Morgunblaðið - 21.01.1976, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 21.01.1976, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JANUAR 1976 Guðmwidur sigraði SKlÐAFÉLAG Reykjavfkur hélt göngumót við Skfðaskál- ann f Hveradölum s.l. sunnu- dag. Göngustjóri var Haraldur Pálsson. Brautin var lögð á flötunum nálægt Hafnarfjarð- arskálanum. Sigurvegari f göngunni varð Guðmundur Sveinsson, SR, sem gekk á 18.34 mfn. Páll Guðbjörnsson SR varð annar á 20,06 mfn. og Jóhann Jakobs- son Hrönn, þriðji á 20,31 mfn. Gestur mótsins var Jónas Guð- laugsson frá tsafirði og gekk hann á 19,55 mfn. 3. stiga frost var, snjókoma en bjart á milli. Hjólaskáli Skíðafélags Reykjavfkur er nú kominn á sinn stað við Hafnar- fjarðarskálann og fór vfgsla hans fram um leið og formað- ur SR, Jónas Ásgeirsson, sleit þessu fyrsta göngumóti ársins sunnanlands. Meistaramót yngstu í Hafnarfirði MEISTARAMÓT hinna yngstu f frjálsum fþróttum verður sunnudaginn 1. febrúar n.k. f Iþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Keppendur eiga að mæta kl. 14.30, en mótið hefst stundvíslega kl. 15.00. Keppnisgreinar í piltaflokki- telpna- og meyjaflokki eru há- stökk með atrennu og lang- stökk án atrennu. I sveina- flokki eru greinarnar; hástökk með og án atrennu og lang- stökk og þrfstökk án atrennu. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt fyrir þriðjudag- inn 27. janúar n.k. ásamt þátt- tökugjaldi, kr. 50,00 fyrir hverja grein til Haralds Magn- ússonar, Hverfisgötu 23 C í Hafnarfirði, sfmi 52403 eða á skrifstofu FTl til Sigvalda Ingimundarsonar sfmi 83386. FRJ með fund Frjálsfþróttasamband Is- lands gengst fyrir fræðslu- og kynningarfundi n.k. laugar- dag. A fundi þessum mun Þor- kell Ellertsson flytja erindi og Friðrik Þór Óskarsson sýnir kvikmyndir sem hann hefur tekið af innlendum og erlend- um fþróttaviðburðum. Er það von FRl að sem flest frjáls- íþróttafólk komi á fundinn sem verður að Hótel Loftleið- um og hefst kl. 15.30. Dregið hjá KKÍ DREGIÐ hefur verið f happ- drætti Körfuknattleikssam- bands lslands. Komu vinning- ar á eftirtalin númer 14779 (Sólarferð fyrir 2), 13521 (Sól- arferð fyrir tvo), 9948 (Tyrk- landsferð fyrir tvo), 12001 (Kaupmannahafnarferð fyrir tvo), 4868 (Sólarferð fyrir einn) og 439 (Sólarferð fyrir einn). Vinningsnúmerin eru birt án ábyrgðar. Landsliðsþjálfarinn Viðar Sfmonarson, leikmaður með FH með Vals- leikmennina Ólaf Benediktsson og Jón Karlsson f kennslustund. I kvöld er það spurningin hver kennir hverjum. Ráðast órslitin í kvöld er FH og Valur mætast í Hafnarfirði RÁÐAST úrslit Islandsmótsins f handknattleik í kvöld, er FH og Valur mætast f tþróttahúsinu f Hafnarfirði? Sigri Valsmenn í þeim leik standa þeir alla vega mjög vel að vfgi f baráttunni um Islandsmeistaratitilinn, en ef FH- ingar sigra hins vegar þá má segja að mótið sé orðið galopið og öll liðin eigi möguleika á sigri f deildinni nema Ármann og Grótta. Þó kann svo að fara að Víkingar missi af lestinni tapi þeir fyrir Gróttu sem verður fyrri leikur