Morgunblaðið - 28.11.1975, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975
eru þeir Sæmundur
Vidar Símonarson, iandsliðsþjálfari f baráttu við bezta leikmann
Stefánsson og Stefán Hafstein og verður ekki annað séð en að hinum
Ármannsliðsins, Pétur Ingólfsson. Til vinstri
sfðarnefnda þyki tilburðir Viðars broslegir.
Vörn og markvarzla FH-inga í molnm og
það kostaði tap fyrir Ármenningnm 22-23
EFTIR fyrri umferð 1. deildar
keppni Islandsmótsins f hand-
knattleik er óhætt að segja að
deildin sé „opin í báða enda“, og
þá ekki sízt vegna úrslita leikja í
fyrrakvöld, þar sem tvö af topp-
liðunum f deildinni töpuðu fyrir
botnliðunum. Fyrst vann Þróttur
Hauka 19—18, og Armenningar
komu svo og bættu um betur með
því að sigra FH-inga 23—22 f
mjög spennandi, en ekki að sama
skapi vel leiknum leik. Verður
þvf ekki neitað, að eftir þessi
úrslit standa Valsmenn langbezt
að vígi f 1. deildar keppninni að
fyrri umferðinni lokinni. Hafa
aðeins tapað þremur stigum,
meðan það lið sem næst gengur,
Haukar, hafa tapað 5. Má ljóst
vera að haráttan verður gífurlega
hörð seinni hluta mótsins og verð-
ur þar sennilega hver einasti leik-
ur úrslitaleikur.
FH-ingar gáfu í fyrrakvöld á
því bærilega skýringu hvernig
þeir fengu jafnmikinn skell fyrir
norska liðinu Oppsal í Evrópu-
bikarkeppninni á dögunum og
raun varð á. Um langt árabil
hefur maður ekki séð FH-liðið
öllu slakara en það var á móti
Ármenningum í fyrrakvöld. Að-
eins einn leikmaður FH-liðsins
stóð þar upp úr, Geir Hallsteins-
son, en hann var líka góður. Er
slæmt að Geir skyldi ekki gefa
kost á sér f landsliðið, en í það á
hann tvímælalaust mikið erindi. í
FH-liðinu á Geir hins vegar í tölu-
verðum erfiðleikum, þar sem
félagar hans eru hvergi nærri af
sama gæðaflokki. Er næstum
óskiljanlegt hvernig FH-Iiðinu
hefur hrakað frá því í fyrra og
árið þar áður er það hreppti
íslandsmeistaratitilinn. Einkum
og sér í lagi er vörn FH-liðsins
slök,1 og markvarzlan einnig á
núllpunkti oftastnær. Fengu Ár-
menningar í leiknum f fyrrakvöld
oft að labba í gegnum vörn Hafn-
firðinganna, og þegar það tókst
ekki höfnuðu langskot þeirra eða
skot úr bláhornunum í markinu,
án þess að markverðirnir fengju
Elnkunnaglöfln
Lið Ármanns:
Ragnar Gunnarsson 2
Stefán Hafstein 2
Björn Jóhannesson 2
Pétur Ingólfsson 4
Hörður Harðarson 3
JensJensson 1
Gunnar Traustason 1
Jón Astvaldsson 2
Jón V. Sigurðsson 1
Friðrik Jóhannsson 1
Grétar Árnason 2
Skafti Halldórsson 2
Lið FH:
Hjalti Einarsson 1
Guðmundur Sveinsson 2
Sæmundur Stefánsson 2
Viðar Símonarson 2
Gils Stefánsson 1
Guðmundur Arni Stefánsson 1
Kristján Stefánsson 1
Geir Hallsteinsson 4
Örn Sigurðsson 1
Þórarinn Ragnarsson 2
Guðmundur Magnússon 1
Birgir Finnbogason 1
Dómarar:
Valur Benediktsson og
Magnús V. Pétursson 2
Lið Þróttar:
Kristján Sigmundsson 1
Marteinn Árnason 3
Bjarni Jónsson 3
Trausti Þorgrímsson 2
Sveinlaugur Kristjánsson 2
Gunnar Gunnarsson 1
Friðrik Friðriksson 3
Halldór Bragason 2
Úlfar Hróarsson 1
Konráð Jónsson 2
Björn Vilhjálmsson 2
Hafliði Kristinsson 1
Lið Hauka:
Gunnar Einarsson 2
Svavar Geirsson 2
Ingimar Haraldsson 2
Ólafur Ólafsson 2
Jón Hauksson 1
Guðmundur llaraldsson 1
Sigurgeir Marteinsson 3
Hörður Sigmarsson 2
Elías Jónasson 2
ArnórGuðmundsson 2
Stefán Jónsson 1
Dómarar:
Karl Jóhannsson og
Hannes Þ. Sigurðsson 3
við ráðið. Sóknarleikur FH-inga
var einnig ákaflega staður og líf-
lítill. Leikmennirnir stilltu sér
upp og stóðu stundum sem negld-
ir við gólfið. Auðveldaði þetta Ár-
menningum mjög vörnina.
