Morgunblaðið - 21.01.1976, Síða 19

Morgunblaðið - 21.01.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÁNÚAR 1976 19 Viðbrögðin í Bretlandi Bretar vona að áreitni við togarana verði hœtt ROY Hattersley aðstoðarutan- rfkisráðherra sagði þegar hann skýrði Neðri málstofunni f gær frá ákvörðuninni um brottköll- un fslenzku varðskipanna frá Islandsmiðum, að það væri „von og álit“ brezku stjórnar- innar, að engin áreitni fslenzkra varðskipa við brezka togara fylgdi f kjölfarið. Hann staðfesti, að brezku herskipin mundu aftur hefja verndar- störf ef áreitni yrði haldið áfram. Hattersley skýrði frá því að Harold Wilson forsætisráð- herra mundi senda Geir Hallgrímssyni forsætisráðherra orðsendingu þar sem hann byði honum að koma til Lundúna eins fljótt og unnt væri til að hefja nýjar samningaviðræður. Talsmaður Ihaldsflokksins í utanríkismálum, Reginald Maudling, sagði að Bretar hefðu lítið grætt á fiskveiðideil- unni við Islendinga og trúnaðartraust Verkamanna- flokksstjórnarinnar hefði ekki aukizt við hana. Maudling sagði að brezka stjórnin hefði átt að kalla til milligöngumann fyrir mörgum vikum. Hann sagði að það hefðu verið íslendingar sem hefðu tekið frumkvæðið með því að kalla til aðalfram- kvæmdastjóra NATO, Josep Luns, sem hefði komið nokk- urri hreyfingu á málin. Hattersley lagði áherzlu á að brezka stjórnin væri enn „reiðubúin til viðræðna um samning sem fæli í sér i viður- kenningu á sérstakri þýðingu fiskveiða fyrir tslendinga og þörfinni á tilhlýðilegum ráð- stöfunum til að vernda þorsk- stofna." „Hins vegar,“ sagði hann, „mun stjórnin einnig og af mjög eðlilegum ástæðum taka fullt tillit til mikilvægis þessara fiskveiða fyrir lífsafkomu togaramanna okkar sjálfra og þeirra byggðarlaga I Bretlandi sem eru háð þeim.“ Hattersley sagði að stjórnin teldi að brottk’öllun freigátanna og Nimrod-flugvélanna mundi koma til leiðar andrúmslofti sem gæti leitt til viðræðna milli Breta og íslendinga. Maudling sagði: „Við fögnum öllu þvi sem getur bundið enda á, á sanngjörnum grundvelli, þessa hörmulegu deilu.“ A eftir fylgdi sú athugasemd hans að Bretar hefðu lítið grætt á deil- unni og trúnaðartraust stjórnarinnar alls ekkert. Hann spurði hvort stjórnin ráðlegði brezkum sjómönnum að halda áfram veiðum á sömu slóðum og hvort nokkurt samkomulag hefði verið gert við Islendinga um að engin frekari áreitni yrói sýnd brezkum togurum eftir brottköllun herskipanna. Enn fremur hvort sjóherinn gæti flýtt sér aftur á vettvang ef nauðsyn krefði. Maudling minnti einnig á, að hann hefði lagt til 12. desember Roy Hatterslay að stjórnin bæði kunnan for- ystumann í heimsmálunum að reyna að stuðla að lausn deil- unnar, en Hattersley hefði vísað hugmyndinni á bug og sagt að tslendingar vildu ekkert af því tagi. En síðan hefðu Islendingar sjálfir tekið frumkvæðið og boðið dr. Luns, framkvæmdastjóra NATO að taka þátt I samningavið- ræðunum. Betra hefði verið af brezka stjórnin hefði tekið frumkvæðið fyrir nokkrum vikum. Hattersley svaraði: „Mérþyk- ir leitt að heyra að þér finnst þetta mál auka lítið trúnaðar- traust stjórnarinnar. Þangað til í dag hefur þú við öll tækifæri stutt stefnu stjórnarinnar. Hann bætti því við að stjórnin fylgdi sömu stefnu og stjórn sú sem Maudling hefði átt sæti í fyrir tveimur árum. „I ljósi þess sem dr. Luns sagði utan- ríkisráðherra I gær er það von okkar og álit að engin áreitni verði höfð i frammi eftir brott- köllun sjóhersins.“ Aðstoðarutanríkisráóherrann sagði að herskipin væru nú á leiðinni til svæóis rúmlega 200 mílur frá Islenzku ströndinni en þau gætu snúið aftur fljót- lega ef einhver frekari áreitni ætti sér stað. John Stonehouse, sem er frægari fyrir vafasama fjár- málastarfsemi en þing- mennsku, kvaðst telja að dóm- greind utanríkisráðherra hefði verið ábótavant en gripið var fram i fyrir honum hvað eftir annað með hrópum eins og „þvaður". Hann sagði að kom- ast hefði mátt hjá „lítillækk- andi undanhaldi" ef aóstoðar- utanríkisráðherrann hefði haldið viðræðunum við Islend- inga áfram og fallizt á 65.000 tonna ársafla. Hattersley svaraði á þá leið að aðeins hefði verió hægt að komast hjá erfiðleikum ef is- lenzka ríkisstjórnin hefði verið reiðubúin til raunverulegra samningaviðræðna. James Johnson, þingmaður frá Hull, sagði að margir skip- stjórar í Hull og öðrum brezk- um útvegsbæjum yrðu ekkert ánægðir með brottköllun her- skipanna en sættu sig við hana þar sem þeim væri lofað að herskipin kæmu aftur til hjálp- ar ef togararnir kæmust I hættu. „Ég fagna ákvörðun rík- isstjórnarinnar. Ég tel að ekki sé hægt að komast öðru vísi út úr sjálfheldunni." Hann spurði Hattersley um fréttir að tslendingar mundu samþykkja 90.000 tonna ársafla ef Bretar veiddu fleiri fiskteg- undir en þorsk. Hattersley sagði eina tilboð Islendinga vera 65.000 tonn. Jo Grimond, þingmaður Orkneyja og Hjaltlands og fyrr- verandi leiðtogi Frjálslynda flokksins, sagði að lokalausnin væri alþjóða samkomulag um fiskveiðilögsögu og fiskvernd. Hann hvatti Hattersley til að berjast fyrir 200 mílna brezkri fiskveiðilögsögu í viðræðum í framtiðinrii. Hattersley sagði: „Stjórnin mun leggja sitt af mörkum til að koma til leiðar þeirri lausn, sem þér leggið til.“ Hattersley bætti þvi við að þótt hafa yrði langtíma sjónar- mið í huga í deilunni væri ef til vill hægt að finna bráðabirgða- lausn ef íslenzki forsætisráð- herrann kæmi til viðræðna eft- ir nokkra daga eins og vonir stæðu til. Kevin McNamara, þingmaður Verkamannaflokksins frá Hull, sagði að óviðeigandi væri ef .þingið léti ekki I ljós ánægju Framhald á bls. 31. Breytt viðhorf NATO BREZK blöð hafa að undan- förnu birt fjölda lesendabréfa varðandi landhelgisdeiluna, og er athyglisvert hve mörg þeirra eru hliðholl Islendingum. Hér fara.á eftir tvo lesenda- bréf, sem birtust I The Times I London 15. janúar, og er það fyrra gott dæmi um hug margra til íslands, en í því sfðara birt- ist athyglisverður punktur, sem lítið hefur komið fram fyrr. Fyrra bréfið er frá Geoffrey Gorer, sem segir m.a.: „Ég vil þakka ykkur fyrir greinina „Skynsamleg lausn á þorskastríðinu“ (13. janúar); en mér þykir leitt að þið skulið ekki hafa lýst þeirri skömm, sem ég, og ég veit að margir aðrir lesendur ykkar, hef á lát- um konunglega flotans, eins og þeim er lýst á siðum ykkar og birtast á hverju kvöldi á sjón- varpsskermunum. Mér finnst að sem þjóð högum við okkur rétt eins og skólafantur, sem neyðir þá minni og veikari til að gefa sér sælgætið og vasa- peningana sína; það er ekki framkoma, sem við getum verið hreyknir af.“ Síðara bréfið er frá P. Herodotou, sem búsettur er í London. Hann segir: „Undanfarna daga hef ég verið að lesa um það að dr. Luns, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sé að skerast I ensk-íslenzku deiluna til að leita lausnar. Ekki er að efa að NATO stendur einhuga að baki dr. Luns, og ég get ekki annað en óskað honum góðs gengis. Fyrir hálfu öðru ári, þegar grísku herforingjarnir stóðu að stjórnarbyltingu og steypu ríkisstjórn Kýpur, sem leidd; til innrásar Tyrkja á eyjuna, ásök- uðu grískættaðir Kýpurbúar NATO fyrir getuleysi, og fyrir neitun bandalagsins við að beita áhrifum sinum á aóildar- ríkin (Grikkland og Tyrkland) til að koma i veg fyrir styrjöld, sem leiddi til dauða þúsunda saklausra manna. Afsökun NATOs þá var að bandalagið væri stofnað i öðr- um tilgangi, það er að vernda Vesturveldin og aðildarríkin gegn ásókn kommúnista, og það hefði því ekki aðstöðu til að leysa innbyrðis ágreining rikj- anna. Getur einhver vinsamlegast útskýrt það fyrir Kýpurbúum hvers vegna NATO hafði enga möguleika í því tilviki til að koma i veg fyrir deilu, sem leiddi til styrjaldar og dauða, og kippti stoðunum undan efna- hag landsins, úr því að NATO hefur skyndiiega öðlazt mögu- leika til afskipta og aðstoðar i brezk-íslenzku deilunni?" Almenn skoðun að horfur séu á samningum — segir Austin Laing MBL sneri sér til Austin Laing, formanns samtaka brezkra togaraeigenda, i gær og spurði hann álits á síðustu atburðum land- helgismálsins. Austin Laing sagði: „Við erum afar ánægðir með það svigrúm sem nú virðist vera til samningaviðræðna rfkisstjórnanna, og við vonum einlæglega, að viðunandi samningar náist fljótlega. Þetta er það, sem við höfum viljað allan tfmann, og þess vegna er það von okkar, að dr. Joseph Luns hafi nú tekizt að haga málum svo, að samningar séu möguleg- ir. Ég geri mér vonir um, að allir séu sammála um, að nú sé sá tfmi kominn, að allir hafi áhuga á málamiðlun. Mér virðist það vera almenn skoðun manna hér, að nú séu horfur á samningum," sagði Austin Laing að lokum. Yfirmenn á togur- um undrast ákvörð- un Callaghans — segir Tom Nielsen Morgunblaðið hafði I gær samband við Tom Nielsen, framkvæmdastjóra samtaka yfirmanna á togurum I Hull, og spurði um viðhorf hans til þeirrar ákvörðunar brezku ríkisstjórnarinnar að kalla flotann brott af Islandsmiðum og fyrirsjáanlegra samn- ingaviðræðna: „Við erum mjög undrandi yfir þvl, að Callaghan utanrfkisráð- herra skuli telja við hæfi að fara með freigátur brezka flotans af miðunum, sérstaklega þar sem ekki liggur fyrir nein trygging fyrir þvf, að fslenzku varðskipin haldi ekki áfram að áreita skipin okkar. Við viljum, að setzt verði að samningaborði og samið um það, sem báðir aðilar geta sætt sig við. Það er það, sem við viljum.