Morgunblaðið - 28.11.1975, Síða 30

Morgunblaðið - 28.11.1975, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÖVEMBER 1975 Anna Guðmundsdóttir frá Kringlu - Minning F. 14. mars 1902. D. 22. nóvember 1975. I dag verður til hvílu borin Anna Guðmundsdóttir. Hún Anna okkar í Vonó eins og við systurnar kölluðum hana, var ekki skyld okkur, en þó var hún sú mann- eskja, sem stóð okkur næst, á eftir foreldrum okkar. Minningar mín ar frá fyrstu tíð eru tengdar henni og húsinu hennar við Von- arstræti, því þar bjó ég ásamt foreldrum mínum og systur fyrstu ár ævi minnar. Margt kemur fram í hugann, þegar ég lít aftur til þessara ára: heimilið hennar fallega, sumarbú- staðurinn og hugljúfu gamlárs- kvöldin, sem við áttum alltaf með henni og Helgu dóttur hennar. En þessar minningar eru þóekki það, sem mestu máli skiptir. Tilfinn- ingar þær, er ég ber til önnu eiga sér sterkari rót, þær voru vaktar af þeirri hlýju og skilningi, er hún sýndi öllum, sem til hennar komu. Með þessum fátæklegu lin- um vil ég þakka önnu fyrir alla þá umhyggju, hlýju og umburðar- lyndi er hún auðsýndi mér. Ég mun ávallt geyma minning- una um hana á þeim stað í hjarta mínu, sem ég geymi einstæða dýr- gripi. Þótt ég hafi talað hér frá eigin brjóti, þá veit ég, að allir sem kynntust henni hafa sömu sögu að segja. Anna var óvenju jafnlynd kona, alltaf geislaði sama hlýjan frá henni. Ég veit ekki, hvað það var, sem gerði henni þetta kleift, en ég tel að trúin, trú hennar á ódauðleika lífsins, hafi gefið öllu + Sonur mmn, faðir okkar og bróð- ir GUNNAR SIGURÐSSON, Óðinsgötu 4, lézt af slysförum 26 nóvember Sigrún Einarsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir, Ólafur R. Gunnarsson, og systkini hins látna. + Eiginkona min GUORÚN ERLENDSDÓTTIR. frá Geirmundarbæ, Akranesi, andaðist í sjúkrahúsi Akraness 26 nóv Kristinn Gíslason. + Bróðir okkar, ADOLF FERDINAND JÓNSSON, Engjavegi 3, ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 29 nóvember kl 2 e h Guðrún Jónsdóttir, Klara Jónsdóttir. t Minningarathöfn iim manninn minn, KRISTJÁN ÁSGEIRSSON, Hornbrekkuvegi 8. Ólafsfirði, fer fram i Ólafsfjarðarkirkju, laugardaginn 29 nóvember og hefst kl 2 siðdegis Eva Williamsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, JÓHANNES J. KRISTJÁNSSON. leígubllstjóri, Langholtsvegi 101, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardaginn 29 nóv kl 10 30 f.h. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á liknarstofnanir Unnur Guðmundsdóttir, Sigurþór Jóhannesson, Kristrún Jóhannsdóttir, Kristján Magnússon, Ingibjórg Kristjánsdóttir. + Þakka auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts og jarðarfarar, litlu dóttur minnar, ÞURÍÐAR. er lézt 1 9 nóvember sl Auður Hallgrlmsdóttir og fjölskyldan, Heiðarbraut 7, Akranesi. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför dóttur okkar, INGUNNAR SIGURÐU. Stefanla Ingimarsdóttir, Halldór Gunnarsson. hennar lífi gildi, og ekki bara hennar lífi heldur tókst henni að miðla öðrum ríkulega af lífsskoð- un sinni og veita þeim styrk. Ég kveð hana og þakka fyrir sam- fylgdina. Guðrún Erla. Foreldrar önnur voru Guð- mundur Sigurðsson bóndi á Kringlu i A-Húnavatnssýslu og Anna Sigurðardóttir kona hans. Ólst Anna upp í föðurhúsum þar til er faðir hennar lézt er hún var 19 ára gömul. Fluttist hún þá til Reykjavíkur til móðurbróður síns, Sigurjóns Sigurðssonar tré- smíðameistara og Elínar Jóna- tansdóttur konu hans Vonarstræti 8. Gengu þau henni í foreldrastað í einu og öllu. Endurgalt hún þeim það siðar og þá bezt, er þau þurftu þess mest með. Hélt hún hús fyrir þau og hjúkraði þeim, er elli færðist yfir. Kom hún þeim á allan hátt í dótturstað, ekki sízt eftir að kjördóttir þeirra, Helga dó á bezta aldri (1932). Um skeið vann Anna við verzlunar- og skrifstofustörf. Þótti hún örugg, vandvirk og sam- vizkusöm í þvi sem öðru. Anna bjó lengst af í Vonar- stræti 8, þar til að hún ásamt dóttur