Morgunblaðið - 13.03.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976
5
Tónlistarskóli Garðabæjar heldur miðsvetrartónleika í
Garðakirkju, sunnudaginn 14. mars kl. 16.00.
Dagskráin er fjölbreytt og vænst er, að sem flestir
gestir komi. Skólabíllinn fer frá Barnaskóla kl. 15.45
og aftur til baka að tónleikunum loknum.
„Ekki ætlast til vinnu íslenzkra
málmiðnaðarmanna við flugskýlið”
— segir Ásgeir 1 Sindra
ASGEIR Einarsson forstjóri
Sindra haföi samband við
Morgunblaðið í gær og kvartaði
yfir þvi að í sambandi við útboð á
byggingu flugskýlis á Reykja-
víkurflugvelli væri ekki gert ráð
fyrir því að íslenzkir aðilar gætu
boðið í verkið og þó vantaði mjög
verkefni fyrir málmiðnaðarmenn.
Sagði hann að íslenzkir aðilar
hefðu fengið útboðsgögn á sínum
tíma s.l. ár, en i þeim væri gert
ráð fyrir að þeir sem biðu í verkið
létu sjálfir hanna tillögur að
skýlisgerð, því aðeins væru gefn-
ar upp tölur um stærð þess í út-
boðinu. ,,Við hefðum talið eðli-
legra“, sagði hann, „að flugmála-
stjórn hefði látið hanna skýlið hjá
verkfræðingum og síðan boðið
verkið út. Með því að ætlast til
þess að mögulegir verktakar láti
hanna verkið getur það kostað
kannski 1 millj. kr. fyrir hvern
íslenzkan verktaka og þó sé ekk-
ert víst að neitt komi út úr því.
Skýli sem þessi eru til tilbúin
erlendis, en um leið og íslenzka
málmiðnaðarmenn vantar verk-
efni og talað er um að styrkja
íslenzkan iðnað eru þetta kynleg
vinnubrögð“.
Morgunblaðið hafði samband
við Gunnar Sigurðsson flugvallar-
stjóra Reykjavikurflugvallar og
innti frétta af þessu máli. Sagði
hann að Sindri hefði eins og fleiri
aðilar fengið útboðsgögn á sínum
tíma eins og aðrir, en ekkert ti 1-
boð sent og ekki heldur rætt mál-
in neitt sérstaklega við þá. Kvað
Gunnar fjölda tilboða hafa borizt
f verkið, en helzt virtust koma til
greina norsk og brezk tilboð.
Hefur verið mælt fremur með
norska tilboðinu, en niðurstöðu er
að vænta innan skamms „Við ætl-
um að koma skýlinu upp fyrir
næsta haust", sagði Gunnar að
lokum:
12 klukku-
stunda mismunur
1 FRÉTT um flóð í ám á Norðaust-
urlandi í Mbl. í gær sagði að flóð-
gáttir í Lagarfossvirkjun hefðu
verið opnaðar klukkan 18.30 Hér
er um mishermi að ræða gáttirnar
voru opnaðar klukkan 06.30 um
morguninn eða 12 klukkustund-
um fyrr en sagði í fréttinni. Sýnir
það, hve brýnt var að opna flóð-
gáttir virkjunarinnar, að starfs-
menn ruku til svo árla morguns
til þess að hleypa vatninu i gegn,
enda hækkaði enn í Leginum eft-
ir að gáttirnar höfðu verið opn-
aðar. Þetta mishermi leiðréttist
hér með og eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar.
Marteinn Hunger Friðriksson
Orgeltónleik-
ar 1 Dómkirkj-
unniámorgun
Á morgun, sunnudag, verða orgel-
tónleikar á vegum Tónlistar-
félagsins í Dómkirkjunni. Þar
leikur Marteinn Hunger Friðriks-
son verk eftir Pál Isólfsson,
Mendelsohn Bartholdy, J.S. Bach,
Þorkel Sigurðbjörnsson og Cesár
Franck.
Tónleikarnir hefjast kl. 17.
Afmælishátíð
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokkurinn efnir til af-
mælishátiðar á sunnudag í tilefni
af 60 ára afmæli flokksins.
Verður hún að Hótel Sögu og
hefst kl. 2 e.h.
Þar flytja ræður Emilia
Samúelsdóttir, Benedikt Gröndal,
Emil Jónsson, Jóhanna Egils-
dóttir og Finnur Torfi Stefánsson
en veizlustjóri er Árni Gunnars-
son.
Blika-bingó
Fram til þessa hafa birst 21
tala. Þær eru þessar: 1-29, B-6,
1-19, 1-24, G-59, 0-61, 0-69, 1-25,
G-55, 1-18 , 0-66, 0-77, G-60, 1-28,
1-26, 1-21, 1-23, 0-74, G-48, 1-20,
B-9.
Næstu 3 tölur eru: 0-62, B-ll
ogG-46.
Bingó skal tilkynna i síma
40354 eða 42339.
I Tr 1' 'D I \ ...
íjotið þess öryggis sem góð heimilistrygging veitir.
Heimilistrygging
Samvinnutrjgginga er:
Trygging á innbúi
gegn tjóni af völdum eldsvoða og margra annarra skaðvalda.
Ábyigðartrygging
Bætur greiðast fyrir tjón, sem einhver úr fjölskyldunni veldur
öðru fólki,sbr.nánari skilgreiningar í skilmálum tryggingarinnar.
Örorku og/eða dánartrygging
heimilisfólks við heimilisstörf.
samvi > rs iritYi inííar gt
ÁRMÚLA3- SlMl 38500
SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFÉLAG.