginnar í 200 milur, sagði hann. Tveir brezkir togarar, Northern Reward og Crystal Palace, selja á morgun, 45—50 lestir hvor togari, sagði Jón ennfremur. Bretar óttast nýjar aðgerðir BREZKA togarasambandið telur að næstu tveir sólarhringar geti orðið tvfsýnir á miðunum við ís- land samkvæmt brezkum frétt- um, sagði Jón Olgeirsson 1 Grims- by þegar Mbl. hafði samband við hann f gær. Ástæðan er sú, að togarasam- bandið óttast að íslenzku varð- skipin telji sig knúin til að grfpa til áhrifamikilla aðgerða áður en freigáturnar Falmouth og Brigh- ton koma á miðin á laugardag. Jón Olgeirsson sagði, að frá því væri skýrt í Grimsby að varðskip- ið Þór hefði reynt að klippa tog- víra togarans Prince Charles á miðunum fyrir austan Island. Prince Charles hélt sig utarlega í hóp brezkra togara og náði inn vörpunni áður en varðskipinu tókst að komast í námunda við hann og beita klippunum, sam- kvæmt þessum fréttum. Jón sagði að Real Madrid, fyrsti brezki togarinn sem klippt var á, hefði selt í gær 66,6 lestir, aðal- lega þorsk, fyrir 24.120 pund eða 8.2 millj. ísl. kr. Frá því var sagt að togarinn hefði misst þrjá veiði- daga vegna aðgerða íslenzkra varðskipa. Greinilegt er að aðgerðir varð- skipanna hafa haft áhrif á veiðar brezku togaranna og dregið úr afla þeirra, sagði Jón. Annars vekur útifundurinn gegn að- gerðum Breta og samningnum við Einhliða aðgerðir ekki til umræðu — segir Evensen JENS Evensen, hafréttarráð- herra Noregs, sagði f samtali við Morgunblaðiö á gærkvöld, að það væri ekki til umræðu hjá norsku stjórninni eins og á stæði að fylgja for- dæmi Islendinga og færa út fiskveiðilögsöguna í 200 sjómílur. „Við höfum val- ið samningaleiðina,“ sagði Evensen. „og höfum því átt við- ræður við þjóðir, sem hags- muna eiga að gæta. Eg lýsti því yfir f Stórþinginu í dag að við hefðum eitt ár til að ná sam- komulagi við þessar þjóðir. Hafi það ekki tekist á þeim tfma, þá ætti einhver niður- staða að hafa fengist í hafrétt- Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.