kvöldsins, en slfkt verður þó að teljast harla ólfklegt. I fyrri leik Vals og FH, sem fram fór í Laugardalshöllinni vann FH öruggan sigur 21—16, en eftir þann leik tóku Valsmenn- irnir strikið og töpuðu ekki leik í mótinu fyrr en á móti Haukum s.l. sunnudag. Valsmenn verða í kvöld án eins sterkasta leikmanns sins, Stefáns Gunnarssonar, sem meiddist illa á ökkla í leiknum við Haukana á sunriudaginn. Munar um minna fyrir Valsmenn, þar sem Stefán hefur átt mjög jafn- góða leiki í vetur, og er tvímæla- laust einn allra bezti varnarleik- maðurinn í íslenzkum handknatt- leik. Þá er óvist hvort Jón Karls- son verður með í leiknum, en hann hefur dvalið erlendis að undanförnu vegna atvinnu sinn- ar. Þá er einn enn af leikmönnum Valsliðsins að yfirgefa það, Jó- hann Ingi Gunnarsson, sem er á förum til Júgóslavíu, þar sem hann mun stunda íþróttakennara- nám. Fer Jóhann utan í fyrramál- ið, en verður sennilega með Vals- mönnum í leiknum í kvöld. FH-liðið hefur átt mjög mis- jafna leiki í vetur. Því tókst einna bezt upp í leiknum á móti Val í Laugardalshöllinni, en síðan hef- ur á ýmsu gengið hjá því. Tap liðsins fyrir Víkingum á sunnu- daginn, þýðir alls ekki að það hafi átt þar slakan leik. Víkingarnir unnu sigur í þeim leik fyrst og fremst vegna þess að þeir voru við sitt bezta og eru þá mjög sterkt lið. Því er ekki að neita, að markvarzlan hefur verið nokkuð veikur hlekkur hjá FH-ingum að undanförnu og verði hún ekki skárri i kvöld, má búast við erfið- um leik hjá liðinu. Hver svo sem úrslitin verða má bóka að hart verður barizt i kvöld í Hafnarfirði og óhugsandi er að spá neinu um hvorum megin stig- in lenda. Fyrri leikur kvöldsins er milli Gróttu og Vikings og hefst hann kl. 20.00. Mikið má vera, ef Gróttuliðið megnar að veita Vík- ingum mikla mótspyrnu í þeim leik. Fjöpr töp á Ítalín ISLENZKA blaklandsliðið sótti ekki sigra f undankeppni Ólympfuleikanna f blaki á Italfu, fremur en við var búizt. Liðið lék þar fjóra leiki og tapaði öllum með miklum mun. Tveir leikja þessara voru f undankeppni Ólympfuleikanna, en töluverðar breytingar urðu á liðafjölda þeim sem mætti til keppninnar á Italfu. Þannig mættu t.d. ekki lið Knattspyrnuþjálfari óskast Ungmennafélaginu Einherjar Vopnafirði vantar góðan þjálfara fyrir meistaraflokk og yngri flokka félagsins, sumarið '76. Upplýsingar milli kl. 18 og 20 næstu daga í síma 28607, Reykjavík. Venezúela og Indónesfu sem áttu að vera f riðli með tslandi, og ætla má að fslenzka liðið hefði átt mesta möguleika gegn. Fyrsti leikur tslendinganna var við Grikki sem sigruðu í leiknum 15:3, 15:1 og 15:1. Síðan léku Is- lendingar við ítali, sem eiga frá- bæru liði á að skipa, enda fór svo að tslendingar fóru frá þeim leik á núlli. Italia vann 15:0, 15:0 og 15:0, en slíkt er fremur óalgengt i blaklandsleikjum. tslenzka liðiö lék svo tvo auka- landsleiki á Italíu. Fyrst við Bandarikjamenn og tapaði 15:3, 15:5 og 15:6. Verður sú frammi- staða íslenzka liðsins að teljast allgóð ef tekið er tillit til þess að Bandaríkjamenn