Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.03.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976 11 [3 Roussel: Q Bakkusog Aríana □ Stravinský: □ Fiðlukonsert í D-dúr Q Tsjaikovský: Q] Sinfónía nr. 6. op. 74 Q Einleikari: [j Guðnv Guðmundsdóttir Q Stjórnandi: □ Karsten Andersen Fyrir mina parta er Roussel ekki skemmtilegt tónskáld. Með þekkjngu og tækni skapar hann eitthvað sem er áberandi og glæsi legt. Þessa innihaldslausu glæsimennsku verður að fram- reiða á viðeigandi hátt, þvi ekki er innhaldið svo beysið að það þoli slakan flutning. Hvaða erindi þessi tónlist á við ísl. hlustendur er vandséð, nema ef vera kynni sem æfing fyrir hljómsveitina, og mætti þá „upptaka í útvarpssal" nægja Sama ár og þessi Bakkusarballett var uppfærður (1931) var Stravinský að setja saman fiðlukonsert. Hann var ekki aðeins að sýna tækni sína, heldur og að fást við nýjungar í tónhugsun, sem er það eina sem skiptir máli. I báðum þessum verkum var hljómsveitin nokkuð misjöfn sérstaklega í stuttum tón- innskotum, sem bæði þurfa að vera nákvæm í takti og tóntakí. I slíkum tilfellum geta blásturs- hljóðfæri orðið óþægilega áberandi. Þrátt fyrir þessar aðfinnslur, eru blásararnir þeir sem mestar framfarir hafa sýnt á .liðnum árum og eru margir þeirra orðnir býsna góðir, eins og sýndi sig i 6. si'nfóníunni eftir Tsjaikovský. Guðný Guðmundv dóttir lék Stravinský mjög vel. Það er engan veginn auðvelt að leika þennan konsert og kemur þar fleiratil en tækni. Sérkennilg tónhugsun Stravinskýs er ekki eitthvað sem menn bara spila. Það var auðheyrt að Guðnýju læt- ur vel að leika nútímatónlist og á köflum var flutningur hennar mjög góður. Það var margt skemmtilegt og vel gert i 6. Tónllst eftir JÓN ÁSGEIRSSON sinfóníu Tsjaikovskýs og mátti finna að stjórnandinn hafði lagt sig fram við að móta verkið af meiri tilfinningasemi en ísl. hljómleikagestir eru vanir frá hans hendi. Margt hefur verið rit- að um þessa - sinfóníu Tsjaikovskýs og þrátt fyrir meistaralegt handbragð, hefur hún verið talin ofhlaðin til- finningalegri spennu. Hvað sem því liður, er sinfónían meistara- verk. Þá vaknar sú spurning, að ef nútimakenningar um listgildi eru réttar ættu menn að vera löngu hættir að hlusta á slíka tón- list og tónmál hennar orðið með öllu áhrifalaust. A öllum tímum hefur ný tónlist haft gífurleg áhrif og nær útrýmt eldri tónlist, Framhald á bls. 18 Nokkrir nemenda og kennara vélskólans sem sáu um undirbúning Skrúfudagsins. Skrúfudagur Vélskóla Islands HINN árlegi kynningar- og nemenda- mótsdagur Vélskóla islands — skrúfudagurinn — verður laugardag- inn 13. mari I fimmtánda sinn. Vél- skóli íslands. Skólafélagið, Kvenfé- lagið Keðjan og Vélstjórafélag fs- lands standa að skrúfudeginum. Þennan dag gefst vaentanlegum nemendum og foreldrum þeirra og öðrum sem áhuga hafa kostur á að kynnast nokkrum þáttum skólastarfs- ins. Nemendur verða við störf i öllum verklegum deildum skólans, vélasöl- um, raftækjasal, smíðastofum, raf- eindatæknistofu, stýritæknistofu, kæli- tæknistofu og efnarannsóknastofu Framhald á bls. 18 Sinfóníutónleikar 26 önglar Ljósmyndasýning MT, MR og MH 4.300 skölabörn úr 31 sveitarfé- lagi þreyta keppni um umferðarmál hinn 16. marz n.k. Keppni þessi hefur verið haldin 111 ár I Reykjavfk en þetta er i þriðja skipti sem lands- keppni fer f ram. Keppnin hefur ávallt farið fram með þeim hætti að lagt hefur verið fyrir börnin valpróf (krossapróf) með spurningum um umferðarmál og er tilgangurinn að kanna þekkingu skólabarna á um- ferðarreglum og glæða áhuga þeirra á þeim málum. I þetta sinn var ákveðið að bjóða öllum sveitarfélögum Ipndsins með eitt þúsund íbúa og fleiri þátttöku i keppn- mni Þau taka einnig þátt í kostnaði við hana ásamt Umferðarráði og Mennta- málaráðuneytinu. Að spurningakeppn- inni lokinni verða valin 4 börn til að keppa fyrir hönd (slands I 14. alþjóða- reiðhjólakeppni skólabarna sem fram fer i Vínarborg dagana 17 —19 maí n.k Þetta verður I annað sinn sem (sland tekur þátt í þessari reiðhjóla- keppni Siðasta ár fór hún fram í Kaupmannahöfn. í keppninni í Vinarborg taka þátt skólabörn frá u.þ b. 20 þjóðum Keppnin er þríþætt, fyrst fræðilegt próf, þá akstursæfingar og siðast jafn- vægisþrautir á reiðhjólum Keppnin er bæði flokkakeppni og einstaklings- keppni Ferðin til Vinarborgar ásamt uppihaldi er nemendum að kostnaðar- lausu en sveitarfélögin, Umferðarráð og gestgjafarnir I Vinarborg greiða kostnað við ferðina Einn Ijósmyndaranna á sýningunni „26 önglar" við verk sfn. Á MÁNUDAG var opnuó i Menntaskólanum við Hamrahlíð samsýning þriggja menntaskóla á ljós- myndum. Nefnist sýningin „26 önglar“ og eru á henni tæplega 100 ljósmyndir eftir nemendur þessara menntaskóla. Sýningin mun verða flutt á milli menntaskólanna og verða eina viku í hverjum þeirra. Um næstu helgi verður sýningin opin almenningi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Það eru ljósmyndaklúbbar Menntaskólans i Reykjavík, Menntaskólans við Tjörnina og Menntaskólans við Hamrahlíð sem standa að sýningunni og eru allir þeir sem myndir sýna nemendur í þessum skólum. Sýningin verður flutt á milli skól- anna eins og áður sagði. Fer hún næst í MR en síðan í MT í Voga- skóla. Þetta er í fyrsta sinn sem menntaskólarnir halda slíka sam- sýningu og standa vonir til að þetta verði árviss atburður í fram- tiðinni. A laugardag og sunnudag verður sýningin opin almenningi frá 14—22. íslenzk böm á alþjóða- reiðhjólakeppni í Vín Vörumarkaöurinn Leyft verö Okkar verð Lík Torfa fundið Á MÁNUDAGINN fannst lík Torfa Þórðar- sonar stjórnarráðsfull- trúa en hann týndist í desember s.l. á Tenerife á Kanaríeyjum. Torfi var 74 ára. Lík hans fannst í vatnsbóli á akri nokkrum ekki langt frá hótelinu, sem Torfi bjó á. Þykir sýnt að Torfi hafi ætlað að stytta sér leið yfir akurinn en fall- ió í vatnsbólið og hlotið bana af.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.