Morgunblaðið - 21.01.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MJÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976
+ WILNELIA MERCED frá Puertorico var kjörin „ungfrð heimur 1975“. Hún er nú á ferðalagi um
Bretlcnd þvert og endilangt og er myndin tekin á Grosvenor-torgi f London fyrir skömmu. Það leynir
sér ekki að börnin eru hugfangin, en hvort það stafar af frásögn stúikunnar af ævintýrum sinum eftir
Miss World-keppnina, eins og UPI-fréttastofan vili vera láta, dæmum við ekki um.
+ Pölitikusar eru lika menn. Mynd þessi var tekin f sfðustu viku f
Kuala Lumpur, höfuðborg Maiaysiu. Hussein Onn, er gegnir starfi
forsætisráðherra til bráðabirgða, kemur grátandi frá
útsendingarstofu maiaysfska sjónvarpsins eftir að hafa tiikynnt
þjóð sinni lát forsætisráðherra landsins, Tun Abdul Razak, mágs
sfns. f London.
+ Okkur gengur það eitt til með birtingu þessarar myndar að
segja frá þvf, að hún er vfst dágóður gftarleikari þessi
bráðsnotra kona, en hún heitir Shana Hollands og er frá
Perth f Astralfu. Til marks um hljómlistaráhuga hennar má
geta þess, að hún lætur það ekki eftir sér að svamla f sjó og
flatmaga f f jörusandi, fyrr en gftarstrengirnir glóa f hitanum.
En þá bara brosir hún, sólskinsbrosi, eins og við sjáum á
myndinni.
BOBB & BO
ÞARFTU EKKI AÐ áU ZANNHASTJÓRANN )
FíRÍR AFBORGUN 'l DAG BÖB&Jf)
' --------------------------------
-S/“G-MU/JD
•//S-IQIS
+ Walter nokkur Robinson frá
Fayetteville f Norður-Karólfnu
f Bandarfkjunum getur gengið
á vatni. Hann ver öllum frf-
stundum sfnum f aðaláhugamál
sitt: uppfinningar. Á myndinni
er hann að reyna einskonar
skóhfffar, sem hann hefur búið
tii. Þær eru úr trefjaplasti,
fylltar með piastkvoðu. Hann
er þarna að spranga um
Hudsonflóann, og New York er
f baksýn. Segist uppfinninga-
maðurinn geta gengið allt að
fimm kflómetra á klukkustund
við bestu skilyrði.
Bragi Guðmunds-
son forstjóri
Landmælinga
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
skipað Braga Guðmundsson f
stöðu forstjóra Landmælinga ís-
lands. Tekur hann við af Ágústi
Böðvarssyni, sem gegndi þessari
stöðu um langt árabil en lætur nú
af störfum fyrir aldurssakir.
Staða hans var auglýst laus til
umsóknar f desember og auk
Braga sóttu fjórir um stöðuna,
eins og Morgunblaðið hefur skýrt
frá.
Hinn 9. þ.m. skipaði ráðuneytið
Braga Guðmundsson í stöðuna frá
og með 1. febr.
Bragi er fæddur i Reykjavík, 3.
jan. 1926. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum i
Reykjavik 1946 og prófi í
mælingaverkfræði frá Stokk-
hólmsháskóla 1954. Hann starfaði
hjá Landnámi rikisins og Skipu-
lagi bæja og kauptúna frá
1954—1960, en hefur siðan stund-
að störf i Sviþjóð, þ. á m. sem
kennari við Stokkhólmsháskóla
frá 1964.
Gatnagerð
í Hólahverfi
NÝLEGA voru boðin út verk við
gatnagerð og lagnir i Hólahverfi i
Breiðholti. Tíu tilboð bárust í 2.
áfanga og samþykkt var að samið
skyldi við lægstbjóðanda Völ h.f.,
er býður kr. 27.403.687 í verkið.
Sex tilboð bárust í gatnagerð og
lagnir í 3. áfanga, Norðurhóla og
samið við lægstbjóðanda Aðal-
braut h.f. sem bauð að taka verkið
fyrir 44. 554.306 kr.
Sérstakur
póststimpill
23. janúar
SÉRSTAKUR póststimpill verður
eins og áður hefur verið tilkynnt í
notkun á pósthúsinu i Vest-
mannaeyjum föstudaginn 23.
janúar 1976. Þá verða þrjú ár
liðin frá þvf jarðeldarnir hófust
árið 1973.
Einari Arnalds
veitt lausn
frá embætti
FORSETI Islands hefur hinn 8.
þessa mánaðar samkvæmt tillögu
dómsmálaráðherra veitt Einari
Arnalds hæstaréttardómara lausn
frá embætti frá 1. marz n.k. að
telja samkvæmt ósk hans.
25
^Parsons
Trollkeójur
og lásar
Tryggvagötu 10, sfmar 21915—21286
Nýkomið
mikið úrval af
tréklossum fyrir
dömur og herra
V E R Z LUN IN
GEÍS XBH