“ Þá var Tom Nielsen að þvf spurður hvort hann teldi horfur á samningum á næstunni: „Ég er þess fullviss, að séu báðir aðilar nú reiðubúnir að gefa eitthvað eftir, þá sé hægt að komast að samkomulagi, sem allir geti gert sig ánægða með. En ég er Ifka þeirrar skoðunar, að 65 þúsund tonnin, sem nefnd hafa verið f fyrri viðræðum, séu ekki nóg, og við búumst við hagstæðara tilboði nú,“ sagði Tom Nielsen. býst James Johnson við samkomulags- grundvelli á fundi Geirs og Wilsons I viðtali við Mbl. í gær sagðist James Johnson, þingmaður Verkamannaflokksins frá Hull búast við þvf, að Geir Hallgrímsson hefði fram að færa tillögur, sem orðið gætu samkomulagsgrundvöllur í fiskveiðideil- unni, þegar hann kæmi til fundar við Ilar- old Wilson f Lundúnum. „Ég vona, að hægt verði að semja um eitthvað á meðan niðurstaða hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna liggur ekki fyrir, en ég hef þá trú, að þegar á ráðstefnuna er komið, verði gert allsherjarsam- komulag um að allir færi út lögsögu sfna. Þá horfir málið Ifka allt öðru vfsi við. Ef við komumst að slfkri niðurstöðu á alþjóðlegri ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, þá munu allir hjálpast að við slfka framkvæmd, en eins og málið horfir nú við, þá gera tslendingar þetta upp á sitt eindæmi. Það er þetta, sem við getum ekki sætt okkur við. Það er ekki sjálf útfærsla fiskveiðilögsögunnar, sem við setjum fyrir okkur, heldur hvernig að henni hefur verið staðið — að ekki skuli hafa verið hægt að hafa um hana gagnkvæmt samkomulag ' Þá sagðist James Johnson hafa spurt Roy Hattersley, aðstoðar- utanrfkisráðherra Breta, f umræðum f Neðri málstofunni f gær, hvort ekki væri hugsanlegt að fá aðrar Norðurlandaþjóðir til að hafa milligöngu um sættir f dcilunni, færu viðræður enn út um þúfur. Kvaðst hann hafa nefnt Svfa og Finna sérstaklega f þvf sambandi, en þó einkum Finna, sem hvorki ættu hlut að máli f Atlantshafsbandalaginu eða Efnahagsbandalaginu, enda hefði hann áreiðanlegar heimildir fyrir þvf, að tslendingar gætu sætt sig við Finna sem milligöngumenn. „Ég Ift á þetta sem hugsanlcga leið til lausnar á þeirri deilu sem bæði Bretar og tslendingar vilja sjá fyrir endann á sem allra fyrst, reynist samningaviðræður gagnslausar að þessu sinni,“ sagði Jamcs Johnson. „En nú gerum við okkur vonir um, að Geir Hallgrímsson komi til London þegar f þessari viku, og að þeir Harold Wilson geti komið sér saman um eitthvað meira en 65 þúsund tonn, en hversu mikið veit ég ekki. Mér virðist smáatriði yfirleitt hafa orðið til þess að hindra framgang þessa máls. Mér skilst, að fslenzkir fiskifræðingar haldi þvf fram, að ekki sé hægt að veiða meira en 230 þúsund tonn á ári, en okkar menn segja hins vegar, að óhætt sé að veiða 265 þúsund tonn. Þess vegna finnst mér hryggilegt, að við skulum vera að deila um 35 þúsund tonn þegar fyrir liggur, að verði hafizt handa nú þegar um verndun fiskstofna, þá muni þeir þola allt að hálfrar milljón tonna veiði eftir þrjú til fjögur ár, þannig að þá verði nóg handa öllum. Þetta er sjónarmið sem mér finnst nauðsynlegt að taka tillit til,“ sagði James Johnson að endingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.