sinni, Helgu, og tengda- syni, Kristjáni Óla Hjaltasyni, byggði húsið Tjaldanes 3 í Garða- hreppi og fluttust þau þangað haustið 1970. Þar var þægilega um hana búið, þótt hún nyti þess ekki lengi. Var framúrskarandi vel um hana annazt af dóttur hennar og fjölskyldu, en þau hjónin eiga tvo syni, Sigurjón Þór 8 ára og Sigurð Hjalta 3 ára. Þeir voru augasteinar ömmu sinnar. Tvær systur önnur búa í A- Húnavatnssýslu. Elínborg býr á Blönduósi, en hún var gift Jóni Einarssyni verkstjóra og kennara. Teitný er búsett á Skagaströnd, en hennar maður er Sveinn Kristófersson áður bóndi á Blöndubakka og kunnur hesta- maður. Þriðja systirin bjó á Akureyri, en hún dó 1974. Maður hennar var Hermann Eyf jörð sjó- maður. Það var aðalsmerki Önnur Guð- mundsdóttur að hjálpa öðrum og styðja þá, sem veikir voru á ein- hvern hátt. Til hennar leituðu fjölda margir, sem um sárt áttu að binda eða þurftu styrk í raunum eða mótlæti. Hús hennar var opið öllum slíkum, svo og frændfólki hennar og vinum. Gestrisni hennar var einstök. Þar voru veit- ingar miklar og góðar, en hlýja hennar og vinátta var þó mörgum enn meira virði. Veit ég, að margir hugsa hlýtt til hennar við brottförina til æðri heimkynna. Anna frá Kringlu sat ekki mörg ár ævi sinnar á skólabekk. Hún var eigi að síður vel menntuð kona. Hún sótti þroska sinn út í lífið sjálft og leiðbeindi mörgum og kenndi fram yfir það, sem margir aðrir gerðu, þótt skóla- gengnir væru. Ég trúi því, að hún megi halda áfram á þeirri þroska- braut í nýjum heimi, að hún megi enn styðja þá, sem veikir eru og hjálparþurfi og veita þeim upp- örvun og vaxandi mátt. Ef til vill er á bernskuárunum að finna mestu hamingjudaga mannsævinnar að minnsta kosti hjá þeim, sem alast upp á góðum heimilum og eiga samstæð leik- systkini. Við bræðurnir á Torfa- læk og systurnar á Kringlu vorum leiksystkini öll uppvaxtarár okkar og framundir tvítugsaldur. Bæði þessi heimili voru sérstæð að gestrisni og góðvild og þangað sótti yngri kynslóðin þroska og góða siði. Við lékum okkur saman á heimilum okkar til skiptis, í „Haladalnum“, sem liggur mitt á milli bæjanna, við nið Torfa- lækjarins. Leggur og skel bland- ast einnig þeim minningum, heimur huldufólksins í stórum steinum og hófadynur gæðinga. Þar kemur einnig fram jarmur Iítilla lamba, sameiginleg átök við heyskap og margskonar leikir, bæði úti og inni. Þegar ég hugsa til hinna gömlu og góðu leiksystra minna frá Kringlu, koma þessar og margar fleiri minningar fram í hugann. Þar er margt að þakka. Það var góður skóli, sem við öll nutum þar. Okkur bræðrunum frá Torfa- læk er innilegt þakklæti i hug til þeirra systranna frá Kringlu, önnu, Ellu og Teitnýjar, er við hugsum til margra indælla bernsku- og æskuára og það þakk- læti nær einnig til heimila okkar og þess góða fólks, sem þar vann og lék sér með okkur. Guðmundur Jónsson. Jónas Hallgríms- son — Kveðja Fæddur 12. marz 1910. Dáinn 3. nóvember 1975. Fyrstu kynni mín af Jónasi Hallgrfmssyni voru á Hverfisgötu 18. Var það í afmælishófi, er haldið var þar hinn 2. marz árið 1919 á fæðingardegi fóstursystur minnar, Sigurborgar Ölafsdóttur Landsy. Þá átti Jónas eftir 10 daga til að verða 9 ára gamall. Faðir Jónasar Hallgrímssonar var Hallgrímur Tómasson kaup- maður, er lengi var kenndur við verzlunina Von á Laugavegi 55. Þeir voru miklir vinir Ólafur G. Eyjólfsson stórkaupmaður og Hallgrímur. Spiluðu þeir oft saman ásamt fleirum, bæði lomber og bridge um helgar. Á skrifstofunni hjá Ólafi voru þeir Þórður Albertsson knatt- spyrnumaður og Haraldur Aspe- lund, sfðar starfsmaður hjá Landsfmanum á Isafirði. Þórður var kallaður Doddi kúla. Gerði það að hann var með stórt æxli á hægri augabrún, en eftir að hann hafði látið fjarlægja það, var hann kallaður Doddi laut. Voru þeir báðir alþekktir bæjarbúar, ekki sízt sökum þess að þeir voru báðir í knattspyrnufélaginu Víkingi og mjög áberandi á gamla Melavellinum, er þeir léku knatt- spyrnu