eiga ágætt blak- landslið. Síðast var svo leikið við Tyrki, sem einnig unnu leikinn 3:0, en þeim veitti íslenzka liðið töluverða keppni, þar sem hrin- urnar fóru 15:12, 15:7 og 15:3. Slenmark með 1 stigs imta BEZTU skI5amenn heimsins I alpagreinum voru á ferðinni i Morzine i Frakklandi um helgina, en þar var keppt i bruni og stórsvigi Var hörð keppni milli þeirra um sekúndubrotin. og má Ijóst vera að keppnin um heimsbikarinn i ár verður óvenjulega hörð og tvlsýn. í stórsvigskeppn- inni sigraði ítalinn Franco Bieler á 2:59,32 min. Landi hans Piero Gros varð i öðru saeti á 2:59,78 min. og Sviinn Ingemar Stenmark varð i þriðja sæti á 3:00,31 min. i brunkeppninni bar Franz Klammer, Austurríki sigur úr býtum á 1:54.24 min. Svisslendingurinn Bernhard Ruddi varðannará 1:54,33 min. og þriðji varð Austurrikismaðurinn Anton Steiner á 1:54,88 mln. Svigkeppnin um heimsbikarinn stendur nú þannig að Ingemar Stenmark hefur forystu með 141 stig, Piero Gros er i öðru sæti með 140 stig. Franz Klammer, Austurríki, er með 131 stig, Gustavo Thoeni frá Ítaliu er með 106 stig, Hans Hinterseer frá Austurriki er með 80 stig, Herbert Plank, ítaliu, með 71 stig. Philippe Roux frá Sviss er með 69 stig, Bernhard Russi með 64 stig, Walter Tresch, Sviss, er með 63 stig og i 10. sætinu er Franco Bieler með 48 stig. JVorðmenn nnnu Polar Cnp Norðmenn urðu sigurvegarar i svonefndri Polar Cup-keppni i hand- knattleik sem fram fór i Noregi i siðustu viku, en auk þeirra tóku Júgóslavar, Búlgarar og Frakkar þátt i keppninni. I úrslitaleik sigruðu Norðmenn Júgóslava 20—18 i mjög skemmtilegum leik, þar sem staðan var 9—8 fyrir Norðmenn i hálfleik. I leik þessum var Allan Gjerde markhæstur með 6 mörk og Erik Nessem skoraði 5. Pavicevic varð markhæstur Júgóslavanna með 8 mörk. Úrslit einstakra leikja i keppninni urðu þessi: Noregur — Júgóslavta 20—18, Noregur — Frakkland 25—20, Noregur — Búlgaria 30—19. Frakkland _____ Búlgaria 20—26, Frakkland — Júgóslavía 16—21, Júgóslavia _ Búlgaria 31—26. Berne vann Frakkana BSV Berne frá Sviss sígraði franska liðio Paris University Club i seinni leik liðanna i undanúrslitum Evrópubikarkeppni bikarliða i handknattleik. en leikið var I Berne um siðustu helgi. Urðu úrslit leíksins 24—19 fyrir Svisslendingana, eftir að staðan hafði verið 11 — 9 i hálfleik. Komst svissneska liðið áfram i keppninni á hag- stæðari markatölu, eða 40 mörkum gegn 39. Undankeppni kvenna í blaki Þessa dagana stendur yfir I Vestur-Þýzkalandi undankeppni kvenna ( blaki fyrir Ólympiuleikana i Montreal I Kanada. Taka margar þjóðir þátt f keppninni, en sigurvegari i henni kemst í lokakeppnina i Montreal. Var liðunum skipt i tvo riðla til að byrja með og urðu Bandarikin og Búlgaria sigurvegarar i a-riðlinum, en Austur-Þýzkaland og Pólland i b-riðlinum. Þessar fjórar þjóðir keppa siðan um sætið i úrslitakeppninni og eru austur-þýzku stúlkurnar álitnar sigurstrang- legar. Debernard sýidi iirjgíSi CANIELLE Debernard. er hlaut silfurverðlaun I svigi á Ólympiuleik- unum i Sapporo 