En auðvitað áttu Ármenningar
einn af sínum betri dögum, og það
þarf ekki að gera öðru skóna
en að þeir komist vel frá
seinni umferðinni og takist þá að
slíta töluvert af stigum. Barátta
var feikilega góð i liðinu, sérstak-
lega í fyrri hálfleik og tókst þá
vörninni að loka leiðinni að marki
sínu, hvað eftir annað. Beztur Ár-
menninga í þessum leik var hinn
ungi Pétur Ingólfsson, sem ellefu
sinnum sendi knöttinn í FH-
markið, og þar af aðeins einu
sinni úr vítakasti. Pétur er mjög
laginn og fjölhæfur leikmaður
sem án efa kemst í fremstu röð
íslenzkra handknattleiksmanna
með meiri líkamlegum þroska.
Eftir að staðan hafði verið
14—10 fyrir FH í hálfleik í fyrra-
kvöld áttu flestir von á nokkuð
stórum sigri liðsins. En í seinni
hálfleik var mun betri hreyfing á
Armannsvörninni en verið hafði í
fyrri hálfleik og það hreinlega
nægði þeim til sigurs. Mikil
spenna var á lokamínútunum og
eftir að Ármenningar höfðu náð
forystu 23:22 var dæmt á þá víta-
kast. Þórarinn Ragnarsson tók
vitakastið, en brást bogalistin I
skoti sínu, þannig að Ragnar
Gunnarsson Ármannsmarkvörður
átti auðvelt með að verja. Fyrr i
leiknum hafði Ragnar varið ann-
að vítaskot Þórarins.
Auk Péturs Ingólfssonar er
ástæða til að hrósa Herði Harðar-
syni Ármenningi sérstaklega
fyrir þennan leik, en í heild stóð
liðið sig mun betur en ráð var
fyrir gert, og sýnir að það mun
ekki láta hlut sinn baráttulaust
eftirleiðis.
IR hefur lítið í
2. deild að gera
ÞAÐ má öllum Ijóst vera sem
fylgst hafa með handknattleikn-
um á fslandi I vetur að lið fR, sem
nú leikur I 2. deild, á þar lítið
erindi. Liðið er tvfmælalaust með
skárri fslenzku liðunum, og væri
það I fyrstu deild mætti alveg
eins ætla að það væri þar ofar-
lega. Leikur liðsins nú er til að
mynda miklu betri og heilsteypt-
ari en hann var f fyrra, og engin
spurning að leikmennirnir eru 4
betri þjálfun. Má það teljast vitni
um breiddina f íslenzkum hand-
knattleik að þetta lið er ekki
öruggt um sigurinn í 2. deild, þótt
Iíklegt verði að teljast að það
standi þar uppi sem sigurvegari í
vor.
Mfkið má vera ef landsliðs-
nefndarmennirnir Ágúst Ög-
mundsson og Vjðar Símonarson
hafa nokkru sinni ómakað sig við
að horfa á IR-Iiðið. Þar eru leik-
menn sem eiga fremur erindi i
landsliðið en sumir sem þar eiga
nú sæti og ber þar fyrst að nefna
þá Ágúst Svavarsson sem undir-
ritaður hefur tæplega séð betri en
hann er um þessar mundir, og
Jens G. Einarsson markvörð sem
einnig er í mikilli framför og
hefur það t.d. fram yfir aðra ís-
lenzka markverði að kasta betur
og nákvæmara út og byggja
þannig upp hraðaupphlaup. Á
þann hátt skorar ÍR jafnan mörg
mörk í leikjum sínum.
1 fyrrakvöld léku ÍR-ingar við
Leikni og höfðu allt frá upphafi
yfirburði í leiknum. Svo mikla
yfirburði að þeir virtust hrein-
lega ekki leggja á það áherzlu að
láta kné fylgja kviði og vinna enn
stærri sigur. Úrslitin urðu 31—19,
og var það sízt of mikið að ÍR-
ingar skoruðu yfir 30 mörk, en
hins vegar of mikið fyrir þá að fá
19 mörk á sig. Komu 13 þeirra í
seinni hálfleik, er ÍR-ingarnir
voru greinilega búnir að sleppa
Framhald á bls. 39
STAÐAN
Staðan I 1. deild Íslandsmóts-
ins í handknattleik er nú þessi:
Valur 7 5 1 1 135:103 11
Haukar 7 4 1 2 130:116 9
FH 7 4 0 3 146:136 8
Vikingur 7 4 0 3 141:138 8
Fram 7 2 2 3 106:107 6
Þróttur 7 2 1 4 119:133 5
Ármann 7 2 1 4 111:142 5
Grótta 7 2 0 4 121:134 4
Páll Björgvlnsson
Markhæstir
Páll Björgvinsson, Vikingi 47
Friðrik Friðriksson, Þrótti 45
Hörður Sigmarsson, Haukum 43
Björn Pétursson, Gróttu 37
Pálmi Pálmason, Fram 37
Viðar Simonarson, FH 34
Geir Hallsteinsson, FH 33
Þórarinn Ragnarss., FH 33
2. deild
Staðan i 2. deild er sem hér
segir: ÍR 6 6 0 0 161:93 12
KA 5 4 0 1 108:91 8
KR 5 3 0 2 110:101 6
Leiknir 6 3 0 3 120:133 6
Fylkir 4 2 0 2 66:72 4
Þór 5 10 4 108:114 2
ÍBK 5 1 0 4 83:107 2
UBK 4 0 0 4 56:101 0
Brynjólfur Markússon
Markhæstir:
Eftirtaldir eru markhæstir i 2.
deild:
Brynjólfur Markússon, ÍR 39
Hermann Gunnarsson, Leikni 39
Hafliði Pétursson, Leikni 34
Ágúst Svavarsson. ÍR 33
Hilmar Björnsson, KR 33
Simon Unndórsson. KR 31
Sigtryggur Guðlaugsson, Þór 23
Grétar Grétarsson, ÍBK 21
Þorleifur Ananíasson, KA 21
Ármann Sverrisson, KA 20
1. deild kvenna
Staðan i 1. deild kvenna er nú
þessi: Valur 2 2 0 0 45:18 4
Fram 2 2 0 0 37:17 4
FH 2 2 0 0 34:14 4
UBK 2 1 0 1 23:22 2
Ármann 2 1 0 1 24:26 2
KR 2 0 0 2 18:33 0
Vtkingur 2 0 0 2 15:34 0
Sigrún Guðmundsdóttir
Markhæstar
Efti'taldar eru markhæstár i 1.
deild kvenna.
Sigrún Guðmundsdóttir,
Val 18
Erla Sverrisdóttir, Ármanni 11
Jóhann Halldórsdóttir,
Fram 10
Svanhvit Magnúsdóttir, FH 9