Morgunblaðið - 28.11.1975, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÖVEMBER 1975
33
fclk f
fréttum
+ Líkamsrækt er iðkuð f margvfslegu augna-
miði. Sumir stæla vöðva sfna til að geta kastað
kringlu, kúlu, sleggju, eða hvað þetta heitir nú
allt saman, lengra en einhver annar. Sumir til
að geta sparkað tuðru eða kastað fastar og
nákvæmar. Sumir stæla vöðva sfna til þess eins
að halda sýningar á kropp sínum og gjörvileika
— og hafa meira að segja af því atvinnu. Nýlega
var haldin í S-Afrfku mikil keppni þar sem
karlar frá 37 þjóðum sýndu kroppa sfna, þeir
voru mældir f bak og fyrir eins og á hrúta-
sýningu og sfðan var deilt út verðlaunum þeim
til handa sem glæsilegastan þóttu hafa vöxtinn.
Sigurvegari varð Arnold Sehwarzenegger frá
Amerfku og sést hann hér taka við verðlaunum
sfnum, með honum á myndinni eru fþróttamála-
ráðherra S-Afrfku og formaður Alþjóða-
sambands „Kroppsuppbyggjara" (Body-
builders).
+ Golfíþróttin á stöðugt meiri vinsældum að
fagna meðal yngri sem eldri. Kjartan L. Pálsson
blaðamaður er einn þeirra, sem stundar golfið
kappsamlega og iðkar hann þessa fþrótt sfna hjá
Golfklúbbi Ness á Seltjarnarnesi. Auk þess að
vera vel liðtækur kylfingur þá hefur Kjartan
verið ódrepandi við félagsstarfið hjá Nes-
klúbbnum og sannast sagna verið f öllum nefnd-
um klúbbsins meira eða minna undanfarin ár
að kvennanefndinni undanskilinni. Nes-
klúbburinn hefur kunnað að meta hið mikla
starf Kjartans og nýlega afhenti klúbburinn
honum veglegan vasa á fæti þar sem á voru
rituð þakkarorð fyrir frábær störf að félags-
málum klúbbsins. — Hjá okkur í NK er tak-
markið ekki að vinna til stórafreka á fþrótta-
sviðinu, heldur að hafa góðan og fallegan völl,
sem við vinnum sjálf, þvf við þiggjum enga
styrki frá hinu opinbera eða frá íþróttahreyf-
ingunni. Við viljum hafa ánægða félagsmenn og
konur á öllum aldri og gott félagslff og þvf
takmarki þykjumst við hafa náð. Meðfylgjandi
mynd er tekin af Kjartani með vasann sem hann
fékk frá félögum sfnum innan um verðlauna-
gripi, sem hann hefur hlotið fyrir golfið. A
veggnum má einnig sjá skildi með merkjum
íþróttafélaga, en Kjartan mun eiga eitt full-
komnasta safn þeirrar tegundar á Norðurlönd-
um.
+ Veran á myndinni, sem
hvílir þarna f höndum gæzlu-
manns f dýragarði í Chieago,
virðist f rauninni með öllu ólík
foreldrum sfnum, sem eru stór-
ir og stæðilegir ísbirnir ættaðir
frá norðlægum slóðum fss og
auðnar. Við fæðinguna vó
bjarnarunginn aðeins rúmlega
2 pund, en fullorðinn verður
þyngd hans sennilega nokkur
hundruð kíló. Ungaskinnið var
heldur vesældarlegt við
fæðinguna og verður látinn
dveljast f súrefniskassa fyrstu
vikur lffs sfns.
+ Sagt er að Zsa Zsa Gabor
velti þvf nú mikið fyrir sér
hvort hún eigi ekki að skilja
við mann sinn, Jack Ryan.
Hann er sjöundi eiginmaður
frúarinnar. — Við gerum ekki
annað en að rffast, segir Gabor,
og ég hef ekki hugsað mér að
eyða æsku minni f rifrildi, hélt
Gabor áfram, en hún er nú 58
ára...
+ Gilbert O’Sullivan ku hafa
sagt nei takk þegar honum var
boðið að gerast dómari í
Alheims fegurðarsani-
keppninni nýlega — Ég læt
mér nægja eina stúlku sagði
Gilbert og hugsaði víst um
hana Ase Brekke frá Noregi en
hún er uppáhaldsvinkonan
hans um þessar mundir.
IMý sending
Vetrarkápur með og án skinna.
Pelskápur, kuldajakkar og loðhúfur.
Kápu og Dömubuðin,
Laugavegi 46.
Sænsku sófasettin
nýkomin
klædd riffluðu flaueli
5 litir verð mjög hagstætt
© Vörumarkaðurinn h í.
Armúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-11 2 Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S 86 1 1 3
VERKSMIÐJU-
SALA
Barnabuxur úr denim
flauel og terelyne
Kven- og herrabuxur
úr denim, flauel og
terelyne.
Kvenjakkar, kápur
og fl.
Efnisbútar í mjög
góðu úrvali.
Aðeins í dag og á morgun
Opið í dag frá kl.
8 f.h.til kl. 10 e.h.
Fatagerðin BÓT,
Bolholti 6, 3. hæð