1972, er greinilega i mjög góðu formi um þessar mundir. Það sýndi hún bezt er hún sigraði i stórsvigskeppni sem fram fór i Berchtesgaden i Vestur-Þýzkalandi um siðustu helgi, en keppni þessi var liður i heimsbikarkeppni kvenna á skiðum. f Berchtesgaden var einnig keppt i svigi og hroppti Debernard þar annað sætið. Varð þessi árangur hennar til þess að hún er nú komín i þriðja sætið i stigakeppninni um heimsbikarinn og hefur hlotið 112 stig. f forystu ( stigakeppninni er Rosi Mittermaier frá Vestur-Þýzkalandi, sem hlotið hefur 1 59 stig, og i öðru sæti er Lise Marie Morerod frá Austurriki, sem hlotið hefur 120 stig Morerod varð önnur i stórsvigs- keppninni i Berchtesgaden á 1:02,24 min„ en timi Debernard var 1:02,1 7 min. þannig að mjótt var á mununum. Þriðja I keppninni varð Monika Kaserer frá Austurriki á 1:02.64 mln. og i fjórða og fimmta sæti urðu frönsku stúlkurnar Patricia Emonet og Fabienne Serrat. Eftir keppnina sagði Debernard i viðtali við blaðamenn að hún teldi sig eiga mjög góða möguleika á gullverðlaunum I Innsbruck. Æfingar hennar hefðu verið mjög strangar að undanförnu og þær hefðu verið miðaðar við að hún næði slnu bezta á Ólympiuleikunum, og teldi hún árangurinn i mótinu um helgina sanna að hún væri á réttri leið. Pnttemans og Lismot nnnn Belgíski hlauparinn Emile Puttemans sigraði i 12.000 metra viða- vangshlaupi sem fram fór í Meitingen i Vestur-Þýzkalandi um helgina. Hljóp hann vegalengdina á 41,49 minútum. Hlauparar fré sex þjóðum tóku þátt i hlaupi þessu og urðu Vestur-Þjóðverjar i niu næstu sætunum á eftir Puttemans. f kvennahlaupinu sem var um 3.000 metrar sigraði Barbara Will frá Vestur-Þýzkalandi á 14:08,6 min. Puttemans var ekki eini Belgiumaðurinn sem bar sigur úr býtum i viðavangshlaupum um helgina. þar sem landi hans Karel Lismont sigraði i alþjóðlegu viðavangshlaupi sem fram fór i Brúgge i Belgiu. Hljóp hann vegalengdina, 9 kilómetra, á 26:39 min. Annar i þvi hlaupi varð Eddy van Mullen frá Belgtu á 26.40 min. og þriðji varð Steve Ovett frá Bretlandi á 26.52 min. Pflug á fnllri ferð að «ýji VESTUR-þýzka stúlkan Monika Holzner Pflug, sem hlaut gunverðlaun I 1000 metra skautahlaupi á Olympiuleikunum I Sapporo 1972, verður meðal keppenda á leikunum sem hefjast i Innsbruck I febrúar. Á sunnudaginn náði hún lágmarki þvi sem vestur-þýzka Olympiu- nefndin hafði sett fyrir þátttöku á leikunum, er hún sigraði i 500 metra skautahlaupi á móti i Inzell á 44,43 sek. Lágmarkið var 44,90 sek. Siðan á Sapporo leikunum hefur Pflug lltið keppt, enda staðið i barneignum, en hún virðist vera fljót að ná sér á strik og likleg til góðra afreka í Innsbruck Fredericia sló Sparía út Fredericia KFUM frá Danmörku tapaði fyrir Sparta frá Finnlandi i seinni leik liðanna í Evrópubikarkeppni meistaraliða i handknattleik sem fram fór i Helsinki um helgina. Urslitin urðu 20—16. en danska liðið vann fyrri leikinn 26—11, þannig að það heldur áfram i keppninni með samanlagða markaskorun 46—27.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.