þar í gamla daga. Margir menn úr þessu féiagi komu á skrifstofuna hjá Ólafi að heimsækja þá Þórð og Harald, að ræða málin sín í milli. Þangað kom Magnús Brynjólfsson. Sverrir Forberg, Einar B. Guðmundsson, Óskar Norðmann, Helgi Eiríksson bankastjóri, Sigurður Waage forstjóri, Ágúst Jónsson bakari, Halldór Halldórs- son bankastjóri á Isafirði og Páll Andrésson. Hafði Jónas mikil og góð viðskipti við þessa menn, bæði út og suður, þótt hann væri ekki garnall. Byrjaði þá Jónas að safna frí- merkjum og fleiru. T.d. man ég eftir því að hingað kom þýzkt eftirlitsskip, sem hét Der kleiner kruser Berlín. Höfðu þeir sjóliðar komið hingað í heimsókn eftir fyrri heimsstyrjöldina 1914—18. Allt var í kaldakoli hjá þessum aumingjum. Þeir voru með háa stafla af peningum, er þeir vildu skipta fyrir íslenzka. Þeir fengu 2—3 krónur fyrir 500 milljón marka seðil og jafnvel meira, en enginn vildi kaupa. Var nú í þetta skipti Jónas f heimsókn hjá mér, og ætluðum við í gömlu sundlaug- arnar hjá Páli gamla. Urðu þá á vegi okkar nokkrir sjóliðar og yfirmenn skipsins. Tók Jónas þá tali, en málið var talað með fingr- unum, esperantó og golfranska og ég veit ekki hvað, en þó virtust þeir skilja hver annan. Fór nú Jónas á fund þeirra Þórðar og Haralds og fékk hjá þeim tíu krónur að láni þangað til daginn eftir, sem Jónas stóð við, eins og við var að búast af þeim góða dreng. Satt að segja vorkenndi Jónas mönnunum mikið. Ætlaði nú Þórður að láta Jónas hafa 10 krónur í heilu lagi, en því hafnaði Jónas, vildi fá peningana f smáu. Tók þá Haraldur upp fimm króna seðil, ekki var það samt lausnin. Var þá Jónas sendur í verzlunina Vísi á Laugavegi 1. Þar var Gústi verzlunarstjóri hjá Sigurbirni til staðar og lét Jónas hafa tfu krónur í smáu. Voru það 6 krónur f krónuseðlum. Voru þeir kallaðir kvislingar í þá daga, og fjórar krónur f kopar og öðru dóti. I þá daga var töluvert eftir af dönsk- um peningum, einkum smáaur- um. Eins og gamlir borgarbúar muna voru hér danskir peningar allt til 1918. Skipti nú Jónas þess- um peningum jafnt á milli þeirra meðan þeir dugðu, og fékk Jónas f staðinn margar milljónir marka. Vaknaði þá sá draumur hjá Jónasi að safna gömlum pen- ingum. bæði seðlum og smámynt auk frímerkja. Hafði ég útvegað Jónasi nokkrum sinnum feitan bita í frímerkjum og fleiru, því að ég var kunnugur ýmsum mönnum hér í borg, og yrði það nokkuð langt að telja upp hér. Vorum við saman hjá Sigríði Árnadóttur skrifstofukennara Verzlunarskólans. Þá var hún til húsa á Smiðjustíg. Lærðum við Jónas hjá henni einn vetur bæði skrift og fleira. Verður mér það ætíð minnisstætt, þegar Jónas var að skrifa stíl og skrifaði pappi í stað pabbi. Rauk Sigrfður upp til handa og fóta af reiði og skömm- um. Var hún ætíð klár með prikið að berja fingurgómana, því að hún vildi halda aga f sínum húsum. Var Sigríður sómakona og góður kennari. Faðir Jónasai; Hallgrímur, rak hér umfangsmikla matvöruverzl- un, sem hét „Von“. Þangað komu margir bændur að austan, þegar þeir voru búnir að losna við fé sitt, er þeir ætluðu fil slátrunar. Var féð rekið hingað til Reykja- vfkur á lifandi fæti. Fyrir utan verzluna var oft þröng á þingi, einkum á vorin og haustin, þegar bændur keyptu vörur til heim- ferðar. Voru margir hestar í umferðinni. Þeir voru flestir klyfjaðir með hertum þorskhaus- um, en vagnar voru undir aðra vöru. Hafði Jónas safnað kynstrum af gömlu rúgbrauði, er hann gaf hestunum, og var það vel þegið af málleysingjunum. Sýndi þetta hve mikinn manndóm Jónas hafði, var hann bæði ábyggilegur og góður drengur, og það sem Jónas sagði, það stóð. Liðu nú árin eins og gengur. Arið 1924 fór ég nú til sjós, var ég nú á Goðafossi II. í 6 ár samfleytt, kom þá Jónas alltaf um borð til mín, þegar við vorum hér í Rvík. Þótti honum góður gamli Carls- ber eins og fleirum.— Votta ég konu hans og börnum innilega samúð mína. Pétur Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.